Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.1998, Síða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.1998, Síða 11
FÖSTUDAGUR 8. MAÍ 1998 nlist £< - Gefa út Version 2.0: Garbage - snúið út úr gömlum stefum Fáir áttu von á að plata Garbage árið 1995 myndi vekja athygli margra. Hópurinn samanstóð af frægum hljóð- stjómanda, Butch Vig, tveim ná- grönnum hans frá miðríkjum Banda- ríkjanna og óþekktri skoskri söng- konu. í fyrstu beindist kastljósið ein- göngu að Butch en smám saman fór hróður Garbage vaxandi, almenning- ur tók við sér og keypti plötuna í skipsfórmum. Þegar upp var staðið höfðu 4 milljón eintök selst og lög eins og „Stupid Girl“ og „Only Happy When It Rains“ eru Vesturlandabúum að góðu kunn úr útvarpinu. Nú gefur Garbage út sína aðra plötu og því er tilhlýðilegt að taka púlsinn á þeim og kíkja á bakgrunninn. Sáu söngkonuna í sjón- varpinu Steve Marker (gítar, bassi), Duke Erikson (gítar, hljómborð) og Butch Vig (trommur og tölvuásláttur) em allir um og yfir fertugt og höfðu bauk- að ýmislegt saman áður en Garbage varð til. Þeir höfðu verið saman í óþekktum pönkhljómsveitum, Spooner og Firetown, og áttu saman hljóðverið Smart Studios í Wisconsin. Butch hafði getið sér gott orð á þess- um tíma sem hljóðstjórnandi, sérstak- lega eftir að hann hljóðvann plötuna „Nevermind" með Nirvana sem gerði gruggrokkið vinsælt næstum á einni nóttu. Árið 1994 voru þremenningam- ir farnir að vinna saman í hljóðver- inu, aðallega við endurhljóðblandanir á lögum, t.d. með Depeche Mode, Nine Inch Nails og House of Pain. Eitt leiddi af öðm og þeir fóm að semja lög saman meðfram því að vinna fyrir aðra. Þá bráðvantaði söngkonu til að fullkomna blönduna og komu auga á Shirley Manson þar sem hún söng í þættinum 120 Minutes á MTV. Shirley er frá Edin- borg og hafði verið í ýmsum sveitum, þ.á m. Goodbye Mr. MacKenzie og Angelfish sem var hljómsveitin sem hún var að syngja með þegar Gar- bage-karlarnir komu auga á hana. Þeir stálu henni frá Angelfish og vinna við fyrstu plötuna hófst fyrir alvöru. Málað í hljóðverinu „Margir höfðu efasemdir um okkur þegar fyrsta platan kom út,“ segir Butch. „enda dálítið gervilegt ferli þegar þrír hljóðstjórnendur koma saman og finna söngkonu. Samt erum við nær þeirri mynd sem maður hefur um fyrirmyndarhljómsveit en nokk- urt band sem ég hef unnið með.“ Hann viðurkennir að fyrsta platan hafi verið „eins konar hlaðborð hug- mynda" en eftir nær tveggja ára tón- leikaferðir hefur hópurinn hrist sam- an bæði á tónlistarsviðinu og sem ein- staklingar. „Okkur líður vel saman, við tökum allar ákvarðanir saman, við semjum saman og hljóðvinnum saman. Það getur oft verið erfitt að vinna í svona miklu lýðræði. Hver og einn fær að setja sinn persónuleika og hugmyndir í tónlistina og svo er Shirley fremst og í miðjunni og ein- hvern veginn gengur þetta upp.“ Shiriey Manson: „Ég verð tilbúin þegar poppbransinn hrækir mér út úr sér.“ taka upp tónlist er eins og að mála mynd, það er alltaf hægt að bæta einni stroku við. En takmarkið með þessu er auðvitað að koma út plötu, svo fyrr eða síðar þurftum við að láta fólk heyra útkomuna." Garbage ber aldurinn vel. Frá því í apríl í fyrra hafa fjór- menningarnir lokað sig af í Smart hljóðverinu og unnið að „Version 2.0“. Stundum var farið út og trommu- grunnar teknir upp í risastórri yfir- gefinni sælgætisverksmiðju (til að nýta bergmálið) en mestmegnis var hangið í hljóðverinu enda meðlimirn- ir yfirlýstir vinnualkar. „Við myndum aldrei hætta ef við þyrftum þess ekki,“ segir Duke. „Að Aðgengilegt en furðu- legt í fyrstu „Version 2.0“ er mettuð af áhrifum úr öllum áttum. „Við vildum ekki gera plötu sem einblíndi bara á fram- tíðina," segir Shirley. „Við eigum ræt- ur í tónlist risa eins og Beach Boys, Ný plata frá Saint Etienne: Klassískt popp með sænskum keim Það hefur verið hljótt um popptríó- ið Saint Etienne i mörg ár. Síðasta plata með nýju efni, „Tiger Bay“, kom út 1994 en árið eftir kom safnplata með bestu lögum sveitarinnar og sam- starfsverkefni með franska popp- söngvaranum Etienne Daho. Úr því kom vinsælt lag, „He’s on the Phone“. Sarah Cracknell, hin leggjalanga ljós- hærða söngkona sveitarinnar, gerði sólóplötuna „Lipstick", sem nánast ekkert fór fyrir, en piltamir, Pete Wiggs ög Bob Stanley, fóru sér hægt, stofnuðu plötufyrirtækið Emidisc í samráði við EMI og gáfu m.a. út plöt- ur með Kenickie og Denim. Einnig hafa þeir verið duglegir plötusnúðar víðs vegar um heiminn, spila þá aðal- lega 7“ plötur frá sjöunda og áttunda áratugnum og bræða saman diskó, fónk og sætt popp. Nú vænkast hagur poppstrympu því ný Saint Etienne-plata, „Good Humor“, er komin út. Gáfulegt popp sveitarinnar hefur verið öðrum sveit- um leiðarljós; bönd eins og Mono, Broadcast og Dubstar hefur leitað í smiðju þeirra en einna oftast hafa Svíamir í Cardigans farið i smiðjuna án þess þó að stela neinu. Góður kunningsskapur hefur tekist á milli Cardigans og Saint Etienne og var Sænska loftið hefur greinilega haft góð áhrif á Saint Etienne. „Good Humor" tekin upp á sex mán- uðum á heimaslóðum Cardigans, í Tramboline-hljóðverinu r Malmö. Saint Etienne-fólkið hefur verið að sniglast dálítið í Svíþjóð fyrir utan að taka þar upp plötuna og Pete Wiggs segir að hreint og kalt loftið í Malmö hafi góð áhrif á heilabúið í þeim. Lögin semur hljómsveitin saman. Bob og Pete hittast oft við píanóið og henda á milli sin hugmyndum og svo er hlaðið og slípað. Textarnir verða oftast til á pöbbum þegar þremenn- ingarnir hittast og fá sér í staupinu. Miðað við „Tiger Bay“ er nýja platan mun einfaldari að allri gerð. „Við missum okkur dálítið út í hlaðnar skreytingar á Tiger Bay“, viðurkenn- ir Pete. „Strengirnir og sömplin voru dálítið yfirdrifin. Á nýju plötunni not- um við nær eingöngu lifandi hljóð- færaleik. Hún er afturhvarf til elstu áhrifavaldanna okkar; enskrar sálar- tónlistar og popps. Þetta er klassísk poppplata." -glh Bitlanna og Stones og jafnvel lengra aftur, í Bessis Smith og Elvis.“ Butch reynir líka að útskýra tónlist Garbage: „Við erum rokkband sem semur popplög og hleður á þau sömpl- um og aÚs konar raftrixum. En við reynum alltaf að semja lögin þannig að það sé hægt að spila þau á kassagít- ar. Ég held að nýja platan sé aðgengi- leg, jafnvel þó hún kunni að hljóma dálítið furðulega í fyrstu.“ Steve blandar sér í umræðuna: „Við fórum ekki af stað og sögðum: „Nú ætlum við að gera eitthvað alveg nýtt og fá okkur úkraínsk hringdansa- hljóðfæri". Þetta eru ennþá gítarar, trommur og sömpl. Eina leiðin til þess að við höldumst áhugaverð er að gera tónlist sem okkur sjálfum finnst vera fersk. Vonandi getur útkoman orðið eitthvað sem hljómar ólíkt öllu öðru.“ „Ég held þó að við séum ekki að finna upp neitt nýtt,“ segir Butch, glottandi. „Ég held það sé ekki hægt lengur í nútíma rokktónlist nema ef þú vilt gera einhverja fáránlega fram- úrstefnu. í poppinu hefur allt verið gert svo margoft áður og það eina sem hægt er að gera er að endurtaka göm- ul stef með nýjum hljómi, snúa út úr svo poppið verði ferskt og svalt á ný.“ Spennandi óvissa „Líf okkar hefur svo sem ekkert breyst," segir Shirley. „Ég hef verið í hljómsveitum síðan ég var fimmtán og er vön þessum lífsstíl og strákarn- ir hafa verið að lengi. Velgengnin kom seint og hún hefur ekki breytt okkur neitt, eins og hætta er á hjá yngra tónlistarfólki. Þegar músík- bransinn hrækir mér út úr sér, eins og mun örugglega gerast, vil ég geta snúið aftur til fyrra lífs og komast ósködduð út úr þessu. Eina leiðin til að það sé hægt er að hafa húmor fyr- ir því hvað maður gerir og hvernig maður gerir það.“ „Við vitum alveg hvernig popp- bransinn virkar," segir Butch. „Það er ekkert gefið. Það eina sem maður getur gert er að gera þá bestu plötu sem maður getur og vonandi nær hún til fólks. En hver veit? Óvissan gerir þetta spennandi." -glh o Krumpreður í dag kl. 17 spilar hljóm- sveitin Krumpreður á síðdegistónleikum Hins Hússins á Geysi kakóbar. Hljómsveitin er skipur þrem 16 ára Reykjavíkur- drengjum sem spila rokk af hráustu gerð. Útkall á Suðurnesjum Éjáröflunardansleikur björgunarsveitanna á Suðurnesjum verður haldinn annað kvöld. Þar verður glæsileg skemmti- dagskrá og í lokin leikur hljómsveitin Mávarnir fyrir dansi. Broadway I kvöld verður Vestmanna- eyjakvöld á skemmtistaðn- um Broadway. Þar mun m.a. hin fornfræga hljóm- sveit Logar stiga á stokk. Margt verður fleira sprell- að að hætti Eyjamanna. Gullöldin Á Grafarvogspöbbnum Gullöldinni munu félag- arnir Svensen og Hall- funkel halda uppi stuðinu fóstudags- og laugardags- kvöld. Kringlukráin Hljómsveitin Sín mun leika í aðalsal Kringlu- krárinnar fóstudags-, laug- ardags-, og sunnudags- kvöld. í Leikstofunni verð- ur hins vegar Rúnar Guð- mundsson. Kos og Eva Ás- rún í Danshúsinu í Glæsibæ leikur hljómsveitin KOS ásamt Evu Ásrúnu fyrir dansi annað kvöld. Sangría og Karma Þaö verður fiörugt á Kaffi Reykjavík um helgina sem endranær. í kvöld leikur hljómsveitin Sangría en annað kvöld mætir Labbi í Glóru ásamt nýuppgerðri hljómsveit sinni, Karma.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.