Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1998, Blaðsíða 14
14
FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 1998
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og Crtgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON
Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON
Auglýsingastjóri: PÁLL ÞORSTEINSSON
Ritstiórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaöaafgreiösla, áskrift: ÞVERHOLTI11,105 RVÍK,
SÍMI: 550 5000
FAX: Auglýsingan 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999
GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777
Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/
Vfsir, netútgáfa Frjálsrar fjölmiðlunar: http://www.visir.is
Ritstjórn: dvritst@centrum.is - Auglýsingar: dvaugl@centrum.is. - Dreifing: dvdreif@centrum.is
AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 4611605
Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Filmu- og plötugerö: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF.
Áskriftarverð á mánuöi 1800 kr. m. vsk. Lausasöluverö 160 kr. m. vsk., Helgarblað 220 kr. m. vsk.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Torgið, Taívan og Tíbet
Rómverjar og Bretar kirnnu að varðveita heimsveldi
um aldir. Rómverjar deildu og drottnuðu með því að
styðja önnur ríki gegn keppinautum sínum. Bretar gerðu
það sama með því að styðja öflug Evrópuríki gegn rík-
inu, sem var þeim erfiðast á hverjum tíma.
Þannig studdu Bretar Prússa fyrst gegn Habsborgara-
veldi Austurríkis, þegar það hafði teygt sig um Ítalíu,
Spán og Niðurlönd og síðan gegn Napóleonsveldi Frakk-
lands, þegar það hafði teygt sig austur og suður um alla
Evrópu. Bretar borguðu heilu stríðin fyrir Prússa.
Ef Kína er á eins mikilli stórveldissiglingu og menn
Clintons Bandaríkjaforseta vilja vera láta, ættu þeir að
efla samskipti við öflug ríki á borð við Sovétríkin, Ind-
land og Japan, sem þurfa að rýma til fyrir áhrifum Kína,
fremur en að hvetja Kínastjórn til aukinna afskipta.
Ofan á það, sem sagnfræðin ætti að geta kennt fávísu
liði Clintons, bætist sú augljósa staðreynd, að Sovétrík-
in, Indland og Japan eru eins konar lýðræðisríki, þar
sem flokkar skiptast á um völd, en Kína er alræðisríki,
sem vinnur gegn bandarískri hugmyndafræði.
Bandaríkin hafa ekki aðeins truflað valdajafnvægi
Asíu með Kínagælum sínum, heldur einnig með gælum
við alræðisríkið Pakistan, sem studdi Talebana til valda
í Afganistan. Með bandarískum peningum, sem fóru um
Pakistan, var komið á hryllingsstjórn í Afganistan.
Þegar Indverjar sáu þann kost í herkví Kínverja og
Pakistana að gera tilraunir með kjamorkuvopn, ætlaði
aHt vitlaust að verða í Bandaríkjunum. Nú beita þau Ind-
land efnahagslegum refsiaðgerðum, meðan Kína nýtur
beztu kjara í viðskiptum, þrátt fýrir sínar tilraunir.
Komið hefur í ljós, að stuðningur Bandaríkjanna við
japanska jenið í síðustu viku var ekki liður í samkomu-
lagi um íj ármálaúrbætur í Japan, svo sem venja er við
slíkar aðstæður. Þetta var pólitísk ákvörðun, sem tekin
var af mönnum Clintons í þágu Kínastjómar.
Ef japanska jenið hefði faUið, hefði kínverska júanið
og doHarinn í Hong Kong faUið líka. Það hefði verið áfaU
fyrir Kína eftir nýlega gengislækkun þar árið 1995. Kína-
stjóm hvatti Bandaríkjastjóm tU að styðja jenið, svo að
röðin kæmi ekki næst að eigin gjaldmiðlum.
Kínastjóm hefúr Clinton og menn hans að flflum í
hverju málinu á fætur öðm. Hún fékk ferð Clintons
færða fram á afmæli ofbeldisins á Torgi hins himneska
friðar og fékk hann tU að skoða torgið. Hvort tveggja er
táknræn framganga samkvæmt kínverskri hefð.
Dagskrá ferðar Clintons undirstrikar, að Bandaríkin
hafi faUizt á atburðina á Torgi hins himneska friðar, rétt
eins og viUimennsku Kínastjómar gegn sérkennUegum
menningarheimi Tíbets og sífeUdar tilraunir hennar tU
að grafa undan stjómvöldum eyríkisins Taívans.
Kínastjóm notar fávísi og siðleysi Clintons tU að efla
kröfu sína um, að Kína taki við af öxli Bandaríkjanna og
Japans sem Asíuveldið mikla. Þessa eUdu stöðu mun
hún nota tU að láta vestræna hugmyndafræði víkja fyrir
hugmyndafræði kínverska kommúnistaflokksins.
Samt er Kína ekkert stórveldi í raun. Stærð efnahags-
ins er sama og Spánar. Erlendar fjárfestingar em svipað-
ar og í BrasUíu, ef frá em taldir brottfluttir Kínverjar.
Fjárhagsleg þátttaka Kína í vömum gegn gengishruni
gjaldmiðla í Asíu er einn tíundi af framlagi Japans.
Samt hafa menn Clintons Bandaríkjaforseta ákveðið
að líma sig á ráðamenn Kína og vaða eldinn tU að
þjónusta þá sem bezt í stórveldisdraumum þeirra.
Jónas Kristjánsson
„Á landsfundi Alþýðubandalagsins helgina 3.-4. júlí nk. mun það ráðast hvers konar samstarf verður milli fé-
lagshyggjuflokkanna í næstu kosningum og á komandi kjörtímabili."
Tími uppstokkun-
ar er kominn
Kjallarinn
Jóhann
Ársælsson
fyrrv. alþingismaður
Islenskum stjórnmál-
um, nýrri flokkaskipan
til frambúðar. Svar
þeirra sem eru á móti
slíkri uppstokkun er að
leggja til að gefnar
verði út stefnuyfirlýs-
ingar sem bindi flokk-
ana saman um stjómar-
samstarf eftir kosning-
ar. Þeir vilja ekki
grundvallarbreytingu á
flokkakerfmu. Það er
einungis mikill stuðn-
ingur hinna almennu
stuðningsmanna flokks-
ins við samstarf sem
hefur komið í veg fyrir
að þessir aðilar leggist
cdfarið gegn þeim sam-
fylkingartilraunum
„Þaö eru ekki sömu forsendur
fyrir skiptingu fólks í pólitískar
fylkingar nú og voru um miöja
öldina þegar flokkaskiptíngin
mótaöist í aöalatriöum.“
Á landsfundi Al-
þýðubandalagsins
helgina 3.-4. júlí
nk. mun það ráðast
hvers konar sam-
starf verður milli
félagshy ggj uflokk-
anna í næstu kosn-
ingum og á kom-
andi kjörtímabili.
í Alþýðuflokki og
Kvennalista virðist
ríkja samstaða um
að skynsamlegasta
formið á samstarf-
inu sé að fylking-
amar bjóöi fram
sameiginlega lista í
öllum kjördæmum.
í Alþýðubanda-
laginu er ágreining-
ur um málið. Þar
eru aðallega tvær
skoðanir á lofti.
Önnur er sú að best
sé að bjóða fram
sameiginlega lista,
hin er að flokkamir
gefi út sameiginlega
stefnuyfirlýsingar
og myndi bandalag
á Alþingi eftir kosn-
ingar en bjóði fram hver sinn lista
í kosningunum.
Það er tekist hart á um þessar
tvær leiðir. Hvers vegna?
Svarið við spumingunni er ein-
falt. Átökin um þessar tvær leiðir
skipta mönnum í fylkingar um
það hvort þeir vilja gera alvörutil-
raun til að mynda öflug samtök fé-
lagshyggjufólks til frambúðar eða
ekki. Þeir sem vilja að boðnir
verði fram sameiginlegir listar eru
að berjast fyrir slíkri alvörutil-
raun tU algjörrar uppstokkunar í
sem hafa verið til umræðu. Þeir
fóru tilneyddir þessa millileið
vegna þess að hún er vænlegri til
nokkurs fýlgis en hin, að leggjast
alfarið gegn samfylkingartilraun-
um.
Baráttutæki en ekki
hugsjón
Verkefni landsfundarfulltrúa er
að skera úr um stefnu flokksins í
þessu mikilvæga máli. Það er
mjög mikilvægt að landsfúndar-
fulltrúar geri sér vel grein fyrir
því að í vali milli þessara tveggja
leiða felst afstaðan til þess hvort
menn vilja eða vilja ekki gera til-
raun til samfylkingar félags-
hyggjuflokkanna.
Það er mín skoðun að nú sé
kominn tími til uppstokkunar í ís-
lenska flokkakerfmu. Það eru ekki
sömu forsendur fyrir skiptingu
fólks í pólitískar fylkingar nú og
voru um miðja öldina þegar
flokkaskiptingin mótaðist í aðalat-
riðum. Það er auðvitað erfið
ákvörðun fyrir þá sem lengi hafa
tekið þátt í pólitískri baráttu að
snúast til fylgis við hugmyndir
sem munu líklega verða til þess að
sá flokkur, sem fyrir var barist,
hverfur af sjónarsviðinu í nálægri
framtíö. En flokkamir sjálflr eru
baráttutæki en ekki hugsjón og
hugsjónunum þarf að velja þau
baráttutæki sem best duga á
hverjum tíma.
Málefnaviðræður félagshyggju-
aflanna hafa leitt í ljós að góð
samstaða getur orðið um verkefni
næstu fjögurra ára. Við skulum
sameinast um stuðning við sam-
eiginleg framboð félagshyggju-
fólks í næstu kosningum. Næstu
fjögur ár skulum við nota til að
skapa öfluga samstæða fylkingu á
grundvelli félagshyggju. Fylkingu
sem ver rétt aldraðra og sjúkra til
samfélagsaöstoðar. Fylkingu sem
er tilbúin að verja rétt launafólks
í samstarfi við verkalýðshreyfmg-
una. Fylkingu sem er tilbúin að
takast á við auðhyggju og sér-
hyggju stjórnarflokkanna. Fylk-
ingu sem ver almannarétt í land-
inu bæði til lands og sjávar. Ég
lýsi hér með yfir fullum stuðningi
við slíka fylkingu.
Jóhann Ársælsson
Skoðanir annarra
Enginn öryggur
„I kvótakerfmu er enginn öruggur um hagsmuni
sína nema útgerðannaðurinn. Hann getur selt kvót-
ann hverjum sem er hvert á land sem er. Fólk í sjáv-
arþorpum býr við þá óvissu að hvenær sem er geti
það orðið atvinnulaust og að húseignir þess falli í
veröi vegna þess að útgerðarmaðurinn ákveður að
selja kvótann.“
Kristinn H. Gunnarsson í MBL 24. júní.
Eiga að greiða
fyrir þjónustuna
„Þaö er álit mitt að ferðamenn eigi ekki að greiða
gjald fyrir að skoða landið heldur að greiða fyrir þá
þjónustu sem þeim er veitt og hef ég ekki legið á
þeirri skoðun minni og m.a. hefur það verið skýr af-
staða mín innan stjórnar Náttúruvemdar ríkisins
þar sem ég á sæti.“
Guðný Sverrisdóttir í MBL 24. júní.
Ælupoka
handa Keikó
„Ástæðan fyrir því að allir vilja fá Keikó til sín er
ekki sú göfuga mann- eða hvalgæska sem svo marg-
ir guma af, heldur einfaldlega sú að menn ætla að
græða á skepnunni."
Jóhannes Sigurjónsson i Degi 23. júní.