Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1997, Síða 13
MÁNUDAGUR 1. DESEMBER 1997
13
dv Fréttir
Jólaljósin voru tendruö í miðbæ Reykjavíkur um helgina. Jólamánuöurinn er
hafinn og verslun fer væntanlega aö taka vel viö sér. DV-mynd JAK
Ummæli forsætisráðherra um veiðileyfagjald:
Fráleit hugmynd
- segir Ágúst Einarsson i
Davíð Oddsson forsætisráðherra
sagði á flokksráðsfundi Sjálfstæöis-
flokksins um helgina að veiði-
leyfagjaldið væri orðið að minni
háttar skattamáli. Tiilögur jafnaðar-
manna frá því í fyrra hefðu hljóðað
upp á 15-20 milljarða króna veiði-
gjald en nú væru menn famir að
nefna svo sem eins og einn milijarð.
Ágúst Einarsson, þingmaður jafii-
aðarmanna, sagði við DV að þetta
væri rangt hjá Davíð. „Jafnaðar-
menn hafa alltaf talað um að veiði-
leyfagjald gæti numið 15-20 millj-
örðum þegar kjörstöðu væri náð,
þar sem það væri helmingurinn af
hagnaði í sjávarútvegi. Núna er
hagnaðurinn um fjórir milljarðar.
Því leggjum við til að hagnaðurinn
sé um tveir milljarðar. Við lítum
svo á að veiðileyfagjald eigi að vera
u.þ.b. helmingur af hagnaði í sjávar-
útveginum," sejgði hann.
Ágúst er hins vegar ekki ánægð-
ur með útspil forsætisráðherra.
„Hugmyndir Davíðs um að fyrir-
tækin greiði einn milijarð króna ár-
lega um aldur 6g ævi og séu þar
með laus út úr þessari umræðu eru
fráleitar og um það verður aldrei
sátt í þessu þjóðfélagi," sagði hann.
Ágúst segir að hugmyndir jafnað-
armanna hljóði upp á að veiðleyfa-
gjaldið veröi viðurkennt og notað til
að lækka aðra skatta. Það sé ekki
ætlunin að útgerðarfyrirtæki borgi
alltaf milljarð á ári í nokkurs konar
lausnargjald til að komast hjá um-
ræðunni. „Það er samt ljóst að það
eru að koma brestir í vöm sjáif-
stæðismanna fyrir gjafakvótakerf-
inu. Við munum því fylgja málinu
af alefli eftir,“ segir Ágúst.
-HI
fS"a!!S6l(»
50W
hljómtækjasamstæða
með 61 diska geislaspilara
100w RMS magnara,
FM, MB & LB útvarpi,
tvöföldu segulbandi,
vekjara,
3 Way hátölurum
og fjarstýringu.
+AUTO-.
(BEVEBSE)
IIIDOUVIH
MASH
Staðgreiðsluverð
39.900
krónur
og hljómtækjasamstædur
Þú getur gert frábær kaup í hljómtækjasamstæðum í Japis, hér eru tvö dæmi.
JAPISS
BRAUTAROLTI 2 & KRINGLUNNI SlMI 562 5200
SONY
7 o
hljómtækjasamstæða
með 110w RMS magnara,
1 bita 3 diska geislaspilara Karaoke
Tónjafnari með minni DJmix
FM, MB & LB útvarpi,
tvöföldu segulbandi,
vekjara,
3 Way hátölurum
og fjarstýringu.
sídurnar
eru i
símaskránni