Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.1998, Side 9

Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.1998, Side 9
JL^'V FÖSTUDAGUR 8. MAÍ 1998 HLJÓMPLM 1. . * 4 , «*r - MU.YIillY MAl'IA SHOO'I IHi; ROSS Monkey Mafia - Shoot the Boss *** Breski plötusnúðurinn Jon Carter er maðurinn á bak við Monkey Mafia. Hann er innsti koppur í búri diskó- teksins Heavenly Society, sem sumir telja fæðingarstað big bítsins, en áður en Jon tók þar við sem aðalsnúður höfðu Chemical-bræðurnir lagt línumar í snúðsklefan- um. Að sjálfsögðu mætir Jon með mikinn takt og þungar bassalínur á þessari fyrstu breiðskífu sinni. Hann er ekkert að tvínóna við þetta og keyrir stuðið í gang frá fyrstu mín- útu með hröðum töktum, hnausþykkum bassalínum og jamaísku ganjarappi. Lögin I Am Fresh og Make Jah Music eru áberandi best, bæði dúndrandi dansgólfafóður og lappimar á manni fara stjómlaust á hreyfingu og hausinn að tina eins og á dúfu sem kom- ist hefur í pulsubrauð. Dampurinn helst nú stinnur með ferskum sömplum, fmmlegum áslætti (það er þónokkuð lamið á olíutunnu- trommur) og almennt góðum stælum fram á sjöunda lag, Ward 10, en þá skiptir Jon niður og þunglamalegt döbbrapp tekur við. Það er helst í þessum silalega gir sem Jon fatast flugið þvi 2-3 lög á þessum kafla eru heldur ómerkileg, endurtekningamar verða leið- inlegar og stuðið á dansgólfinu breytist í hangs upp við vegg. Hraðinn er ekkert aukinn eftir þetta en lögin fara þó að verða bita- stæðari og Jon fyrirgefst flest eftir síðasta lagið sem er frábær úgáfa hans á gömlu Creedence Clearwater-lagi, Long as I Can See the Light. Jon sleppur vel frá þessari frumraun, og mjög ríflega það. Gunnar Hjálmarsson Cornelius - Fantasma *★* Nú dreymir unga menn ekki lengur um að vera i rokk- hljómsveit. Það er rnirn sval- ara að vera einherji: herberg- issnillingur í eigin heimi, enda nokkurn veginn hægt að gera það sama og heil hljómsveit í bílskúr með sæmilega góðri tölvu. Eða þannig. Siðan Beck sló í gegn hefur ímynd sér- vitra sólóistans orðið algeng- ari I poppinu. Japaninn Keigo Oyamada, sem kallar sig Com- elius eftir karakter úr Apa- plánetunni, fellur í þessa deild. Fantasma er önnur sólóplata hans og sú fyrsta sem fær útbreiðslu á Vesturlöndum. Líkt og Beck beit- ir hann skæmnum óspart á tónlist sína og umgengst poppsögima eins og mslahaug. Hann hirðir og dregur í bú, klippir og límir, pússar og púslar. Útkoman er þó mun slípaðri og meira popp í gangi en hjá Beck, sumt er m.a.s. dálítið í ætt við japönsku ofur- popparana í Pizzicato 5. Það þarf að taka þessari plötu með veru- lega opnum huga. Það er alveg vonlaust að hafa gaman af henni sé maður gallharður eitthvað; gallharður rokkari, hipphoppari, poppari, teknóhaus eða hvur veit hvað. Best er að segjast „hlusta á allt“ og meina það þvi Cornelius dregur allt úr haugnum og lím- ir ótrúlegustu hluti saman. Á einhvem furðulegan hátt passa að- föngin saman í skilmerkilega heild og lögin læsast í heilabúinu sem er virðingarvert í ljósi þess hve skringilega uppbyggð þau eru. Hvort þau tolla þar til langframa er svo annað mál en ég er ekki frá því að fljótlega fari að slá í sumt á þessum ruslahaug sem Japaninn mokar upp af einstakri tæknikunnáttu og ágætu þef- skyni á poppleifar. Gunnar Hjálmarsson The Din Pedals - The Din Pedals ★★★ Kalíforníska sveitin The Din Pedals er hér með fyrstu plötu sína. Nokkuð hefur bor- ið á því að söngvaranum sé líkt við Thom Yorke í Radio- head en undirrituðum finnst þó söngurinn meir í ætt við Bono, röddin og beiting henn- ar. Hér er þó bmgðið fyrir sig ýmsum stælum og áhrif frá Radiohead, U2 og Verve eru greinileg, kannski á stundum of mikil og jafnvel þannig að erfitt er að greina sjálfstæðan stíl sveitarinnar. Lagið Ashtrey hefur orðið mörgum kunnugt að undanförnu, enda efnilegt lag. Reyndar er ekkert lag lélegt á þessarri plötu en af betri lögum má telja Kangaroo Kourt, Downtown Sister og ball- öðurnar Waterfall og Plastic. Hljómsveitin bregður fyrir sig rokki af slípaðri kantimnn og má ekki eingöngu þakka frábæmm söng heldur er hljóðfæraleikur og útsetningar til fyrirmyndar. Það sem helst er að finna plötunni til foráttu er að viðteknar formúlur eru of mikið notaðar í lagasmíð- unum og ekkert kemur manni beinlínis á óvart. 'Það getur orðið leiðigjarnt til lengdar og jafnvel sorglegt því hér er um góða og efnilega hljómsveit að ræða, en sem ætlar sér um of í byrjun og fellur á prófinu. Páll Svansson éónlist „Ég fann mig jafnvel enn sterkar í tónlistinni eftir fosturlatiö því ég get þó altént skapaö tónlist þó ég geti kannski ekki fætt af mér !íf.“ - Tori Amos, hreinskilin aö vanda. Fjórða plata Tori Amos - dansað og flissað með sorginni Myra Ellen Amos tók sér nafnið Tori því hún var viss um að „Myra Ellen" myndi fæla fólk frá. Frægðin kom ekki samstundis. Hún lærði snemma á píanó og í uppreisn gegn fóður sínum, ströngum meþódi- stapresti, flutti hún úr sveitinni til Los Angeles og gekk í strípuhært þungarokksband um miðjan síðasta áratug. Hljómsveitin sú, Y Kant Tori Read, gaf að vísu út plötu en Tori og útgefendum hennar er mik- ið í mun að gleyma henni og platan „Little Earthquakes", sem kom út 1992, er jafnan talin fyrsta platan. Söngstíll hennar minnir mjög á Kate Bush en Tori segist ekki hafa hlustað á hana fyrr en eftir að marg- ir höfðu bent henni á það hve líkar þær væru. „Vááá!, var það fyrsta sem mér datt i hug þegar ég hlust- aði á hana,“ segir Tori. „Hún var að gera ótrúlega hluti sem mér hafði aldrei dottið í hug að gera og það var eitthvað líkt með röddum okk- ar, eins og við værum fjarskyldar eða eitthvað." Á tveim næstu sólóplötum, „Und- er The Pink“ og „Boys For Pele“, hélt Tori áfram að þróast; píanóið og söngurinn voru alltaf í fyrirrúmi og á tónleikum kom hún fram ein við flygilinn, eins og áheyrendur sáu og heyrðu þegar hún spilaði hér á Listahátíð í byijun sólóferils síns. Á nýjustu plötunni, „From the Choirgirl Hotel", er píanóið ennþá fremst en í fyrsta skipti hefúr Tori heila hljómsveit sér til halds og trausts sem gerir plötuna mun fjöl- breyttari en fyrri verk. Á komandi mánuðum mun hún fylgja plötunni eftir með hljómsveitinni á tónleik- um. Hún hefur löngum verið tón- leikaóð, 600 tónleika hefur hún haldið síðan „Little Earthquakes" kom út og 200 eru fyrirhugaðir til að fylgja nýju plötunni eftir. Þessi dugnaður hefur skilað sér margfalt, plötur hennar þrjár hafa selst í 8 milljón eintökum, Intemetið er morandi í heimasíðum tileinkuöum henni og aðdáunin verður oft trúar- brögðum líkust í heimalandinu þeg- ar aðdáendumir grípa hvert orð úr munni hennar með öndina í hálsin- um og blik í augum. Full af bældri reiði Fáir eru jafnopinskáir og per- sónulegir í textum sínum og Tori. Enda hefur hún nóg um að tala og marga krísuna að vinna sig úr í gegnum textana. Hún fékk strangt kristilegt uppeldi, var löngum bæld kynferðislega en dreymdi þó blaut- lega um bæði Jesús og Robert Plant. Á þungarokksárunum var henni nauðgað af áhorfanda sem hún bauð far heim eftir tónleika. Atburðurinn situr vitanlega enn eftir í henni og hún tjáði sig um hann í laginu „Me and a Gun“ á „Little Earthquakes". „Ég fæ enn martraðir og þær era ljóslifandi eins og hryllingsmyndir. Ég er ennþá full af bældri reiði sem hverfur ekki svo glatt. En smám saman fer maður aö þekkja sína innri púka og þá fyrst þroskast maður sem manneskja." Síðustu árin hafa skipst á skyn og skúrir í lifi hennar. Hún hætti með kærasta sem hún hafði verið með lengi, varð svo ólétt en missti fóstrið eftir þrjá mánuði. „Ég varð ólétt á miöju tónleikaferðalagi, það kom óvænt upp á en ég varð samt himinlifandi. Að sama skapi varð ég yfirbuguð af sorg eftir fósturlátið. Klisjan að slæmir atburðir hendi ekki gott fólk er ömurleg lygi." Fyrstu lögin á nýju plötunni fóru að kvikna í kjölfar þessa atburðar. „Ég fann mig jafnvel enn sterkar í tón- listinni eftir þetta því ég get þó alt- ént skapað tónlist þó ég geti kannski ekki fætt af mér líf. Ég ákvað að taka í höndina á sorginni, dansaði með henni og við flissuðum saman." Sveitastelpan giftir sig Nýja platan var tekin upp í þrjú- hundruð ára gamalli hlöðu í Englandi sem breytt var í hljóðver sérstaklega fyrir þetta verkefni. Tori segist í eðli sínu vera sveita- stelpa þó tónlistin kalli á mikla við- veru í stórborgum heimsins og þvi hafi upptökuferillinn á nýju plöt- unni verið sérstaklega ánægjulegur. Hún fann meira að segja ástina á meðan á upptökum stóð; hún og Mark Hawley, upptökustjóri plöt- unnar, giftu sig í mars sl. Að lokum er rétt að fá útskýringu Tori á nafni plötunnar. „Kórstúlknahótelið er sá heimur sem ég bjó til fyrir þessa plötu. Þess- ar stelpur - þessi lög - þær þekkjast allar og fá sér margaríta saman og hrekkja hver aðra. Þær hanga sam- an en búa þó á ólíkum plánetum. Stundum leyfa þær mér að vera með, en ekki alltaf." -glh

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.