Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.1998, Síða 9
UV FÖSTUDAGUR 13. FEBRÚAR 1998
HLJÓMPLjíTU
Propellerheads/Decksand Drumsand
Rock and Roll ★★★★
Þeir Alex Gifford og Will White, sem
mynda dúettinn Propellerheads, eru sjálfsagt
þekktustu tónlistarmennimir af Big Beat
stefnunni í dag. Propellerheads hafa verið um
langt skeið sú Big Beat-sveit sem hefur notið
hvað mestrar athygli í heiminum. Tónleikar
þeirra þykja með eindæmum enda eru þeir
engir nýgræðingar í tónleikahaldi. Alex Gif-
ford var session-leikari hjá The Stranglers og
spilaði líka á hljómborð með ýmsum þekktum
teknósveitum Bretlands áður en hann hóf
samstarf með Wiil White og stofnaði Propell-
erheads. Tónlist þeirra er hröð og taktfóst
sem er reyndar eitt af megineinkennum Big
Beat-stefnunnar. Fyrsta breiðskífa þeirra hef-
ur nú loks litið dagsins ljós og hefur hennar vægast sagt verið beðið með mikilli eft-
irvæntingu. Á DecksandDrums... er að finna allar smáskífur þeirra félaga ásamt nýj-
um lögum. Þekktasta lag plötunnar er sjálfsagt History Repeating þar sem þeir njóta
aðstoðar Shirley Bassey sem gefur laginu nokkurn Bond-stíl með kröftugum söngstil
sínum sem fólk kannast sjálfsagt við. Enda er það ekkert skrítið þar sem Shirley Bass-
ey söng nokkur af allra þekktustu James Bönd-lögunum og nægir þar að nefna Gold-
finger. Reyndar áttu þeir í miklum erfiðleikum með að fá hana til samstarfs við sig
þar sem breiðskífa þeirra var tekin upp í ágústmánuði á síðasta ári en þannig vill til
að Shirley Bassey vinnur ekki i ágústmánuði. Þetta orsakaði dálitla seinkun á útkomu
plötunnar sem kemur reyndar ekki að sök þar sem frammistaða Shirley Bassey er
einn af hápunktum plötunnar. Propellerheads hafa sinn eigin stíl innan stefnu sem oft
á tíðum virkar einsleit. Þeir hafa rutt sér tO rúms með melódíska danstónlist sem er
samt hrá og lifandi. Það er í raun og veru ekkert á þessari plötu sem gefur til kynna
að hún sé dansplata af rafrænum toga. Annað en náttúrlega hraður og drífandi takt-
urinn á henni. Að öðru leyti er hún mjög lífræn og lifandi. Propellerheads eru ekki
alvarlega þenkjandi í tónlistarsköpun sinni. Þessi plata geislar fyrst og fremst af
kímni og lífsgleði og það er eitthvað sem mætti vera meira af i danstónlist í dag. Þar
fyrir utan eru þeir bara svo svalir að það er engu lagi líkt. Þeir hafa komið sér upp
ímynd hins nýja glaumgosa sem mætir á svæðið með nokkrar tólftommiu- undir hend-
inni, krúnurakaður í Paul Smith-jakkafótum og Adidas superstar-skóm. Góða
skemmtun. Jón Atli Jónasson
Busta Rhymes/When Disaster Strikes ★★★
Rapparinn Busta Rhymes er um margt
merkilegur nagli. Honum skaut fyrst inn á
sjónarsviðið þegar hann lék smáhlutverk í
kvikmyndinni Higher Learning. Eftir það
hlutverk hefur hann að mestu látið Hollywood
eiga sig og hefur snúið sér alfarið að tónlist-
inni. Þar hefur hann náð að ryðja sér til rúms
með sérstæðum rappstíl sínum og afar undar-
legum fatastíl sem hann hefur nú stofnað fyr-
irtæki utan um. Þannig er rappið víst í dag.
Það þykir enginn rappari með röppurum ef
hann framleiðir ekki joggingalla í nafni sínu.
Á breiðskítú sinni, When Disaster Strikes, nýt-
ur Busta Rhymes dyggrar aðstoðar Flipmode
Squad sem er nokkurs konar klíka á hans vegum. Þetta er líka eitthvað sem enginn
rappari getur verið án í dag. Það þykir alveg nauðsynlegt að hafa með sér nokkra efni-
lega rappara sem láta í sér heyra svona pínulítið líka. Breiðskífan hefst á intrói þar
sem öllum er hótað dauða og djöfulgangi eins og venja er í intróum á svona breiðskíf-
um. Þegar það er loks yfirstaðið og við öll orðin skíthrædd við Busta Rhymes, því
hann er svo mikill kall, þá hefst veislan. Busta Rhymes er nefnilega frábær rappari
og hann sannar það svo um munar á þessari plötu sinni. Lög á borð við Dangerous
og Put Your Eyes Where My Hands Could See eru með albestu rapplögum sem und-
irritaður hefur heyrt lengi. Það er lenska í rappinu að leita á náðir annarra þekktra
rappara og fá þá með í nokkur lög og víkur Busta Rhymes ekki frá þeirri reglu hér.
Honum til halds og trausts fyrir utan Flipmode-klíkuna eru Erykah Badu, Sean Puf-
fy Combs og Mase sem er lærisveinn Puff Daddy. Það eru kannski þau mistök sem
mér finnst Busta Rhymes gera. Hann þarf ekki á neinum öðrum að halda en sjálfum
sér. Honum hefur tekist vel upp í því að þróa sinn eigin stil í rappinu og finnst mér
oft sem á plötunni séu það klisjur rappsins sem halda aftur af honum og eru í raun
einu veiku punktarnir á When Disaster Strikes.
Jón Atli Jónasson
The Freestyle Files, volume 3
Þýska útgáfufryrtækið K7 hefur um
langt skeið notið sérstöðu innan tónlistar-
heimsins fyrir þær afúrðir sem fyrirtækið
gefur út. K7 hefur gefið meðal annars gefið
út hina fráhæru seríu DJ Kicks þar sem
þekktustu plötusnúðar heims eru fengnir
til að setja saman mixplötur. Meðal þeirra
sem gert hafa DJ Kicks plötu til þessa má
nefna hina austurísku töframenn Kruder
og Dorfmeister, franska hip hop plötusnúð-
inn DJ Cam, Carl Craig og þýsku hljóm-
sveitina Terranova. Hljómplötur frá K7
hafa allar einhvem sérstakan blæ sem ger-
ir útgáfu þeirra auðþekkjanlega og auð-
heyranlega hvar sem er. Þeir hjá K7 leggja mikið upp úr allri útgáfu sinni og era
vandaðir í öllum vinnubrögðum. Plötuumslög þeirra minna einna helst djassplöt-
ur og oft er tónlistin lika róleg og yfirveguð. K7 hafa upp á síðkastið verið að gefa
út safnplötur sem bera heitið The Freestyle Files og nú er þriðja bindið komið
út. Þar er aðallega að fmna lög eftir hljómsveitir frá meginlandi Evrópu en
einnig eru líka nokkrar breskar hljómsveitir á plötunni. Platan er á rólegum nót-
um og sver sig mest í ætt við trip hop og electrotónlist. Á þessari þriðju geisla-
plötu sem er tvöfóld er að fmna margar perlur. Til dæmis endurhljóðblöndun Mo
Wax sveitarinnar U.N.K.L.E. á gamla Can laginu Vitamin og lagið Marrakesh
með East of Suez. Báðir diskarnir renna þægilega í gegn og eru lögin fjölbreytt
án þess þó að nokkur stílbrot séu framin. Freestyle Files er safnplata sem er gerð
af vandvirkni og þekkingu og verður þess vegna tíður gestur i geislaspilurum
þeirra sem festa kaup á henni.
Jón Atli Jónasson
★★★>
itónlist
' ** *•
Hvað er það sem
gerir skandinav-
íska popptónlist
svona skrýtna?
Þetta er spurning
sem aðrar þjóðir
hljóta að setja fram
þegar hlustað er á
nýjustu útflutnings-
afurðina í skandin-
avíska poppinu.
Hljómsveitin sem
um er að ræða heit-
ir Aqua og er hún
dæmi um þær
hörmungar sem
norrænt samstarf
getur haft í for með
sér ef ógætilega er
farið. Sama hvort
um er að ræða
Abba, Ace of Base
eða Cardigans þá
hefur okkur Norð-
urlandabúunum
tekist að sjóða saman popptón-
list í gegnum tíðina sem er ein-
hvem veginn bara svo full af
hamingju og gleði. Hvað er það
sem gerir það að verkum að
poppið verður svo hryllilega
hamingjuríkt sem raun ber
vitni? Nú eru Finnar ekki svona
glaðir eins og hinar Norður-
landaþjóðimar þegar kemur að
tónlistarsköpun. Þar í landi
hlusta menn á þunglyndislegan
tangó fluttan af tónlistarmönn-
um í hvítum, snjáðum smóking-
fötum og með þykkt yfirvara-
skegg. I textum þeirra verða öll
hjörtu að steini og öll samskipti
kynjanna fara að lokum á versta
veg. En þegar yflr til Svíþjóðar
kemur þá kveður strax viö ann-
an tón. Tónlist hljómsveitarinn-
ar Aqua verður seint sett á stall
með ódauðlegum diskóslögurum
Abba-kvartettsins. Þó hefur
henni líkt og Abba og Ace of
Base tekist að sigra alla vin-
sældalista veraldar með lagi
sínu um draumastúlkuna Bar-
bie. Hvert mannsbarn í hinum
siðmenntaða heimi hefur vart
raulað annað en þetta lag síð-
ustu mánuði og þykir sumum
nóg um.
Þó hljómsveitin Aqua teljist
norrænt samstarfsverkefni þá
vilja samt Danir eigna sér sveit-
ina og held ég að engin hinna
Norðurlandaþjóðanna vilji taka
það frá þeim. Það er orðið langt
síðan Danir hafa átt heimsfræga
hljómsveit. Aqua starfar í Kaup-
mannahöfn og skaust þau beint í
fyrsta sæti vinsældalistans enda
ekkert skritið í landi þar sem
Slippery When Wet með Bon
Jovi telst til höfuðverka tónlist-
arsögunnar. En boltinn hélt
áfram að rúlla og nokkrum mán-
uðum seinna fór smákskífan
með Barbie Girl beint inn á topp
tíu listann í Bandaríkjunum.
Þar brugðu menn á það ráð að
stoppa sölu á smáskífunni til að
auka sölu á breiðskífu Aqua
sem heitir að sjálfsögðu Aquari-
um. Þetta gekk eins og i sögu og
Aqua fór beint inn á breiðskífu-
listann í Bandaríkjunum í eitt af
topp tiu sætunum. Hljómsveitin
Aqua haföi slegið rækilega í
gegn. Framleiðendur barbie-
dúkkunnar voru samt ekki
ánægðir með framgang þessarar
skandinavísku poppsveitar og
stefndu þeim fyrir að nota nafn
og orðspor barbie í leyfisleysi. í
fyrstu kann það að virðast að
Aqua sé einungis aö nota vel-
þekkta ímynd barbie dúkkunn-
ar til að selja tónlist sína. En í
raun og veru er hljómsveitin að
gera barbiedúkkuna að hold-
gervingi þeirra kvenna sem láta
stýrast af karlmönnum, eins og
meðlimir hljómsveitarinnar
segja sjálflr. „Við vorum bara að
grínast með því að stofna hljóm-
sveitina en jafnréttismálin eru
samt okkar boðskapur í raun,“
segir rapparinn Rene sem er
meðlimur hljómsveitarinnar.
„Það eina sem hefur í raun gerst
er að núna erum við moldrík og
ennþá að grinast."
Og grínið er víða að finna hjá
hljómsveitinni Aqua sem á bak-
hlið breiðskífu sinnar byrjar á
því að telja upp hárgreiðslufólk
sitt og fórðunardömur, á undan
hljóðfæraleikurunum. Hljóm-
sveitin Aqua ætlar sjálfsagt
bara að hafa gaman af þessu á
meðan það endist. Það er nefni-
lega ansi hætt við því að þau
verði bara fræg í fimmtán mín-
útur eins og Andy Warhol kall-
aöi þá frægð sem fólk hlýtur
einugis í stuttan tíma. En ein-
hvers staðar, í einhverjum bíl-
skúr í Malmö er enn ein norræn
gleðisveitin að leggja drög að
heimsyfirráðum. -JAJ
Ný plata væntanleg:
G-arbage
Hljómsveitin Garbage er nú
að leggja lokahönd á aðra breið-
skifu sína sem kemur væntan-
lega út i byijun apríl. Sögusagn-
ir um að hljómsveitin sé hætt
störfum eru því úr lausu lofti
gripnar og eru sjálfsagt margir
Garbage-aðdáendur sem fagna
því. Sem áhrifavalda sína á
þessari plötu vilja meðlimir
Garbage nefna Patti Smith ,
Kraftwerk, The Beach Boys og
svo kvikmyndina The
Manchurian Candidate sem þau
segja að hafi haft mikil áhrif á
sig. Garbage tók nýju plötuna
upp í Smart Studios sem er í
eigu Butch Wig, trommara Gar-
bage. Hann er einn þekktasti
upptökustjóri Bandaríkjanna og
hefur meðal annars stjórnað
upptökum fyrir Nirvana og
R.E.M. á ferli sínum. Smart
Studios er i Madison, Wisconsin
í Bandaríkjunum, sem er heima-
bær karlkynsmeðlima hljóm-
sveitarinnar. Þetta er í fyrsta
skipti sem allir meðlimir hljóm-
sveitarinnar leggjast á eitt við
lagasmíðar.
Mikið af þeim lögum sem
var að fmna á fyrstu breið-
skífu Garbage, sem kom út
árið 1995, var hljómsveitin
búin að semja þegar skoska
söngkonan Shirley Manson
bættist í hópinn. Hún hefur nú
tekið virkari þátt í lagasmíð-
unum og segir hljómsveitin að
það geri plötuna að heildstæð-
ara verki en ella.
Shirley segir textana á nýju
plötunni líka vera persónu-
legri og að öllu leyti sé hljóm-
urinn á henni líka dekkri og
þyngri. Þau segjast samt ekki
vera að taka algjöra kúvend-
ingu heldur segjast ætla að
halda í þann hljóm sem hefur
gert hljómsveitina svo vin-
sæla. Þau eru samt farin að
hallast meira að danstónlist i
seinni tíð og segjast nær ein-
göngu nota trommuheila á
nýju plötunni og mikið af
sömplum og hljómborðum.
Gert er ráð fyrir að fyrsta
smáskífulagið af nýju plötunni
verði lagið Push It. Það kemur
út um miðjan mars.
Danslisti
Islands
Party Zone
- tíu vlnsælustu danslögln vikuna
7. tll 14. febrúar 1998 -
1. Open Alr
Cab Drivers
2. Black Hole
16B
3. High Naturally
Warped 69
4. Sangue De Belrone
Cesaria Evora
5. ...to all bellevers
Heiko Laux
6. Music People
Moody Man
7. The Answerlng Machlne
Green Velvet
8. Hitech Funk
Underground Resistance
9. ThePlan
Sofa Surfers
10. The Night
Peter Funk