Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1997, Qupperneq 12
» myndbönd
FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 1997
mm\\\
Keys To Tulsa:
Fjárkúgun í þotuliðinu
Erle Sleltz
★★★
** James Spader
Johanne Golno
Richter Boudrean (Eric Stoltz) er spilltur sonur
auðugrar ekkju sem vinnur á dagblaði bæjarins.
Hann hefur þó ekki mikinn tíma til að sinna vinn-
unni, sem hann fékk i gegnum fjölskyldutengsl, þar
sem hann er stöðugt að sukka með vafasömum
kunningjum sínum, sem draga hann siðan inn í fjárkúgun. Gallinn er
að hann veit ekki hvem á að kúga eða fyrir hvað. Myndin býður upp á
athyglisverða sögufléttu, léttgeggjaðan og nokkuð svartan húmor og vel
skrifaðar persónur, sem hefur sjálfsagt gert sitt til að laða hina mörgu
góðu leikara að myndinni. Eric Stoltz er í mynd nánast allan tímann og
veldur verki sínu vel. Hinir fá þó að leika sér meira og sérstaklega era
James Spader og Michael Rooker skemmtilegir í sínum hlutverkum.
Persónur beggja era illa bilaðar, hvor á sinn hátt. Joanna Going og
Deborah Unger túlka einnig vel brotnar persónur og í eldri deildinni
eru James Cobum og Mary Tyler Moore öragg í sínum hlutverkum. Hér
er verið að leita á sömu mið og Pulp Fiction og þess slags myndir og
tekst það nokkuð vel.
Útgefandi: Háskólabíó. Leikstjóri: Leslie Grerf. Aðalhlutverk: Eric Stoltz,
James Spader, Joanna Going og Deborah Unger. Bandarísk, 1996. Lengd:
109 mín. Bönnuð innan 16 ára. PJ
Otþelló:
Afbrýðisemi
w
Óþelló er einn af harmleikjum Shakespeares. Her-
foringinn og Márinn Óþelló gengur að eiga Des-
demónu og þau eru eins ástfangin og hægt er að
hugsa sér. Einn af liðsforingjum hans, Jagó, er ósátt-
ur við að annar sé valinn sem næstráðandi Óþellós
og spinnm- svikavef til að leita heihda. Hann nær
eyra Óþellós, eitrar huga hans og sáir þar fræjum af-
brýðiseminnar. Þegar lygavefúr hans kemur loksins
upp á yfirborðið er það of seint og Óþelló er búinn að
kyrkja Desdemónu í hjónahvílu þeirra. Óþelló er eitt
af slappari verkum Shakespeares og þessi mynd ger-
ir lítið til að flikka upp á það. Hér vantar allan húmor, verkið er þungt
og myrkt, langdregið og leiðinlegt. Glæsileg sviðsmynd og góð frammi-
staða leikara hefði getað dreift athyglinni eitthvað en hvora tveggja er
ábótavant. Leikarar era í flestum tilvikum frambærilegir en lítið meira.
Kenneth Branagh er staðnaður í Shakespeare-túlkun sinni og Irene Jac-
ob virðist halda að aðalatriðið sé að vera sakleysislega stóreygð.
Laurence Fishburne er skástur og nær að túlka innri ofsa herforingjans
á nokkuð trúverðugan hátt.
Útgefandi: Skífan. Leikstjóri: Oliver Parker. Aðalhlutverk: Laurence Fis-
hburne, Irene Jacob og Kenneth Branagh. Bandarísk, 1995. Lengd: 119
mín. Bönnuð innan 12 ára. -PJ
OneFineDay:
Erfiður dagur
★★★
Melanie Parker og Jack Taylor eru bæði ffáskilin.
Þau hittast einn dag þegar þau bæði missa af bátn-
um sem átti að fara með bömin þeirra í skólaferð og
neyðast því til að passa þau sjálf. Þrátt fýrir að vera
meinilla hvort við annað í byrjun verða þau að lok-
um ásátt um að skipta með sér gæslunni. Bæði eiga
afar erfiðan og cmnasaman dag og eiga á hættu að
missa vinnuna ef illa tekst. Þrátt fyrir stressið fara
þau smám saman að laðast hvort að öðru. Myndin
fylgir að nokkru leyti hefðbundinni formúlu mynda
af þessu tagi en rís þó hærra en flestar. Michelle
Pfeiffer og George Clooney ná ansi vel saman, sérstaklega í byrjun þeg-
ar persónur þeirra hatast. Samskipti þeirra endurspeglast í bömunum
þeirra, sem einnig er illa hvoru við annað í byrjun, en verða síðan vin-
ir. Gamansemin er í fyrirrúmi og tilfmningasemin verður aldrei svo yf-
irkeyrð að myndin verði leiðinlega væmin. Endirinn er sá besti og fal-
legasti sem ég hef séð í svona mynd.
Útgefandi: Skífan. Leikstjóri: Michael Hoffman. Aðalhlutverk: Michelle
Pfeiffer og George Clooney. Bandarísk, 1996. Lengd: 104 mín. Öllum
leyfð.
Dante's Peak:
EldQall bærír á sér
Eldfjallafræðingurinn Harry Dalton þykist sjá
merki um að gamalt eldfjall nálægt smábænum Dan-
te’s Peak muni gjósa á næstunni. Starfsbræður hans
gera þó lítið úr hættunni og bæjarráðið vill ekki fæla
fjárfesta frá bænum með þvi að lýsa yfir neyðará-
standi. Auðvitað gýs fjallið og bæjarbúar flýja í of-
boði meðan Harry Dalton og borgarstjórinn Rachel
Wando halda til móts við hraunstreymið í leit að
bömum hennar og ömmu þeirra sem era eitthvað að
þvælast uppi á fjalli. Myndin fylgir hefðbundinni for-
múlu stórslysamynda. Þeir sem haga sér illa fá mak-
leg málagjöld og einnig farast þeir sem gera lítið úr hættunni. Sumir fá
þó að halda virðingunni með því að iðrast gjörða sinna. Sagan er í fle-
stalla staði mjög heimskuleg, en eldfjallafræðin era þó ekki svo fjarri
lagi. Pierce Brosnan fer létt með hlutverk eldfjallafræðingsins en Linda
Hamilton er fremur passíf í borgarstjórahlutverkinu. Besti leikarinn er
eldfjallið og stærsti kostur myndarinnar er einmitt flott atriði, þar sem
tæknibrellur era nýttar til hins ýtrasta til að gera sem mest úr yfir-
þyrmandi eyöileggingarmætti fjaUsins.
Útgefandi: CIC myndbönd. Leikstjóri: Roger Donaldson. Aðalhlutverk: Pi-
erce Brosnan og Linda Hamilton. Bandarísk, 1997. Lengd: 104 mín. Bönn-
uð innan 12 ara. -PJ
SÆTI , FYRRI j VIKA i VIKUR 1 jÁ LISTAj j j TITILL j ÚTGEF. i ; TEG. J
1 : i í 2 í Liar Liar j ClC-myndbönd j Gaman
2 : 2 i : 3 : i j Fifth Element, The J J Skífan J j J Spenna )
3 : Ný j i * j 1 > Jungle 2 Jungle 1 Sam-myndbönd j Gaman
4 i : 3 j j ] 2 : Trial and Error I < Myndform J < Gaman J
5 : 5 i 4 : Bulletproof J j ClC-myndbönd J j Spenna
6 • i : 4 i j j. < 3 1 j 3 J i ' 1 Private Parts J Sam-myndbönd i j Gaman
. 7 6 J 1 j 4 J Shadow Conspiracy / J Myndform J J Spenna
8 . 1. j 1 J 7 < i ' J j J Saint, The J 1 ClC-myndbönd j J , Spenna j
9 7 : 5 i Anaconda 1 Skífan j Spenna
10 : i 9 j . j j 6 j j ) . Scream J J Skífan J ) J Spenna i
ii : 10 J 0 < J 8 J Fools Rush In 1 Skffan J Gaman
12 j ■ J J ! 7 : Donnie Brasco j j Sam-myndbönd J j Spenna
13 : 17 : 2 : Executive Target J j Skífan j j Spenna
UÍ 1 12 j j i 2 i i ■ j j 9 < , i Shining,The J Sam-myndbönd j j J Spenna |
15 ' l 11 People VS. Larry Flynt 1 Skífan 1 1 Drama
16 ‘ "'"i Ný J J 1 i 1 j 1 J i j Idiot Box J . - /• , •.-. J j Bergvík j J i Gaman HBBijBa
” : 18 i 4 i Big Night ; Sam-myndbönd j Gaman
i8 : j Ný i 1 i j J Keys To Tulsa l J Háskólabíó j j J Spenna J
19 1 16 j 0 < J 8 J Smillas Sense of Snow , Sam-myndbönd j Spenna
20 ; Ný J • J 1 i ; Love Jones j Myndform J < Gaman i
2. til 8. desember
Jim Carrey hélt efsta sæti myndbandalistans og
það urðu ekki örlög Liar Liar að detta úr efsta sæti
eftir eina viku eins og gerðist með The Fifth Elem-
ent sem vermir annaö sætið. í þriðja sæti er svo fjöl-
skyldumyndin Jungle 2 Jungle meö Tim Allen í að-
alhlutverki en hann er sjálfsagt þekktastur fyrir að
vera heimilisfaöirinn í Handlögnum heimilisfööur.
Að öðru leyti er ekki mikið um breytingar á listan-
um. Þrjár nýjar myndir eru neðarlega og koma ekki
til með aö gera stóra hluti á listanum. Sú sem er
merkilegust þeirra er Keys To Tulsa en í aðalhlut-
verkum þeirrar myndar er fjöldi þekktra leikara.
Liar Liar
Jim Carrey og
Jennifer Tilly
Fletcher er
hraðmæltur lögfræðing-
ur og óforbetranlegur
lygari. Ungur sonur
hans, Max, sem býr hjá
mömmu sinni, hefur
margsinnis þurft að
sitja heima svikinn af
loforðum foður síns.
Þegar Max blæs á kertin
á funm ára afmæli sínu
á hann sér aðeins eina
ósk, að pabbi hans hætti
að ljúga þó ekki væri
nema í einn sólarhring.
Og viti menn. Óskin
rætist og Fletcher kemst
að því sér til hrellingar
að skyndilega getur
hann ekki sagt ósatt orð
og þaö líður ekki á
löngu þar til lögfræði-
feriilinn er í hættu.
The Fifth
Element
Bruce Willis, Milia
Jovovich og Gary
Oldham
Eftir 250 ár stafar jörð-
inni hætta af illum öflum
sem hyggjast ráðast á
hana. Vöm jarðarinnar
er fimmta frumefhið en
þar sem allar þær verur
sem vissu hvar frumefhið
var eru dauðar eru erfið-
leikar fram imdan. Vís-
indamönnum tekst að
rækta kvenveru úr vefj-
um hinna dauðu. Sú
kvenvera verður mjög_
hrædd jægar hún vaknar
til lifsins og tekst að flýja
úr búri sínu og sleppur
út í iðandi umferðina þar
sem hún endar í aftur-
sæti leikbíls sem stjómað
er af fyrrum flugforingja,
Corben Dailas.
Jungle 2
Jungle
Tim Allen og Mart-
in Short.
Kaupsýslumaðurinn
Michael Cromwell hefur
í bígerö að kvænast unn-
ustu sinni en fyrst þarf
hann að ganga frá smá-
máli. Hann er giftur fyr-
ir, en eiginkonuna hefur
hann ekki hitt í fjölda
ára, enda hefur hún búið
í Amazonfrumskóginum
á meðal indíána. Mic-
hael þarf því að fara inn
í frumskóginn og fá hana
til að skrifa undir skiln-
aðarpappira. Þar uppgöt-
var Michael að hann á
þrettán ára son sem
aldrei hefur siðmenning-
una augum litið. Hann
samþykkir þvi að taka
son sinn með til New
York.
Trial and Error
Jeff Daniels og
Michael Richards
Charles er efnilegur
lögfræömgur og er að
fara að giftast hinni
fógru dóttur yflr-
manns síns. Áður
verður hann að taka
að sér að vetja frænda
yfirmannsins sem hef-
ur lifað á svikastarf-
semi undanfarin 50 ár.
Charles heldur til
Nevada þar sem réttar-
höldin fara fram og
honum til mikillar
undrunar tekur besti
vinur hans, Richard, á
móti honum með
óvæntu steggjapartíi.
Charley verður svo
drukkinn að daginn eft-
ir getur hann sig ekki
hreyft og Richard
ákveður því að mæta í
hans stað í réttarsalinn.
Bulletproof
Adam Sandler og
Damon Wayans
Archie Moses og
Rock Keats voru miklir
mátar. Nú, þegar annar
þeirra er orðinn lögga
og hinn er smákrimmi,
telja þeir hvor annan
svikara. Þetta leiðir til
þess að þeir þola ekki
hvor annan og láta
hrakyrðin dynja á víxl
hvenær sem færi gefst.
Það er samt stutt í vin-
skapinn og þeir eiga
einn sameiginlegan
óvin, eiturlyfjakónginn
Colton (James Caan)
sem þeir þurfa að sam-
einast gegn því Colton
vill þá báða undir
græna torfu og sendir
morðingja út af örkinni
til að koma þeim fyrir
kattamef.
Tfiöii