Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1997, Blaðsíða 2
24 kvikmyndir
L.A. Confidental ★★★★
Skuggahliöar Los Angeles sjötta áratugar-
ins er sögusviöiö 1 óvenju innihaldsríkri og
spennandi sakamálamynd sem enginn ætti
aö missa af. Spilltar löggur, ósvífnir
æsífréttamenn, melludólgar og glæsilegar
vændiskonur eru á hverju strái. -HK
Sling Blade
Billy Bob Thornton (leikstjóri, handrit og aö-
alhlutverk) er hér að vinna meö klassísk
temu, svo sem spurninguna um sakleysi,
vit og muninn á réttu og röngu. Með ótrú-
lega góðri persónusköpun og vel skrifuöu
handriti tekst Thornton aö skapa virkilega
áhugaverða og ánægjulega kvikmynd, sem
þrátt fyrir hægan gang og þungan undirtón
er bæöi grípandi og fyndin. -úd
Event Horizon
Geimskiplö Lewis & Clark leggur upp í leiö-
angur til að bjarga tllraunaskipinu Event
Horizon sem hefur veriö týnt i 7 ár. Bresk
áhrif leyna sér ekki hér, bæði hvaö varðar
gotneska hönnun, góöan leik og gæöahryll-
ing. Með vel heppnaðri hönnun og flottu út-
liti, magnaöri tónlist og hágæöa ískrandi
spennu, er varla hægt aö ímynda sér að
hægt sé að gera betur í svona geimhorror-
hasar. -úd
Auðveld bráð
Shooting Rsh segir frá tveimur munaðar-
lausum svindlurum. Dylan er sjarmörinn
sem getur talað sig út úr hvaöa klipu sem
er og Jez er feimna tölvuséniiö sem veit ná-
kvæmlega hvernig brauöristinni þinni leið
áöur en hún bilaöi. Persónusköpunin og
handritiö eru bráöskemmtlleg þar sem fjár-
glæfrabrellur þeirra félaga eru hreint ótrú-
lega klikkaðar og uppátækin eru óhikaö og
fimlega yfirkeyrö. -úd
Marvin's Room
Fjölskyldukvikmynd í orðsins bestu merk-
ingu. Persónur eru djúpar, mlkiö lagt I þær
frá höfundar hendi og þær endurspegla þaö
sem hverri fjölskyldu er verömætast, rækt-
un hennar inn á viö. Stórleikkonurnar Meryl
Streep og Dlane Keaton sýna snilldarleik I
hlutverkum systra, spila á allan tilflnninga-
skalann af mikilli list. -HK
Perlur og svín ★★★
Fyndin mynd um hjón sem kunna ekki að
baka en kaupa bakarí og son þeirra sem
selur rússneskum sjómönnum Lödur. Óskar
Jónasson hefur einstaklega skemmtilegan
húmor sem kemst vel til skila og í leiöinni
kemur hann viö kaunin á landanum. Ólafía
Hrönn Jónsdóttir og Jóhann Siguröarson
eru eftirmlnnileg i hlutverkum hjónanna.-HK
Með fullri reisn ★★
Eftir aö hafa hneykslast upp í háls (og veröa
létt skelkaðir líka) á hinum íturvöxnu fata-
fellum The Chippendales uppgötva þeir fé-
lagar Gaz (Robert Carlyle) og Dave (Mark
Addy) að það aö fækka fötum uppi á sviöí
er hiö aröbærasta athæfi. Það er varla
hægt aö hugsa sér betri ávísun upp á
skemmtun en svona sögu og svo sannar-
lega skilaöl myndin þvi gríni sem hún lofaði,
meö fullri reisn. -úd
Contact ★★★
Jodie Foster er konan sem féll til stjarnanna
í þessari geim(veru)mynd um trú og tilverur.
Leikstjóra er mikiö í mun aö greina sig frá
tæknibrelluþungum og fantasíufullum geim-
myndum og skapa í staðinn raunsæja og
vitræna mynd en smáfantasía heföi veriö
holl og góö og létt aðeins á öllu dramanu. I
heildina er Contact sterk og skemmtileg
mynd af því einfalda en samt viötæka atviki
sem samband við verur utan úr geimi hlýtur
aö vera. -úd
Excess Baggage ★★★
Excess Baggage kom mér skemmtilega á
óvart. Styrkur myndarlnnar felst i stór-
skemmtilegu handriti sem þrátt fyrir hefö-
bundinn og fremur ófrumlegan söguþráö
hefur sig yfir alla meöalmennsku i leiftrandi
samtölum og frábærum lelk Benicios Del
Toros sem túlkar hinn seinþreytta og sein-
heppna Roche meö miklum tilþrifum.
Þannig skyggir hann aftur og aftur Silvers-
tone. -GE
The Peacemaker ★★★
Dæmigerö Hollywood- afþreying þar sem
allt sem lagt er af staö meö gengur upp,
myndin er hröö, spennandi og vel gerö en
eins og meö marga „sumarsmellina" sem
komiö hafa frá Hollywood í ár er hún inni-
haldsrýr og skilur ekkert eftir. Spíelberg og
félagar í Draumasmiöjunni heföu átt aö
byrja af meiri metnaöl. -HK
Wilde ★★
Kvikmynd Brians Gilberts segir sögu breska
rithöfundarins Oscars Wilde síöasta áratug-
inn í Itfi hans. Meö aöalhlutverkiö fer Steph-
en Fry sem, eins og svo margir hafa bent á,
er fullkominn í hlutverk Wildes. Wilde er
vönduö mynd meö ágætis leik en nokkuö
vantar á að handritlð skili dramatísku lífs-
hlaupi Wilde á sannfærandi máta. Ég mæli
þó meö henni. -ge
Bean ★★★
Af Bean má hafa bestu skemmtun. í henni
eru margar óborganlegar senur sem ég
heföi kosiö aö sjá fléttaöar saman af meiri
kostgæfni. -GE
Air Force One ★★
Harrison Ford er trúveröugur forseti Banda-
rikjanna, hvort sem hann setur sig í spor
stjórnmálamannsins eöa fyrrum Víetnam-
hefju í spennumynd sem er hröð og býöur
upp á góð atriöi. Brotalamir í handriti ásamt
klisjukenndum persónum veikja hana þó til
muna. -HK
The Game ★★★
The Game nær aö skapa skemmtilegt and-
rúmsloft þar sem ofsóknarótti og framandi
umhverfi haldast ágætlega í hendur. Dou-
glas sýnir góö tilþrif i leik sínum og auka-
hlutverkin eru vel mönnuö. Helsti galli henn-
ar er sá að grunnhugmyndin gengur ekki
upp og hnökrar i frásagnarfléttunni gera
jjessa annars skemmtiiegu spennumynd aö
innantómri vitleysu. -GE
FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 1997 ii3
i sinm
átjándu mynd
Bond (Pierce Brosnan) í kröppum dansi ásamt Wai Lin (Michelle Yeoh).
Sam-bíóin og Laugarásbíó frum-
sýna í dag nýjustu James Bond mynd-
ina Tomorrow never Comes. Um er að
ræða átjándu James Bond- myndina
og nú er það í annað sinn sem Pierce
Brosnan leikur hinn lífseiga njósnara
007 og virðist sem hann hafi fest sig í
sessi, þykir hafa náð sömu tökum á
hlutverkinu og Sean Connery og
Roger Moore gerðu. í Tomorrow
never Comes á Bond í höggi við stór-
hættulegan fjölmiðlakóng sem getur
leyft sér aö kaupa öll þau vopn sem
hann telur sig þurfa. Myndin byrjar á
því að James Bond
er í frek-
ar lit-
lausri
vinnu i Khyber Pass sem eitt sinn var
sagt um að væru endamörk heimsins.
Ósköp venjuleg rútínuvinna tekur
fljótt á sig kunnuglega umgjörð og
brátt þarf Bond á aUri sinni snilld að
halda til að halda lífi um leið og hann
einu sinni enn bjargar mannkyninu.
Áður fyrr var kalda stríðið vígvöll-
ur James Bonds, nú er það liðin tíð. í
Goldeneye átti hann í höggi við leif-
amar af Sovétveldinu og í Tomorrow
never Dies er aöalóvinurinn Elliot
Carver sem telur að hann geti selt
meira af blaði sínu, Tomorrow, og
fengið fleiri áhorfendur aö sjónvarps-
stöðvum sínum ef hann geti komið af
stað styrjöld milli Englands og Kína.
Með hlutverk Carvers fer Jonathan
Pryce. Eiginkonu hans, Paris, leikur
Teri Hatcher sem við þekkjum sem
Lois Lane í sjónvarpsþáttaröðinni um
Superman. Paris hafði einu sinni átt í
ástarsambandi við James Bond og
reynir nú án árangurs að kveikja í
glóðinni aftur, að sjálfsögðu með eigin
hagsmuni í huga. Fjórða aðalpersón-
an er kínverski njósnarinn Wai Lin
sem leikin er af einni skærustu
stjömu Hong Kong kvikmyndanna,
Michelle Yeoh.
Leikstjóri Tomorrow never Dies er
Roger Spottiswoode, breskur leik-
stjóri sem býr í Los Angeles þar sem
hann leikstýrði meðal annars Air
America og Tumer and Hootch. Spott-
iswoode segir að það sé alltaf búist við
meiri hasar, hraðskreiðari bílum og
fleiri fallegum stúlkum þegar ný
James Bond-mynd eigi í hlut og að
allt verði aö takast svo ekki verði um
siðustu James Bond myndina að
ræða.
Eftir vin-
sældir Gold-
enEye þurfti
að þrefalda
laun Pierce
Brosnans og
var það ekk-
ert vandamál
þar sem hann
þáði frekar
lítil laun á
Hollywood-
skala fyrir
GoldenEye.
Sjálfur segist
hann mun af-
slappaðri nú
en áður. „Það
eina sem gild-
ir þegar mað-
m- er að leika
Bond er að
vera nógu
svalur.“-HK
Sætar stelpur eru ávallt í kringum James Bond. Meö honum á myndinni er meöal annars
Paris (Teri Hatcher).
Sam-bíóin/Háskólabíó - Tomorrow Never Dies:
Þetta er í fyrsta sinn sem ég upplifi þá
ánægjulegu tilfinningu að vera illmennið í
Bond-mynd, því ef valdasjúkur íjölmiðlakóngur
(Jonathan Pryce) reynir að starta þriðju heims-
styrjöld til þess að fá fréttir, þá hlýtur (eftir
sömu lógík) Tomorrow Never Dies að vera gerð
eingöngu fyrir (valdasjúka) gagnrýnendur, til
þess að fá umfjöllun. Um leið er búið að koma í
veg fyrir slæma dóma, því fjölmiðlafólkið er þá
bara sekt um að þola ekki að vera gert að ill-
mennum. Og ég fell hamingjusamlega í þá
gildru og lýsi hér með Tomorrow Never Dies á
allan hátt hina ánægjulegustu mynd.
Bond (Pierce Brosnan) þarf hér að díla við at-
hyglissjúkan fjölmiðlamógúl, sem reynir að æsa
Kína upp gegn Bretum í von um einkarétt á út-
sendingum í Kína, en til varnar einsemd í bar-
áttunni slær súpemjósnaranum saman við kín-
verska súperpíu (Michelle Yeoh). Bond hefur
alltaf verið hálfgerður sæberpönkari, upp-
tekinn af tækjum og tólum, og í Tomor-
row er þetta undirstrikað frekar. Titla-
senan er algert sæber, með smart tölvu-
graflk (mjög áhugavert með tilliti til þess
að myndbandið við lagið er síðan í mjög
hefðbundnum Bondstíl) og síðan er
áherslan áfram á tölvur og tækni; enda
fullyrðir fjölmiðlamógúllinn aö hefð-
bundin vopn séu dottin úr tísku, nú séu
það gervihnettir og fjöhniðlar sem séu handhaf-
ar valdsins. Gagnrýni/sjálfsrýni sem þessi á fjöl-
miðla er að verða æ vinsælla tema í kvikmynd-
um, og veröur oft hálfvandræðalegt og þung-
lamalegt. En hér eru málin tekin léttum og
írónískum tökum, en slík „meðvitund" er jú
alltaf eitt af aðalsmerkjum Bond- myndanna.
Brosnan er snillingur í því að halda hárfínu
jafnvægi milli sjálfsháðs og alvöru, og það er að
stórum hluta honum að þakka hvað Tomorrow
gengur vel upp, bæði sem grín og sem hágæða
hasar. Súperpían Yeoh er ekki síöri sem irónísk
hetja, enda sýndi hún svipaða takta í Supercop.
Hlutverk kvennanna i Bond-myndunum eru
alltaf að aukast og batna, og þama bætist sjálf-
ur Bond-bíllinn í kvennahópinn og á stjömu-
leik. Allt em þetta ánægjuleg merki um að þessi
nýi Bond er kirfílega maður nýrra tíma. Tomor-
row Never Dies er algerlega ómissandi skemmt-
un í skammdeginu og Brosnan hér með yfirlýst-
ur besti Bondinn. (Og þið þama Connery-liö, átt-
ið ykkur; það ERU breyttir tímar.)
Leikstjóri: Roger Spottiswoode. Handrit: Bruce
Feirstein. Aðalhlutverk: Pierce Brosnan,
Michelle Yeoh, Jonathan Pryce, Teri Hatcher,
Judi Dench, Desmond Llewelyn, Samantha
Bond.
Úlfhildur Dagsdóttir
Besti Bondinn ••••