Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1998, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1998, Blaðsíða 2
26 MÁNUDAGUR 20. APRÍL 1998 íþróttir_________________________________________________________________________________________r>v íslandsmeistarar, bikarmeistarar og Reykjavíkurmeistarar Vals 1998 í sigurvímu eftir sigurinn gegn Fram á laugardaginn. Þetta var 20. íslandsmeistaratitill félagsins og sá fimmti á síðustu sex árum. DV-mynd Pjetur - Valur íslandsmeistari í 20. sinn meö því að leggja Fram, 3-1, í úrslitum Svíþjóð: Gullmark Péturs - Sverrir skoraði aftur Pétur H. Marteinsson tryggði nýliðum Hammarby stig gegn Gautaborg í sænsku úrvalsdeild- inni í knattspyrnu í gær. Pétur jafnaði metin, 1-1, á lokasekúnd- um leiksins með stórglæsilegu skoti í stöngina og inn frá víta- punkti. Pétur var sagður besti maður vallarins og frammistaða hans í fyrstu umferðunum hefur vakið mikla athygli í Svíþjóð. Sverrir Sverrisson skoraði sitt annað mark fyrir Malmö i jafn- mörgum leikjum þegar hann kom liðinu yfir gegn Norrköping á 11. mínútu. Það dugði þó ekki því heimaliðið skoraði tvisvar og vann. Sverrir lék mjög vel i fyrri hálfleik en datt niður eins og allt liðið í þeim síðari. Úrslitin i Svíþjóð um helgina: AIK-Halmstad...........1-0 Frölunda-Öster ........3-0 Stefán Þ. Þórðarson lék fyrri hálfleik- inn með Öster en Þorvaldur Makan Sigbjömsson var ekki með. Hammarby-Gautaborg.....1-1 Pétur Bjöm Jónsson fór af velli hjá Hammarby á 56. mínútu. Helsingborg-Örebro.....0-0 Amór Guðjohnsen lék allan leikinn með Örebro. Hlynur Birgisson og Gunnlaugur Jónsson vom ekki með liðinu og hvorki Hilmar Bjömsson né Jakob Jónharðsson með Helsingborg. Norrköping-Malmö FF....2-1 Ólafur Öm Bjamason lék seinni hálf- leikinn með Malmö. Birkir Kristins- son var ekki i marki Norrköping. Trelleborg-Hácken......0-1 Örgryte-Elfsborg.......2-2 Haraldur Ingólfsson lék síðustu 20 mínútumar með Elfsborg. Staða efstu liða: Frölunda 2 2 0 0 5-1 6 Norrköping 2 2 0 0 5-2 6 Hammarby 3 1 2 0 6-4 5 Helsingborg 3 1 2 0 1-0 5 Örgryte 2 1 I 0 4-2 4 AIK 2 1 1 0 2-1 4 Hacken 3 1 1 1 1-2 4 -EH/VS Noregur: Tryggvi skoraði - og Bjarki líka Tryggvi Guðmundsson komst á blaö í norsku úrvalsdeildinni í knattspymu í gær. Hann skoraði þá fyrra mark Tromsö sem gerði jafhtefli viö Strömsgodset, 2-2. Bjarki Gunnlaugsson kom inn á sem varamaður þegar Molde vann Liileström, 4-0, og skoraði síðasta markið. Úrslitin í Noregi um helgina: Molde-Lilleström.......4-0 Heiöar Helguson lék í framlínu Lille- ström en Rúnar Kristinsson er enn frá vegna meiðsla. Bodö/Glimt-Sogndal ....3-0 Kongsvinger-Brann......2-2 Ágúst Gylfason lék með Brann. Moss-Stabæk............1-0 Helgi Sigurðsson lék síðustu 4 mínút- umar með Stabæk. Rosenborg-Viking ......3-1 Rikharöur Daðason lagði upp mark Viking. Hann og Auöun Helgason léku allan leikinn með Viking. Ámi Gautur var ekki í marki Rosenborg. Tromsö-Strömsgodset ...2-2 Óskar Þorvaldsson var ekki með Strömsgodset en Valur Fannar Gísla- son var á varamannabekk liðsins. Válerenga-Haugesund....3-2 Brynjar Gunnarsson lék ekki með Válerenga. Molde, Rosenborg og Moss eru með fullt hús stiga eftir tvær umferðir. -VS íslandsbikarinn er kominn til varðveislu á heimavöll Valsmanna í Hlíðarenda eftir sigur Vals á Fram í fjórða úrslitaleik liðanna um ís- landsmeistaratitilinn í handknatt- leik karla. Þetta er svo sem engin ný tíðindi því þetta var 20. íslands- meistaratitill Hlíðarendaliðsins frá upphafi og sá fimmti á síðustu sex árum en í fyrra voru það KA-menn sem fögnuðu titlinum. Valsmenn fóru á kostum Valsmenn sýndu það og sönnuðu í þessum fjórða leik að þeir bera með réttu sæmdarheitið besta hand- knattleikslið íslands 1998. Þeir fóru á kostum og hreinlega tættu Fram- arana í sig. Valsmenn náðu yfír- burðaforystu strax i fyrri hálfleik og voru búnir að gera út um leikinn löngu áður en hann var úti. Frábær vöm, snjöll markvarsla Guðmundar Hrafnkelssonar, geysiöflug liðs- heild, barátta og sigurvilji ein- kenndi leik Valsmanna allan leik- inn og það réðu Framaramir ein- faldlega ekki við. Þeir urðu að játa sig sigraða strax í fyrri háifleik enda vom úrslitin I einvíginu ráðin eftir að Valur náði mest 8 marka forskoti í fyrri hálfleik. í haust vora það ekki margir sem spáðu því að Valsmenn ættu eftir að standa uppi sem sigurvegarar á ís- landsmótinu en enn einu sinni hnekktu Valsmenn spádómum spek- inganna. Þeir efldust með hverri raun og eins góðu liði sæmir topp- uðu þeir á hárréttum tíma. í úrslita- keppninni þurftu þeir að kljást við liðin sem vora fyrir ofan þá í deild- arkeppninni sínum en það breytti engu og því getur enginn velkst í vafa um að íslandsmeistaratitillinn er á réttum stað. Frábær vörn Fyrirfram áttu menn von á jöfn- um leik en Valsmenn mættu geysi- lega vel stemmdir til leiks. Guð- mundur Hrafnkelsson gaf sínum mönnum tóninn með frábærri markvörslu á upphafsmínútunum þar sem hann varði meðal annars vítakast Olegs Titovs. Framararnir komust ekki áleiðis gegn öflugri vöm Vals og þessi varnarleikur minnti mjög á hina frægu mulnings- vél sem í vora menn eins Gísli Blön- dal, Ágúst Ögmundsson, Ólafur H. Jónsson, Stefán Gunnarsson og fl. Leikmenn Safamýrarliðsins skor- uðu fýrsta mark sitt á 7. mínútu og náðu aðeins að skora 6 mörk í hálf- leiknum á meðan Valsmenn léku við hvem sinn flngur og skoruðu mörk úr öllum regnbogans litum. Flestir ef ekki allir sem fylgdust með leiknum skynjuðu það þegar flautað var til leikhlés aö úrslitin voru ráðin og það var ekki laust viö að sigurglampi sæist í augum Vals- manna þegar þeir gengu til búnings- herbergja. Framcirar voru að sama skapi niðurlútir enda sér meðvitaandi að þeir gætu ekki snúið leiknum sér í vil. Valsmenn slökuðu á klónni á lokakafla leiksins en þótt Frömur- um hafi tekist að minnka muninn niður í þrjú mörk var sigur Hlíðar- endapiltanna ekki í hættu og þegar leiktíminn rann út bratust út gífur- leg fagnaðarlæti í Valsheimilinu. Jón dró vagninn Það var sannkallaður meistara- bragur á leik Valsmanna þar sem liðsheildin sá um að gera út um leikinn. Vamarleikur Vals og mark- varsla Guðmundar lagði grunninn að þessu góða forskoti sem liðið náði í fyrri háifleik. í sókninni léku Valsmenn eins og áður í úrslita- keppninni af yfirvegun og skyn- semi. Sá sem þar stjórnaði ferðinni var foringinn sjálfur, Jón Kristjáns- son. Hann dró vagninn fyrir læri- sveina sína og tók af skarið þegar þess þurfti. Þessi hógværi leikmað- ur og þjálfari sýndi og sannaöi að hann er snjall í sínu fagi sem þjálf- ari og ekki síður sem leikmaður. Hinn 19 ára gamli Daníel Ragn- arsson blómstraði í leiknum, eink- um i fyrri hálfleik, og ljóst er að þarna er á ferðinni gifurlegt efni. Sigfús Sigurðsson var sterkur i vöm og sókn sem og Ingi Rafn, Dav- íð Ólafsson lék vel í horninu og The- dór Valsson hefur skipað sér í hóp bestu varnarmanna landsins. Svona getur maður haldið áfram. Allt Valsliðið á hrós skilið fyrir frábæra frammistöðu. Það kom, sá og sigraði og vann verðskuldaðan íslands- meistaratitil. Reynslunni ríkari Framarar kveðja þetta tímabil frekar súrir. Þeir áttu góða mögu- leika á að hampa þremur stórum titlum en töpuðu þeim öllum. í þessu einvígi sáu þeir aldrei til sól- ar og tapleikurinn á heimavelli í fýrsta leiknum varð liðinu einfald- lega um megn. Eftir þann leik glat- aðist sjáifstraustið og trúin á að geta lagt Valsmenn að velli. Þessi vetur verður þó leikmönnum Fram öragglega lærdómsríkur og góður reynslubanki upp á framtíðina. Framarar þurfa engu að kvíða með þetta lið sitt. Það er vel skipað og hefúr burði til að verða áfram í fremstu röð. Reynir Þór markvörður lék best Framara í þessum leik og mark- varsla hans bjargaði liðinu frá stærra tapi. Oleg Titov gerði góða hluti þegar hann slapp úr gæslunni og Magnús Amar kom sterkur upp í síðari hálfleik. Skyttumar Gunnar Berg og einkum Daði fúndu sig ekki og við því máttu Framarar alls ekki. -GH Lærdómsríkur vetur „Banabitinn í þessu var að tapa fyrsta leiknum á heima- velli og eftir á að hyggja var það of stór biti að kyngja gegn jafhsterku Uði og Val. Það var mjög slæmt að missa út tvo lykilleikmenn, Guðmund og Sigurpál, og það skapaði ákveð- inn vandamál í leik okkar. Þessi vetur hefúr verið mjög erf- iður fyrir okkur en geysilega lærdómsríkur fyrir mína menn. Fram á að mínu mati framtíðina fyrir sér og það er geysilega mikilvægt fyrir reynsluna að ganga í gegnum svona,“ sagði Guðmundur Guðmundsson, þjálfari Fram. „í þessum leik byrjuðum við á því að misnota dauðafáeri og vítakast og ein- hvem veginn náði vömin sér aldrei á strik og sóknarleikurinn ekki heldur. Það gekk ekkert upp og þetta var slakur leikur af okkar háifú. í haust hefði maður kannski ekki veðjað á Val en þegar maður sá hvað mótið var jafiit þá gerði maður sér grein fýrir því að það gat nánast hvaða lið sem er orðið ís- landsmeistari. Hefðin og reynslan hjálpaði Val og það er vonandi hlutur sem við erum að öðlast. Ég vil þakka stuðningsmönnum Fram frábæran stuðning við okkur í vetur og þeir eiga stóran þátt í árangri okkar í vetur ásamt frábærri stjóm," sagði Guðmundur. -GH Hafa tvú á sínum hópi „Það var alit önnur stemning í liðinu en í síöasta leik og Framaramir vora ekki eins stemmdir og í þeim leik. Það varð ákveðiö spennufall hjá þeim á meðan minir menn mættu í leik- inn reiðir eftir útreiðina sem þeir fengu hjá Frömurum i þriðja leiknum. Liðið er búið að spila mjög góða leiki í þessari úrslita- keppni og ég held aö við séum vel að titlinum komnir," sagði Jón Krisfjánsson, þjálfari og leikmaður Vals. „Það er engin sérstök formúia fýrir þessari velgengni. Mín regja hefúr veriö sú að ég eyði ekki allt of miklum tima í hvað hinir eru að gera heldur skoða ég hvað við erum að gera. Ef maður hefúr virki- lega trú á sínum hóp þá á maður að einbeita sér af sínum mannskap. Ungu strákamir læra mest af því. I haust þegar mótið hófst var maður ekkert að spá I neina titia. Stefiian var tekin á aö faka að minnsta kosti einn. Menn áttu von á að við yröum að berjast í efri kantinum en það vom aðrir kandídatar en við sem veðjað var á. Ég held að ungu strákamir í liðinu hafi sýnt virkilega hvað í þeim býr og enn og aftur hefúr það sannast hve gott og öflugt yngri flokka sfarf er mikilvægt Hér hefúr þaö tíðkast að menn ah upp sitt eigið hð. Þetta eru allt Valsmenn með Valsfrjartað á réttum stað,“ sagði Jón. -GH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.