Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1997, Síða 3
MÁNUDAGUR 1. DESEMBER 1997
27
*****?&"'
I En&lan<i^P^a
Svihió&AleQrgia
„Ein besta
glíman lengi"
Ingibergur Sigurðsson úr Víkverja sigraði Jón Birgi Valsson úr KR
í úrslitaglímu í karlaflokki í flokkaglimu Reykjavíkur á laugardaginn.
Pétur Eyþórsson úr Víkverja varð þriðji en keppendur í karlaflokki
voru átta. Nánar verður fjallað um aðra flokka á unglingasíðu DV.
„Þetta var ein besta glíma sem ég hef séð í langan tíma. Menn glímdu
án ofúrkapps og sér til skemmtunar og það þurfti ekki að áminna einn
einasta keppanda. Úrslitabrögðin voru mörg glæsileg og úrslitaglíman
milli Ingibergs og Jóns Birgis var löng og spennandi," sagði Jón M.
ívarsson, formaður glímusambandsins og yfírdómari mótsins, við
DV. -VS
Sveitakeppnin í júdó:
KA varði titilinn
KA-menn vörðu íslandsmeistaratitil sinn í sveitakeppni karla í
júdó þegar þeir báru sigurorð af Ármenningum, 4-3, í úrslitum.
Það var Vernharð Þorleifsson sem innsiglaði sigur KA-manna
þegar hann lagði sjálfan Norðurlandameistarann, Gísla Magnús-
son, á ippon í úrslitaglímunni. Ármenningar byrjuðu betur og
unnu fyrstu tvær viðureignimar. Höskuldur hafði betur gegn Jóni
K. Helgasyni með 10 stigum og Andri Júlíusson sigraði Hilmar T.
Harðarson í spennandi slag. KA-menn jöfhuðu metin í næstu tveim-1
ur glímum. Jónas Jónasson sigraði Vigni Stefánsson á ippon og Sæv-
ar Sigursteinsson hafði hetur gegn Karel Halldórssyni. KA komst í 3-21
þegar Friðrik Blöndal vann Daníel Reynisson á ippon, en Ármenningar'
jöfhuðu metin í 3-3 þegar KA-menn þurftu að gefa glímuna í -95 kg flokknum.
Þaö kom svo í hlut Vemharðs að tryggja KA titilinn. -GH
Iþróttir
Eistland (51)88 ísland (38)791-,
Stig Eistlands: Metstak 18, Pám 15, Liivak 14, Noormets 14, Rumma 11,
Kullamae 8, Pemka 8.
Stig íslands: Teitur Örlygsson 27, Herbert Amarson 16, Guðmundur Braga-
son 12, Guðjón Skúlason 12, Helgi Jónas Guðfmnsson 6, Falur Harðarson 2, Jón
Arnar Ingvarsson 2, Hermann Hauksson 2.
Fráköst: Eistland 40, ísland 24.
Flest fráköst Islands: Guðmundur 7, Herbert 5, Sigfús Gizurarson 3.
3ja stíg;a nýting: Eistland 12/5, ísland 32/14.
3ja stiga körfur íslands: Teitur 7, Herbert 4, Guðjón 3.
2ja stiga nýting: Eistland 45/26, ísland 30/14.
Vítanýting: Eistland 38/21, fsland 19/9.
Villur: Eistland 23, ísland 30 (Jón Amar 5, Sigfús 5, Falur 5).
Bolta stolið: Eistland 2, ísland 8 (Teitur 3).
Dómarar: Claes Ahammar, Svíþjóð, og Boris Schmidt,
Þýskalandi.
Áhorfendur: 1.960.
Guómundur Bragason og Teitur Örlygsson léku
mest hjá íslandi, i 37 mínútur af 40 hvor. Allir spil-
uðu, Friðrik Stefánsson minnst, eða i 7 mínútur.
\
Evrópukeppnin í körfubolta:
Vernharð Þorleifsson:
Þetta var Ijúft
„Þetta var virkilega ljúft því við
ætluðum okkur svo sannarlega að
verja titilinn. Sigurinn gegn Gísla
var tiltölulega léttur og sæt hefnd
frá því við mættumst síðast. Það
hefhr verið mikil uppsveifa í
júdóíþróttinni á Akureyri og
góð uppbygging er að skila
sér,“ sagði júdókappinn Vern-
harð Þorleifsson í samtali við
DV eftir sigurinn í sveita-
keppninni í júdó. -GH
Guðmundur Bragason lék
vel meö fslenska liöinu í
Tallinn. Hann skoraöi 12
stig og tók flest fráköst
íslensku leikmannanna, 7
talsins.
DV-mynd Brynjar Gauti
heitur
en slök vítanýting felldi íslenska liðið í Tallinn
Teltur
Örlygsson lék
mjög vel f
Eistlandi.
í annað skiptið á fjórum dögum
mátti íslenska landshðið í körfu-
knattleik þola naumt tap í riðla-
keppni Evrópumótsins. Eistland
sigraöi ísland, 88-79, í Tallinn á
laugardaginn.
Heimamenn voru yfir allan tím-
ann, 51-38 í hálfleik. í síðari hálfleik
dró saman með liðunum og tveimur
mínútum fyrir leikslok mimaði fiór-
um stigum, 82-78, og allt gat gerst.
Að sögn Jóns Kr. Gíslasonar lands-
liðsþjálfara fékk þá íslenska liðið á
sig umdeilda villu, í stað ruðnings á
Eistlendinga, og missti af tækifæri
til að minnka muninn enn frekar.
„Okkur gekk illa að halda þeim
frá körfunni í fyrri hálfleik. Þá tóku
þeir mikið af sóknarfráköstum og
náöu þessu forskoti. Við löguðum
þetta í síðari hálfleiknum og spiluð-
um þá mun betur en slæm vítanýt-
ing var okkur dýrkeypt á loka-
sprettinum," sagði Jón Kr. Gíslason
við DV eftir leikinn.
íslenska liðið skoraði 14 þriggja
stiga körfur í leiknum og var með
frábæra nýtingu, 43,7 prósent. Teit-
ur Örlygsson fór þar fremstur í
flokki með 7 slíkar körfur í 12 til-
raunum.
„í þessum tveimur leikjum er nýt-
ingin á 3ja stiga skotunum 45 pró-
sent, sem er geysilega gott. Teitur
var mjög heitur, sérstaklega í síðari
hálfleiknum. Nú erum við búnir að
spila tvo fyrstu leiki okkar í þessari
keppni og gætum þess vegna verið
búnir að vinna þá báða. Maður er
enn að svekkja sig á tapinu gegn
Hollandi á miðvikudaginn. En við
höfum þó allavega sýnt að við eig-
um fullt erindi í þessa keppni.l
Það bíður okkar þó heldur erfið-l
ara verkefiii á miðvikudag þegar'
við fáum Króata í heimsókn en I
þeir eru með eitt besta landslið ’
heims. En það verður mjög gaman
að takast á við þá,“ sagði Jón Kr.
Hann sagði að lið Eistlands og
Hollands væru áþekk að styrk-
leika. Eistlendingar væru þó með
sterkari bakverði og spiluöu mjög
gróft.
Auk Teits voru þeir Guðmund-
ur Bragason, Herbert Amarson og
Guðjón Skúlason í aðalhlutverk-
um í íslenska liðinu.
Jón Kr. sagðist gera fastlega
ráð fyrir því að landsliðshópur-
inn yrði sá sami gegn Króötum á
miðvikudag. Allir væru heilir og !
hefðu staðið sig vel. -VS
1. DEIID KVINNA
KR-ÍR........................77-45
ÍS-Keflavlk..................50-64
KR 8 6 2 483-439 12
Keflavik 7 5 2 489-375 10
Grindavík 7 4 3 467-382 8
Is 7 3 4 394-429 6
IR 7 0 7 346-554 0
Breiðablik hætti keppni.
Næsta laugardag mætast Keflavík og
Grindavik, einnig ÍR og ÍS.
KR í toppsætinu
KR er áfram efst í 1. deild
kvenna í körfúbolta eftir auðveld-
an sigur á ÍR í Hagaskóla á laugar-
dag, 77-45. Staðan var 41-17 í hálf-
leik.
Stig KR: Guðbjörg Noríjörð 13,
Hanna B. Kjartansdóttir 12, Sigrún
Skarphéðinsdóttir 11, Kristín B. Jóns-
dóttir 9, Linda Stefánsdóttir 8, Helga
Þorvaldsdóttir 8, Elísa Vilbergsdóttir 8,
Kristin E. Magnúsdóttir 6, Sóley Sigur-
þórsdóttir 2.
Stig ÍR: Gréta Grétarsdóttir 16,
Gunnur Bjamadóttir 11, Tinna Sig-
mundsdóttir 8, Þórunn Bjamadóttir 6,
Þórhildur Eyþórsdóttir 4.
Keflavík vann ÍS
Keflavík vann góðan útisigur á
ÍS, 50-64, eftir 28-35 í hálfleik. ÍS
átti möguleika lengi vel en góður
endasprettur innsiglaði sigur
Keflavíkurstúlkna.
Stig ÍS: María B. Leifsdóttir 12, Alda
Leif Jónsdóttir 9, Signý Hermannsdóttir
8, Kristin Sigm-ðardóttir 7, Hafdís
Helgadóttir 6, Lovísa Guðmundsdóttir 4,
Kristjana B. Magnúsdóttir 2, Þórann
Marinósdóttir 2.
Stig Keflavikur: Jennifer Boucek 19,
Kristin Blöndal 13, Erla Reynisdóttir 12,
Erla Þorsteinsdóttir 11, Anna María
Sveinsdóttir 8, Bryndís H. Magnúsdóttir
1.
-VS
uroaio.töp"
‘ Bosnialagði ^ds íEvrópUá.
74-67, i rlöU líorfuknattle*. * l
tóPPSlun. Það er^Vs\eSasta '
lef\ i riðttnum en v 1
ft&ggsæsi
umerþáþann^- q ^ 4
!St \ \ SS l
Króatta 2 ^ ^ 151-167 ^
Eistland 2 x x 144-Ur ^
Hottand 2 Q 2 162T-U5 ,
«»