Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1997, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1997, Blaðsíða 2
26 MÁNUDAGUR 1. DESEMBER 1997 ÍS Hamar Breiðablik Selfoss Leiknir R. Staiholtst. 541-529 8 607-582 6 562-580 4 526-636 4 504-711 2 580-687 2 íþróttir Gunnar Már Másson: „Spenntur fyrir Örebro“ Gunnar Már Másson knatt- spymumaður kom heim fyrir helgina frá Svíþjóð en hann æfði I vikutíma með sænska úrvals- deildarliðinu Örebro. „Mér leist mjög vel á liðið og mannskapinn og fannst þettta bara mjög spennandi. Ég fékk ekkert formlegt tilboð en þeir söguðust ætla að vera í sam- bandi við mig eftir að ég kem heim úr ferð landsliðsins til Saudi-Arabíu,“ sagði Gunnar Már i samtali við DV í gær. Gunnar Már, sem leikið hefur með Leiftri á Ólafsfirði síðustu árin, er með lausan samning við Ólafsfjarðarliðið og mun vænt- anlega yfirgefa liðið. KR-ingar töluðu við hann fyrir nokkrum vikum og eins æfði hann með nokkrum félögum i Skotlandi. „Ég er ekki búinn að afskrifa Skotland. Félag í 1. deildinni hef- ur verið í sambandi við umboðs- mann minn en ef þetta verður ekki að veruleika í Svíþjóð eða í Skotlandi leik ég hér heima næsta sumar,“ sagði Gunnar Már. -GH Þorvaldur fór til Öster í gær DV, Ólafsfirði: Þorvaldur Makan Sigbjöms- son, knattspymumaður úr Leiftri, fór til Sviþjóðar í gær og æfir þar með úrvalsdeildarliði Öster næstu daga. Þorvaldur, sem varð þriðji markahæsti leikmaður úrvals- deildarinnar í sumar, er mjög eftirsóttur hér heima. Líklegast er að hann verði með Leiftri eða ÍBV ef hann kemst ekki að ytra. -HJ Þorvaldur Makan Sigbjörnsson. Leiknir R.-ÍS ...............50-81 Stafholtstungur-Snæfell .....72-92 Breiðablik-Þór Þ.............87-96 Stjaman-Hamar................85-74 Snæfell 7 7 0 618-428 14 Stjaman 7 6 1 592-475 12 Þór Þ. 7 6 1 625-547 12 HÖttur 9 5 4 751-731 10 Birkir Kristinsson: „Hef ekki gert upp hug minn“ Birkir Kristins- son, fyrrum lands- liðsmarkvörður í knattspymu sem er á förum frá Brann í Nor- egi, hefur ekki gert upp hug sinn hvar hann leikur á næsta tímabili. Nokk- ur erlend félög hafa sett sig í samband við umboðsmann hans, þar á meðal sænska úrvalsdeild- arliðið Norrköping. Þá hafa félög hér heima rædd við Birki. „Mín mál skýrast ekki fyrr en ég kem heim síðar í vikunni. Það er möguleiki á að ég verði áfram erlendis en einnig sá að ég komi heim,“ sagði Birkir sem staddur er í fríi ásamt fjöld- skyldu sinni á Kanaríeyjum. -GH Hihnar Björns- son úr KR hefur verið valinn í ís- lenska landsliðið í knattspyrnu sem mætir Sádi-Arabíu ytra næsta sunnudag. Hann kemur í stað félaga síns, Einars Þórs Daníelssonar, sem fer i dag til þýska 2. deildarliðsins Zwick- au og verður þar út veturinn. Hilmar hefur áður leikið tvo landsleiki. íslenska liðið fer utan strax i fyrramálið og ferðin tekur heila viku. Að sögn Guðjóns Þórðar- sonar landsliðsþjálfara verður ferðin nýtt til hins ýtrasta og æft alla dagana. -VS Örn Amarson, sá bráðefnilegi sundmaður, krækti bæði í gull- og silfurverðlaun á sænsku úrtöku- móti í Örebro í Svíþjóð um helgina. Öm varð annar í 100 metra baksundi á laugardaginn, synti þá á 58,10 sekúndum og var aðeins 4/100 úr sekúndu á eftir sigurvegaranum, Jakob Andersen frá Danmörku. I gær gerði hann sér síðan lítið fyrir og sigraði í 200 m baksundi en var þó hálfri sekúndu frá sínum besta árangri. Lára Hrund Bjargardóttir setti íslandsmet í 400 metra fiórsundi á mótinu á föstudaginn. Hún synti á 5:08,79 minútum og varð fiórða í greininni. Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir varð önnur í 200 metra baksundi á 2:22,74 mínútum og Hjalti Guðmundsson varð þriðji í 50 metra bringusundi á 30,20 sekúndum. -VS „Allt eru þetta hetjur“ - Jermaine Smith líklega til KR-inga Körfuknattleiksliö KR fær aö öll- um líkindum til liðs við sig nýjan bandarískan leikmann um miðja vikuna í stað Kevins Tucksons sem var rekinn og fór af landi brott í morgun. Flest bendir til þess að sá nýi verði Jermaine Smith, 24 ára bak- vörður frá Las Vegas-háskóla, sem getur bæði spilað sem leikstjóm- andi og skotbakvörður. Til vara eru KR-ingar með tvo aðra bakverði sem heita Marcus Grant og Damell Burton. „Þessi Smith ætti að vera góður kostur fyrir okkur. Hann lék í 1. deild háskólakeppninnar og var þar með 40 prósenta nýtingu í 3ja stiga skotum og skoraði 14 stig að meðal- tali í leik. En þetta er alltaf spum- ing um heppni og aö viðkomandi leikmaður falli inn í liðið. Allt em þetta jú hetjur áður en þeir koma,“ sagði Hrannar Hólm, þjálfari KR, við DV í gær. -vs 1. DEILD KARLA Grikkland: Góður útisigur hjá Arnari Arnar Grétarsson og félagar í AEK eru komnir meö fiögurra stiga for- ystu í grísku 1. deildinni í knattspyrnu eftir 1-2 sigur á Veria um helgina. Arnar lék allan leikinn á miðjunni, byrjaði hægra megin en var fljótlega færður í stöðu vamartengiliðs. „Þetta var mjög góður útisigur því AEK hefur ekki unniö þama í mörg ár,“ sagði Amar við DV í gærkvöld. AEKer með 31 stig en síðan koma Panathinaikos og Olympi- akos með 27 stig en þau mætast í kvöld. Ionikos er líka með 27 stig. -VS Rosenborg vildi Bjarka Norsku meistar- arnir Rosenborg sýndu Bjarka Gunnlaugssyni hjá Molde mik- inn áhuga á dögunum. Að sögn umboðs- manns Bjarka sögðu forráðamenn Rosen- borg við hann að Bjarki væri besti leikmaðurinn sem hefði leikið á móti þeim á tímabilinu og þeir hefðu áhuga á að fá hann til sín. Bjarki var hins vegar ekki spenntur, enda er mikill uppgangur hjá Molde og liðið leikur í Evrópukeppni næsta haust. -DVÓ Hilmar fer í stað Einars Ársþing KSÍ um helgina: Fyrsta konan - kjörin í aðalstjórn sambandsins Anna Vignir var í gær kjörin í að- alstjóm Knattspymusambands ís- lands, fyrst kvenna. Áður hafa kon- ur aðeins komist í varastjóm sam- bandsins. Eggert Magnússon var endurkjörinn formaður til tveggja ára, án mótframboðs. Auk Önnu var Ástráður Gunnars- son kjörinn i stjómina í fyrsta sinn. Jón Gunnlaugsson og Lúðvík Ge- orgsson vom endurkjömir en Helgi Þorvaldsson féll út úr stjórninni í kosningunni. Stefán Gunnlaugsson, Halldór B. Jónsson, Ágúst Ingi Jónsson og Elí- as Hergeirsson eru áfram í stjórn en þeir vom kjörnir til tveggja ára í fyrra. Enn fremur vom landshluta- fulltrúarnir allir endurkjömir, þeir Jóhann Ólafsson, Jakob Skúlason, Rafn Hjaltalín og Albert Eymunds- son. í varastjóm vom kjörnir þeir Einar Friðþjófsson, Gunnlaugur Hreinsson og Björn Friðþjófsson, sem er nýr á þessum vettvangi. Þau Ingibjörg Hinriksdóttir og Guð- mundur Stefán Maríasson voru einnig í kjöri til varastjórnar en náðu ekki inn. Tapið 7,6 milljónir KSÍ var rekið með halla á árinu en tapið nemur 7,6 milljónum króna. Það er helmingi skárri út- koma en á árinu 1996. Sambandið var aö ljúka sínu fyrsta ári í rekstri Laugardalsvallar og hann skilaði tveimur milljónum í hagnað. Þrír útlendingar leyföir Samþykkt var á þinginu að hveiju liði væri heimilt að nota þrjá leikmenn frá löndum utan Evr- ópska efnahagssvæðisins, í stað tveggja áður. Leiftur lagði til að fiór- ir væra leyfðir og tveir mættu vera inná í einu en tillögunni var breytt á þennan hátt. Meðal annarra breytinga má nefna að nú geta tvö lið frá sama fé- lagi ekki mæst í bikarkeppni karla og að tekin verður upp á ný úrslita- keppni í 3. flokki karla. Enn fremur var ákveðið að halda ársþingin framvegis í febrúar og miða reikn- ingsárið við almanaksárið en ekki 1. nóvember eins og til þessa. -VS Góður árangur í Svíþjóð - Örn hlaut gull- og silfurverölaun í Örebro Allt á fullu í Nagano Það styttist óðum í vetrarólympfuleikana f Nagano í Japan. Þar var haldið alþjóðlegt mót í listhlaupi á skautum um helgina, nokkurs konar reynslumót fyrir leik- ana. Ilia Kulik, Evrópu- meistari frá Rússlandi, sigraði í karlaflokki og leikur hér listir sínar. Símamynd Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.