Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1997, Qupperneq 42

Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1997, Qupperneq 42
50 MÁNUDAGUR 1. DESEMBER 1997 Afmæli__________________________ Douglas Alexander Brotchie Douglas Alexander Brotchie, for- stöðumaður Reiknistofnunar Há- skólans, til heimilis að Efstasundi 79, Reykjavík, er flmmtugur 1 dag. Starfsferill Douglas fæddist í Edinborg í Skotlandi og ólst þar upp til átján ára aldurs. Hann stundaði nám við George Heriot’s School í Edinborg 1953-66 og við St Andrews háskól- ann i Austur-Skotlandi en þar er elsti háskóli Skotlands, stofnaður 1414. Hann lauk B.Sc.-prófi í efna- fræði 1970, Ph.D.-prófi í rannsókn- um í skammtaefnafræði 1973. Douglas starfaði hjá Burroughs Machines í Skotlandi og Englandi 1973-80 og var þar undir lok ábyrg- ur fyrir deild sem sá um tæknilega þjónustu við Burroughs-stórtölvur í Skotlandi. Douglas fór síðan til Ósló og var þar verkefnastjóri hjá Burroughs Machines í Noregi, 1980-1981. Þaðan fór Douglas til íslands þar sem hann starfaði hjá SKÝRR 1981-1991), fyrst sem kerfisforritari, þá deild- arstjóri og loksins fram- kvæmdastjóri tæknisviðs fyrirtækisins. Hann var ráðinn forstöðumaður Reiknistofnunar Háskól- ans 1991. Douglas hefur haldið fjölda fyrirlestra í Skotlandi, á Norðurlönd- um og á íslandi um mál- efni tengd tölvum, tölvu- stýrikerfum, skipulag og stefnumótun í þeim efn- um og upplýsingatækni. Hann hef- ur veitt fyrirtækjum ráðgjöf á því sviði, skrifað greinar, t.d. í DV, um tölvumál og í tímarit Skýrslutækni- félagsins. Douglas lærði á píanó frá sex ára aldri og á orgel frá fermingaraldri. Var fastráðinn organisti og kór- stjóri við Balerno-sóknarkirkju í grennd við Edinborg sextán ára gamall. Var um tíma tónlistargagn- rýnandi DV og var löngu áður tón- listargagnrýnandi fyrir stúdentablaðið „Aien“ í St Andrews á meðan hann var háskólastúdent þar. Douglas hefur þreytt einleikarapróf í orgelspili frá Tónskóla þjóðkirkj- unnar, undir leiðsögn Harðar Áskelssonar org- anista. Hann hefur í org- elspilamennskunni lagt sérstaklega áherslu á org- eltónlist Johanns Sebasti- an Bach og Oliviers Messiaen og er sérfróður þar um. Þá hefur hann haldið fjölda tónleika bæði sem einleikari og orgelleikari með kórum, t.d. á kirkjulistahátíð hér í Reykjavík og kirkjutónlistarhátíð í Gautaborg í Svíþjóð í september 1996. Hefur spilað sem organisti inn á fjóra geisladiska með ýmsum kórum en þrír þeirra koma út nú fyrir jól. Douglas er annar organisti kaþólsku dómkirkju Krists kon- ungs, Landakotskirkju, spilar oft í Hallgrímskirkju, er viðhafnar- organisti við Árneskirkju 1 Tré- kyllisvík á Ströndum og hefur spil- að í mörgum öðrum kirkjum. Stutt sjónvarpsmynd var gerð 1992 i þáttaröðinni „Fólkið í land- inu“ um starfsemi afmælisbarns með sérstaka áherslu á organista- starf í Ámeskirkju á Ströndum. Douglas hefur lengi verið í stjórn Skýrslutæknifélags íslands, og er þar nú varaformaður. Hann situr einnig í stjórn skjalasafns HÍ. Áhugamál hans eru fjölmörg, fyrir utan tónlist, s.s. myndlist, bók- menntir, ferðalög, gönguferðir, rækta vinskap, andleg málefni og nú síðast jóga. Bróðir Douglas er Alan W. Brotchie, f. 29.5. 1938, byggingaverk- fræðingur, búsettur í Skotlandi. Foreldrar Douglas voru M. Wini- fred Jones Allan f. 6.9. 1911, d. 6.11. 1992, í Edinborg og F. Walter Alex- ander Brotchie f. 14.8.1911, d. 25.8. 1974 (Edinborg). Douglas Alexander Brotchie. Axel Kristjánsson Axel Kristjánsson verkamaður, Þorsteinsgötu 21, Borgarnesi, er ní- ræður í dag. Starfsferill Axel fæddist í Grísatungu í Staf- holtstungum 1 Borgarfirði og ólst þar upp til sjö ára aldurs en flutti þá með foreldrum sínum og systkinum í Borgames þar sem foreldrar hans byggðu hús við Borgarbraut. Axel var vinnumaður á sveita- bæjum í Borgarfírði, var til sjós á vertíð í Vestmannaeyjum einn vet- ur og síðan háseti á Lagarfossi. Þá var hann í vegavinnu við lagningu vegarins yfir Holtavörðuheiði um 1930. Axel stundaði almenna verka- mannavinnu í Borgarfirði, vann þar hjá breska setuliðinu, var í bygging- arvinnu hjá Kaupfélagi Borgfirð- inga, stundaði uppskipun, pakkhús- vinnu og starfaði í sláturhúsi KB. Hann starfaði hjá Borgarnes- hreppi 1961-79 m.a. við vegagerð, vatnslagnir, skolplagnir, rafmagns- og símalagnir. Axel byggði sér og fjölskyldu sinni hús við Þorsteinsgötu á árun- um 1957-58 og hefur átt þar heima síðan. Hann var einn af stofnendum Verkalýðsfélags Borgarness og Kommúnistaflokksins þar og hlut- hafi í Kaupfélagi Borgfirðinga. Fjölskylda Axel kvæntist 26.6. 1938 Ingi- björgu Jónsdóttur, f. 16.6. 1907, d. 19.2.1970, húsmóður. Hún var dóttir Jóns Júlíusar Bjamason- ar og Dorotheu Kristínar Múller, í Stykkishólmi og í Reykjavík. Sonur Axels og Ingi- bjargar er Jón Júlíus, f. 12.9. 1937, verkamaður í Borgarnesi, er heldur heimili með föður sínum. Systkini Axels: Sigríð- ur, f. 14.10. 1893, d. 12.3. 1976, húsmóðir í Borgar- nesi; Kristín Sigurlaug, f. 22.1. 1896, d. 30.4. 1983, húsfreyja að Dagverðarnesi í Skorradal; María, f. 24.12. 1897, d. 4.6. 1983, búsett í Reykjavík; Stein- unn, f. 28.4. 1901, d. 15.9. 1983, búsett í Borgarnesi; Helgi, f. 1.1. 1903, d. 21.3. 1985, búsettur í Reykjavík; Ingvar, f. 4.10. 1904, d. 5.12.1987, bifreiðaeftirlits- maður í Reykjavík; Hall- dóra, f. 9.6. 1906, búsett í Reykjavík; Karl, f. 8.4. 1909, d. 26.5. 1982, búsett- ur í Reykjavík; Ágúst Hannibal, f. 2.8. 1911, d. 114.12. 1990, lögreglumað- ur í Reykjavík; Davið, f. 17.2. 1913, d. 17.12. 1939; Emilía Katrín, f. 19.10. 1917. Foreldrar Axels voru Kristján Kristjánsson, f. 7.10. 1869, d. 10.9. 1949, bóndi í Grísatungu og síðar verkamaður í Borgarnesi, og Þuríður Helgadóttir, f. 26.10. 1870, d. 15.6. 1959, húsmóðir. Axel Kristjánsson. Síðustu ár hefur skátahreyf'mgin selt sígræn eðaltré, í hæsta gæðaflokki og prýða þau nú mörg hundruð íslensk heimili. i*. 10 ára ábyrgð 10 stærðir, 90 - 370 cm >»■ Stálfótur fylgir Ekkert barr að ryksuga t*. Truflar ekki stofublómin ?». Eldtraust *»■ Þarf ekki að vökva *■». Islenskar leiðbeiningar **■ Traustur söluaðili Skynsamleg fjárfesting / {Jrval -960síðuráári- fróðleikur og skemmtun sem lifir mánuðum og árumsaman DV Tll hamingju með afmælið 1. desember 80 ára Guðbergur O. Guðjónsson, Blesugróf 25, Reykjavík. Guðmundur Eiðsson, Lindasíðu 4, Akureyri. 75 ára Guðmundur Arnaldur Guðnason, Aðalgötu 22, Suðureyri. Gunnar H. Jónsson, Bogahlíð 10, Reykjavik. Sigríður Benediktsdóttir, Eyjaholti 10 A, Garði. Sigríður Jónsdóttir, Lagarási 12, Egilsstöðum. 70 ára Guðmxmdur Helgason, Akm-gerði 60, Reykjavík. 60 ára Eygló Óskardóttir, Sóleyjargötu 10, Vestmannaeyjum. Guðbjartur Guðmimdsson, Húnabraut 34, Blönduósi. Halldór Valgeirsson, Laufbrekku 30, Kópavogi. Sigurður Sigurðsson, Lækjarkinn 6, Hafnarfirði. Þórhallur Guðmundsson, Háholti 21, Keflavík. 50 ára Ágústína Ólafsdóttir, Hraukum, Djúpárhreppi. Börkur Karlsson, Freyjugötu 10 A, Reykjavik. Einar J. Sigurðsson, Álftahólum 4, Reykjavík. Einar Ólafsson, Látraseli 5, Reykjavík. Erlingur Guðmundsson, Engihjalla 9, Kópavogi. Guðrún Egilsdóttir, Holtsseli, Akureyri. Gunnar Kai l Jónsson, Síðumúla 21, Reykjavík. Sesselja Hákonardóttir, Dalbraut 43, Akranesi. Sigurður Aðalsteinsson, Björgum III, Arnarneshreppi. Þórey Þorkelsdóttir, Grundarási 9, Reykjavík. 40 ára Ásdís Sigurðardóttir, Logalandi 25, Reykjavlk. Hildur Jóna Mikkaelsdóttir, Hamrabergi 4, Reykjavík. Lilja Hallsdóttir, Mosarima 7, Reykjavík. Unnur Runólfsdóttir, Grænukinn 21, Hafnarfirði. Þórunn Svava Guðmundsdóttir, Lindarbyggð 3, Mosfellsbæ. 34.9009 N -770 » Magnari: 2x1 OOw (RMS, 1kHz, 8£2) ■ Útvarp: FM/AM, 24 stöðva minni • Geislaspilari: Tekur 26 diska • Segulbandstæki: Tvöfalt Dolby B • Hátalarar: Þrískiptir 100w (DIN) N -170 Magnari: 2x25w (RMS, 1kHz, 6£2) Útvarp: FM/AM, 30 stöðva minni Geislaspilari: Þriggja diska Segulbandstæki: Tvöfalt Hátalarar: Tvískiptir 30w (DIN) PIONEER N -470 Magnari: 2x70w (RMS, 1kHz, 6n) Útvarp: FM/AM, 24 stöðva minni Geislaspilari: Einfaldur „Siot ln“ Segulbandstæki: Tvöfalt Dolby B Hátalarar: Tvískiptir 70w (DIN) The Art of Entertainment 4* Umbodsmenn um land ailt Reykjavík: Byggt og Búiö Vesturland: Málningarþjónustan, Akranesi. Kf. Borgfiröinga, Borgarnesi.Blómsturvellir, Hellissandi. Guðni Hallgrímsson, Grundarfirði. Ásubúð.Búöardal Vestfirðir: Geirseyrarbúöin, Patreksfiröi. Rafverk, Bolungarvík. Straumur, ísafiröi. Norðurland: Kf. V-Hún., Hvammstanga. Kf. Húnvetninga, Blönduósi. Verslunin Hegri, Sauöárkróki. Hljómver, Akureyri. Kf. Þingeyinga, Húsavík. Austurland: Kf. Héraðsbúa, Egilsstööum. Verslunin Vík, Neskaupstað. Suðurland: Árvirkinn, Selfossi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.