Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1997, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1997, Blaðsíða 11
FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 1997 tónlist - rokkið og danstónlistin sameinast Bandaríkjamaðurinn DJ Shadow (Josh Davies) er sjálfsagt þekktasti plötusnúður veraldarinnar í dag. Hann er hlédrægur með eindæmum og hefur ekki farið hefðbundna leið á toppinn. Hann hefur ekki komið oft fram og telst það til kraftaverka ef hægt er að fá hann til að þeyta skífur á danshúsum. Kannski er það rangnefni að kalla Josh plötusnúð því hann er í raun mun meiri tónlistarmaður. Hljóð- færi hans eru gamlar og oft ótrúlega undarlegar plötin* sem hann tekur og skellir saman í eitthvert flæði sem gefur þeim alveg nýja vídd. All- ir taktar hcms eru fengnir að láni úr gömlum lögum og margir klipptir saman þannig að úr verður eitthvað nýtt. Með Akai sampler, tvo plötu- spilara og safn af plötum - vel yfir 50 þúsund eintök, er þessi ungi San Fransisco-búi að endurskrifa þær reglur sem gilda í rokk- og popptón- list í dag. Það sem hefúr vakið furðu tónlistarblaðamanna upp á síðkast- ið er að þessi annars hlédrægi tón- listarmaöur er nú á tónleikaferða- lagi með Radiohead og Teenage Fanclub. Fjölbreyttari tónlist DJ Shadow gegnir sama hlutverki og Howie B. á tónleikaferðalaginu þar sem hann sér um að hita tón- leikagesti upp með því að þeyta skíf- ur áður en Radiohead stíga á svið. Hugmyndin að þessari undarlegu samsetningu tónlistarstefna er kom- in frá Ed OBrien, liðsmanni Radi- ohead, sem saknaöi þess að heyra fjölbreyttari tónlist á einum og sömu tónleikunum: „Áður fyrr fór fólk og sá BB King og The Doors spila sama kvöldið. Þetta er allt annað í dag. Maður fer og heyrir í hljómsveit sem er að gera nýja hluti og svo á undan einhverja hljómsveit sem er minna þekkt og kannski komin skemmra á veg með að þróa sína eigin stefnu. Með því að hafa DJ Shadow með okkur erum við að reyna að fá fjölbreyttari hóp fólks til að mæta á tónleika. Aðdáendur okk- Bsekling- urizm sem varcL ad bladi Tónlistartimaritið Undirtónar var stofhað af þeim ísari Loga Amarsyni og Snorra Jónssyni í nóvember árið 1996. Þeir félag- amir hittust á námskeiði í Hinu húsinu þar sem þeir tóku þátt í atvinnuátaksverkefhi sem hefur tekist svo vel að Tony Blair hefhr nú ákveðið að innleiða þaö í Bretlandi. Þeir lýstu báðir yfir áhuga á tónlist og vom fengnir til að stofna tónlistardeild Hins hússins. Fyrsta verkefni á dag- skrá var að halda hljóðfærasýn- ingu og samhliöa henni var gef- inn út lítill bæklingur sem yfir- skyggði sýninguna. Bæklingur þeirra félaga varð fljótlega aðalá- hugamálið og hljóðfærasýning- unni var frestað. Fyrstu tölublöðin vom lítil umfangs en nú er blaðið orðið einar 72 síður og er dreift í 15 þúsund eintökum um allt land. Undirtónar íjalla um alls kyns tónlist allt frá danstónlist yfir i rokk og hefur blaðið náð að skapa sér miklar vinsældir með- al ungu kynslóðarinnar. ar fá færi á því að kynnast tónlist DJ Shadow og hans aðdáendur tón- list okkar." Josh Davies féllst á að fara á tón- leikaferðalag með Radiohead eftir að hafa orðið vitni að tónleikum sveitarinnar í heimahorg sinni San Fransico: „Það sem vakti athygli mina á tónleikunum var að fólk fylgdist þögult með rólegum lögum Radiohead og passaði sig að trufla hana ekki. Þegar lögin enduðu varð svo andartaks þögn áður en fólk klappaði. Það var reglulega að hlusta," segir Josh. í sjálfu sér er ekkert skrítið að Radiohead skuli vilja fá tónlistar- mann eins og Josh Davies með sér i lið. Tónlist hans er búin til með tækjum og tólum danstónlistarinn- ar en hann er samt rokkaður. Smá- skífan High Noon, sem er nýjasta af- urð DJ Shadow, gæti vel átt heima á plötu með Radiohead. Það eina sem vantar eða er öllu heldur ekki til staðar er söngurinn. Það sem Joash Davies á sameiginlegt með Thom Yorke, söngvara Radiohead, er hvað frægðin virkar framandi i augum þeirra beggja. Þeir eru nokk- urs konar sálufélagar, segja þeir sem þekkja til. Þeir vinna saman eitt lag sem er að finna á nýjustu breiðskífu UNKLE, sem er hljóm- sveit þeirra Josh Davies og James Lavelle. Á nýju breiðskífunni tekur Richard Ashcroft, söngvari The Verve, líka eitt lag. Það að danstón- listarmenn og rokktónlistarmenn vinna saman er tiitölulega þekkt fyrirbæri í tónlistarheiminum, en það hefur hingað til verið háð því að danstónlistarmennirnir taka rokk og popplög og setja þau í dans- búning. Noel Gallagher og Chemical Brothers breyttu þessum vinnufor- sendum með laginu Setting Sun á breiðskífunni Dig Your Own Hole. Þar unnu þeir hlið við hlið að því að semja tónlist. Setting Sun var ein- staklega vel heppnað lag og fór beint á topp breska listans þegar það kom út. Noel Gallagher spilar líka inn á nýja breiðskifu jungle tónlistarmannsins Goldie og David Bowie syngur þar eitt lag. Má með Með Akai sampler, tvo plötuspilara og safn að endurskrifa þær reglur sem gilda í rokk- sanni segja að þessi samvinna tón- listarfólks úr svo ólíkum áttum sé að breyta allri dægurtónlist í dag. -JAJ af plötum - vel yfir 50 þúsund eintök, er þessi ungi San Fransisco-búi og popptónlist í dag. Lúðrasería Smekkleysu Útgáfa Smekkleysu á Lúðraseríunni svokölluðu er vafalítið það menningará- tak sem á mestan heiður skilinn í ár. Lúðraserían inniheldur átta geislaplöt- ur ungra hljómsveita og tónlistarmanna og eru þær afar ólíkar. í Lúðraseríunni mætast margar ólíkar tónlistarstefnur en segja má að rauði þráðurinn í gegn- um seríuna sé rokk af öllum stærðum og gerðum. En hvað er hægt að segja um svona átak eins og Lúðraseríuna? Vissulega eru ekki allar plöturnar meistarverk, það væri til of mikils mælst. Nokkrir gullmolar leynast þó inni á milli eins og til dæmis Kvartett Ó. Jóns- son og Grjóni, Andhéri og Soðin fiðla. En í heild verður samt að viðurkenna að Lúðraserían er meistarverk - svona útgáfulega séð. Ég efast um að nokk- urt annað útgáfufyrirtæki hefði lagt í svona útgáfu hér á landi. Ungar hljóm- sveitir hafa oftar en ekki litla reynslu í því að gefa út tónlist sina og er Lúðraserían því sjálfsagt mjög góð reynsla fyrir þær. Það sem kvikmyndin Rokk í Reykjavík gerði á sínum tíma var að endurspegla tíð- arandann og tónlistarlif bprgarinn- ar og má í raun segja að það sama sé uppi á teningnum á Lúðraseríunni. Skjalfesting þeirrar staðreyndar að tónlist- arlíf borgarinnar sé í miklum blóma og hafi sjálfsagt aldrei verið öflugra. nu- 1- Kaffi Austur- stræti Trúbadorinn James Clif- ton leikur á Kaði Austur- stræti milli kl. 20 og 24 um helgina. Karma á ír- landi Hljómsveitin Karma heldur uppi fjörinu á veitingastaðnum írlandi i kvöld og annað kvöld. Tónleikar í Krossinum Tónleikar verða í Kross- inum, Hliðarsmára 5, í kvöld kl. 20. Fram koma m.a. Páll Rós- inkranz og Christ Gospel Band. Extra á Amsterdam Hljómsveitin Extra leik- ur á Café Amsterdam um helgina. Sóldögg í Sjallanum Hljómsveitin Sóldögg leikur annað kvöld í Sjallanum á Akureyri. Súrefni í Hinu húsinu Hljómsveitin Súrefni spilar á síðdegistónleik- um Hins hússins við Ing- ólfstorg. Tónleikarnir hefjast kl. 17 í dag á Kakóbamum Geysi. Að- gangur er ókeypis. Sín á Kringlu- kránni Hljómsveitin Sín leikur á Kringlukránni um helg- ina. í henni eru Guð- mundur Símonarson og Guðlaugur Sigurðsson. Viðar Jónsson trúbador leikur í Leikstofu Kringlukrárinnar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.