Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.1998, Qupperneq 12
» myndbönd
FÖSTUDAGUR 24. APRÍL 1998 T>V
MYNDBANDA
0
Cheech & Chong's the Corsican Brothers:
Bræðrabyltur ★*
Félagarnir Cheech Marin og Tommy Chong mynd-
uðu gríndúettinn Cheech & Chong og gerðu nokkrar geggjaðar grín-
myndir á áttunda og níunda áratugnum, þ.á m. Up in Smoke, Next
Movie og Still Smoking, þar sem þeir voru jafnan í hlutverkum hass-
hausa og undirmálsmanna, enda urðu þeir sérstaklega vinsælir í neðan-
jarðarmenningu dópista. Aulahúmor var allsráðandi i myndum þeirra
sem einkenndust af hugmyndaauðgi og leikgleði og eru sumar orðnar
klassískar í dag. Korsíkubræðurnir var síðasta mynd þeirra saman og
nokkuð ólík hinum fyrri. í henni létu þeir að mestu af dópistahúmorn-
um og fóru hefðbundnari leiðir þótt aulahúmorinn hafl enn verið í fyr-
irrúmi. Þeir skreppa tvær aldir eða svo aftur í timann og leika bræður
sem gera uppreisn gegn spilltum og úrkynjuðum aðlinum. Húmorinn er
ekki nógu beittur og verður oft vandræðalegur fremur en fyndinn. Af og
til glittir í gamla sjarmann en annars er þetta fremur slappt. Það er lofs-
vert framtak að endurútgefa gamlar Cheech & Chong myndir en því
miöur er hér byrjað á öfugum enda, þeirri síðustu og sístu.
Útgefandi: Háskólabió. Leikstjóri: lan Sharp. Aðalhlutverk: Cheech Marin
og Tommy Chong. Bandarísk, 1984. Lengd: 87 mín. Öllum leyfð. -PJ
Floundering: ****
Hlvistarkreppa iðjuleysingja
John Boyz er iðjuleysingi í tilvistarkreppu. Hann
er atvinnulaus og hefur lítið annað að gera en
drekka bjór, horfa á sjónvarpið, spjalla við kunn-
ingja sína, eða fylgjast með mannlífinu út um glugg-
ann hjá sér. Dag einn er bankareikningi hans lokað
vegna skattaskuldar, hann missir atvinnuleysisbóta-
rétt sinn og þarf að koma bróður sínum á meðferðar-
hæli vegna fikniefnaneyslu sem mun kosta hann
3.000 dollara. Við fáum síðan að fylgjast með grát-
broslegum tilraunum hans til að koma lífi sínu á
réttan kjöl, sem gengur heldur illa, og svo virðist
sem hann sé hreinlega að missa vitið. Til að byrja með er myndin jafn-
stefnulaus og söguhetjan en smám saman tekur hún við sér. Þrátt fyrir
dapurlegan söguþráð er hún full af skemmtilegum hugmyndum og veru-
lega athyglisverð. James LeGros nær aðalsöguhetjunni vel, er hæfilega
aulalegur og spekingslegur í bland. Margir góöir aukaleikarar fara með
smáhlutverk, svo sem Billy Bob Thomton, John Cusack, Steve Buscemi
og Ethan Hawke. Þessi mynd endist fram yfir sýningartimann.
Útgefandi: Stjörnubíó. Leikstjóri: Peter McCarthy. Aðalhlutverk: James
LeGros. Bandarísk, 1994. Lengd 97 mín. Bönnuð innan 16 ára. PJ
The Peacemaker:
Kjarnorkuvá **
PMCEMAKER
..(rsfiir
spMBraym ...■
Dr. Julia Kelly er sérfræðingur í kjarnorkuvá á
vegum Bandaríkjastjórnar. Þegar kjarnorkuspreng-
ing verður í rússneskri lest er henni falið að rann-
saka málið ásamt fulltrúa hersins, Thomas Devone.
Þau komast brátt að því að sprengingin var aðeins
yfirskin á ráni á kjamorkuvopnum og þau verða að
reyna að klófesta ræningjana og vopnin áður en
þeim verður beitt í einhverjum illum tilgangi. Þessi
mynd er hvorki betri né verri en aðrar hasarmynd-
ir af svipuðum toga. Hún nær að halda athygli áhorf-
andans allan tímann með hæfilegum skammti af
sprengingum, hasar og hetjudáðum en situr ekki
lengi eftir í minningunni. Hún sýnir ákveðna tilburði í þá átt að taka
mið af helstu fréttaviðburðum hin síðari ár, tekur m.a. til greina fall
kommúnismans i Austur-Evrópu og Rússlandi, ótta við lélega umsjón
kjarnorkuvopna þar og Bosníustríðið og kemst þar með skör ofar en al-
gjörlega heilalausu hasarmyndirnar án þess að vera neitt sérstaklega
gáfuleg. Aðalpersónurnar eru fremur litlausar og George Clooney og
Nicole Kidman ná ekki að glæða þær lífi.
Útgefandi: ClC-myndbönd. Leikstjóri: Mimi Leder. Aðalhlutverk: George
Clooney og Nicole Kidman. Bandarísk, 1997. Lengd 126 mín. Bönnuð inn-
an 16 ára. PJ
G.l. Jane:
Valkyrja ★
Hér er sagt frá konu sem íyrst kvenna fær tæki-
færi til að komast í þjálfunarbúðir fyrir sérsveit sjó-
hersins sem sér um leynilegar hernaðaraðgerðir.
Nafn myndarinnar, G.I. Jahe, er vísun í leikfanga-
hermanninn G.I. Joe. MerkÖegt nokk stendur G.I.
fyrir Ground Infantry, eða laridher, meðan konan í
myndinni er í sjóhemum. Myndinni tekst að forðast
algjörlega að taka af nokkurri alvöru á þeim spum-
ingum sem gætu vaknað um þátttöku kvenna í hem-
aði. í staðinn einbeitir hún sér að þeim melódramat-
ískasta hermannamóral og hetjuvæmni sem fýrir-
finnst í kvikmyndum og þá er mikið sagt. Ég spyr nú bara: Hvaö er
Ridley Scott að pæla? Þetta er maðurinn sem gerði Alien, Blade Runner
og Thelma and Louise. Demi Moore var „heiðruð“ sem versta leikkona
ársins annað árið í röð fyrir þessa mynd og á það svona hér um bil skil-
ið. Alla vega efast ég um að leikkona fyrirfinnist með jafnlítið hlutfall
leikhæfileika og launa. Viggo Mortensen er ágætur í hlutverki lið-
þjálfans og fær eina stjömu fyrir að lemja Demi Moore í spað í mynd-
inni.
Útgefandi: Myndform. Leikstjóri er Ridley Scott. Aðalhlutverk leikur Demi
Moore. Bandarísk, 1997. Lengd 130 mln. Bönnuð innan 16 ára. -PJ
7.-13. apríl
SÆTlj V *’J FYRRI| VIKA i * -- p J VIKUR j Á LISTAj j TITILL j ÚTQEF. ! J j TEG.
1J 1 J 1 i Face/Off J Sam-myndbönd | Spenna
2 i i j 2 i 1 í j My Best Friends Wedding j J i Skífan j J J Gaman
3 J 3 j Ný ; 2 ! G.l. Jane Myndform Spenna
i 4 * j NÝ | ■ - -) 5 > j Peacemaker, The J ) J ClC-myndbönd 1 Spenna
5 i , i 3 j 4 i Nothing To Lose i J j Sam-myndbönd j Gaman
i 6 i ?. J - |. j 4 J * j j 2 J L i -'l ... j Full Monty, The i j Skífan r| . „ /... ‘ _u. 1 Gaman
1 7 i j 6 > 3 J Money Talks J J i Myndform J ) J j Stjömubíó j j j Gaman
8 í j u i 3 i J Shooting Fish Gaman
9 1 J j 5 ! 4 1 T j Air Force One j Sam-myndbönd j Spenna
10 í j J 8 j j j 7 J j Contact J J J Warner myndir J J i Spenna
11 i 7 i 1 i Volcano J Skífan J Spenna
i2; j 9 i j 6 í Beverly Hills Ninja J J Skífan j Gaman
13 i 10 i 4 i Conspiracy Theory J J J Warner myndir j Spenna
14 ! » i mh|u 7 i Austin Powers inHpu j Háskólabíó \ 1 1 Gaman
15 i 1S: 17 i 2 > Breaking The Waves 1 Háskólabíó > j j j i j Myndform j J J. Drama
13 ! 3 i j Most Wanted Spenna
17 i 16 i i ! Beutician And The Beast ! ClC-myndbönd j Gaman
j 18 i . j j 15 J HBH j 8 J j Eddie J J J Háskólabíó J J J Gaman
19 i 14 i s ,i Romy And Michele's High j Sam-myndbönd j Gaman
j 20 ! Ný ! i 8 ! Larger Than Life J J ! Skffan ! Gaman
Sakamálamyndin Face/Off heldur fyrsta sætinu og kemur
það engum á óvart. Þetta er háspennumynd með skemmti-
legri og óvenjulegri fléttu og góðum leik þar sem fremstir
fara John Travolta og Nicholas Cage. My Best Friend’s
Wedding, sem er i öðru sæti listans, er rómantísk gaman-
mynd með Juliu Roberts og má með sanni segja að mynd
þessi hafi að nokkru leyti bjargað ferli hennar en í myndinni
sannar hún það sem margir sáu í Pretty Woman að hún get-
ur haft mikla útgeislum fái hún réttu hlutverkin. Demi
Moore, sem leikur aðalhlutverkið í G.l. Jane, hefur hingað til
verið hæst launaða leikkonan í Hollywood en síðustu
myndir hennar hafa ekki aukið á frægð hennar svo hún þarf
að fá gott hlutverk í vinsælli kvikmynd verði kuldinn ekki of
mikill á toppnum. -HK
FACE/OFF
Face/Off
John Travolta og
Nicholas Cage.
Sean Archer stjómar
úrvalssveit manna sem
berst við hættulegustu
glæpamenn í heimi.
Einn þeirra er morðing-
inn Castir Troy. Þegar
myndin hefst hefur
Archer loks haft upp á
Troy sem liggur óvigur
í valnum eftir mikinn
skotbardaga. í ljós kem-
ur að Troy hafði komið
fyrir öflugri sprengju
sem var ætlað að valda
miklu manntjóni. Eina
leiðin til að fá upplýs-
ingar um hvar sprengj-
an er niðurkomin er að
fá bróður Troys til að
leysa frá skjóðunni. Til
að fá hann til að tala er
andlit Troys grætt á
Archer svo hann haldi
að það sé bróðir hans.
Allt fer þó til fjandans
þegar Troy vaknar
óvænt úr dásvefni.
My Best Fri-
end's Wedding
Julia Roberts og
Dermot Mulroney.
Fyrir tíu árum
gerðu Julianne og
Michael með sér samn-
ing. Þau ákváðu að
hætta að vera elskend-
ur og ef þau væru ekki
gengin út þegar þau
væm 28 ára mundu
þau giftast. Þegar af-
mælisdagurinn nálg-
ast kemur upp sú
staða að Michael hefur
ákveðið að giftast
annarri konu. Þegar
Julianne sér fram á að
missa af Michael áttar
hún sig á því að hann
er i raun maðurinn
sem hún hefur alltaf
ætlað sér að eignast.
Hefur hún fjóra sóiar-
hringa til að ná hon-
um til baka.
GJ.Jane
Demi Moore,
Viggo Mortensen.
Þegar þess er kraf-
ist að sjóherinn opni
fyrir þann möguleika
að konur geti sótt um
inngöngu í sérsveit
hans er ákveðið að
bjóða Jordan O’Neal
að spreyta sig á verk-
efninu. það felst i því
að komast í gegnum
erflða þjálfun sem
reynir ekki siður á
andlegu hliðina en þá
líkamlegu. En Jordan
tekur áskoruninni og
þrátt fyrir að enginn
sem þekkir til í hern-
um telji að hún hafi
möguleika á að kom-
ast í hóp hinna út-
völdu er hún ákveðin
í að gera sitt besta en
mörg þón verða á vegi
hennar.
The Peac-
emaker
George Clooney
og Nicole Kidman.
Þegar rússnesk lest,
sem flytur kjamaodda,
ferst við grunsamlegar
aðstæður er kjameðl-
isfræðingurinn dr. Jul-
ia Kelly fyrst til að
átta sig á þvi að „slys-
ið“ var sett á svið tU
að hylma yfir ráða-
gerðir hryðjuverka-
manna. Um leið verð-
ur öUum Ijóst að tU-
gangur hiyðjuverka-
mannanna er að koma
kjamorkusprengju fyr-
ir einhvers staðar i
Bandarikjunum. Sér-
sveitarmaðurinn
Thomas Devone er
settur 1 málið og þótt
honum og Juliu greini
á um hvaða aðferðum
eigi að beita verða þau
að snúa bökum saman.
Nothing to
Loose
Tlm Robbins og
Martin Lawrence.
Auglýsingastjórinn
Nick Beam verður fyrir
áfaUi lífs síns þegar
hann kemur dag einn
að eiginkonunni í rúm-
inu með forstjóra fyrir-
tækisins sem hann
vinnur hjá. Það eina
sem honum dettur í hug
er að fara út í jeppann
sinn og aka eins langt
og hann kemst. Eftir að
hafa verið næstum
valdur að alvarlegu
slysi á hraðbraut keyrir
hann inn í vafasaman
borgarhluta og áður en
hann veit af horfir
hann í byssuhlaup smá-
krimmans T. Pail. Rán-
ið fer út um þúfur og T.
Pail verður að fylgja
Nick Beam út í eyði-
mörkina með lögregl-
una og aðra krirama á
hælunum.