Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1998, Blaðsíða 4
28
MÁNUDAGUR 20. APRÍL 1998
MÁNUDAGUR 20. APRÍL 1998
29
íþróttir
Kristján
meiddist
Kristján Finnbogason, lands-
liðsmarkvörður í knattspyrnu,
meiddist á ökkla á laugardag
þegar lið hans, Ayr United, gerði
jafntefli viö Dundee, 1-1, í
skosku 1. deildinni.
Atvikið gerðist á 39. mínútu
pg Kristján þurfti að fara af velli.
í fyrstu var óttast að hann væri
ökklabrotinn en í gær kom í ljós
að aðeins var um tognun að
ræða.
Kristján missir líklega af
næsta leik Ayr en ætti að geta
lokið tímabilinu með liðinu.
Hann er síðan væntanlegur
heim í raðir KR-inga áöur en ís-
landsmótið hefst. -VS
NBA-deildin:
New Jersey
í úrslitin
Deildakeppni NBA í körfu-
knattleik lauk í nótt. New Jersey
varð í gærkvöld 16. og síðasta
liðið til að vinna sér sæti í úr-
slitakeppninni sem hefst í
vikunni.
Aöfaranótt laugardags:
Boston-Cleveland.........78-71
Walker 17, Minor 15 - Ilgauskas 26.
Atlanta-Charlotte......121-104
Smith 27, Henderson 25 - Rice 30.
Miami-Washington.........89-97
Mouming 20 - Howard 22, Webber 21.
Orlando-New Jersey .... 121-109
Anderson 29, Outlaw 25 - Cassell 27.
Philadelphia-Chicago.....80-87
Coleman 20 - Jordan 24, Kukoc 18.
Detroit-Milwaukee......108-102
Hill 31, Stackhouse 27 - Curry 25.
Indiana-Toronto.........107-98
D. Davis 20, Rose 19 - Christie 24.
Minnesota-Houston ......102-95
Gamett 20, Mitchell 19 - Willis 22.
Denver-Portland........109-101
L. Ellis 22, Goldwire 22 - B. Grant 18.
Seattle-San Antonio.....87-89
Schrempf 24 - Duncan 31, Robinson 22.
LA Lakers-Dallas........124-95
Shaq 43, Jones 21, Bryant 17 - Finley 31.
Phoenix-Utah............99-102
Chapman 25 - Malone 29, Russeli 21.
Aöfaranótt sunnudags:
Washington-Boston ......112-95
Webber 27, Murray 21 - Walker 18.
Cleveland-Indiana .......96-92
Ilgauskas 26, Kemp 18 - Rose 26.
Chicago-New York ......111-109
Jordan 44, Pippen 21 - Houston 22.
Milwaukee-Minnesota . . 109-111
Allen 40 - Wheat 19, Jordan 18.
Golden State-Vancouver . 112-100
Delk 23, Dampier 23 - Massenburg 26.
LA Clippers-Sacramento . . 83-77
Robinson 20 - Williamson 27.
Úrslit í gærkvöld:
New Jersey-Detroit.....114-101
Gill 27, Van Horn 25, Kittles 22 -
Toronto-Philadelphia .... 78-107
- Iverson 26, Coleman 20.
Charlotte-Orlando .......89-76
Atlanta-Miami...........101-89
Smith 30, Laettner 17 - Lenard 18.
LA Lakers-Utah .........102-98
Shaq 33, Bryant 25, Van Exel 20 -
Malone 27, Eisley 18, Carr 13.
Portland-Seattle.........82-90
Rider 24 - Payton 27, Baker 20.
Þremur síðustu leikjum deildakeppn-
innar, Houston-Phoenix, San Ant-
onio-Denver og Sacramento-Vancou-
ver, var ekki lokið þegar DV fór í
prentun.
í úrslitakeppninni mætast:
Austurdeild:
Chicago - New Jersey
Miami - New York
Indiana - Cleveland
Charlotte - Atlanta
Vesturdeild:
Utah - Houston
Seattle - Minnesota
LA Lakers - Portland
San Antonio - Phoenix
-VS
„Yndislegt“
„Þetta er alveg yndislegt. Þetta
er búið að vera hörkubarátta og
erfitt i allan vetur. Við erum bún-
ir að leggja okkur svakalega mik-
ið fram og leggja mikla vinnu í
þetta. Við erum þá bæði leikmenn,
þjálfarar og þeir sem koma að lið-
inu. Það er rosa samstaða í liðinu
og leikmennimir hafa síðan held-
ur betur tekið viö sér seinni hlut-
ann,“ sagði Friðrik Ingi
Rúnarsson, þjálfari Njarðvíkinga.
Keflavíkurserían skólaöi okkur
„Serían við Keflavík var rosaleg
og hún skilaði okkur dýrmætri
reynslu og hjálpaði okkur gífur-
lega mikið fyrir úrslitin við KR.
Ekkert jafnast á við það að taka
þátt í nágrannarimmu við Kefla-
vík og þeir leikir skóluðu okkur
mikið tU. Þetta er öðruvísi lið en
síöast þegar ég var í Njarðvík og i
raun miklu yngra en þá og miklu
færri refir í liðinu nú.
Liðið er í ár kannski skipað
minni spámönnum sem menn
kannski ekki reiknuðu með í upp-
hafi vetrar. Innst inn held ég að
enginn hefði búist við að Njarðvík
stæði uppi sem sigurvegari hér í
dag, hvað þá 3-0.
Byrjaö á aö stækka hópinn
Við byrjuðum á því í haust að
stækka hópinn og notuðum mótin
í upphafi vetrar tU að leyfa öUum
að spreyta sig. Það er vissulega að
skUa sér í erfiðum leikjum i úr-
slitakeppninni. Yngri strákamir
voru tilbúnir að láta gott af sér
leiða í þessu leikjum. Teitur hefur
líka þroskast mikið sem leikmað-
ur frá því fyrir Grikklandsforina
og ég er á því að þetta sé jafnasta
tímabU hans frá upphafi.
Er Njarövík fann taktinn
Ef menn skoða síðustu leiki
Njarðvíkur í deUdinni og leikina í
úrslitakeppninni sjá menn að þeg-
ar liðið fann taktinn og fór að
spUa alvöruliðsvöm stóðst ekkert
lið okkur snúning. Menn mátu
okkur vitlaust er þeir töldu að við
væram bara keyrslulið því við
vomm að vinna þetta á vöminni,"
sagði Friðrik Rúnarsson, þjálfari
Njarðvíkur eftir leik. -ÓÓJ
Friörik Ingi Rúnarsson gefur hér bikarnum léttan koss eftir aö
lærisveinar hans höföu lagt KR-inga aö velli á sannfærandi hátt.
„Eg er allt annar Teitur"
„Þetta var alveg meiri háttar og næstum því eins og draumur," sagði Teit-
ur Örlygsson, leikmaður Njarðvikur, eftir leik. „Ég er aUt annar Teitur en
áður en ég fór tíl Grikklands og hitti í raun fyrir aUt annað NjarðvíkurUð en
það sem ég var að spila með áður en ég fór. Við höfðum trú á þessu frá upp-
hafi þrátt fyrir að ekki höfðu allir trú á okkur og við vorum gagnrýndir tíl að
byija með. Viö töluðum um það sjáifir að við gætum bætt okkur og svo fer
þetta að springa út á réttum tíma. Við spUuðum þessa leiki mjög sannfáerandi
og gáfúm KR-ingum hvergi færi á okkur. Við spUuðum góða vöm allan tím-
ann og það er hún sem skilar dýrmætum körfúm hinum megin," sagði Teitur
eftir leik.
„Þetta er frábært. Þetta er fyrsti titUlinn okkar Loga. Við höfum aldrei
náö að vinna í yngri flokkum en vinnum nú okkar fyrsta íslandsmeist-
aratitil í meistaraflokki 16 ára gamlir. Friörik sýndi okkur traust í vet-
ur og þaö var að skUa okkur dýrmætri reynslu. Þaö er með ólíkindum
að við séum íslandmeistarar með fyrirmyndum okkar í gegnum árin,“
sagöi hetja Njarðvíkur í úrslitaleikjunum, Örlygur Sturluson, effir leik.
-ÓÓJ
Ósvaldur Knudsen skoraði 52 stig
í leikjunum þremur gegn Njarðvík
þó að hann væri aldrei í
byrjunarliðinu. Auk þess átti hann
10 stoðsendingar og tók 12 fráköst.
Ekki slæmt framlag það af bekkn-
um enda Ósvaldur áreiðanlega
besti sjötti maður úrvalsdeUdarinn-
ar.
BÖrlygur Sturluson
skoraði 45 stig og
átti 17 stoðsending-
ar í leikjunum við
KR. Það gerir 15 stig
að meðaltali. Örlyg-
ur skoraði 7,8 stig
að meðaltali í vetur
með Njarðvík en kom heldur betur
sterkur í úrslitaleikina við KR.
Þessi 16 ára pUtur, sonur Sturlu
Örlygssonar, sem gerði garðinn
frægan með Njarðvíkingum á ámm
áður, er mesta efni sem fram hefur
komið hér á landi í körfuboltanum.
-ÓÓJ/GH
KR (41) 94
Njarövík (51) 106
2-D, 2-8, 7-13, 13-13, 22-20, 26-25,
31-28, 36-36, 36-41, 38-49, (41-51),
43-51, 43-53, (10 mínútna töf), 50-59,
58-64, 60-68, 64-76, 68-83, 75-94,
77-100, 84-101, 92-106, 94-106.
Stig KR: Keith Vassell 29,
Ósvaldur Knudsen 24, Baldur
Ólafsson 12, Siguröur Jónsson 9, Ing-
var Ormarsson 7, Marel Guðlaugsson
6, Atli Einarsson 4, Björgvin Reynis-
son 3.
Stig Njarðvíkur: Petey Sessoms
34, Friðrik Ragnarsson 29, Teitur
örlygsson 18, Örlygur Sturluson 12,
Kristinn Einarsson 5, Páll Kristins-
son 5, Guðjón Gylfason 3.
Sóknarfráköst: KR 10 , Njarðvík 8
Vamarfráköst: KR 21, Njarðv. 22
3ja stiga körfur: KR 8/25 , N 12/27
Vítanýting: KR 16/23 , N 26/34
Dómarar: Jón Bender og Leifur
Garðarsson. í góðu lagi.
Áhorfendur: Um 600
Maður leiksins: Friðrik
Ragnarsson Njarðvík.
Ragnar Ragnarsson, Páll Kristinsson og Petey Sessoms voru að vonum kátir eftir sigurinn gegn KR í gær. Á innfelldu myndinni er Örlygur Sturluson með þeim Páli og Sessoms en þessi 16 ára strákur sló
svo sannarlega í gegn með Njarðvíkurliðinu í vetur. Annað eins efni hefur ekki komið fram í langan tíma. DV-myndir ÞÖK
- Njarðvíkingar íslandsmeistarar í 10. sinn eftir
þrjá örugga sigra á KR-ingum
Það tók Njarðvíkinga aðeins þrjá
leiki að yfirvinna KR og tryggja sér
sinn 10. íslandsmeistaratitil frá upp-
hafi og jafnframt þann þriðja frá 1994.
Annað árið í röð kláraðist mótiö í
þremur leikjum en það verður seint
sagt um úrslitin í ár að þau hafl ver-
ið jöfn og spennandi. Yfirburðir
Njarðvíkur vom miklir og KR-liðið
átti aldrei minnstu glætu í íslands-
meistaratitilinn i ár.
Bæöi þessi lið komu upp eftir mis-
góða byrjun í vetur og mundu margir
hafa rekið upp stór augu fyrr í vetur
ef það hefði verið sagt við þá að
Njarðvík og KR myndu spila úrslita-
leikina í vor. Þrátt fyrir að bæði lið
hafi komið inn í úrslitaleikina með
stigvaxandi leik að undanfórnu er
nokkuð ljóst að Njarðvíkurliðið var
komið í þessa leiki til að klára dæmið
en KR-ingar voru ekki að spila þann
leik sem þeir hafa verið að sýna fyrir
þessa leiki við Njarðvík.
Vonarglæta í byrjun í gær
Smá vonarglætu var þó að finna hjá
KR í gær tU aö byrja með og einhverj-
ir körfuboltaunnendur vora famir að
vonast eftir fleiri leikjum í framhaldi
af ágætisleik þeirra. En flmm stiga
sókn í lok fyrri hálfleiks kom Njarð-
vik fram úr, 41-36, og eftir það var að-
eins spuming um hversu stór sigur
þeirra yrði. Hann var að lokum 12
sitg, 106-94. Sá körfubolti sem Njarð-
vík hefur verið að sýna að undan-
fómu er frábær. Liðið spUar geysi-
sterka vöm og hraðaupphlaup eru
síðan mjög vel útfærð sem skUar
mörgum stigum á andstæðingana
áður en þeir em búnir að stUla upp í
vömina. Auk þessa er liðið mjög vel
samstUlt og samvinna leikmanna
mikU í sókn og vöm.
Frændurnir engum líkir
Teitur Örlygsson hefur verið mað-
urinn á bak við liðsheUdina í vetur.
Hann hefur tekið að sér leiðtogahlut-
verkið og er farinn að spUa miklu
meira fyrir liðið en áður en hann fór
tU Grikklands. Margir líta Teit ekki
sömu augum þar sem hann skorar
ekki eins mikið og áður en framlag
hans tU Njarðvikurliðsins hefur lík-
lega aldrei verið meira en einmitt í
vetur.
Þá hefur frændi Teits, Örlygur
Sturluson, skotist fram í sviðsljósið.
Örlygur er aðeins 16 ára en hefur
blómstrað í leikjunum við KR og falið
„reynsluleysið" einstaklega vel. Leik-
ur hans er miklu líkari frammistöðu
leikmanns sem hefur verið langan
tíma í meistaraflokki en hjá þeim sem
er að stíga sín fyrstu spor.
Aörir leikmenn, eins og Friðrik
Ragnarsson, PáU Kristinsson og Krist-
inn Einarsson, em liðinu einnig gíf-
urlega mikUvægir. Síðast en ekki síst
hefur fjölbreytUeiki útlendingsins,
Petey Sessoms, og framlög hans á
mörgum sviðum skUað því ásamt
framlögum hinna að Njarðvík er mjög
sannfærandi íslandsmeistari 1998.
KR sneri viö blaöinu
KR-liðið hefúr gert ótrúlega hluti í
vetur eftir skelfilega byrjun. KR sakn-
aði Nökkva Más Jónssonar vissulega
í síðustu tveimur úrslitaleikjunum
við Njarðvík en Ósvaldur Knudsen
spUaði þeirra best í leikjunum viö
Njarðvík, sannarlega besti sjötti mað-
ur deUdarinnar. Það verður að segjast
eins og er að Keith VasseU, sem hafði
leikið mjög vel fyrir Njarðvíkurleik-
ina, átti ekki svar við Petey Sessoms í
þessum þremur leikjum. KR-ingar
treysti á góða breidd en vantaði tU-
flnnanlega fleiri einstaklinga með
reynslu í leikjum sem þessum. KR
getur samt horft björtum augum tU
framtíðar, leikmenn hafa nú fariö í
gegnum leiki sem þessa og yngri
flokkar félagsins blómsta þessa dag-
ana og taka hvem íslandsmeistara-
titUinn á fætur öðmm. -ÓÓJ
Logi Gunnarsson (Þorvaröarsonar) getur ekki leynt gleöi sinni. Örlygur
Sturluson og Guöjón Gylfason eru brosmildir.
Peysuskiptin
hjá Njarövík
Eftir 19 stiga tap í undanúrslitum bik-
arsins gegn KFÍ á ísafirði tóku þrír leik-
menn Njarðvíkur, Teitur Örlygsson, PáU
Kristinsson og Örlygur Sturluson, upp á
því að skipta um treyjur tU að marka um-
skipti hjá liðinu.Teitur fór úr peysu núm-
er 11 í númer 7, PáU úr 8 í 11 og Örlygur
fór í 8 en var númer 7 áður.
14 af 18 unnum eftir skiptin
Það er ekki hægt aö segja annað en
þetta sálfræðibragð hafi heppnast vel því
fyrir þann tíma hafði liðið unnið 7 af 14
leikjum í deUdinni en eftir peysuskiptin
hefur Njarðvík unnið 14 af 18 leikjum.
-ÓÓJ
Örvar Kristinsson, Kristinn Einarsson og Póll Kristinsson þakka fjölmörgum
stuöningsmönnum sínum stuönínginn á Nesinu í gær.
íþróttir
Jón Sigurðsson, þjálfari KR:
Fyllilega sáttur
Jón Sigurðsson, þjálfari KR-inga,
var sáttur við veturinn þrátt fyrir
3-0 tap í úrslitum við Njarðvík. Jón
tók við liðinu í erfiðri stöðu af
Hrannari Hólm og tókst heldur bet-
ur að rétta úr kútnum.
„Njarðvíkingum tókst að nýta
sinn styrkleika sem er hraði og góð-
ir skotmenn en okkur tókst ekki að
nýta okkar styrkleika sem er að
keyra inn í teig, og því fór sem fór.
Við gerðum breytingu á sóknar-
leiknum í dag (gær), það tókst vel og
í fyrri hálfleik og langt fram í seinni
hálfleik vorum við inni í þessum
leik en það dugði ekki til því við
skoruðum ekki úr færum undir
körfunni trekk í trekk. Með því að
klikka á færum sem við erum að
keppast við að fá vinnum við ekki
leiki sem þessa," sagði Jón
Fórum úr 9. sæti upp í ann-
aö
„Við erum samt fyllilega ánægðir
með veturinn, við erum með næst-
besta liðið í dag. Það höfðu ekki
margir trú á okkur um mitt mót en
frá þeim tíma höfúm við náð að fara
úr 9. sætinu, sem við vorum í janú-
ar, upp í 2. sætið hér í dag, eitthvað
sem við getum ekki annað en verið
stoltir af. Það réð miklu í þessum
leikjum við Njarðvík að okkar leik-
menn hafa ekki leikreynsluna sem
kannski þarf í leiki sem þessa. Þar
var ólíkt á komið með liðunum því
Njarðvík hefur 3 til 4 menn sem
hafa verið skólaðir í úrslitakeppni í
7 til 8 ár. í viðbót við það koma síð-
an mjög góðir leikmenn upp eins og
Örlygur sem styrkja þeirra lið enn
frekar.
Það vildu allir hafa verið í okkar
spomm, að keppa til úrslita í Is-
landsmóti, og þetta er alveg frábært
hjá liðinu og i raun alveg einstakt
að lið hafi sýnt þann styrkleika að
snúa við blaðinu og rífa sig upp líkt
og við gerðum í vetur,“ sagði Jón
Sigurðsson eftir leik.
Þeir voru bara betri
„Þeir vom bara betri í þessum
leikjum og það er ekkert meira um
það aö segja. Auðvita var slæmt að
missa fyrirliðann Nökkva Má Jóns-
son í meiðsli en það var ekki það
sem réð þessu, þeir voru bara
betri," sagði Ósvaldur Knudsen,
besti leikmaður KR í seríunni við
Njarövík. -ÓÓJ
SENN ER KOMIÐ SUMAR
íþróttagallar, ótrúlegt verð, frá kr. 2.990.
Glansefni og tvöfalt bómullarfóðraö.
4 litir: svart, rautt, dökkblátt og milliblátt.
Nr. 2-4, verð aöeins 2.990. Nr. S-XXXL, verð aðeins 3.990.
Fótboltaskór nr. 28-47,
fyrir möl og gervigras.
Verð frákr. 1.190.
T Fótboltar frá kr. 1.490
Markmannsbuxur 2.990
Markmannshanskar frá kr. 600
Legghlífar frá kr. 990
Stakar íþróttabuxur,
sumarjakkar í öllum stærðum
og mörgum litum.
Póstsendum - nýtt kortatímabil
SPORTVÖRUVERSLUNIN
SPARTA
Hlaupaskór með púða í hæl,
nr. 35 til 46 verð 3.980.
Puma Minuteman,
nr. 32 til 40, verð 3.990,
nr. 41 til 47, verð 4.990.