Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1997, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1997, Qupperneq 6
30 MÁNUDAGUR 1. DESEMBER 1997 Iþróttir ‘ f 1 i [X#T EH6LAND Úrvalsdeild: Bamsley-Leeds .............2-3 1-0 Liddell (8.), 2-0 Ward (28.), 2-1 Háland (35.), 2-2 Wallace (79.), 2-3 Lilley (82.) Bolton-Wimbledon............1-0 1-0 Blake (89.) Chelsea-Derby...............4-0 1-0 Zola (12.), 2-0 Hughes (35.), 3-0 Zola (66.), 4-0 Zola (77.) Coventry-Leicester .........0-2 0-1 Fenton (32.), 0-2 EUiott (75.) Crystal Palace-Newcastle .... 1-2 0-1 Ketsbaia (45.), 0-2 Tomasson (63.), 1-2 Shipperley (67.) Everton-Tottenham..........0-2 0-1 Vega (72.), 0-2 Ginola (76.) Southampton-Sheff. Wed. ... 2-3 0-1 Atherton (28.), 1-1 Hirst (48.), 2-1 Palmer (55.), 2-2 Collins (69.), 2-3 Di Canio (84.) West Ham-Aston Villa.......2-1 1-0 Hartson (18.), 1-1 Yorke (47.), 2-1 Hartson (47.) Arsenal-Liverpool..........0-1 0-1 McManaman (58.) Manch. Utd-Blackbum .......4-0 1-0 Solskjær (17.), 2-0 Solskjær (52.), 3-0 sjálfsmark Henchoz (60.), 4-0 sjálfsmark Kenna (85.) Manch. Utd 16 10 4 2 40-12 34 Chelsea 16 10 1 5 35-17 31 Blackburn 16 8 6 2 27-17 30 Leeds 16 9 2 5 26-19 29 Arsenal 16 7 6 3 30-18 27 Leicester 16 7 5 4 21-14 26 Liverpool 15 7 4 4 26-14 25 Newcastle 13 7 3 3 18-17 24 Derby 15 7 2 6 28-24 23 Cr. Palace 15 5 4 6 15-17 19 Wimbledon 16 5 4 7 18-21 19 West Ham 15 6 1 8 20-25 19 Aston Villa 16 5 3 8 16-23 18 Sheff. Wed. 16 5 3 8 28-37 18 Coventry 16 3 8 5 13-21 17 Southampt. 16 5 1 10 20-26 16 Tottenham 16 4 4 8 13-22 16 Bolton 15 3 7 5 11-21 16 Bamsley 16 4 1 11 14-43 13 Everton 16 3 3 10 16-27 12 1. deild: Birmingham-Portsmouth........2-1 Bradford-Norwich.............2-1 Charlton-Swindon.............3-0 Huddersfield-Bury............2-0 Ipswich-Nottingham Forest .... 0-1 Middlesbrough-WBA............1-0 Oxford-Port Vale.............2-0 Sheffield United-Crewe ......l-o Stockport-Manchester City .... 3-1 Stoke-Reading................1-2 Sunderland-Tranmere..........3-0 Wolves-QPR ...................3-2 Nott. For. 20 12 5 3 32-16 41 Middlesbro 19 11 5 3 33-16 38 WBA 19 11 4 4 22-14 37 Sheff. Utd 18 9 8 1 26-14 35 Swindon 20 10 4 6 26-27 34 Charlton 19 9 5 5 38-26 32 Stockport 20 9 5 6 33-26 32 Sunderland 19 8 6 5 29-21 30 Wolves 19 8 5 6 24-22 29 Bradford 20 7 8 5 19-19 29 Port Vale 20 7 5 8 25-25 26 QPR 19 7 5 7 25-31 26 Stoke 19 7 5 7 22-23 26 Birmingham 20 6 7 7 20-17 25 Norwich 19 6 4 9 17-29 22 Tranmere 19 6 3 10 26-28 21 Bury 20 4 9 7 21-29 21 Reading 20 5 6 9 19-31 21 Oxford 20 5 5 10 23-28 20 Ipswich 18 4 7 7 20-22 19 Man. City 19 4 6 9 22-24 18 Crewe 20 5 3 12 22-31 18 Huddersf. 20 4 5 11 16-32 17 Portsmouth 18 3 5 10 21-30 14 SKOTIAND Hibemian-Motherwell 1-1 Kilmamock-Dunfermline 2-1 Rangers-St.Johnstone 3-2 Hearts 14 11 0 3 35-17 33 Rangers 15 9 5 1 41-18 32 Celtic 14 9 1 4 26-12 28 Dundee U. 14 5 4 5 27-24 19 Dunferml. 15 5 4 6 21-32 19 St.Johnst. 15 5 3 7 16-22 18 Kilmamock 15 5 2 8 15-32 17 Hibernian 15 3 4 8 21-24 13 Motherwell 15 3 4 8 20-27 13 Aberdeen 14 2 5 7 14-28 11 DV Enska knattspyrnan: Óstöðvandi? - stórsigur Manchester United í viðureign efstu liðanna Leikmenn Manchester United sýndu í gær svo ekki varð um villst að það verður ekki auðvelt að hrifsa enska meistaratitilinn úr þeirra greipum. Þeir mættu Blackbum, sem var í öðru sæti fyrir umferðina, hafði gengið allt í haginn í síðustu leikjum og aðeins tapað einum leik allt tímabilið. En á Old Trafford í gær var engin spuming, meistaramir sigraðu, 4-0, og til að bæta gráu ofan á svart fyrir Blackbum var Chris Sutton rekinn af leikvelli. Norðmaðurinn Ole Gunnar Solskjær skoraði tvö tyrstu mörkin í leiknum. Síðan bættu hinir sterku vamarmenn Blackbum um betur og skoraðu tvö sjálfsmörk. Arsenal varð fyrir miklu áfalli í gær þegar liðið tapaði, 0-1, á heima- velli fyrir Liverpool. Þar með er ekki útlit fyrir að Arsenal nái að fylgja Manchester United eftir í toppslagnum eins og allt stefndi í til skamms tíma. Steve McManaman skoraði eina mark leiks- ins með fallegu skoti. Liverpool lyfti sér upp í 7. sætiö og sigurinn er upp- reisn æra fyrir liðið og ekki síst fyrir Roy Evans, fram- kvæmda- stjóra Liverpool, sem hefur sætt harðri gagnrýni að undanfómu. Chelsea tilbúiö í slaginn Chelsea er tilbúið til að berjast af alvöra um meistaratitilinn. Það sýndi liðið á laugardag í 4-0 sigri á Derby. Vömin, sem var veikasti hlekkur Chelsea í fyrra, hefúr ekki fengið á sig mark í 8 leikjum af 16 og hún var sjaldan í vandræö- um á laugardaginn. Gianfranco Zola lék síðan vamarmenn gestanna grátt og skoraði þrjú mörk - hans fyrsta þrenna á ferlinum, þótt ótrúlegt megi virðast. Enn einn endasprettur Leeds Leeds átti enn einn endasprett- inn og lenti nú 2-0 undir gegn ná- grönnunum í Bamsley. Rod Wallace var í aðalhlutverki en það var vara- maðurinn Derek Lilley sem skoraði sig- urmarkið, 2-3, flmm mínútum eftir að honum var skipt inn á. Crystal Palace nær alls ekki að vinna heimaleiki og beið nú lægri hlut fyrir Newcastle, þrátt fyrir einn _. . . besta leik ...yr Gian- m yW francoZola 1 ÉX/ sýndi snilld- \ f artakta meö f Chelsea á laugar- daginn og geröi sína fyrstu þrennu. Hér er hann f þann veg- inn aö skora fyrsta markiö gegn Derby. Sfmamynd Reuter sinn á tímabilinu. Liðinu hentar best að byggja á skyndisóknum og það hefur fært því marga góða útisigra. Á heimavelli er reynt að sækja meira, með litlum árangri. Mikilvægur sigur Bolton Bolton náði dýrmætum sigri gegn Wimbledon og mjög sanngjömum. Allt stefndi þó í marka- laust jafntefli en á lokasekúndunum náði Nathan Blake að senda boltann í tómt mark gestanna eft- ir sendingu frá Dean Holdsworth. Tottenham vann fallslag gömlu stórveldanna við Everton, 0-2, og Christian Gross gat því fagn- að eftir fyrsta leik sinn með liðið. Staða Everton er orðin mjög alvarleg og lítil teikn á himni um betri tíð. -VS Sutton með nýjan 5 ára samning Chris Sutton, sóknarmaðurinn snjalli, skrif- aði imdir nýjan fimm ára samning við Black- bum á laugardag. Sutton hefúr gengið í gegn- um ýmislegt hjá félaginu og var löngum ósátt- ur við Ray Harford, fýrrum framkvæmda- stjóra. Sutton segir að allt hafi breyst eftir að Roy Hodgson tók við starfmu og auk þess hafi eigandi Blackbum, Jack Walker, reynst sér stórkostlega, sem og öðram leikmönnum. „Hann er eins og faðir okkar, á í okkur hvert bein og hughreystir okkur á erfiðum stundum," segir Sutton um hinn forríka Walker. -VS Christian Gross, hinn svissneski framkvæmdastjóri Tottenham, fagnaöi sigri f fyrsta leik sinum meö liöiö. Símamynd Reuter Alan Sugar, stjómarformaður Tottenham, sendi leikmönnum liðsins tóninn fyrir leikinn gegn Ev- erton. Hann var ræðumaður á nemendakvöldi í Cambridge-háskóla á fóstudagskvöldið og sagði þar að marga leikmanna Tottenham skorti allar taugar til félagsins og væra ekki þess verðir aö klæðast búningi þess. „Sumir svokallaðir stjömuleikmenn, sem hingaö hafa komið, eins og Dumitrescu á sín- um tíma, eyddu meiri tíma í myndatökum á hót- elherbergjum en í æfingar og keppni,“ sagði Sugar. Hans menn bragðust við daginn eftir með langþráðum sigri. Formaður stuðningsklúbbs Tottenham sagði að orð Sugars væra sem töluð úr munni fjölmargra aödáenda félagsins. -VS Hermann Hreiðarsson lék allan leikinn með Crystal Palace gegn Newcastle. Lárus Orri Sigurösson lék allan leikinn með Stoke sem tapaði heima fyrir Reading í 1. deild. Hann fékk á sig vitaspymu í fyrri hálfleik. Bjarnólfur Lárusson kom inn á sem varamaöur hjá Hibemian gegn Motherwell í skosku úrvalsdeildinni á 56. mínútu. Grétar Hjartarson lék siðustu 25 mínútumar með Stirling sem tapaði, 2-0, fyrir Airdrie í skosku 1. deildinni. Stirling er næstneðst. Arnar Gunnlaugsson kom inn á hjá Bolton 15 mínútum fyrir leikslok. Hann var einn fyrir opnu marki ásamt Nathan Blake þegar sá siðamefhdi skoraði sigurmark Bolton. Stuðningsmenn Everton héldu 45 mínútna mótmælafund á Goodison Park eftir tapið gegn Tottenham. Þeir heimtuðu að Peter Johnson, stjómarformaður félagsins, segði af sér. Everton situr á botninum en liðið hefúr leikið samfleytt i efstu deild i 43 ár. Bland í noka Guóni Bergsson lék allan leikinn með Bolton gegn Wimbledon sem hægri bakvörður. Sugar sendi leik- mönnum tóninn „Mín sök“ Hibemian missti af sínum fyrsta sigri í langan tíma í skosku úrvalsdeildinni á laugardag þegar Owen Coyle jafnaði fyrir Motherwell, 1-1, á lokasekúndunum í leik liðanna í Edinborg. Ólafur Gottskálksson landsliðs- Gottskálksson. markvörður tekur markið alfarið á sig. „Þetta var algerlega mín sök. Ég varði auðvelt skot af 25 m færi með því að leggjast niður í hornið. Það var rigning og boltinn háll og einhvem veg- inn skrapp hann frá mér og ég lá bjargarlaus á meöan þeir skoraðu. Þetta var grátlegt, tvö dýrmæt stig í súginn og ég var búinn aö eiga minn besta leik á tímabilinu. Það gleymist allt þegar svona lagað gerist," sagði Ólafúr viö DV. -VS Kevin Ratcliffe, fyrirliði Everton á sigurskeiði félagsins á níunda áratugnum, sagði um helgina að liðið í dag væri ekki tilbúið í slaginn í úrvalsdeildinni. Alan BalL meistari meö Everton 1970, tók dýpra í árinni. Hann sagði að Ev- erton væri eins og brennandi hús, veggimir væru hrundir og ef ekki yrði slökkt strax yröi aðeins aska eftir irnian skamms. Roy Hodgson, framkvæmdastjóri Blackbum, fékk á dögunum fyrirspum frá Arsenal um hvort hann vildi selja Chris Sutton. „Ekki nema þiö viljið selja okkur Dennis Bergkamp,“ var svar Hodgsons og þar með var málið útrætt. Blackburn er, aö sögn Hodgsons, eina lið deildarinnar fyrir utan Manchester United sem þarf ekki að hugsa um peningamálin. „Félagið veður í peningmn og gæti þess vegna kveikt í þeim. Það veröur þó ekki gert!" segir Hodgson. Arsene Wenger, framkvæmdastjóri Arsenal, sagði í blaðaviðtali 1 gær að fé- lagið yrði aö byggja nýjan völl til að vera samkeppnishæft við stóm félögin í Englandi og á meginlandinu. Ólíklegt er að félagið fái að stækka Highbury, sem tekur aðeins 38 þúsund áhorfendur. Miðað við eftirspum er félagið að tapa háum fjárhæðum á hverjum heimaleik því mun færri komast að en vilja.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.