Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1998, Síða 4
FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 1998 JjV
um helgina
Hafnarborg, Hafnarfirði:
Diddú, án efa ein ástsælasta söngkona þjóöarinnar, veröur gestur Tríós
Reykjavíkur á tónleikunum í Fella- og Hólakirkju. DV-mynd E.ÓI.
Feila- og Hólakirkja:
Diddú og Tríó Reykjavíkur
Tríó Reykjavíkur efnir til tón-
leika sunnudaginn 1. mars kl. 17 í
Fella- og Hólakirkju. Tríóið skipa
þau Guðný Guðmundsdóttir fiðlu-
leikari, Gunnar Kvaran sellóleikari
og Peter Máté píanóleikari.
Gestur Tríósins verður hin vin-
sæla sópransöngkona Sigrún
Hjálmtýsdóttir sem margir þekkja
betur undir nafninu Diddú. Hún
mun syngja aríur eftir ýmsa höf-
unda en á fjölbreyttri efnisskránni
eru verk eftir Bach, Handel, Mozart,
Dvorák, Puccini, Rossini og Vaugh-
an Williams.
Tríó Reykjavíkur hefúr þegar
sannað ágæti sitt og unnið sér fast-
an sess í tónlistarlífi borgarinnar.
Tríóið er enda skipað listamönnum
sem eru frábærir hver á sinu sviði.
Ákveðið hefur verið að það leiki á
fleiri tónleikum i Fella- og Hóla-
kirkju síðar á árinu.
Kirkjan er mjög vel fallin til tón-
leikahalds sökum framúrskarandi
hljómburðar. Ekki spilla heldur
hljóðfærin fyrir; Marcussen orgel,
einstakt í sinni röð, og sérvalinn
Steinway flygill sjá til þess að kirkj-
an sé mjög eftirsótt af tónlistar-
mönnum og kórum, bæði til að
halda tónleika og eins til upptöku.
Tíska '98
Skúlptúrar, Ijóð oy málverk
Mikið verður um að vera í Hafnarborg,
menningar- og listastofnun Hafnarfjarðar, á
morgun, laugardag. Kl. 14 verða opnaðar þar
þrjár sýningar eftir fjóra listamenn. Victor Cil-
ia opnar þar málverkasýningu, í Sverrissal
opna Kristin Jóna Þorsteinsdóttir og Sigrún
Guðmundsdóttir sýningu á ljóðum, skúlptúr og
teikningum og i kafFistofunni á fyrstu hæð opn-
ar bandaríski listamaðurinn Joan Backes mál-
verkasýningu.
Victor Cilia ætlar að sýna ný málverk, unn-
in á þessu ári og því síðasta. Þau eru byggð upp
á symmetrískum formum og mynstrum sem
hafa verið listamanninum hugstæð þar sem
þau endurspegla hinn lífræna heim allt ffá óra-
víddum himingeimsins til smæstu lífsforma.
Hann hefur frjálsar hendur innan hinna
ströngu marka symmetriunnar og notar
mynstrið sem tjáningarform.
Victor fæddist í Reykjavík árið 1960 og lauk
námi ffá Myndlista- og handiðaskóla íslands
árið 1992. Sýningin í Hafnarborg er sjötta
einkasýning
hans auk þess
sem hann hefur
tekið þátt í
nokkrum sam-
sýningum.
Sigrún Guð-
mundsdóttir
sýnir skúlptúra
og módelteikn-
ingar. Verkin
fjalla um
mannslík-
amann og eru
unnin á síðast-
liðnum þremur
árum. Skúlpt-
úrverkin eru
steypt í brons
og gifs en mód-
elteikningam-
ar unnar með
koli.
Sigrún lauk
námi ffá
Statens Kun-
stakademi í
Ósló árið 1969.
Hún hefur
kennt við
Myndlistar-
skólann í
Reykjavík síð-
an 1972 og
Myndlista- og
handiðaskóla
íslands frá Skúlptúrar Sigrúnar Guö-
1983. mundsdóttur fjalla um
Kristín Jóna f°rm mannslíkamans í mis-
Þorsteinsdóttir munandi stöðum.
sýnir ljóð, örsögur og smásögur. Ljóðin eru
sett upp í ramma og sögurnar eru bundnar
inn í handunnar bækur. Verkin eru samin
á síðustu tveimur árum. Kristín hefur lesið
upp ljóð sín víða og birt þau að auki í
ýmsum blöðum og timaritum ásamt
Öryggi
Skuggahliðar þess
sem talið var öruggt
er sú staðreynd
að ekkert i þessu lífi
er komið til að vera.
Kristín Jóna Þorsteinsdóttir
Sú stærsta í Norður-Evrópu i
A Broadway verður haldin um helgina
árleg keppni fagfólks i tískugeiranum. Tísk-
an ’98 er heiti hennar og þar leiðir saman
hesta sína fagfólk í fimm iðngreinum; hár-
greiðslu, skartgripagerð, fatahönnun, förð-
un og ásetningu gervinagla. Þessi keppni
hefur verið haldin á hverju ári síðastliðin
15 ár en það er tímaritið Hár og fegurð sem
hefur staöið að henni.
Keppnin er geysilega fjölmenn, um 200
keppendiu'. eru. skráðir. tÚ. lejks. og koppa.
þeir um 30 verðlaunabikara sem veittir eru
fyrir sigur í einstökum flokkum. Aðstand-
endur keppninnar segja að þar með sé hér
um að ræða stærstu keppni sinnar tegund-
ar í Norður-Evrópu.
Fjölmörg fyrirtæki verða með sýningar-
bása til að kynna nýjungar og vönu- sem
varða tísku og útlit. Einnig verða tískusýn-
ingar íslensks fatagerðarfólks og skart-
gripahönnuða á staðnum.
., .Tiskaa 198. hefst.kL. 1Q-30 á íwrumdá& pg..
mun standa fram á
kvöld. Fjölmörg skemmti-
atriði verða á staðnum, t.d.
munu þrjár hljómsveitir
troða upp, Maskina, Woofer
og Gloss. Þeim sem vilja
kynna sér efni keppninnar
betur er bent á að skoða
heimasíðu hennar, slóð-
in er http:: //www.vor-
. tej{.js/.fashi(iii..
Eitt verka Victors Cilia, en oll verk hans á
sýningunni byggjast á symmetrískum
formum.
greinum og sögum.
Joan Backes
sýnir myndir
sem unnar eru
með blandaðri
tækni. Hún
byggir upp
grunnmyndina
með collage-að-
ferð og dýpkar
hana síðan með pensl-
inum og blandar
jafnvel
sandi í lit-
inn til að
gefa
mynd-
unum
við-
eig-
ger-
ir aðallega lands-
lagsmyndir og hef-
ur laðast að ströndum
Norður-Atlantshafsins.
Hún er nú búsett í
Massachusetts en ferðast
til Noregs, Skotlands og
íslands til að
mála.
Sýning-
amar
standa fram
í miðjan
mars.
Keppt er í
ýmsum
greinum
hárgreiðslu
og ekki ólíklegt
aö voldugar
greiöslur eins og
þessi muni líta dags-
ins Ijós í Broadway á
sunnudag.