Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.1998, Blaðsíða 5
UV FÖSTUDAGUR 13. FEBRÚAR 1998
19
Esja hin fjölkunnuga er eitt verka Baltasars á sýningunni í Gerðarsafni.
Baltasar sýnir í Gerðarsafni:
Konaní goðsögunum
Nýlega var opnuð í Listasafni
Kópavogs, Gerðarsafni, sýning á
málverkum myndlistarmannsins
Baltasars. Á sýningunni er á fjórða
tug verka eftir listamanninn sem
hann hefur unnið á síðustu árum,
flest þó á síðastliðnu ári.
„Ég hef undanfarið málað mikið
af myndum upp úr norrænu goða-
fræðinni. Því held ég áfram á þess-
ari sýningu en þrengi sjónarhomið
nokkuð því ég mála bara konur úr
norrænum goðsögum. Þama er því
meðal annars að finna myndir af
valkyrjum, skjaldmeyjum og öðrum
kvenpersónum sem finna má í sög-
unum,“ segir Baltasar um sýning-
una í samtali viö DV. „í raun má
segja að viðfangsefni mitt sé „kon-
an“ í norrænni goðafræði."
En em málverkin á sýningunni
frábmgðin þvi sem hann hefúr ver-
ið að gera undanfarið?
„Já, að einhverju leyti má segja að
ég hafi notaö öðruvísi tækni og
vinnuaðferðir nú heldur en ég hef
gert áður. Það má þó alls ekki taka
það svo að ég hafi breytt um stíl eða
gert stórkostlegar breytingar á list-
sköpim minni. Ég hef alltaf þróað
list mína hægt og rólega, án stökk-
breytinga. Tískustraumar og steftiur
hafa lítil áhrif haft á mig í gegnum
tíðina og svo mun áfram verða. Samt
er ég í stöðugri og hægri þróun sem
gerir að verkum að fólk mun alltaf
geta þekkt min verk frá öðrum út frá
mínu sérstaka handbragði."
Leikritiö í Grafarvogskirkju veltir upp spurningunni hvort til séu heilagir
syndarar.
Heilagir syndarar:
í óvígðri
Grafarvogskirkju
í vikimni var leikritið Heilagir
syndarar frumsýnt. Sýningarstað-
ur leikritsins er mjög óvanalegur,
leikritið er sýnt í Grafarvogs-
kirkju, en sú bygging er rétt rúm-
lega fokheld. Vegna þess er hús-
næðið mjög hrátt, vítt til veggja
og því afskaplega spennandi leik-
húsrými. Um leið er kirkjan mjög
krefjandi verkefni fyrir bæði leik-
ara og hönnuði leikmyndar. Fyrir
sýningima hafa verið smíðaðir
áhorfendapallar fyrir 170 manns,
kirkjan hefur verið upphituð og
festur upp fjöldinn allur af ljós-
um.
Verkið er eftir Guðrúnu Ás-
mundsdóttur en hún er líklega
einna þekktust fyrir verk sitt Kaj
Munk sem sýnt var við ekki
ósvipaðar aðstæður og Heilagir
syndarar, í ókláraðri Hallgríms-
kirkju.
Leikhópurinn sem sér um sýn-
inguna samanstendur af reyndum
leikhúslistamönnum í bland við
fulltrúa yngri kynslóðarinnar í ís-
lensku leikhúslífi. Sem dæmi um
það má nefna að leikstjóri verks-
ins er Magnús Geir Þórðarson
sem hingað til hefur aðallega leik-
stýrt verkum fyrir yngri kynslóð-
ina. Með aðalhlutverkið fer svo
hinn margreyndi leikari Þrösfiir
Leó Gunnarsson.
Leikritið fjallar fyrst og fremst
um ást, hvernig hún birtist í ólík-
um myndum og hvemig fólk með-
höndlar hana. Fylgst er með
presti sem liggur banaleguna og
gerir upp líf sitt. í uppgjörinu af-
hjúpast margt sem áður hafði ver-
ið dulið og inn í söguna fléttast
fjármálasvik og misferli, ástkonur
og elskhugar.
£4Mafl
S4MÍÉ
SAMBiSi
i SÍMA 905-5050
í vinninga eru „FLUBBER“-töskur,
troðfullar af „FLUBBER“-dóti, tölvuleikjum
bíómiðum, húfum, „FLUBBER“-slími o.fl.
uTiT
1 r ÍI * J
Æ iJ | 1 1 11 1 1 1 j i A
OjJllij 1 11