Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.1998, Qupperneq 3
TIV FÖSTUDAGUR 8. MAÍ 1998
kvikmyndir
+ :
Fritz Lang:
Leikstjórinn með einglyrnið
Þýski leikstjórinn Fritz Lang
(1890-1976) er einn af óumdeilanlegum
höfimdum kvikmyndarinnar. Á fjöru-
tíu ára ferli leikstýrði hann mörgum
af merkustu myndum sögunhar, s.s.
Der Miide Tod (1921), Dr. Mabuse, der
Spieler (1922), Die Nibelungen: Sieg-
fried og Die Nibelungen: Kriemhilds
Rache (1924), Metropolis (1926), M
(1931), Das Testament des Dr. Mabuse
(1932), Scarlet Street (1945), The Blue
Gardenia (1953) og The Big Heat
(1953). Leikstjómarferli Lang má gróf-
lega skipta í tvennt; ár hans í Þýska-
landi þar sem hann starfaði fram að
valdatöku nasista
1932 og árin í Banda-
ríkjunum, en á
fimmta og sjötta ára-
tugnum var hann
einn af fremstu leik-
Ein síðasta kvik-
mynd Lang frá þessu
tímabili og fyrsta tal-
mynd hans var M
(1931). Árið 1994
kusu 324 gagn-
rýnendur hana bestu
kvikmynd sem gerð
hefur verið í Þýska-
landi og að minu
mati er það ekki ós-
anngjam dómur.
Myndin, sem byggist
á sannsögulegum at-
burðmn, segir frá
stjórum Hollywood.
Þýskaland
919-1932)
Á árunum eftir
fyrri heimsstyrjöld-
ina allt fram til
valdatöku nasista
var blómaskeið í
þýskri kvikmynda-
list. Tímabilið sem
kennt er við þýskan
expressionisma gat
af sér nokkra af
merkustu kvik-
myndaleikstjórum
sögunnar. Lang var
einn af helstu leik-
stjórum stefnunnar
og vann auk þess að
öðrum frægum kvikmyndum tíma-
bilsins, s.s. Das Kabinett des Doktor
M, 1931. Peter Lorre hlaut heims-
frægö fyrir túlkun sína á hinum
sjúka og stórhættulega Hans Bec-
kert.
Borgin úr Metropolis, 1926.
Caligari (1919), var leikstýrt af Robert
Wiene. Lang hóf leikstjómarferil sinn
sama ár og næstu tíu árin komu út
flestar af hans bestu myndum. Árið
1924 leikstýrði hann tveimur mynd-
um byggðum á hinum goðsögulega
Niflungahring, þar sem hann segir
sögu Sigurðar Fánisbana og annarra
hetja Eddukvæðanna. Þrátt fyrir að
yfir sjötíu ár séu liðin frá því að kvik-
myndimar vom gerðar em þær enn
stórfengleg upplifun.
Fjölhæfni Lang sést best á því að
næsta meistaraverk hans var hin
fræga framtíðarsýn Metmpolis frá
1926. Á 21. öldinni teygir ^tórborgin
sig enn lengra til himins. fefra hluta
hennar býr yfirstéttin og niðri við
jörðu verkamennimir sem halda véla-
búnaðinum gangandi. Borgarmynd
Lang er ógleymanleg og hefur haft
gríðarleg áhrif á nútímavísindasögur,
s.s. borgimar í Blade Runner (1982),
Judge Dredd (1995) og The Fifth Elem-
ent (1997).
manni sem
rænir fjöl-
mörgum ung-
um bömum
og myrðir á
hrottafenginn
hátt. Yfirvöld
em ráðþrota
og það er
ekki fyrr en
glæpaforingj-
ar undirheimanna koma til hjálpar að
hjólin taka að snúast. Peter Lorre
hlaut heimsfrægð fyrir túlkun sína á
hinum sjúka og stórhættulega Hans
Beckert og myndin hefur ekki glatað
neinu af óhugnanlegum mætti sínum.
Að mínu mati er þetta besta raðmorð-
ingjamynd sem gerð hefur verið.
Hollywood (1936-1956)
Film-noir hefðin á rætur að rekja
til þýska expressionismans. Á fimmta
og sjötta áratugnum gerði Lang marg-
ar afbragðsmyndir í anda þessarar
stefiiu. Þótt engin þeirra jafnist á við
bestu myndir hans frá Þýskalandsár-
unum er þar engu að síður að finna
margar merkar myndir, s.s. The
Woman in the Window (1944) og Scar-
let Street (1945), en í báðum leika Ed-
ward G. Robinson, Joan Bennett og
Dan Dureya aðalhlutverkin. Myndim-
ar eiga það sameiginlegt að söguhetj-
an kynnist kynþokkafúllri konu,
villist út af þröngum vegi dyggðarinn-
ar, brýtur af sér og reynir síðan eftfr
fremsta megni að forðast refsingu. í
The Woman in the
Window leikur Ed-
ward G. Robinson
miðaldra sálfræði-
prófessor sem fellur
fyrir glæsilegri fyrir-
sætu (Joan Bennett).
Kvöld eitt fylgir
hann henni heim, en
þegar mrnusti henn-
ar kemur að þeim
verður Wanley hon-
um að bana í átök-
um. Þau fela lfkið og
reyna að breiða yfir
glæpinn. Scarlet
Street snýst einnig
um afdrifaríkt sam-
band miðaldra
manns og yngri
konu. Christopher
Cross (Edward G.
Robinson) er ein-
mana gjaldkeri í ást-
lausu hjónabandi
sem lengi hefur
dreymt um að gerast
listamaður. Eigin-
konan er kaldlynt
skass sem leyffr hon-
um aðeins að mála á baðherberginu
og neyðir hann til að sjá um uppvask-
ið. Kvöld eitt bjargar hann stúlku úr
höndum árásarmanns. Kitty March
(Joan Bennett) er augljóslega gleði-
kona en sökum reynsluleysis áttar
Christopher sig ekki á því og fellur
fyrir henni. í samvinnu við dólginn
Johnny Prince
(Dan Duryea) fær
hún Christopher
til þess að sjá sér
farborða og ekki
líður á löngu áður
en gjaldkerinn er
farinn að stela
peningum frá yffr-
manni sínum.
Hann flytur mál-
verkin sín heim
til hennar eftir að
eiginkonan hefur
hótað að fleygja
þeim og Kitty,
sem heldur að
hann sé frægur
málari, ákveður
að selja þau. Lista-
heimur New York
tekur Kitty opn-
um örmum er hún
segist hafa málað
myndimar. Hinn
ástsjúki
Christopher fyrir-
gefúr henni, en
þegar hann upp-
götvar ástarsam-
band Kittyar og
Johnnys myrðir
hann músuna sína og kemur sökinni
á elskhugann. Johnny er tekinn af
lífi, en Christopher sem hefúr verið
rekinn úr vinnunni fyrir fjárdrátt er í
lok myndarinnar auðnulaus flæking-
ur, bugaður á sál og líkama vegna
morðsins sem hann framdi. -ge
Metropolis, 1926. Framtíðarsýn
Langs hafði mikil áhrif á sfðari
tíma kvikmyndir og ekki síður
framtíðarskáldsagnagerð.
-i.,:~~3 -■ pjgéi# IjÉpp:
Hann varð þekktur á svipshmdu þegar hann
gerði einhverja vinsælustu gamanmynd allra
tíma, National Lampoon’s Animal House árið 1977.
Hefur hann síðan leikstýrt mörgum vinsælum
kvikmyndum auk þess sem hann leikstýrði ein-
hverju frægasta tónlistarmyndbandi sem gert hef-
ur verið, Thriller, með Michael Jackson. Þá hefur
John Landis verið ffamleiðandi margra vinsælla
sjónvarpsþátta.
John Landis fæddist i Chicago en flutti fljótlega
með fjölskyldu sinni til Los Angeles þar sem hann
gekk í skóla. Hann hefur enga formlega menntun
að baki í kvikmyndum heldur lærði hann sitt fag
í gegnum fjölbreytta vinnu hjá Fox. Eiginkona
Landis er búningahönnuðurinn Deborah Nadoolm-
an og eiga þau tvö böm. Hér á eftir fer listi yfir
þær kvikmyndir sem John Landis hefur leikstýrt:
Schlock, 1973
The Kentucky Fried Movie, 1977
National Lampoon's Animal House, 1978
The Blues Brothers, 1980
An American Warewolf in London, 1981
Trading Places, 1983
Twilight Zone - The Movie, 1983
Into the Night, 1985
Spies Like Us, 1985
Three Amigos, 1986
Amazon Women on the Moon, 1987
Coming to America, 1988
Oscar, 1991
Innocent Blood, 1992
Beverly Hills Cop III, 1994
The Stupids, 1997
Hér er Stupid-fjölskyldan f allri sinni dýrð.
-HK