Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.1998, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.1998, Blaðsíða 9
UV FÖSTUDAGUR 24. APRÍL 1998 Wnlistn HLJOMPLÖTU Bernard Butler - People Move on ★★★ Bemard Butler hætti í Su- ede á hátindi þess bands af því hann fann engan sameiginleg- an grundvöll til að starfa leng- ur með Brett söngvara. Eftir ágætt samstarf við söngvarann McAlmont og stutta samvinnu við ýmsa poppara, þ. á m. viku- dvöl í The Verve, snýr hann nú aftur í kastljósið með sina fyrstu sólóplötu. Bernard er flinkur gítarleikari og alt- muligmaður í hljóðverinu: spilar á allt nema trommur og lætur strengjasveitina um sitt starf. Hann syngur nú í fyrsta skipti opinberlega, er svo sem enginn stórbarki en gerir sig heldur ekki að fífli. Tónlistina má draga saman í orðinu „gítarballöður". Það er allt gamaldags viö þessa plötu, hún er eins og handsmíðaður hæginda- stófl með þykku áklæði við hliðina á öllum nýtísku plastkollunum sem algengastir eru í rokkstofunni þessa dagana. Engar tilraunir ger- ir Bemard til að útfæra sig með hjálp tölvutóla og lítur ekki heldur út fyrir nánasta umhverfi í hugmyndaieit. Þess í stað einblínir hann á arfleifð gamalla manna með kassagítar - jálkamir Neil Young og Van Morrisson era þar helstir - og semur ósköp nett og notalegt gít- arpopp upp á gamla móðinn. Útsetningamar eru mishlaðnar strengj- um og dútluðu skrauti en aldrei fer Bernard offari. Textarnir eru per- sónulegir en þó hljómar Bernard ekki mjög gáfulega og kafar ekki ýkja djúpt. Strákgreyið vill þó eflaust vel og tileinkar plötuna pabba sínum sem lést nýlega. Þetta er plata sem síast inn á yfirgangslaus- an hátt og gott er að slappa af í rokkhægindum hennar. Séu flóka- inniskór þinn rokkskóbúnaður má óhikað mæla með henni þessari. -Gunnar Hjálmarsson The Presidents of the United States of America — Pure Frosting *★ 1« PReSidfNrs of iho iifliTf, SMTeS Of O.MeRlOi ' * puflf FRO S i f \ § * * m } _ Eí Forsetar Bandaríkjanna, eða PUSA, eins og hljómsveit- in er kölluð í daglegu tali, spratt upp í Seattle með mikl- um látum fyrir einum fjórum árum og gaf út plötu sem seld- ist vel. Rokkið þar var frisk- andi létt og töff og lög eins og Lump og Peaches, sem studd voru skemmtilegum mynd- böndum, fóra sigurfor um heiminn. Það var ljóst eftir að næsta plata, „II“, kom út 1996 að hljómsveitin var einnar plötu hljómsveit, eða atriði með einum brandara; þróunin var engin, lögin öfl síðri en á fyrstu plötunni og andagiftin í andarslitrum. PUSA var tríó: trommur, tveggja strengja þassitar og þriggja strengja gítassi. Allir sungu og vora glaðir. Brandarinn um fáu strengina (hljómsveitin viðurkennir að vísu að hafa stolið hugmyndinni frá hljómsveitinni Morphine), sem þó gátu framreitt hið almennilegasta rokk, kolféll semsé í annarri tilraun og nú er sveitin öll. „Var á með- an var,“ geta félagamir hugsað og 4 mifljón eintök seld á einum ágæt- um rokkbrandara er fimafínn árangur. Útgáfufyrirtækið vildi þó meira og þessi plata er þessi sígilda „fylla upp í saminginn“-plata sem alltaf kemur út fyrr eða síðar frá böndum sem ganga vel. Hér era B-hliðar, tónleikaupptökur og óútgefin lög; uppfyllingarefni sem var ekki uppfyllingarefni fyrir ekki neitt. Sveitin juðast á 5-strengja brandaranum, rokkið er staðnað en samt alltaf glatt og lítið um há- punkta, nema kannski ágæt útgáfa af „Video Killed the Radio Star“, sem er slík meistarasmíð að snillinga þarf til að klúðra því. Þessi plata gerir engan að PUSA- aðdáanda en þeir sem fyrirgáfu sveitinni „11“ ættu að una glaðir við þennan ósannfærandi rokktíning. -Gunnar Hjálmarsson THERAPY? - Semi-Detached ★★ Therapy hafa löngum verið þekktir fyrir vafasama iðju í dag- legu lífi. Að minnsta kosti lýstu textar þeirra blóðugum sprautum, pilluhoxum og dauðum rottum í sömu andrá og skrifað var bréf til pennavinarins sem sat á „deathrow" í Florida fyrir limlest- ingar. En einhvern veginn hefur þessi írska hljómsveit vaxið upp úr hryllingnum og var það farið að koma fram á síðustu plötu þeirra félaga, Infernal Love. Rokkið er orðið indielegt og skemmtilegt og krafturinn sem að einkennir sveitina skín alltaf í gegn. Stefin eru einfóld en grípandi eins og rokk á að vera og á stundum finnst manni sem sumu sé kinnroðalaust stolið af öðrum vígstöðvum. í sam- bland við töluverða sjálfsfyrirlitningu og karlhormóna er hér komið hið argasta rokk og maður sér hálfpartinn fyrir sér kófdrukkið fólk dansandi upp á borðum. Bestu lögin eru Bom too Soon og lokalag plötunnar The Boy’s Asleep þar sem rödd Cairns, söngvara sveitarinnar, er orðin það þreytt og hás að hún líkist Thom Yorke í Radiohead. I flesta staði þrusuplata fyrir þá sem vilja sveifla makkanum í takt við keyrsluna. -Páll Svansson Innvortis: Böbbi, Bibbi og Billi halda á Agga: „Við eigum þaö til aö klæöa okkur úr á opinberum samkomum." Húsavíkurpönk frá Innvortis: Stríplast og sungið Af óútskýrðum ástæðum hefur Húsavík löngum verið gróðrarstía pönkaðra rokkhljómsveita. Afrek þessara sveita hafa ekki borist víða til þessa en nú gæti orðið breyting á því í gær gaf ein lífseigasta Húsa- víkursveitin út sína fyrstu geisla- plötu. Þetta er hið geðþekka grall- arapönkband Innvortis og hér á eft- ir kemur krufning á fyrirbærinu. Pönkkýrin flengd Innvortis er kvartett. Söngvar- amir spila báðir á gítara: Snæbjöm „Bibbi“ Ragnarsson og Björgvin „Böbbi“ Sigurðsson. Arngrímur „Aggi“ Arnarson trommar og Brynj- úlfur „Billi“ Sigurðsson spilar á bassa. Þeir era allir tvítugir. Bibbi er sá eini sem kemst í viðtal og hann tekur með sér Hákon Sigurð- arson sem er umbi og aflrahanda velgjörðarmaður. Þeir segja mér að þessi kjarni hafi spilað saman síðan 1991; fyrst sem Honzby - „litlir strákar í bílskúr" - þá sem dauðarokkssveitin Torture - „fór- um í Músíktilraunir ’94 en gekk illa, enda dauðarokkið þá búið að rymja sitt stðasta”, og sem Innvortis síðan ’96. Þeir unnu sér það til frægðar að taka þátt í Músíktilraunum í fyrra og vera kosnir „Athyglisverðasta hljómsveitin”. Platan heitir Kemur og fer og er kraftmesta rokkplata sem hér hefur komið út lengi, fullyrða strákamir. Þeim vefst þó tunga um pönktönn þegar ég neyði þá til aö kryfja pönk- ið sitt. Það er helst að þeir vilji minnast á Kaliforníupönkbandiö Bad Religion sem vægan áhrifavald: „Þetta er ekki hart pönk en þó ekki létt. Þetta er melódískt pönk og flók- ið en samt ekki flókið því í eðli sínu getur pönk ekki verið flókið. Þetta er alls ekki ofunnið pönk heldur eins og það kemur af kúnni.“ Hvaða kú? „Ætli það sé ekki bara Milka-kýr- in. Aggi er búinn að vera úti í Sviss frá áramótum og ætli hann hafi ekki verið að flengja þá kú þar.“ Að öllu nautagripakenndu gamni slepptu segja þó félagamir að platan hafi verið tekin upp mjög hrá og þvl sé ekkert verið að ljúga að áheyrandanum. „Platan hljómar al- veg eins og hljómsveitin er á tón- leikum, nema á tónleikum era lögin spfluð miklu hraðar.“ Húsavík: gróðrarstía pönksins Nógu erfitt er að spila.frumsamda tónlist á íslandi, hvað þá að pönkast á Húsavík, gæti maður haldið. „Jú,“ samþykkja þeir, „enda erum við að tínast smám saman í höfuðborgina. Þó hafa bestu rokktónleikar lands- ins farið fram á Húsavík, eins og þegar Ham var að koma í denn.“ Frá Húsavík komu bönd eins og Rotþróin, Ræsið og Roð, en Innvort- is-menn segja að þeir séu langbesta bandið sem komið hefur frá Húsa- vík. „Pönkið fyrir norðan er þó ekki svipur hjá sjón miðað við hvernig það var,“ segja þeir, „en platan á vonandi eftir að breyta því. Nú fara litlu grillarnir vonandi að hætta í Völsungi og taka upp gítarana." Eitthvað er strax byrjað að rofa til í pönkhugsjón Húsvíkinga því þegar unglingaklúbbur eins bankans á staðnum stóð fyrir kynningu á plöt- unni í síðustu viku mættu ein 200 ungmenni í geggjuðu pönkstuði. Liklega hafa fríu pitsurnar'haft eitt- hvað að segja líka. Útpæld hernaðaráætlun Hljómsveitin kom lagi í spilun á X-inu í fyrra, hrárri útgáfu af laginu Allir glaðir. Nú segja þeir lagið „Verður morgunverður" mest gríp- andi og því líklegast til almennrar hylli þó platan sé annars stútfull af gullmolum. „Við erum með útpælda auglýsingaherferð i gangi, erum með auglýsingar í bíóum og ætlum að koma lögum í spilun. Við komum ekkert fram á tónleikum fyrr en fólk veit hvað þetta band er. Það væri hálfvonlaust að fara að spila núna, þegar enginn veit neitt um okkur og hefur aldrei heyrt í okk- ur.“ Þið hafið ekkert pælt i að henda gíturunum og fá ykkur tölv- ur, eins og framtíðartónlistarmönn- um sæmir? „Okkur er svo sem ekkert illa við hana en tölvutónlist er ekki rokk. Og rokkið er mamman en klassikin amman. Harðasta danstónlistin í dag er auðvitað bara framhald af pönkinu. Annars hlustum við á all- an fjandann. Aggi er á fullu í drum & bass en Böbbi er harðasti pönkari ever - ef það er ekki pönk er það ekki tónlist fyrir honum. Billi á það svo til að stilla á Bylgjuna." Strípl til kynningar „Textamir hjá okkur eru bara nokkuð djúpir," fullyrða Innvortis- menn, „eða bara mjög djúpir, sem er mikil andstæða við glaða tón- listina. Textarnir fjalla um það hvað við fórum illa út úr unglings- áranum og um vonlaus samskipti okkar við hitt kynið. Ef tónlistin væri ekki svona létt myndu áheyr- endur leggjast grenjandi niður eða henda sér í sjóinn." Er þá allt von- laust enn þá? „Nei nei, við losum okkur við bömmerana og dökku hliðarnar en fólk getur svo sem tekið þessum textum eins og það vill. Þeir eru náttúrlega alltaf fyrst og fremst hugsaðir til að falla þétt að laglín- unni.“ Hvað með strípi-ímyndina sem myndirnar af ykkur gefa í skyn? „Það verður eitthvað að vekja at- hygli annað en tónlistin svona í byrjun," viðurkenna þeir, „en þetta er líka lýsandi fyrir okkar persónuleika. Við eigum það til að klæða okkur úr á opinberum sam- komum. Stelpurnar eru náttúrlega æstar í þetta!“ Geislaplatan Kemur og fer ætti að vera komin í næstu plötubúð og á Netinu má hafa uppi á Innvortis á www.hi.is/~hhs/innvortis.html. -glh

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.