Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1998, Blaðsíða 13
FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 1998 13
DV Fréttir
Bjarki Brynjarsson hjá Þróunarfélagi Vestmannaeyja bjartsýnn á ferðamannastraum:
Tugþúsunda aukning?
- komi eitt prósent Keikóskoðenda þýðir það 7,5 prósent heildaraukningu hér
„Við gerum ráð fyrir að aukning í
ferðaþjónustu verði gífurleg til ís-
lands. Við erum að skoða þessa
þætti. Ég er bjartsýnn. Þetta verður
vissulega mikil kynning fyrir Vest-
mannaeyjar. Auðvitað vitum við
ekki hver aukningin verður en hugs-
anlega, og þá miðað við forsendur
sem t.d. Bandaríkjamenn hafa gefið
upp, gæti aukning á ferðamönnum
til Islands orðið einhverjir tugir þús-
unda á ári,“ sagði Bjarki Brynjars-
son, framkvæmdastjóri Þróunarfé-
lags Vestmannaeyja, við DV.
í dag eru margir íslendingar, þó
eðlilega sér í lagi Vestmannaeyingar,
talsvert að velta því fyrir sér hvort
koma Keikós muni á næstu misser-
um skapa aukinn ferðamanna-
straum til íslands. Gert er ráð fyrir
að í kjölfar komu hans í september
muni 700-800 erlendir fréttamenn
beina kastljósi heimsins að íslandi.
Magnús Oddsson ferðamálastjóri
sagði við DV að eftir það, eins og
aðrar miklar umfjallanir, fari fyrir-
spurnir að berast víða að úr heimin-
um, væntanlega sérstaklega frá
Bandaríkjunum þar sem Keikó er
sennilega þekktastur, bæði sem
kvikmyndahetja og dýr úr sædýra-
safni á vesturströnd Bandaríkjanna.
„Bomban kemur í september," segir
Bjarki Brynjarsson hjá Þróunarfé-
lagi Vestmannaeyja.
í kjölfar fyrirspurnanna er ekki
óeðlilegt að ætla að þá fyrst komi
hugsanlega einhver raunveruleg
mynd á það sem koma skal.
Bjarki segir að um 1,5 milljónir
ferðamanna hafi skoðað Keikó á ári
þar sem hann er nú.
Fólkið leggur talsvert á
sig til að koma og skoða
dýrið þvi það er á norð-
vestasta hluta Banda-
ríkjanna. Frá flugvell-
inum þar er tveggja
klukkustunda akstur.
Aðeins lítill hluti þessa
flölda myndi þýða
mikla fjölgun ferða-
manna til íslands.
Sé leikið sér með töl-
ur eru tíu prósent þessa
fjölda 150 þúsund
manns sem er um 75
prósent aukning á
komu erlendra ferða-
manna til íslands. Eitt
prósent er 15 þúsund
manns - það þýddi 7,5
prósent heildaraukn-
ingu sem vissulega er
stór og vel þegin stærð.
„Bomban kemur í
september," segir
Bjarki. „Ég held að það
sé alveg ljóst að með
haustinu fari menn að
undirbúa það sem koma
skal.“
-Ótt
Kvíin hans Keikós veröur nánast jafnlöng Herjólfi, um 70 metrar. Hún verbur í Klettsvík
sem er í baksýn á myndinni. Frá svokölluöum Flakkara, útsýnisstaö i hrauninu í Eyjum,
þaöan sem myndin er tekin, veröur hæglega hægt aö skoöa kvína og Keikó greinilega,
sérstaklega meö kíki. Hægt er aö komast enn nær ef farið er niður í steinafjöruna fyrir
framan nýja hraunið í Heimaey. Bátsferö út í Klettsvík er því ekki bráönauösynleg til að
skoöa Keikó. DV-myndir Pjetur
Guðjón Hjörleifsson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum:
Keikó mun gleðjast
yfir nýjum hljóðum
- stutt er í bros út að eyrum hjá Eyjafólki þegar minnst er á sjávardýr
Þegar farið er til Vestmannaeyja
í dag er ekki erfiðleikum bundið að
heQa samræður við innfædda. Til
að framkalla bros á peyjum og pæj-
um þarf vart að klára orðið
Kei . . . - þá kemur bros út að eyr-
um. Eyjamenn leika við hvem sinn
fingur. Og það er ekkert skrýtið.
Nánast allt er jákvætt við komu há-
hyrningsins. Sviðsljósið er fram-
undan. Spennan er að aukast.
„Koma Keikós verður vonandi til
þess að Vestmannaeyjar verða val-
kostur númer eitt á íslandi fyrir er-
lenda ferðamenn í stað þess að við
verðum aftast á listanum eins og
gjaman hefur verið. Þetta verður
einnig vonandi til þess að fólk kem-
ur hingað til þess að dveljast lengur
en einn dag,“ sagði Guðjón Hjör-
leifsson, bæjarstjóri í Vestmanna-
eyjum.
Guðjón segir að þegar hann hugs-
ar til þess starfs sem er framundan
þangað til Keikó kemur til íslands
þá hafí það í samanhurði í raun ver-
ið smámunir einir að „fá Keikó til
Vestmannaeyja".
Verr við skerandi hljóð
Aðspurður um hljóð frá bátum og
skipum, sem talsvert hefur verið
gagnrýnt, m.a. í DV í dag, sagði
Guðjón: „Keikó gleðst yfir nýjum
hljóðum." „Hljóöin sem hann á eftir
að heyra em ekkert meiri en þau
sem koma frá dælunum þar sem
hann er núna.“
Hallur Hallsson hjá Free Willy
Keikó sagði á hinn bóginn: „Það eru
frekar skerandi hljóð sem Keikó er
illa við.“
Gert er ráð fyrir að um 10 starfs-
menn muni gæta og þjálfa Keikó í
kvínni í Vestmannaeyjum. Þar
verði að jafnaði einhver allan sól-
arhringinn. Guðjón segist reikna
með að rekstrarkostnaður verði
Guöjón bæjarstjóri
með mynd af
Keikókvínni. Starfs-
vettvangur hans er í
dag aö miklu leyti
helgaöur háhyrningi í
Bandaríkjunum sem
er á leiö til Eyja.
Kirk Vasey frá Alaska er hvergi banginn viö íslenskt veðurfar gagnvart kvínni sem hann er
aö byggja ásamt fjölda annarra sérfræöinga á sínu sviöi. Á henni veröa sérstakar „akker-
isfestingar" og festingar sem veröa boraðar niöur f fast land í botni Klettsvíkur. Hann seg-
ir aö til greina komi aö byggja eins konar „heimsóknarpall“ viö kvína úti f Klettsvfk.
ekki undir 40-45
milljónum króna á
ári. Dýpkunarfram-
kvæmdir í Klettsvík
munu hefjast á næst-
unni. Hve margar
milljónir bæjarsjóð-
ur þarf að greiða fyr-
ir þá framkvæmd
liggur ekki fyrir enn-
þá en gert er ráð fyr-
ir að framkvæmdim-
ar taki einungis um 5
sólarhringa. Verk-
takar „ofan af landi“
sjá um dýpkunar-
framkvæmdir.
-Ótt
Heimili
að heiman í
Kaupmannahöfn
Vandaðar
ferðamannaíbúðir
miðsvæðis í
Kaupmannahöfn.
Verð á mann frá dkr.
187
á daq.
Allar íbúðirnar eru
með eldhúsi og baði.
Akstur til og frá Kastrup
aðeins dkr. 400.
Enn eru nokkrar vikur
lausar í sumar!!!
Mafðu samband viö
ferðaskrifstofuna þína eða
£7/i £7raoel<Scandinaoút'
SímiOO 45 33 12 33 30,
fax OO 45 33 12 31 03
’Verö á mann miðað viö 4 í íbúö i viku
www.simaskra.is
SÍMASKRÁIN
gefin út daglega!
SÍMINN