Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1997, Page 19

Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1997, Page 19
MANUDAGUR 1. DESEMBER 1997 menning Grýla í öllu sínu veldi. Mynd Þórarins Gunnarssonar Blöndal. Lengi lifi Grýla Tröllskessan og jólasveinamamman Grýla er viðfangsefni Gunnars Helga- sonar, leikara og rithöfimdar, í nýrri bók sem heitir einfaldlega Grýla. Þar segir frá Grýlu, jólasveinum og öðrum fjölskyldumeðlimum, jólahaldi þar á bæ, jólakettinum og fleiru skemmti- legu. Gunnar leitast við að samræma ýmsar munn- mælasögur um Grýlu, bæði gaml- ar og nánast gleymdar og þær sem eru nýrri af nálinni, og tengja þær með eigin skáldskap. Hann reynir að skapa tengingar og sýna fram á þró- un þar sem það á við, til dæmis á háttalagi og klæðnaði jólasveinanna, og tekst það sérlega vel. Úr verður hressileg frásögn sem Grýla segir sjáif og henni vefst ekki tunga um tönn. Bókin er óvenjulöng ef miðað er við aðrar bækur fyrir þann aldurshóp sem ætla mætti að hefði mest gaman af henni en hún er svo skemmtileg að hún heldur athygli forskólabama allan tímann. Þar að auki er hún kaflaskipt þannig að ef lestrartíminn er af skom- um skammti er óþarfi að lesa hana alla í einu. Það virðist samofið eðli mannsins að skelfast og bjóða við samruna manns og dýrs. Þær verur sem hafa verið hvað ógurlegastar í bókmennt- um og trúarbrögðum í gegnum aldim- ar em í mannsmynd en hafa þó ýmis dýrsleg einkenni. Skrattinn sjálfúr hef- ur hom, hala og klaufir, þó ætla mætti að illt innræti hans væri hveijum manni nóg. Stundum er iiiskan ekki einu sinni til staðar. í elstu sögunni um Fríðu og dýrið felst óhugnaður sk- rýmslisins aðeins í dýrslegu úthtinu. Það eina sem Fríða þarf að gera er að elska hans ljúfa og blíða innri mann. íslensk böm em ekki svo heppin. Grýla Gunnars Helgasonar étur böm eins og Grýla þjóðsagnanna en það er lán í óláni að hún étur aðeins virkilega óþekk og vond böm. Hér er þó ekki verið að hræða saklaus böm á mannáti og skessulátum. Það er nefnilega ógerlegt að vera bæði hræðilegur og fyndinn og þegar Grýla kitlar hláturtaugamar er óþarfi að hræðast hana. Gunnar á því hrós skilið fyrir að opna umræðuna um þennan mesta skelfi íslenskra bama. Hann á einnig hrós skihð fyrir að draga fram i dagsljósið ýmsar hlið- ar Grýlu, t.d. fyrri eiginmenn hennar, Bola, sem lesa má um í Þjóðsögum Jóns Ámasonar, og Gust, sem ég þekkti ekki áður. Bókina prýða myndir Þórarins Gunnarssonar Blöndal. Þær era fyndn- ar og sniðugar skrípamyndir og hæfa sögunni vel. Takk fyrir mig. Gunnar Helgason: Gryla Myndir gerði Þórarinn Gunnarsson Blöndal Hólar 1997 Bókmenntir Margrát Tryggvadóttir Smáauglýsingadeild DV er opin: • virka daga kl. 9-22 • laugardaga kl. 9-14 • sunnudaga kl. 16-22 Tekið er á móti smáauglýsingum til kl. 22 til birtingar nœsta dag Ath. / Smáauglýsing i Helgarblað DV þarf þó að berast okkur fyrir kl. 17 á föstudag Smáauglýsingar inrrai 550 5000 19 NSX-AV65 St l U7f» Á I 1 3-Diska geislaspilari • Magnari 15+15 W RMS • SUPER T-BASSI • Hægt er að tengja myndbandstæki við stæðuna • KARAOKE hljóðkerfi • Hægt er að tengja hljóðnema við stæðuna • Fyrirfram forritaður tónjafnari með ROCK-POP-JAZZ Al leidsögukerfi með Ijósum • 32 stöðva minni á útvarpi, klukka, timer og svefnrofi • Tengi fyrir aukabassahátalara (Super Woofer) • Tvöfalt segulband Fjarstýring • Segulvarðir hátalarar. 3-Diska geislaspilari • Magnari 45+45 W RMS • SUPER T-BASSI (3ja þrepa) Hægt er að tengja myndbandstæki við stæðuna • KARAOKE hljóðkerfi með sjálfvirkum radddeyfi • Hægt er að tengja hljóðnema við stæðuna • Fyrirfram forritaður tónjafnari með ROCK-POP-CLASSIC • Nýr fjöllita skjár Al leiðsögukerfi með Ijósum • 32 stöðva minni á útvarpi, klukka, timer og svefnrofi • Tengi fyrir aukabassahátalara (Super Woofer) • Tvöfalt auto reverse segulband • Fullkomin fjarstýring fyrir allar aðgerðir • Segulvarðir hátalarar. Þessum hljómtækjum fylgja 5 hátalarar 3-Diska geislaspilari • DOLBY PRO-LOGIG Surround magnari 40+40 W RMS á framhátalara, 25 W RMS á miðjuhátalara, 25 W RMS á bakhátalara • 5 hátalarar fylgja • SUPER T-BASSI (3ja þrepa) • Hægt er að tengja myndbandstæki við stæðuna • KARAOKE hljóðkerfi með DIGITAL ECHO og sjálfvirkum radddeyfi Hægt er að tengja 2 hljóðnema við stæðuna • Fyrirfram forritaður tónjafnari með ROCK-POP-CLASSIC • Nýr fjöllita skjár • Al leiðsögukerfi með Ijósum 32 stöðva minni á útvarpi, klukka, timer og svefnrofi • Tengi fyrir aukabassahátalara (Super Woofer) • Tvöfalt auto reverse segulband • Fullkomin fjarstýring fyrir allar aðgerðir • D.S.P. „Digital signal processor" fullkomið surround hljómkerfi sem líkir eftir Disco-Hall-Live • Segulvarðir hátalarar. . 197Í2rL9|97 ; ■ 1998 hljómtækin frá aiwa eru kraftmikil, hljómgóö og nýstárleg í útliti. Taekin eru hlaöin öllum tækninýjungum sem völ er á. Komið og kynnist hljómtækjum í algjörum sérflokki. RflDIOBÆR Ármúla 38 • Sfmi 553 1133 UMBOÐSMENN AIWAUM LAND ALLT: Reykjavík: Heimskringlan Kringlunni - Hafnarfjörður: Rafbúð Skúla - Grindavík: Rafeindaþjónusta Guðmundar - Keflavík: Radíókjallarinn - Akranes: Hljómsýn - Borgarnes: Kaupfélag Borgfirðinga - Blönduós: Kaupfélag Húnvetninga Hvamstangi: Rafeindaþjónusta Odds Sigurðssonar - Sauðárkrókur: Skagfirðingabúð - Búðardalur: Verslun Einars Stefánssonar Bolungarvík: Vélvirkinn - ísafjörður: Ljónið / Frummynd - Siglufjörður: Rafbær - Akureyri: Tölvutæki Bókval - Húsavfk: Ómur Vopnafjörður: Verslunin Kauptún - Egilsstaðir: Rafeind - Neskaupsstaður: Tónspil Eskifjörður: Rafvirkinn - Seyðisfjörður: Turnbræður - Höfn: Rafeindaþjónusta BB - Hella: Gilsá - Selfoss: Radíórás - Þorlákshöfn: Rás - Vestmannaeyjar: Eyjaradió

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.