Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1997, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1997, Side 4
FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 1997 T>V 26 uto helgina Slakandi Jólatrésskemmtun Árbæjarsafnsins hefst kl. 15 á sunnudag. Jólasýning Árbæjarsafnsins piano- tónar Á sunnudaginn milli kl. 13 og 17 gefst gestum Árbæjarsafnsins kostur á að sjá nýja leikfangasýn- ingu í Kornhúsi safnsins. Þá verð- ur einnig hefðbundið jólahald í gamla Árbænum, búin til tólgar- kerti í skemmu, skorið út laufa- brauð í kamesi og sýndur jólaund- irbúningur á baðstofulofti. Messa verður í gömlu safnkirkjunni frá Silfrastöðum kl. 14. Prestur verður sr. Kristinn Ágúst Friöfinnsson. Jólatrésskemmtun verður kl. 15 þar sem jólasveinar verða á vappi. Hægt verður að kaupa veitingar í Dillonshúsi og í Miðhúsi verða til sýnis gömul jólakort. Bormn verða i storu hlutverki í Hafnarborg um helgina Hafnarborg: Syngjandi jol Tónlistarmaðurinn Rúnar Þór Pétursson held- ur tónleika á Ránni í Keflavík i kvöld og annað kvöld. Rúnar hefur nýverið sent frá sér geisla- disk sem hefur að geyma tíu píanólög eftir hann. Á diskinum er m.a. að finna nýja útsetn- ingu á hinu þekkta píanólagi 1.12. „Það má segja að megináherslan sé á rólega og slakandi tónlist á þessum diski. Diskurinn nú er ellefta platan sem ég sendi frá mér,“ segir Rúnar. Að hans sögn er nýi diskurinn í anda fyrri píanó- verka hans m.a. í anda plötunnar 1.12. „Það sem er ólíkt við þessa plötu samanborið við fyrri píanóplöt- ur mínar er að nú sér Þórir Úlfarsson að vinnslu plötunnar og spilar á píanóið. Einnig er ég nú í fyrsta sinn með alvöru flygil.“ Lögin á nýja disknum eru öll „instrumental“. Að- spurður hvort mikill munur sé á gerð „instrumen- tal“ laga og laga mm. með text- um segn- Rúnar: „Með því að gera instrumental disk er ég e.t.v að leita inn á fleiri svið. Hér á íslandi er markaðurinn svo þröngur. Ég stefni á að gefa diskinn út víðs vegar um heim og því er auðveldara að hafa hann textalausan. Svo er það bara þannig að sum lög sem ég sem verða bara ósjálfrátt instrumental og við sum þeirra verða til textar. Ég geri hins vegar ekki upp á milli textalausra og textaðra laga,“ segir Rúnar að lokum. -glm A morgun kl. 13 hefst í Hafn- arborg, menningar- og listastofn- un Hafnarfjarðar, dagskrá sem hlotið hefur nafnið Syngjandi jól í Hafnarborg. Dagskráin er sam- vinnuverkefni Hafnarborgar og Skólaskrifstofu Hafnarfjarðar. Þar koma fram tuttugu og tveir kórar og sönghópar, um 800 manns. Meðal annars má nefna Kór Öldutúnsskóla, Kór Álfta- neskirkju, Kór Setbergsskóla, Kvennakór Hafnarfjarðar og Karlakórinn Þresti. Dagskráin stendur fram á kvöld og eru allir velkomnir á meðan húsrúm leyfír. Rúnar Þór Pétursson. Um þessar mundir er eitt ár liðið frá því hljómsveitin Mjólk tók til starfa. Sveitin hefur starfað víða um heim við tónleikahald og önnur verkefni sem tengjast tísku og list- um á mismunandi hátt, s.s. samið tónlist við tölvuleiki og sett upp vöru- og tískusýningar. Mjólk hefur lítið komið fram hérlendis en nú hefur sveitin opnað sýningu á kaffi- húsinu Café au lait. Sýningin verð- ur opin allan desembermánuð. Með- limir Mjólkur eru Hlin Gylfadóttir, Karlotta Blöndal og Unnar Öm Jón- asson. Meðlimir Mjólkur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.