Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1997, Page 9
FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 1997
nlist
HLJOMPLm
GAfiipNI
Ýmsir - Spírur:
Lumaðálögum ***
Platan Spírur er framtak sem
ber að lofa í hástert. Ekki ólíkt
þvi sem Smekkleysa hefur gert
með Lúðurseríunni. Hér er að
finna þekktar og óþekktar ís-
lenskar hljómsveitir sem luma á
lögum sem eiga erindi á plötu.
Flestallar sveitirnar eiga tvö lög
á plötunni sem gefur meiri inn-
sýn í hvað þær eru að fást við.
Hljómsveitin Výnill hefur
plötuna með laginu Flókið ein-
falt, lag sem síast inn i heilabúið
og losnar ekkert auðveldlega
þaðan aftur. Stórgott lag og Výnill greinilega með áhugaverðari sveitum
á landinu. Seinna lag sveitarinnar, Höfuð brenna, er rokklag í rólegri
kantinum. Lagið undirstrikar að Výnill leitar í margar áttir í tónlistinni.
Hljómsveitin Port á eitt lag á plötunni, lagið Eilíf jól. Eilíf jól er ágætt
lag og vel útsett en nokkuð.finnst mér skorta á frumleika í lagasmíðinni
og lagið skilur litiö eftir sig.
200.000 naglbítar flytur hér lögin Hæð í húsi og Helsærður dordingull.
Ég verð að játa að lögin fara óskaplega í taugarnar á mér og held ég að
þar sé um að kenna söngnum og söngmelódíunni. Textarnir eru hins veg-
ar ágætir og það er kraftur í sveitinni.
Stjörnukisi flytur tvö lög á plötunni sem eru vissulega ánægjuleg tíð-
indi því sveitin hefur sýnt til þessa að hún er á góðri leið með verða eitt-
hvað ofboðslega frábært. Lögin Knull og Reykeitrun eru bæði stórgóð og
svíkja engan.
Emmet á einnig tvö lög á plötunni, Rafmagn og Draumakonu. Nokkur
byrjendabragur er á útsetningum. Söngur er ágætur en nær ekki að hefja
lögin upp og sveitin á enn nokkuð í land.
Hljómsveitin Tristian á lögin Hungur og í síðasta sinn. Tristian skilar
lögunum frá sér óaðfmnanlega og er ekkert að setja út á útsetningar,
spilamennsku eða söng. Hungur er gott rokklag og í síðasta sinn er ágætt
en hefði kannski átt heima á annarri plötu.
Bang Gang flytur hér lagið Svefn. Það er greinilegt að þessi sveit á efir
að ná einhverjum hæðum í framtíðinni. Svefn er með eftirtektarverðari
lögum sem undirritaður hefur heyrt á árinu og Bang Gang nær að skapa
tilfinningalegan blæ á aðdáunarverðan hátt með kíló af frumleika og
hæfileikum í uppskriftinni. Páll Svansson
Metallica - Reload:
Kemur ekki á óvart ★*★
Nýjasta plata Metallica,
Reload, er tekin upp á sama tíma
og síðasta plata sveitarinnar,
Load, og ber þess greinilega
merki á ýmsum sviðum. Það er
því kannski ekki að undra að hér
sé fátt að finna sem kemur manni
á óvart. Söngvari og gítarleikari
sveitarinnar, James Hetfield,
heldur áfram á sömu braut og á
Loád og sá stíll sem hann tileink-
aði sér i laginu Until it Sleeps
tröllríður hér vötnum. Alice in
Chains kemur þó nokkuð oft upp
í hugann þegar hlustað er á plötuna og þá sérstaklega sönginn. Kannski
er það ekkert slæmt í sjálfu sér.
Bestu lög plötunnar eru fyrir skrýtna tilviljun aftast á henni. Má þar
nefna Low Man’s Lyric og Attitude. Einnig má nefna endurgerð lagsins
The Unforgiven og er það nefnt hér Unforgiven II. Lagið sker sig úr og
textinn er einnig ólíkur öðru sem finna má á plötunni.
Metallica-menn eru orðnir nokkurs konar kóngar metalrokksins, ekki
síst eftir að Soundgarden og Alice in Chains hurfu af sjónarsviðinu. Þeir
hafa því sallarólegir beðið í tæplega tvö ár með þetta efni í þeirri full-
vissu að enginn gæti skákað þeim af sviðinu. Og hafa rétt fyrir sér.
Páll Svansson
Roni Size, Reprazent / New Forms ★★★★
Uppgangur drum&bass stefn-
unnar hefur verið mikill á
þessu Éiri. Nokkurs konar há-
punktur og lokaviðurkenning á
stefnunni kom þegar Roni Size
og hljómsveit hans Reprazent
fékk Mercury Music verðlaun-
in fyrr á þessu ári. Margir
veltu þó fyrir sér hvort verið
væri að verðlauna og viður-
kenna nýja tónlistarstefnu eða
tónlist Roni Size. Það er svo
sem ekkert aðalatriði því að sú
tónlist sem Roni Size gerir ber
af öllu öðru sem er að gerast í drum&bass í dag. New Forms er hin
fullkomna blanda lífrænnar tónlistar og tölvutónlistar. Djúpur og lif-
andi kontrabassaleikur er tekinn og skorinn í búta og söngur og rapp
flýtur yflr hröðum og beittum töktum. Öll tilraunastarfsemi síðustu
ára er hér að skila sér á afar heilsteypta breiðskífú sem er nokkur
konar rjómi af því besta sem drum&bass hefur upp á að bjóða. New
Forms líður ekki fyrir það að vera frábær. Hún á eftir að standast
tímans tönn meö sóma. Roni Size og Reprazent-hljómsveitin hafa
sinn eigin stíl, sína eigin rödd og sinn eigin hljóm. Platan opnar á
hinu hraða og hárbeitta lagi „Railing" sem svífur svo inn i Brown
Paper Bag sem er eitt besta danslag síðustu ára. í raun og veru seg-
ir þessi tilvitnun í texta lagsins Railing allt sem segja þarf: „Yes,
something of a different taste."
Jón Atll Jónasson
áhrifamestu manneskjur i heimi?
í nýjasta hefti breska tónlistar-
blaðsins er að finna lista yfir 100
áhrifamestu menn í heiminum og
eins og gefur að skilja eru þetta
næstum allt popparar eða fólk sem
tengist skemmtana- og tónlistariðn-
aðinum á einhvern hátt. Þetta er
afar forvitnilegur listi hjá Select
sem er valinn af dómnefnd fólks
sem ekki lætur nafn síns getið. 1
toppsætinu er enginn annar en tón-
listarmaðurinn Beck Hanson sem
hóf feril sinn með hálfónýtan kass-
agítar á götuhomi í New York.
Hann gafst þó upp á veru sinni þar
og fluttist aftur til Kalifomíu þar
sem hann tók upp lagið Loser fyrir
þá smámynt sem hann fann í budd-
unni. Það þarf svo ekki að fjölyrða
um framhaldið. í öðm sætinu á lista
tímaritsins Select er Liam Howlett,
forsprakki hljómsveitarinnar The
Prodigy. Hann hefur verið ásakaður
um að semja bestu partímúsík á
jörðinni og ekkert lát virðist vera á
vinsældum hljómsveitar hans sem
er nú á tónleikaferðalagi um Þýska-
land. í þriðja sæti á Select-listanum
er Noel Gallagher sem árið 1991
stofnaði hljómsveitina Oasis ásamt
bróður sínum í kjallaraherbergi í
Manchester. Þá voru þeir báðir at-
vinnulausir og eyddu dögunum í
það að hlusta á plötur og drekka
bjór. I umsögn sinni um Noel segir
blaðamaður Select meðal annars að
hann hafi með hljómsveit sinni Oas-
is bjargað breska rokkinu frá því að
deyja hreinlega út. Af fleirum sem
komast inn á topp hundrað listann
má nefna kínverska leikstjórann
John Woo sem vermir nítjánda sæt-
ið. Matt Groening, höfund sjón-
varpsþáttanna um Simpson-Qöl-
skylduna, David Letterman, sem er
í 68. sæti, og golfsnillinginn Tiger
Woods sem er í því 25. Listinn telur
marga fleiri en er í raun afar ófull-
nægjandi og lítið mark hægt að taka
á honum þar sem þeir sem velja inn
á listann gleyma lykilfólki í tónlist-
arheiminum að mínu mati.
-JAJ
Nýjasta söngstjarna Bandaríkjanna er ættuð
frá Dallas í Texas og heitir Erykah Badu. Hún
skaust beint á topp bandaríska Billboard-listans
þegar hún gaf út sína fyrstu breiðskífu, Badu-
izm, árið 1996. Hún hefur nú gefið út tónleika-
plötu þar sem hún fer hreinlega á kostum. Tón-
list Erykah Badu er létt og djassskotið R n B
með miklum funk- og soul-áhrifum og hefur
söng hennar verið líkt við söng Billie Holliday.
Sá samanburöur á alveg rétt á sér eins og heyr-
ist á nýju plötunni. Erkah Badu hefur þróað
með sér einstakan stíl þar sem hún blandar
saman söng og rappi. Á Erykah Badu Live byrj-
ar hún tónleikana á því að syngja lagið Rimshot
sem er nokkurs konar forspil aö plötunni og er
það nóg til að vekja forvitni manns. Erykah
Badu hefur kosið að skilja trommuheilana eftir
heima og með henni leikur þriggja manna sveit
skipuð hljómborðsleikara, trommuleikara og
bassaleikara. Að öðru leyti hvílir flutningur
tónlistarinnar á herðum Erykah Badu og nokk-
urra bakradda. Þetta gerir það að verkum að
lögin verða hálfstrípuð og kjarninn í þeim nær
að skína í gegn. Þetta er flott stílbragð hjá henni
og aö mörgu leyti minnir hljóðfæraskipan og út-
setningar á aðra og eldri funkplötu sem verður
að teljast klassík í dag. Það er plata Robertu
Flack sem ber heitið Quiet Fire og er frá átt-
unda áratugnum. Erykah Badu er bara miklu
meiri töffari en Roberta Flack en henni hætti
dálítið til aö fara yfir strikið í tilfinningasemi.
Erykah Badu keyrir líka tónleikana áfram af
mikilli fæmi og slær af og gefur í til skiptis.
Það sem gerir hana líka svo frábrugðna öðrum
söngkonum í Bandaríkjrmum í dag er að hún
hefur náð að þróa sinn eigin stíl og hefur svo
sterk séreinkenni að það yrði vonlaust fyrir
aðra að reyna að kópera hennar stíl. Tónlist
hennar er ekki sykursætt vinsældalistapopp.
Hún á það sameiginlegt með Janis Joplin að
hún nær að vera hjartnæm án þess að veröa
nokkum tíma væmin. R n B tónlist i dag á það
til að verða allt of væmin og sykursæt. Enginn
viröist almennilega þora að vera öðmvísi -
nema Erykah Badu.
- á tónleikum
- tíu vlnsælustu danslögln vlkuna
6. tll 13.desember 1997 -
1. Planetaria
4 Hero
2. A Love Supreme
Ballistic Brothers
3. Lost Recordlngs
Steve Bicknell
4. Red Planet 8
Red Planet
5. To % Fro
Laj
6. The Main Event
House of 909
7. Snapjackin'
Veiocity Boy
8. Funky Clave
Future Funk
9. Love & Respect (rmx)
Paul Simpson
10. Divorce
Garcons