Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1998, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1998, Side 4
4 FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 1998 Fréttir Uppsveitir Ámessýslu: Kosið um sameiningu Kosiö verður um sameiningu hreppa í uppsveitum Ámessýslu á laugardaginn, 27. júní. Þetta er önnur kosningin um sam- einingu. í fyrri umferð samþykktu Hmnamannahreppur, Skeiðahreppur, Biskupstungnahreppur, Laugardals- hreppur og Þingvallahreppur. Kosið verður aftur í þessum hreppum á laugardaginn. Gnúpveijahreppur og Grafningshreppur felldu sameining- una. Grímsneshreppur og Grafnings- hreppur höfðu samþykkt að ef annar felldi gilti það fyrir þáða. Þannig kusu í rauninni 8 sveitarfélög i fyrri kosn- ingunni. Hótel Húsavík: Páll Þór selur meirihluta sinn DV, Akureyri: „Þetta hefúr verið mikil töm en skemmtileg vinna og ég er mjög sátt- ur við þessa niðurstöðu. Það eru sterkir aðilar sem kaupa af mér. Þeir eiga eftir að standa sig vel og ég óska þeim velfamaöar," segir Páll Þór Jónsson, hótelstjóri á Hótel Húsavík, en hann hefúr selt meirihluta sinn í hótelinu. Páll Þór hefúr átt 52% hlutafjár í hótelinu en aðrir stórir eigendur hót- elsins era Ferðamálasjóður, sem á 22%, Flugleiðir með 10%, Kaupfélag Þingeyinga með 8% hlut og ýmsir að- ilar sem eiga minna. Þeir sem kaupa 52% hlut Páls Þórs era Amar Sigurðs- son, sem rekur Sjóferðir Amars, Frið- rik Sigurðsson, sem hefúr rekiö veit- ingastaðinn Bakka, og fjölskyldur þeirra. Eigendaskiptin munu fara fram mjög fLjótlega og er reiknað með að nýir eigendur taki við rekstrinum um mánaðamót. -gk www.visir.is FYRSTUR MEÐ FRÉTTIRNAR lega á Skeiðum og munaði þar 5 at- kvæðum. Annars staðar var niður- staðan nokkuð afgerandi. Við vitum ekki hvort það hefur breytt afstöðu haft áhrif, t.d í Hrunamannahreppi, að Gnúpverjahreppur dettur út,“ segir Loftur Þorsteinsson, oddviti Hruna- mannahrepps. „Það eina sem ég er hræddur við er að þátttakan verði léleg, að fólk hrein- lega nenni ekki að kjósa. Margir eru farnir í frí og komnir hreint út um allt. Það eru þeir sem hafa mestan áhuga, era harðastir með og á móti, sem væntanlega kjósa. Þeir sem láta sig þetta litlu varða sitja væntanlega heima.“ Loftur telur hagræði sameiningar felast fyrst og fremst í að betra verður að takast á við stærri og viðkvæmari málaflokka eins og félagsmál og skóla- mál. „Við náum kannski einhverri pen- ingalegri hagræðingu en ég held að hún verði ekki mjög mikil, þetta verð- ur dreift sveitarfélag. Þó getur verið að viö getum nýtt peningana aðeins betur. Okkur vantar óneitanlega brú yfir Hvítá til að tengjast Biskupstung- unum betur. Þetta eru langstærstu sveitarfélögin, 700 manns í Hruna- mannahreppi og Biskupstungur með 500. Það era sterkir byggðakjarnar á Flúðum og i Reykholti. Ef við gætum fengið tengingu þar beint á milli myndi það gjörbreyta öllu,“ segir Loft- ur. —sf Sjúkrahús Reykjavíkur: Meinatæknar æfir - yfir slæmu ástandi, lágum launum og störf hjá íslenskri erfðagreiningu innan skamms en samkvæmt heim- Ellefu af fjörutíu meinatæknum á rannsóknadeild Sjúkrahúss Reykja- víkur hafa sagt upp undanfarna mánuði og hafið störf annars staðar. Ástæður uppsagnanna eru gífurlegt vinnuálag, bágt og ónógt húsnæði og lág laun. Fimm af þessu ellefu hefja I DAG HM í knattspyrnu - beinar útsendingar á visir.is ■ dag: Kl. 14.00 Belgía-Suður-Kórea Kl. 14.00 Mexíkó-Holland Kl. 19.00 Þýskaland-íran Kl. 19.00 Bandaríkin^Júgóslavía íslenski boltinn -stöðugar fróttir af gangi mála: Kl. 20.00 -LANDSSIMADEILDIN- Þróttur-IR ildum DV er launamunur á þessum tveimur stöðum talsverður, i sumum tilvikum allt að 60 þúsund krónum. „Okkur er sýnd mikil litilsvirðing með því hvernig ástandið er orðið hérna. Það er hreint út sagt hræði- legt. Mér væri skapi næst að segja að stjórn sjúkrahússins gæfi skít í okk- ur,“ sagði meinatæknir á SR í sam- tali við DV. „Við vinnum undir tvö- fóldu álagi, miðað við það sem eðli- legt er, og fáum ekkert borgað auka- lega. Plássleysið er svo mikið að þaö er meira að segja búið að taka af okkur kaffistofuna okkar og hvíldar- aðstöðu. Við vitum nálega ekki neitt um launin okkar því að eftir breyt- inguna skv. síðustu kjarasamning- um hefur láðst að raða okkur inn í nýjan launaramma. Það eru allir búnir að fá sig fullsadda á þessu og aðgerðaleysi stjórnar við erum nýbúin að senda stjóminni mjög harðort bréf þar sem úrbóta er krafist." Magnús Skúlason, framkvæmda- stjóri fjármála- og rekstrarsviðs sjúkrahússins sagði að verið væri að vinna að skipulagsbreytingum á deildinni og hann vonaðist til að úr- bætur næðust hið allra fyrsta enda ástandið algerlega óviðundandi. „Ég get samt ekki verið sammála því að stjórnin níðist af ásettu ráði á þessu fólki. Okkur skortir sárlega peninga þó við séum að sjálfsögðu öll af vilja gerð til þess að færa þetta slæma ástand til betri vegar. Við verðum hins vegar öll að horfa á málið raun- hæfum augum: Deildin verður þarna eitthvað áfram og það verður að gera lágmarkslagfæringar en eins og stað- an er í dag er lítið annað hægt að gera.“ -fm Það er þetta með Þjóðviljann „Sæll vertu, herra bankastjóri," sagði Jó- hann Ársælsson, bankaráðsmaður Alþýðu- bandalagsins í Landsbankanum. „Ég er héma kominn til að ræða við þig lítillega um bankann og bankaviðskiptin almennt.“ „Já, Jóhann, þó það nú væri,“ sagði banka- stjórinn hinn blíöasti og horfði á Jóhann rannsóknaraugum, svona eins og þegar kenn- arinn er að búa sig undir að ávíta nemanda. „Og hvað er það svo sem ég gert fyrir ykk- ur i Alþýðubandalaginu?" „Ja, þetta er nú ekki beinlínis fyrir Al- þýðubandalgið sem ég ætla aö tala við þig heldur almennt um stöðu bankans, okkur finnst hún slæm,“ sagði Jóhann nokkuð kok- hraustur. „Jæja, Jóhann minn, svo þið viljið tala um stöðu bankans. Já hún mætti vera betri en þú veist eins vel og ég, Jóhann minn, að við höf- um ýmislegt misjafnt þurft að gera til að bjarga málum og þú manst vel eftir Þjóðvilja- málinu og þeim reddingum sem bankinn þurfti að taka á sig til að bjarga mannorði ykkar og Alþýðubandalagsins. Ef menn vilja tala um stöðu bankans verður auðvitað að hafa þetta Þjóöviljamál og önnur slík björg- unarstörf í huga. Það skiljið þið í Alþýðubanda- laginu, vona ég,“ sagði bankastjórinn og var nú oröinn nokkuö hvassari í málrómnum, svona í umvöndunarstíl. „Já, mér er þetta Ijóst,“ sagði Jóhann, en nú er búið aö standa ykkur bankastjórana að bruðli í laxveiðum og utanferðum og þetta hefur áhrif á stöðu bankans og er óskylt Þjóðviljamálinu." „Um hvað ertu að tala, Jóhann góður?“ sagði bankastjórinn og var nú orðinn byrstur. „Hvað eru laxveiðiferðir í samanburði við fyrirgreiðslu okkar í sambandi við Þjóðviljann? Ertu búinn að gleyma þeirri reddingu? Skilja alþýöubandalags- menn að einmitt vegna vonlausrar lánafyrir- greiðslu þurfum við bankastjóramir að bjóða mönnum úr öðrum flokkum og annars staðar úr kerfinu til að hafa þá góða svo þeir séu ekki að fletta ofan af þessari spillingarfyrir- greiðslu sem veitt var Þjóðviljanum." „En finnst þér þá ekki eðlilegt að Ríkisend- urskoðun taki málið fyrir og setji gæðastimp- il sinn á laxveiðamar og Þjóðviljamálið til að ímynd bankans batni? Það er þetta sem ég vildi tala um við þig og ykkur bankastjór- ana,“ sagði Jóhann Ársælsson og var nú kom- inn í vöm. „Ríkisendurskoðun kemur þetta mál ekk- ert við og enginn má vita hvemig við björg- uðum Þjóðviljanum, nema þið hjá Alþýðu- bandalaginu viljið kannske að flett sé ofan af ykkur í spillingunni. Það eru ekki við sem bemm ábyrgð á Þjóðviljamálinu heldur Al- þýðubandalagið," sagði bankastjórinn og haföi nú tögl og hagldir. „Hvað er það eiginlega sem þið gerðuð fyr- ir Þjóðviljann?" spurði Jóhann greyið sem kom af fjöllum, enda nýr i bankaráðinu. „Það kemur þér ekki við, Jóhann sæll, það má ekki nokkur maður vita og ekki Alþýðu- bandalagið heldur. Vertu bara þægur og góður og spyrðu einskis. Þá verður þú farsæll í bankaráð- inu,“ sagði bankastjórinn og klappaði á kollinn á Jóhanni. Dagfari Stuttar fréttir i>v Tölfræði um trú 73 þús. íslendingar gengu til alt- aris árið 1998. Mikil fjölgun hefur verið síðustu 10 ár. Um 4700 guðs- þjónustur voru haldnar og 1056 sögðu sig úr þjóðkirkjunni á ár- inu. Bylgjan sagði frá. Kirkjulögin skýr Að mati Hjör- dísar Hákonar- dóttur héraðs- dómara eru hin nýju kirkjulög skýr. Undan- tekning frá þessu er sú grein laganna sem veitir kirkjuþingi heimild til þess að sefja bindandi starfsregl- ur. Hjördís telur, í ljósi þessa valds, að það hefði átt að setja þingskaparreglur samfara. RÚV sagði frá. Mikil velta Hagnaður Hagkaups og Bónuss var yfir 350 millj. kr. í fyrra. Fyrir- tækin veltu samtals 16,8 milljörð- um króna. Heildarvelta hins nýja sameinaða fyrirtækis er talin verða vel yfir 20 milljarða króna. Viðskiptablaðið sagði frá. Fasanar Fyrstu íslensku fasanaungamir hafa skriðið úr eggjum sínum. Það er á bænum Hafrafelli á Fljótsdals- héraði sem verið er að rækta fúgl- ana. Veitingamenn og skotveiði- menn bíða spenntir eftir fleiram fuglum. Bylgjan sagði frá. Lítil röskun Veikindi for- setafruarinnar og dvöl forseta- hjónanna er- lendis í kjölfarið mun hafa óveru- leg áhrif á dag- skrá Ólafs Ragn- ars Grímssonar, forseta íslands. Hann verður þó að sleppa fyrirhugaðri för á heims- sýninguna í Lissabon og hátíðar- höldum vegna afmælis Siglufjarö- ar. Kosningabarátta Skv. Vestra, hinu óháða viku- blaði á Vestijörðum, mun Sverrir Hermannsson koma til ísafiarðar í júlí. Tilgangurinn með ferðinni er að undirbúa ffamboð vegna al- þingiskosninga á næsta ári. Uppbygging MR Alls eiga fyrirhugaðar fram- kvæmdir við Menntaskólann í Reykjavík að kosta 600-700 millj- ónir króna. Miðað við þau tilboð sem bárust í fyrsta hluta verksins, en þau voru öll yfir kostnaðar- verði, gæti talan hækkað. Menntaskólaþorp Framkvæmdimar viö MR eru byggðar á hugmyndum arkitekt- anna Helga Hjálmarssonar og Lenu Helgadóttur. Þau fóra með sigur af hólmi í samkeppni sem byggingamefnd MR hélt fyrir þremur áram. Verðlaunahug- myndin snýst um svokallað menntaskólaþorp. Eldsvoði Eldsvoði í timburhúsi viö Rauðavatn. Eldur kom upp í timb- urhúsi við Rauðavatn um níuleyt- ið í morgun. Einn maður var i húsinu þegar eldurinn kom upp og sakaði hann ekki. Talið er að eld- urinn hafi kviknað út frá kamínu. Hættur Ævar Peter- sen fuglafræð- ingur hefur sagt sig úr nefnd um villt dýr. Hann vill með þessu mót- mæla vinnu- brögðum um- hverfismálraráðherra sem Ævar segir ekki hafa gætt lögboðinnar samráðsskyldu við nefndina. Bylgjan sagöi frá. Miðnæturmessa Húsfyllir var við miðnætur- messu á Jónsmessunótt i Hall- grímskirkju. Messan var nýjung á prestastefnu því hún var opin al- menningi. JP

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.