Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1998, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1998, Blaðsíða 11
FIMMTUDAGUR 25. JUNI1998 11 Fréttir Hilmar „Nínon“ Sigurbjörnsson, trillukarl i Eyjum, afar gagnrýninn á komu Keikós: Keikó átti aö fara til Eskifjarðar - hefur áhyggjur af klóaki, slysahættu, hávaða og olíubrák í Klettsvík „Þessi háhymingur mun ærast og veröa snarvitlaus þegar hann kemur hingað. Frá skipum og bátum stafar hvinur héma í sjónum sem við menn- imir heyrum ekki. Það fara upp í 50 skip hér fram og til baka um víkina á dag. Hvemig haldið þið að þessu dýri muni líða? Það verður snarbrjálað. Svo er olíubrákin stundum slæm þama úti á víkinni, frá skipum. Heyrðu! Upp úr þessu mun Keikó baða sig, að ekki sé minnst á klóakið og úrganginn sem berst frá Eiðinu austur fyrir klett og út í Klettsvík. Svo þegar örtröðin kemur í haust og fólk fer að skoða dýrið þá myndast slysahætta. Gúmmíbátar, kajakar og e.t.v. fólk sem kann ekki að leggja bát- um í sjó munu verða þama. Síðan sigla skip og stórir bátar fram hjá með tilheyrandi boðafóllum. í þessu munu smákoppamir lenda og slysa- hættan myndast. Svo kemur einhver veðurviti og há- skólamaður að utan og segir: „Ég veit um fallega vik í Vestmannaeyjum sem passar akkúrat fyrir þetta dýr. Það er ekki hægt að hugsa sér verri stað en þetta fyrir þennan háhyming.” Þetta sagði Hilmar Sigurbjömsson trillukarl, gjaman ne&dur Nínon í Vestmannaeyjum, þegar hann fór með DV í ferð út i Klettsvík við Heimaey til að skoða aðstæður þar sem Keikó og kvíin hans verða. Hilmar hefur ákveðnar skoðanir og er ekkert að skafa utan af hlutunum. Hann segir að fyrir vikið flýi sumir undan sér. „Það er eins og þeir sjái sjálfan andskotann," segir Hilmar. „En við sem erum hér á vettvangi þekkjum þessi dýr út og inn. Ég hugsa að flestir trillukarlar séu á svipaðri skoðun og ég.“ Ekki stætt hér í 10 vindstigum - Hilmar. Hvemig er kvikan hér í Klettsvík, t.d. á vetuma? „Kvikan? Það er kvika héma. En rokin geta orðið óskapleg. Ég skal ekki segja um hvort það kemur að sök. Ég held að kvíin fari ekkert af stað út af því. En vindurinn getur orð- ið óskaplegur héma. Hann skrúfar upp sjóinn og sveiflar honum inn í höfn. Héma með berginu magnast vindurinn um helming. í tíu vindstig- um er ekki stætt héma. - Em háhymingar oft hér í ná- grenninu? „Já, þeir era oft héma úti í flóanum eins og við köllum. Þeir koma ekki héma inn á víkina. Þeir era hér fyrir utan því þar er bullandi síld og mikið líf. Ég efast ekkert um að Keikó fer að mjálma til þeirra. Háhymingar geta sent hljóðmerki frá sér sem berast fleiri mílur. En svo er það hvort þeir koma þegar þeir fara að heyra í Keikó. Þá getið þið ímyndað ykkur hvemig þetta verður héma. Einu sinni voru smáhveli rekin hér inn í höfnina. Þar vora þau drepin, skorin og alla vega. Svo eru þeir að koma með eitt dýr hingað sem kostar milljónir. Á sama tima eru böm að deyja úti í heimi. Það er ekkert verið að hugsa um það.“ Þá býð ég ekki í Ameríkanana „Ég er hræddur um að dýrið geti verið dautt eftir mánuð,“ segir Hilm- ar. „Svo geta háhymingur líka stokk- ið yflr girðinguna sem verður á kvínni. Annað eins hefúr nú sést.“ - Hvemig líst þér á aðstöðuna hjá bandarískum þjálfuram Keikós sem hyggjast vera á kvínni allan ársins hring? „Aha, ha. Ég ætla ekkert að bjóða í þá. Þeir halda kannski að það sé alltaf logn héma. En hér geta orðið 12-14 vindstig. Háhymingurinn verður síð- an að svamla hér í yfirborðinu. Ég býst við að dýrið geti ekki nokk- um tímann sofið - bara fyrir hávaða héma af umferðinni í innsiglingunni og höfhinni. Ég hef séð hvernig hval- ur sefúr. Hann er að koma upp úr haf- inu og er lóðréttur. Þetta era ósjálf- ráðar hreyfingar. Ég held að þessir veðurvitar hafi ekki tekið þetta allt með í reikninginn. En þeir sem vilja peninga verða ánægðir." Bestur fyrir austan „Það væri best ef háhyrningurinn færi bara austur á firði. Á Eskifjörð. Þar væri hann a.m.k. í hreinum sjó. En þá tapa aðrir náttúrlega spæni úr aski sínum hér. Það virðist aðalatrið- ið. Ég er bara að hugsa um skepnuna. Svo segja menn bara „Frjáls Willy“! Hann verður bara sperrtur inni í fangelsi. Ég veit hvað vakir fyrir þess- um mönnum. Þetta er veiðimennska. Menn era að veiða peninga. Það var bannað fyrir mörgum árum héma að hafa bandingja. Þá vora menn að veiða lunda héma uppi i bergi. Og þeir bundu illfuglinn til að vekja forvitni hjá hin- um. Nú erum við að brjóta þessi lög. Við ætl- um að hafa bandingja héma til að veiða pen- inga.“ Þegar honum verö- ursleppt . . . „Ég er sannfærður um að þegar þessari skepnu verður sleppt þá byrjar hún að bjarga sér eins og skot,“ segir Hilmar. „Fleiri alda eðli verður ekkert skafið af dýrum. Keikó á eftir að byrja að veiða eins og skot. Þetta era tígrisdýr hafsins. Hér vora eitt sinn tveir háhymingar suður i Höfðavík. Þeir vora að kasta og slá sel á milli sin. Þeir leika sér með bráðina. Háhyrn- ingar geta lika drepið hvíthákarl. Ég er nú hræddur um það. Þeir ráðast lika tugum saman á skíðishval. Ég er ekki hissa að þeir heita drápshvalir á ensku (killer whale).“ Ég verö tekinn á færi Hilmar kveðst ekki einungis hafa áhyggjur af hávaða, slysahættu og ol- íubrák frá bátum og skipum sem fram hjá Klettsvík fara. Þegar harm rennir trillu sinni, Sigurbimi, inn í Friðarhöfn á ný eftir ferð út i Kletts- vík verður hann hugsi og segir: „Allur úrgangur sem rennur frá Vestmannaeyjabæ fer hér botnleiðina yflr höfnina og norður fyrir Eiði. Þar er grútur og allt sem til fellur, klóak og sót frá gúanóunum og lifrarbræðsl- unum. Síðan flýtur þetta með straumnum allt í kringum Heimaey og berst austur fyrir klettinn og inn á Klettsvíkina. Þá er þetta komið í þetta dýr. Ég veit ég verð tekinn á færi fyrir að segja þetta. En þetta er bara stað- reynd," segir Hilmar Sigurbjömsson. -Ótt Hilmar „Nínon“ kveðst langt í frá hrifinn af því aö Keikó komi til Vestmannaeyja. Fjórar meginástæður liggja þar að baki. Hann fór með DV í fróölega ferö tii Klettsvíkur, t.v. á myndinni. DV-mynd Pjetur SAN YL ÞAKRENNUR Fást í flestum byggingavöruverslunum lan 0ÁLFABORG? KNARRARVOOI4 » »568 6755 'MEífiA AFÖLLU Baleno Wagon er einstaklega rúmgóður og þægilegur í akstri, hagkvæmur í rekstri og hefur allt að 1.377 lítra farangursrými. Baleno Wagon gerir ferðalagið enn ánægjulegra. SUZUKI BALENO WAGON GLX OG GLX 4X4 Baleno Wogon GLX 4X4: 1.595.000 kr. Góður í ferðalagið SUZUKI SÖLUUMBOÐ: Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabraut 2, sími 431 28 00. Akureyri: BSA hf., Laufásgötu 9, sími 462 63 00. Egilsstaðir: Bíla- og búvélasalan hf., Miðási 19, sími 471 20 11. Hafnarfjörður: Guðvarður Elíasson, Grænukinn 20, sími 555 15 50. ísafjörður: Bílagarður ehf., Grænagarði, sími 456 30 95. Keflavík: BG bilakringlan, Grófinni 8, sími 421 12 00. Selfoss: Bílasala Suðurlands, Hrísmýri 5, sími 482 37 00. Baleno Wagon GLX: 1.445.000 kr. SUZUKI •m*------ SUZUKI BÍLAR HF Skeifunni 17. Sími 568 51 00. ALLIR SUZUKI BÍLAR ERU MEÐ 2 ÖRYGGIS- LOFTPUÐUM. SUZUKI1 AFLOG i ÖKYGGI j

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.