Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.1998, Síða 12
26 knyndbönd
*★★
MYNDBANDA
Event Horizon: *★★* “
Út fyrir mörk alheimsins
Árið 2047 leggur hðpur fólks um borð í björgunarskipinu Lewis & Clark
af stað í ferðalag. Takmarkið er að finna geimskipið Event Horizon, sem
nokkrum árum áður hafði horflð sporlaust, og bjarga því ásamt áhöfninni
ef einhver er enn á lífi. Event Horizon var tilraunaskip sem átti að nýta sér
ormagöng til að ferðast á einu augnabliki milli tveggja fjarlægra staða. Það
hefur þvi farið út fyrir mörk hins þekkta alheims og tók eitthvað úr annarri
vídd með sér til baka. Björgunarleiðangurinn lendir fljótt í vandræðum, gat
kemur á björgunarskipið og leiðangursmenn þurfa að hírast um borð í Ev-
ent Horizon, óhugnanlegar ofskynjanir þjaka þau og spennan magnast.
Myndin er með þeim óhugnanlegustu sem kvikmyndaeftirlitið á íslandi leyf-
ir. Styrkur hennar liggur í vel heppnaðri uppbyggingu óhugnaðar og spennu
og hún nær aö skapa stemmningu sem ætti að valda einhverjum martröð.
Því miður spila einhver gróðasjónarmið inn í og myndin fær ekki að ein-
beita sér að þessum hætti. Hasaratriði og fimmaurabrandarar eyðileggja
stemmninguna stundum en ef þessum atriðum hefði verið sleppt hefði
mögulega mátt flokka myndina með tímamótaverkum eins og Alien og The
Exorcist. Þrátt fyrir gallana er myndin með því allra besta sem kemur þessi
árin í hryllingsmyndageiranum.
Event Horizon. Útgefandi: CIC- myndbönd. Leikstjóri: Paul Anderson. Að-
alhlutverk: Laurence Fishburne og Sam Neill. Bandarísk, 1997. Lengd: 92
mín. Bönnuð innan 16 ára. -PJ
Her Majesty mrs. Brown: ***
Drottningin og hálendingurinn
Myndin gerist á valdatíma Viktoríu drottningar á 19.
öldinni. Þegar sagan hefst hefúr drottningin syrgt lát-
inn eiginmann sinn í þrjú ár og ekki tekið þátt í nein-
um opinberum athöfnum. Þá kemur til hirðarinnar há-
lendingurinn John Brown og þjónar í fyrstu sem hesta-
sveinn hennar hátignar. Honum tekst að brjótast í gegn-
um sorgarmúr hennar og með þeim tekst mikil vinátta.
Hann er ekki seinn á sér að taka völdin í þjónaliði
drottningar en margir áhrifamenn óttast áhrif hans á
drottninguna og hann ávinnur sér marga óvini. Mynd-
in er ansi skemmtileg lýsing á mannlegum hliöum fólks
i æðstu stöðum og teflir þeim gegn tveimur einkennum lífs þeirra, annars
vegar hinni pólitísku refskák og hins vegar hinum stífu hefðum og siðaregl-
um. Afburðaleikur Judi Dench og Billy Connolly ber myndina uppi sem án
þeirra hefði bara verið enn eitt búningadramað. Anthony Sher er skemmti-
lega lævís forsætisráðherra og Geoffrey Palmer er mátulega kaldhæðinn
hirðstjóri sem veit varla hvaðan á sig stendur veðrið og verður að sætta sig
við að hálendingurinn ýti honum til hliðar. Mrs. Brown er bresk gæðamynd
og ágæt skemmtun.
Her Majesty mrs. Brown. Útgefandi: Skífan. Leikstjóri: John Madden. Að-
alhlutverk: Judi Dench og Billy Connolly. Bresk, 1997. Lengd: 99 mín. Öll-
um leyfð. -PJ
Career Giris:
★★* Skyggnst aftur á veginn
Mike Leigh er einn af virtustu óháðu leikstjórum
Bretlands og hefúr gert margar athyglisverðar kvik-
myndir. Hann vakti mikla athygli með mynd sinni,
Naked, sem kom David Thewlis á framfæri, og sló síð-
an í gegn með hinni frábæru Secrets and Lies. Career
Girls kemur í kjölfar velgengni Secrets and Lies og
virkar satt að segja fremur aum í samanburðinum.
Katrin Carthdge og Lynda Steadman leika tvær konur
sem voru herbergisfélagar í háskóla. Þær hittast tíu
árum síðar í London og eyöa einum degi saman. Hug-
ann rekur aftur til námsáranna og við fáum að fylgjast
með þeim atburðum sem þeim eru minnisstæðir og per-
sónum sem þær komust í kynni við. Persónurnar eru ansi litríkar eins og
við má búast af Mike Leigh og oft er gaman að fylgjast með þeim. Stundum
virka atriðin þó groddaleg og ofleikin. Athyglisverðar persónur, góður leik-
ur og vel skrifuð samtöl gera myndina vel þess virði að sjá en við hliðina á
Naked og Secrets and Lies er hún heldur tilkomulítil.
Career Girls. Útgefandi: Háskólabíó. Leikstjóri: Mike Leigh. Aðalhlutverk:
Katrin Cartlidge og Lynda Steadman. Bresk, 1996. Lengd: 96 mín. Öllum
leyfð. -PJ
Chasing Amy:
Ástin sigrar... eða hvað? ★★★*
Holden McNeil og Banky Edwards eru æskuvinir og
semja saman vinsæla teiknimyndasögu. Þeir kynnast
kollega sínum, Alyssu Jones, á teiknimyndasagnaráð-
stefnu og Holden verður yfir sig ástfanginn af henni.
Það er honum því skiljanlega mikið áfall þegar hann
kemst að því að hún er lesbía. Henni líkar þó vel við
Holden og þau verða góðir vinir en hann á erfitt með að
halda tilfinningum sínum í skefjum og Banky líst ekk-
ert á blikuna. Kevin Smith á að baki myndimar Clerks
og Mallrats sem báðar túlka hans eigin reynsluheim og
eru uppfullar af skrýtnum pælingum og skemmtilegum
hugmyndum. Slíkt er einnig að finna í Chasing Amy en hann hefur þó full-
orðnast svolítið og fer út í miklu meira tilfinningadrama en áður. Hann not-
ast við ramma hinnar hefðbundnu rómantísku gamanmyndar en það sem
hann setur inn í hann er mjög óhefðbundið. Persónulega fannst mér hann
skemmtilegri þegar hann var óþroskaðri og óheflaðri en óneitanlega er
ánægjulegt að sjá ástarsögu sem ekki er tilgerðarleg. Ben Afileck úr Good
Will Hunting leikur Holden en i hinum tveimur aðalhlutverkunum eru Joey
Lauren Adams og Jason Lee sem bæði fóru á kostum í Mallrats. Öll standa
þau sig vel í hlutverkum sem reyna mikið á tilfinningatúlkun.
Chasing Amy. Útgefandi: Skífan. Leikstjóri: Kevin Smith. Aðalhlutverk: Ben Af-
fleck, Joey Lauren Adams og Jason Lee. Bandarísk, 1997. Lengd: 113 mín. Bönn-
uð innan 12 ára. -PJ
Myndbandalisti vikunnar
SÆTI j FYRRI i VIKA i VIKUR ; A LISTA J ) J TITILL j ÚTGEF. j ,! ;teg. j
1 ] 1 J ^ { Face/Off ■ Sam-myndbönd ; Spenna
2 i i 3 i ! 3 ! j j Peacemaker, The J CtC- Myndbönd ) j J Spenna J
3 ! 2 : 4 : My Best Frend's Wedding J Skrfan ] Gaman
4 j ; 4 j j : 3 : G.l. Jane I ; j Myndfoim ) ; Spenna
5 | Ný : i : Event Horizon J j CIC- Myndbönd J j Spenna
6 i ! 5 ’j j 1 5 1 j 3 J Nothing To Lose J Sam- Myndbönd j J Gaman l
7 í 2 J Excess Baggage j J Skifan J > Gaman j i Gaman i
8 UMMM Mfl ! Ný i j J ! i ! V' '' J " Life Less Ordinary J ] Skífan J
9 ! 6 ! s ! Full Monty, The Skrfan j Gaman
10 ) ! 7 ! 4 ! 1 J Shooting Fish j J Stjömubíó J i J Gaman J
11 J 8 j o 1 ! L J Fire Down Below ! WamerMyndir ! Spenna
12 ! w J J : 7 : Air Force One J J Sam-Myndbönd ! Spenna
13 J i 9 : s : Money Talks J j Myndform ) j Gaman
14 Í 19 npv i j j j 2 1 j L J l ’ 1 Sling Blade J ! Skrfan m j WmBBBBumœ 8 J ,,f; J Spenna 1 SBHrHBÍ í--
15 !, 13 i J 12 j J 1 < 6 J Volcano J Skffan J Spenna
16 J J J C j 6 j j j Contact J j WamerMyndir j J ! Spenna j
17 ! 16 ! io ! Conspiracy Theory j WamerMyndir J Spenna
18 i. ! 9 ! i < Austin Powers i J Háskólabíó J j J Gaman j
19 j i 14 1 7 1 J ' J Beverly Hills Ninja ! Skrfan ] Gaman
20 j ! 20 J . J ! 4 ! Breaking The Waves ! Háskólabfó J 1 Drama J
Myndin Face/off meö John Travolta og Nicolas Cage í
aöalhlutverkum er enn í fyrsta sæti. Það viröist ekkert
lát verða á vinsældum þeirrar myndar. Peacemaker,
þar sem „barnalæknirinn" úr Bráðavaktinni og Nicole
Kidman eru í aöalhlutverkum, er komin í annað sæti.
My best Friend’s Wedding, sem skartar stjörnunum
Julia Roberts og Dermot Mulroney, er komin í þriöja
sæti. G.l. Jane meö Demi Moore í aðalhlutverki er enn
í fjóröa sæti en spennumyndin Event Horizon vermir
þaö fimmta. Þaö er augljóst aö spennan kitlar land-
ann.
TRAVOLTA'CflGE
FACÉ/OFF
Face/off
Aðalhlutverk: John
Travolta og Nicolas
Cage
Sean Archer (Tra-
volta) stjórnar úr-
valssveit manna sem
berst við hættuleg-
ustu glæpamenn í
heimi. Einn þeirra er
hinn samviskulausi
moröingi Castor
Troy (Cage). í mörg
ár hefur Sean reynt
að handsama Castor
en án árangurs. Nú
er komið að því en
Castor er ekki mað-
ur sem gefst upp fyr-
irhafnarlaust. I ljós
kemur að áður hafði
hann komið fyrir öfl-
ugri sprengju sem
var ætlað að valda
miklum mannskaða.
Peacemaker
Aðalhlutverk: Geor-
ge Clooney og
Nicole Kidman
Þegar rússnesk
lest sem flytur
kjamaodda ferst við
afar grunsamlegar
aðstæður er kjarn-
eðlisfræðingurinn
dr. Julia Kelly (Kid-
man) fyrst allra að
átta sig á því að
„slysið“ var sett á
svið til að hylma yfir
djöfullegar ráðagerð-
ir hryðjuverka-
manna. Um leið
verður öllum ljóst að
tilgangur hryðju-
verkamannanna er
að koma kjarnorku-
sprengju fyrir ein-
hvers staöar í Banda-
ríkjunum.
G.l. Jane
My best Fri-
end s Wedding
Aðalhlutverk: Julia
Roberts, Dermont
Mulroney, Cameron
Diaz og Rubert Ev-
erett
Fyrir níu árum
gerðu þau Julianne
og Michael með sér
samning. þau
ákváðu að hætta að
vera elskendur en
vera þess í stað
„bara vinir“. En
samningur Julianne
og Michaels innihélt
svolítið meira. Þau
hétu því nefnilega að
ef þau yrðu ekki
gengin út þegar þau
næðu 28 ára aldri
myndu þau giftast
hvort öðru. Og nú
eru þau alveg að
verða 28 ára.
Aðalhlutverk: Demi
Moore, Viggo
Mortensen og Anne
Bancroft
Þegar þess er kraf-
ist að sjóherinn opni
fyrir þann mögu-
leika að konur geti
sótt um inngöngu í
sérsveit hans er
ákveðið að bjóða Jor-
dan O’Neil að
spreyta sig á verk-
efninu. Það felst í því
að komast í gegnum
afar erfiða þjálfun
sem reynir ekki síð-
ur á andlegu hliðina
en þá líkamlegu. En
Jordan tekur áskor-
uninni og þrátt fyrir
að enginn telji að
hún eigi nokkurn
möguleika þá er hún
ákveðin í að gera sitt
besta.
Event Horizon
Aðalhlutverk: Sam
Neill, Laurence Fis-
hburne, Kathleen
Quinlan og Joley
Richardson
Arið er 2047.
Nokkrum árum áður
hafði eitt fullkomn-
asta geimskip sög-
unnar, könnunar-
skipið Event
Horizon, horfið spor-
laust úti í geimnum
ásamt allri áhöfn.
Nú hefur geim-
ferðastofnun Banda-
ríkjanna numið
hljóðmerki sem geta
ekki verið frá öðru
geimskipi en Event
Horizon. Hljóðmerki
þessi eru dularfull
en skýr og því er
ákveðið að senda
bj örgunarleiðangur
á staðinn.