Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.1997, Blaðsíða 2
24
MÁNUDAGUR 29. DESEMBER 1997
íþróttir
Kfe tHGUND
Úrvalsdeild:
Bamsley-Derby..............1-0
1-0 Ward (67.)
Blackbum-Crystal Palace . . . 2-2
0-1 Dyer (12.), 1-1 Gallacher (27.), 1-2
Warhurst (48.), 2-2 Sutton (78.)
Coventry-Manchester Utd ... 3-2
1-0 Whelan (12.), 1-1 SolsKjær (30.),
1-2 Sheringham (47.), 2-2 Dublin
v.sp.(86.), 3-2 Huckerby (88.)
Everton-Bolton ............3-2
1- 0 Ferguson (17.), 2-0 Ferguson (41.),
2- 1 Guöni Bergsson (42.), 2-2 Sellars
(43.), 3-2 Ferguson (67.)
Leeds-Aston Villa .........1-1
1-0 Hasselbank (79.), 1-1 Milosevic
(85.)
Leicester-Sheffield Wed....1-1
1-0 Guppy (28.), 1-1 Booth (85.)
Newcastle-Liverpool ..........
1-0 Watson (16.), 1-1 (31.) McMana-
man, 1-2 McManaman (43.)
Tottenham-Arsenal..........1-1
1-0 Nielsen (28.), 1-1 Parlour (62.)
Wimbledon-West Ham.........1-2
0-1 Kimble sjálfsmark (31.), 0-2 Kit-
son (54.), 1-2 Solbakken (90.)
Man.Utd 21 14 4 3 49-16 46
Blackbum 21 11 8 2 38-21 41
Chelsea 20 12 3 5 46-20 39
Liverpool 20 11 4 5 36-19 37
Leeds 21 10 5 6 30-23 35
Arsenal 20 9 7 4 35-23 34
Derby 21 9 5 7 34-28 32
West Ham 21 10 1 10 28-32 31
Leicester 21 7 7 7 25-21 28
Aston Villa 21 7 5 9 25-27 26
Newcastle 20 7 5 8 21-25 26
Wimbledon 20 6 6 8 21-24 24
Cventry 21 5 8 8 20-28 23
Cr.Palace 21 5 8 8 20-28 23
Sheff.Wed 21 6 5 10 32-44 23
Southampt 20 6 3 11 24-30 21
Bolton 21 4 9 8 19-33 21
Everton 21 5 5 11 20-31 20
Tottenham 21 5 5 11 19-37 20
Barnsley 21 5 3 13 19-51 18
1. deild:
Birmingham-Tranmere . 0-0
Bradford-Huddersfield 1-1
Bury-Crewe . . 1-1
Manch. City-Nottingham For. . . 2-3
Middlesbrough-Stockport 3-1
Oxford-Sunderland . . 1-1
Port Vale-Wolves . 0-2
QPR-Reading . 1-1
Sheffield Utd-Charlton 4-1
Swindon-Ipswich . 0-2
WBA-Stoke 1-1
Middlesbr 25 15 6 4 43-20 51
Nott.Forest 25 15 6 4 43-23 51
Sheff.Utd 25 12 10 3 40-25 46
Charlton 25 13 5 7 46-34 44
Sunderland 24 12 7 5 38-22 43
Wolves 25 12 6 7 32-26 42
WBA 25 12 5 8 27-24 41
Stockport 25 11 5 9 43-35 38
Swindon 25 11 5 9 32-36 38
Birmingham 25 9 9 7 25-19 36
Bradford 25 8 10 7 23-25 34
QPR 25 8 7 10 30-40 31
Ipswich 24 7 9 8 29-26 30
Norwich 24 8 6 10 24-34 30
Stoke 25 7 8 10 27-33 29
Reading 25 7 8 10 24-37 29
Oxford 25 7 6 12 30-35 27
Port Vale 25 7 5 13 26-35 26
Crewe 25 7 5 14 2640 25
Man.City 25 6 6 13 28-31 24
Tranmere 24 6 6 12 26-34 24
Huddersf 25 6 6 13 25-39 24
Bury 25 4 12 9 23-33 24
Portsmouth 23 6 5 12 29-37 23
i$jfe' 5K0TIAHD
Aberdeen-Motherwell 3-0
Dunfermline-Hearts 1-3
Hibemian-Kilmamock 0-1
Rangers-Dundee United . 4-1
St. Johnstone-Celtic 1-0
Rangers 19 12 6 1 51-21 42
Hearts 19 13 1 5 42-24 40
Celtic 19 12 2 5 34-13 38
Kilmarnock 19 7 4 8 18-33 25
Dundee U. 19 6 6 7 30-30 24
St. Johnst. 19 6 5 8 20-26 23
Dunferml. 19 5 6 8 22-37 21
Motherwell 19 5 4 10 23-32 19
Aberdeen 19 3 7 9 20-34 16
Hibemian 19 3 5 11 23-33 14
Darren Huckerby kom mikiö viö sögu þegar Coventry geröi sér lítiö fyrir og iagöi Man.Utd aö velli í gær. Hann fiskaöi vítaspyrnu þegar Coventry jafnaði
metin undir lokin, 2-2, og skoraöi svo sigurmarkiö eftir glæsilegan einleik einni mínútu fyrir leikslok. Reuter
United stöðvað
- Guðni skoraði aftur - Ferguson með þrennu fyrir Everton
Stóru tíðindin í ensku knatt-
spymunni í gær voru þau að meist-
ararnir í Manchester United urðu
að láta í minni pokann fyrir
Coventry. Heimamenn í Coventry,
sem höfðu tapað flmm af síðustu sex
leikjum sinum, tryggðu sér öll þrjú
stigin með tveimur mörkum á síð-
ustu fjórum mínútunum.
Gamli United-leikmaðurinn, Dion
Dublin, jafhaði, 2-2, úr
vítaspymu sem dæmd
var á þegar Darren Huck-
erby var feliur af Henn-
ing Berg og Huckerby
skoraði svo sigurmarkið
tveimur mínútum fyrir
leikslok eftir frábæran
einleik þar sem hann
tætti vöm United í sund-
ur og lagði boltann fram-
hjá Kevin Pilkington
markverði sem lék í stað
Peters Schmeichels sem
er meiddur.
„Lékum heimsku-
Dion Dublin
„Við lékum heimsku- utd.
lega og við fengum það sem við átt-
um skilið út úr þessum leik,“ sagði
Alex Ferguson, stjóri United.
Blackbum náði ekki að færa sér
tap United nægilega vel í nyt en lið-
ið varð að sætta sig við jafntefli
gegn Crystal Palace. Hermann
Hreiðarsson lék allan timann í vöm
Palace.
Duncan Ferguson kom frískur úr
fagnar markinu gegn gömlu félögunum í Man.
Reuter
þriggja leikja banninu og gerði sér
lítið fyrir og skoraði þrennu gegn
Guðna Bergssyni og félögum hans í
Bolton, öll með skalla. Annan leik-
inn í röð skoraði Guðni fyrir Bolton
en það dugði skammt í þessum
mikla fallslag. Guðni skoraði með
skalla frá vítateig eftir aukaspymu
Scott Sellars.
Lundúnarisarnir Arsenal og
Tottenham skildu jöfn,
1-1, þar sem Júrgen
Klinsmann lék að nýju í
búningi Tottenham. Þjóð-
verjinn snjalli hafði hægt
um sig enda í góðri gæslu
hjá vamarmönnum
Arsenal. Danski lands-
liðsmaðurinn Allan Niel-
sen kom heimamönnum í
Spurs yfir með fallegu
viðstöðulausu skoti en
Arsenal jafnaði verð-
skuldað metin þegar skot ^
Ray Parlours hafði við-
komu í Ramon Vega,
vamarmanni Tottenham,
og þaðan fór hann í netið.
„Ég er ekki kominn í
100% form en það kemur fljótlega.
Það var mikil pressa á mér fyrir
leikinn og fólk ætlaðist til að ég
skoraði. Við emm í fallsæti í dag en
ég er sannfærður um það verði ekki
lengi,“ sagði Klinsmann.
Glæsimark hjá McManaman
Leikur Newcastle og Liverpool
var mjög kaflaskiptur. í fyrri hálf-
leik réðu gestimir frá Liverpool
ferðinni og léku á köflum meistara-
lega vel. Enginn þó betur en Stave
McManaman en hann skoraði bæði
mörk Liverpool, það fyrra með
glæsilegu skoti frá vítateig í stöng
og inn og það síðara eftir góðan
undirbúning Michael Owens. I síð-
ari hálfleik komu leikmenn
Newcastle grimmir til leiks og allt
til leiksloka héldu þeir uppi stífri
pressu að marki Liverpool en á
undraverðan hátt náði liðið ekki að
skora þrátt fyrir mörg góð færi.
-GH
Siggi og félagar
steinlágu á Ibrox
Rangers virðist vera komið á
beinu brautina að 10. skoska meist-
aratitlinum í röð. Liðið vann öragg-
an sigur á Dundee United, 4-1, og
styrkti stöðu sína á toppnum.
Sigurður Jónsson lék allan leik-
inn í vörn Dundee United.
Celtic tapaði fyrir St. Johnstone
og datt niður í þriðja sætið.
Hibemian er komið á botn úr-
valsdeildarinnar eftir tap á heima-
velli gegn Kilmamock. íslending-
arnir hjá Hibemian, Ólafur Gott-
skálksson og Bjamólfur Lárasson,
voru hvorugur í leikmannahópi
liðsins. -VS
Laudrup fyrir Poborsky?
- Tékkinn til Benfica fyrir 360 milljónir
Karel Poborsky, tékkneski landsliðsmaðurinn í knattspymu, var á laug-
ardag seldur frá Manchester United til portúgalska félagsins Benfica fyrir
360 milljónir króna. Hann samdi við félagið til hálfs fjórða árs. United
keypti Poborsky frá Slavia Prag fyrir rúmar 400 milljónir sumarið 1996.
Hann hefúr að mestu leyti setið á varamannabekk liösins í vetur og hefði
sennilega ekki fengið atvinnuleyfið endurnýjað á næsta tímabili því til
þess þarf viðkomandi leikmaður að spila minnst 75 prósent af leikjum
síns liðs.
Laudrup til United?
í kjölfar sölunnar á Poborsky er nú mikið um það rætt á Bretlandseyjum
að Manchester United hyggist kaupa Danann snjalla Brian Laudrap frá
Glasgow Rangers. Laudmp vill komast frá Rangers en United þyrfti líklega
að borga um 700 milljónir fyrir hann. -VS
Karel
Poborsky skartar bún-
ingi Benfica eftir undirskriftina.
Reuter
MÁNUDAGUR 29. DESEMBER 1997
25,
DV
PÝSKAIAND
Lemgo-Nettelstedt...........30-19
Magdeburg-Flensburg.........26-25
Rheinhausen-Eisenach........33-30
Massenheim-Grosswallstadt . . 25-26
Gummersbach-Essen .........25-27
Niederwiirzbach-Wuppertal . . 29-24
Lemgo 15 394-350 23
Kiel 14 384-350 22
Magdeburg 15 388-368 20
Flensburg 15 407-388 18
Niederwúrzbach 15 389-371 17
Grosswailstadt 15 385-376 17
Nettelstedt 15 428-411 16
Minden 14 361-350 15
Massenheim 14 355-342 14
Wuppertal 15 387-385 14
Eisenach 15 363-406 11
Hameln 13 351-374 10
Gummersbach 15 392-417 9
Rheinhausen 14 354-382 9
Essen 14 351-382 9
Dormagen 14 340-374 8
Þýski handboltinn:
Patrekur sterkur
- Duranona skoraði 9 - Wuppertal tapaði
Patrekur Jóhannesson var besti
maður Essen ásamt Stefan Hecker
markverði þegar Essen vann góðan úti-
sigur á Gummersbach, 25-27, í þýsku 1.
deildinni í handknattleik í gær. Patrek-
ur var markahæstur í liði Essen með 6
mörk og liðið er komið úr botnsætinu.
Kóreumaðurinn Yoon skoraði 10 mörk
fyrir Gummersbach.
Róbert Duranona átti góðan leik fyr-
ir Eisenach í tapi liðsins gegn Rhein-
hausen, 33-30. Duranona skoraði 9
mörk en Joulin var markahæstur með
11 mörk. í liði Rheinhausen var
Klimovets með 7 mörk.
íslendingaliðið Wuppertal mátti þola
tap gegn Niederwúrzbach á útivelli.
Ólafur Stefánsson skoraöi 4 mörk en
Geir Sveinsson komst ekki á blað. Kon-
ráð Olavsson var ekki á meðal marka-
skorara hjá Niederwúrzbach en Roth-
peiler var markahæstur með 8 mörk.
Þá átti rússneski landsliðsmarkvörður-
inn Lavrov stórleik i markinu og varði
meðal annars 3 vítaköst.
Franski landsliðsmaðurinn Jackson
Richardson kórónaði frábæra frammi-
stöðu i leiknum gegn Massenheim þeg-
ar hann skoraði sigurmark Grosswall-
stadt á síðustu sekúndunum.
Lemgo malaöi Nettelstedt
Meistararnir í Lemgo tóku Nettel-
stedt í létta kennslustund á heimavelli
sínum og sigraðu með 11 marka mun.
Daniel Stephan skoraði 6 mörk fyrir
Lemgo og þeir Tempelmeier, Schú-
mann og Marosi vom með 5 mörk
hver. Hvít-Rússinn Khalepo skoraði 6
mörk fyrir Nettelstedt og spánski snill-
ingurinn Talant Dusjebaev 3.
Magdeburg marði sigur á Flensburg
í hörkuleik þar sem sigurmarkið var
skorað á lokasekúndunum.
Rússneski landsliðsmaðurinn Ata-
vin var markahæstur í liði Magdeburg-
ar með 8 mörk. Hvít-Rússinn Lebied-
zinski skoraði 6 og franski landsliðs-
maðurinn. Abati 4. Hjá Flensburg var
danski landsliðsmaðurinn Lars Christ-
iansen markahæstur með 7 mörk og
norski landsliðsmaðurinn Roger Kjen-
dalen var með 4 mörk.
-GH
Alþjóðlegt körfuboltamót í Lúxemborg:
Pólsku risarnir
- oQarlar íslenska liðsins sem vann Austurríki
ísland sigraði Austurríki, 88-80,
en tapaði fyrir undir 22 ára liði Pól-
verja, 66-80, á alþjóðlegu körfu-
boltamóti i Lúxemborg um helgina.
Leikurinn við Austurríki á laug-
ardag var jafn og spennandi. Aust-
urríkismenn skomðu fyrstu 6 stig-
in og höfðu frumkvæðið framan af
fyrri hálfleik en undir lok hans
náði íslenska liðið að stilla saman
strengi sína og komst yfir, 45-43.
íslendingar vom sterkari í síðari
hálfleik og náðu mest 10 stiga for-
skoti. Nökkvi Már Jónsson kom
sterkur inn í síðari hálfleikinn
ásamt bræðranum Jóni Amari og
Pétri Ingvarssonum og sigur ís-
lenska liðsins var ekki í hættu.
Guðmundur Bragason átti skin-
andi góðan leik og skoraði 22 stig,
Guðjón Skúlason 19, Falur Harðar-
son 16 og Helgi Jónas Guðfinnsson
11.
Slök nýting gegn Póllandi
Leikurinn við Pólverja í gær var
mun slakari af íslands hálfu, að
sögn Jóns Kr. Gíslasonar, lands-
liðsþjálfara.
„Pólverjar em með geysilega gott
lið sem vinnur þetta mót öragglega.
Þeir era miklu stærri en við og það
sem felldi okkur var slök skotnýt-
ing. En það era kannski ekki úrslit-
in sem skipta okkur mestu máli á
þessu móti. Þetta er fyrst og fremst
góð æfing fyrir stóra verkefnin,
hér fáum við tækifæri til að slípa
hlutina og prófa okkur áfram,"
sagði Jón Kr.
Pólverjar vora tíu stigum yfir í
hálfleik. íslenska liðið minnkaði
muninn í fjögur stig en þá stungu
Pólverjar af á ný og tryggðu sér ör-
uggan sigur.
Guðmundur Bragason skoraði 14
stig, Guðjón Skúlason 11, Helgi
Jónas Guðfinnsson 10, Pétur Ingv-
arsson 9, Falur Harðarson 6, Jón
Arnar Magnússon 5, Baldur Ólafs-
son 4, Hermann Hauksson 3,
Nökkvi Már Jónsson 2 og Eiríkur
Önundarson 2.
Island mætir Lúxemborg í loka-
umferð mótsins í kvöld. „Það má
búast við jöfnum leik, svipuðum og
gegn Austurríki, en við ættum þó
að eiga góða sigurmöguleika, enda
höfum við oftast náð að leggja Lúx-
emborg í gegnum árin,“ sagði Jón
Kr. Gíslason.
-GH/VS
Jón Arnar Ingvarsson lék mjög vel í síöari
hálfleiknum gegn Austurríki.
Zoran Jovicic, markahæsti leikmað-
urinn í júgóslavnsku knattspymunni
gekk um helgina til liðs við Samp-
doria á ítaliu.
Philip Cocu, landsliðsmaður Hol-
lands í knattspymu, gengur til liðs
viö Barcelona á Spáni fyrir næsta
tímabil. Hann lýkur þessum vetri
með PSV Eindhoven.
Stanley Menzo, fyrrum landsliðs-
markvörður Hollendinga í knatt-
spymu, er á leið á ný til Lierse i Belg-
íu frá Bordeaux í Frakklandi eftir að-
eins hálfs árs dvöl.
Marcelo Lippi, þjálfari Juventus, er
nýjasta nafnið sem hefur verið orðað
við þjálfarastöðuna hjá Glasgow
Rangers. Svíinn Tommy Svensson er
einnig sterklega orðaður við starfið
en Walter Smith hættir með Uðið i vor.
Þröstur aftur
til Víkinga
Þröstur Helgason handknatt-
leiksmaður, sem leikið hefur í
Þýskalandi í vetur, er kominn
heim og mun leika með Viking-
um í 1. deildinni það sem eftir er
vetrar.
Þröstur er efnileg skytta sem
var markahæstur í 2. deildinni í
fyrra. Hann gekk til liös við
þýska 3. deildarliðið Rúmmer-
swal í vetur og þaðan lá leiöin til
íslendingaliðsins Wuppertal þar
sem hann lék með B-liði félags-
ins.
Þröstur er Víkingum góður
liðsauki í baráttunni sem fram
undan er, botnslag 1. deildarinn-
ar. -GH
'Zf- EHOlflWD
Tony Cottee hefur verið kallaður til
baka til Leicester frá Birmingham.
Hann var þar i láni og átti að vera
mánuð í viðbót.
David Seaman, markvörður Arsenal
og enska landsliðsins, var gagn-
rýndur harkalega í enskum fjölmiðl-
um um helgina. Hann fékk á sig mjög
ódýrt mark gegn Leicester á fóstudag
og fyrir skömmu þótti hann eiga sök
á tveimur mörkum i leik gegn Black-
bum.
Tony Adams, fyrirliði Arsenal, er
enn og aftur kominn á sjúkralistann
hjá Arsenal vegna bakmeiðsla. Nú
hyggst hann fá bót meina sinna í
Frakklandi þar sem hann mun
stunda æfingar í sérstakri sundlaug.
Þaö er fyrir tilstuðlan Arsene Weng-
er, stjóra Arsenal, sem Adams kemst
i þessa meðferð. -VS/GH
Arsenal
lánar Val
Norskir fjölmiðlar skýrðu frá því um
helgina aö Arsenal og Strömsgodset
hefðu komist að samkomulagi um fé-
lagaskipti íslenska knattspymumanns-
ins Vals Fannars Gíslasonar.
Arsenal lánar Val til norska félagsins
og hann fær leikheimild þar strax eftir
áramótin. Valur á hálft annað ár eftir af
samningi sínum við Arsenal en þar hef-
ur hann ekki fengið önnur tækifæri en
með varaliðinu.
Þá var skýrt frá því að Stefán Gísla-
son, bróðir Vals, sem þegar hefði samið
við Strömsgodset, hefði verið leigður til
íslenska liðsins KR fram eftir næsta
sumri. -VS
Styrkleikaflokkarnir fyrir Evrópukeppni landsliða í knattspyrnu:
ísland sleppur naumlega
- er áfram í Qórða styrkleikaflokki þegar dregið verður í riðla 18. janúar
ísland verður áfram í fjórða styrk-
leikaflokki Evrópu þegar dregið verð-
ur í riðla fyrir Evrópukeppni lands-
liða í knattspymu þann 18. janúar.
Naumt er það þó í þetta skiptið því ís-
land er aðeins 0,027 stigum á undan
Hvíta-Rússlandi sem er stigahæsta
þjóðin i fimmta og neðsta styrkleika-
flokki.
Að þessu sinni taka 49 þjóðir þátt í
undankeppninni, sem er met. Holland
og Belgía halda lokakeppnina saman
og sleppa því við undankeppnina,
þannig að 51 þjóð samtals er með. Ein
ný þjóð er í þeim hópi, Andorra, nýj-
asti meðlimur Knattspymusambands
Evrópu.
Þjóðunum 49 er skipað í fimm styrk-
leikaflokka. Ein þjóð úr hverjum
flokki verður síðan dregin í hvem
hinna níu riðla undankeppninnar.
Reyndar era 13 þjóðir í fimmta styrk-
leikaflokki og því verða sex þjóðir í
fjórum riðlanna.
Flokkamir era þannig skipaðir:
1. flokkur: Þýskaland, Spánn, Rúm-
enía, Rússland, England, Júgóslavia,
Skotland, Ítalía, Noregur.
2. flokkur: Búlgaría, Danmörk,
Króatía, Portúgal, Austurríki, Frakk-
land, Tékkland, Tyrkland, Grikkland.
3. flokkur: írland, Sviss, Sviþjóð,
Úkraína, Litháen, Slóvakía, Finnland,
ísrael, Georgía.
4. flokkur: Pólland, Ungverjaland,
Norður-írland, Bosnía, Lettland,
Makedónía, Kýpur, Wales, ísland.
5. flokkur: Hvíta-Rússland, Slóven-
ía, Armenía, Færeyjar, Albanía, Lúx-
emborg, Moldavía, Azerbaijan, Eist-
land, Malta, Liechtenstein, San Mar-
ino, Andorra.
Þjóðverjar eru settir í efsta sæti
listans sem núverandi Evrópumeist-
arar en annars era reiknuð út stig eft-
ir árangri í undankeppni HM sem
lauk í haust og undankeppni EM 1996.
Spánverjar era með flest stig, 2,600, og
síðan koma Rúmenar með 2,450. ís-
land er í 36. sæti með 0,777 stig. Fær-
eyingar era skammt undan í 40. sæti
með 0,600 stig.
Norðmenn sluppu inn í fyrsta styrk-
leikaflokk á jafnmörgum stigum og
Búlgarir sem era efstir í öðram flokki.
-VS
íþróttir
Patrekur Jóhannesson lék vel meö
Essen í gær og skoraöi 6 mörk.
Blcand í poka
Finnur Jóhannsson stóð sig vel með
þýska handboltaliðinu Hameln á
móti í Hollandi um
helgina. Eins og DV
greindi frá á laug-
ardaginn er Finn-
ur genginn i raðir
Hameln, liðsins
sem Alfreð Gísla-
son þjálfar.
Finnur var
dæmdur i
tveggja ára keppnisbann
sumarið 1995 þegar hann féll á lyfja-
prófi sem framkvæmt var á honum
eftir frjálsíþróttamót sem hann var
þátttakandi í.
Hameln tapaði fyrir norska liðinu
Viking í undanúrslitum á mótinu í
Hollandi, 32-31. Finnur leikur vænt-
anlega sinn fyrsta leik í þýsku 1.
deildinni um næstu helgi þegar liðið
mætir Magdeburg.
Bogdan Wenta, handboltasnUlingur-
inn hjá Nettelstedt, er handarbrotinn
og spilar ekki á næstunni.
Rheinhausen, eitt af neðstu liöum
þýsku 1. deildarinnar i handbolta, er
gjaldþrota og lék sinn síöasta leik í
gær. Félagið skuldar 18 milljónir
króna og hefur engan fjárhagslegan
grundvöll lengur. Leikir liðsins verða
strikaðir út og það er sjálfkrafa fallið
úr deildinni.
Nedeljko Jovanovic, Júgóslavinn
snjalli sem lék Islendinga grátt fyrir
skömmu, hefur verið burðarás í liði
Rheinhausen. Hann hefur þegar
samið við Niederwtirzbach.
Juri Sjeftsjov, þjálfari Lemgo, segir
aö þýska 1. deildin í handknattleik sé
mun sterkari en á síöasta vetri.
„Jafntefli okkar við nýliða Eisenach
á dögunum er gott dæmi um hve
breiddin hefur aukist," sagði þjálfar-
inn.
Lemgo náði eins stigs forskoti um
helgina. Kiel getur hins vegar endað
áriö á toppnum ef liðinu tekst að
vinna Héðin og Róbert og félaga í
Dormagen annað kvöld.
Eric Wynalda, bandaríski landsliðs-
maðurinn í knattspyrnu, er liklega á
leið til Kaiserslautem, toppliðs þýsku
1. deildarinnar. Wynalda lék áöur
með Bochum og Saarbrúcken í þýsku
1. deildinni en leikur nú með San
Jose í Bandarikjunum.
Marco Negri skoraði á laugardag sitt
30. mark fyrir Rangers í skosku úr-
valsdeildinni i vetur. Það hefur ekki
gerst þar í landi frá árinu 1933 að
leikmaður hafi verið svona fljótur aö
ná þremur tugum marka.
Barcelona og Real Madrid slást nú
um að fá Carlos Gamarra, 26 ára
gamlan vamarmann frá Paragvæ, til
liðs viö sig. Real Madrid hefur þegar
boöið 7,5 milljónir dollara í Gamarra
'sem leikur með Benfica I Portúgal.
Börsungar eru reiðubúnir að hækka
þessa upphæö en forráðamenn Ben-
fica em ekki á því aö láta þennan
sterka vamarmann fara frá sér.
Hristo Stoichkov, Búlgarinn óstýri-
láti, segist ekki vera á fórum frá
Barcelona en spænsk dagblöð skýrðu
frá því um helgina aö hann væri á
forum til Compostela.
Skövde, sem mætir Aftureldingu í
borgakeppni Evrópu í handbolta, tap-
aði fyrir Redbergslid, 31-21, í undan-
úrslitum sænska deildabikarsins í
gær. GUIF vann Lugi, 31-25, í hinum
leiknum.
-GH/VS