Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1998, Side 15

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1998, Side 15
FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 1998 15 Röskun varðar refsingu Margir þeirra sem leggja land undir fót um víðáttur landsins hcifa eflaust rekist á fyrirsögn þessarar greinar á skilti á fom- um vegi. í því tilviki snertir röskun mann- virki en orðið röskun höfðar engu að síður til haga almennings og hinna margvíslegu verka hans og reglna. Siðmenntuð þjóðfé- lög setja vissar hömlur á athafnir þegna sinna og mynda lagalegan ramma um starfsemi og framferði þeirra, hvort sem þeim líkar betur eða verr. Ávallt er þó matsatriði hversu miklir fjötrar eru á frelsi þegnanna. Þegar frelsi íbúa akveð- inna ríkja er metið er þó oftast miðað við frelsi til orðs og æðis, frelsi til athafna, verslunar og við- skipta innan ramma menningar og siðferðis. Þessar reglur virðast gilda í flestum samfélögum, ekki aðeins meðal manna heldur einnig dýra merkurinnar. Til þess að reglum sé hlýtt eru sett boð og bönn til að fara eftir og viðurlög- um í formi einhvers konar refsing- ar beitt sé út af brugðið. Álitamál er hvaða refsing hentar hverju broti. Brot eru refsiverð á meðan það sem vel er gert er umbunar- vert. Almenna reglan er því sú að hið fornkveðna ríki að með lögum skuli land byggja en með ólögum eyða. Andstaðan, stjómleysi, hef- ur hlotið takmarkaðan hljóm- grunn. Snýst upp í andhverfu sína í sumum tilvikum virðast lög og reglur snúast upp í andhverfu sína. Fyrir nokkru var frá því greint í fjölmiðlum að óþekkum grunnskólanemum á ferðalagi, er ekki virtu boð og bönn yfírboðara sinna, hefði í raun verið umhunað fyrir atferli sitt og sendir heim með leigubif- reið í stað þess að þurfa að beygja sig undir aga hópsins ferðina á enda. Ekki fylgdi fréttinni hvort kostnaður yrði greiddur af sveitar- félaginu eða að- standendum. í ann- an stað gerðist sá at- burður að tveir snáðar voru að fljúg- ast á og var leikur- inn ójafn. Var annar lítill og grannur en hinn stór og þéttvax- inn. Hafði sá stærri hinn minni undir. Lærifaðir piltanna reyndi að stía þeim í sundur til að forðast að sá minni yrði fyrir meiðslum. Gellur þá í þeim stærri að verði við sig komið skuli kennarinn kærður. Atburður þessi er í fullu samræmi við frétt um að stjóri einn í grunn- skóla á Vesturlandi, er varð það á að leggja hendur á nemanda í tí- unda bekk, tvímælalaust ekki af mannvonsku einni heldur aga- leysi, eigi yfir höfði sér kæru fyrir framferðið vegna brota á lögum og reglum um vernd barna og ung- linga. í þriðja lagi safnast sam- an um hverja helgi í miðborg Reykjavíkur, einni af verðandi menningarborg- um Evrópu, hóp- ur unglinga um og undir lögaldri, að sögn lögreglu í þeim eina til- gangi að áreita hana, efna til óspekta og viðhafa önnur skríls- læti. Verðir laganna eru fáliðaðir og hafa orðið að grípa til táragass til að verja hendur sínar. Þó hér sé um skýlaust lögbrot að ræða virð- ist í raun lítið aðhafst og sami leikurinn endurtekur sig helgi eft- ir helgi, hlutaðeigandi til ævar- andi vanvirðingar. Sögur herma að fyrir nokkrum árum hafi slíkur lýður vaðið uppi í nokkrum höfuð- borgum nágrannalanda okkar en nú sé búið að stemma stigu við slíku framferði sem var jafnt íbú- um miðborganna sem annarra, er þar áttu leið um, til sárrar ar- mæðu. Kristjón Kolbeins Um hverja helgi safnast saman í miðborg Reykjavíkur hópur unglinga að sögn lögreglu í þeim eina tilgangi að áreita hana, efna til óspekta og viðhafa önnur skrílslæti. Kjallarinn hagfræðideild Seðla- banka íslands „Brot eru refsiverð á meðan það sem vel er gert er umbunarvert. Almenna reglan er því sú að hið fornkveðna ríki að með lögum skuli land byggja en með ólögum eyða.u Samfylkingar er þörf A næstu vikum ræðst hvort fé- lagshyggjuöflunum tekst að stilla saman strengi sína fyrir komandi alþingiskosningar. Margt bendir tO að næstu alþingiskosningar geti ráðið miklu um möguleika félags- hyggjufólks á að hafa áhrif á mót- un hins íslenska samfélags á næstu öld. Unnið er að samstiU- ingu málefha í starfshópum sem myndaðir eru af fulltrúum þeirra stjórnmálaafla sem nú mynda stjórnarandstöðu á Alþingi. Þessi málefnavinna mun ráða úrslitum um hvaða leið verður valin inn í framtíðina. Enginn efast um að mOli þess- ara flokka og innan þeirra eru skiptar skoðanir um mörg mál. Hins vegar skiptir mestu að þeir geti stUlt saman strengi í hinum stærri málum sem móta samfélag- ið, þ.e. hvemig breyta megi samfé- laginu þannig að það mótist af jöfnuöi og samhjálp. TU að slíkum markmiðum megi ná þurfa aUir sem taka vUja þátt í því háleita markmiði að breyta samfélaginu í anda félagshyggju að nálgast verk- efnið opnum huga, án fordóma og með umburðarlyndi gagnvart skoðunum armarra að leiðarljósi. Ef slík viðhorf ráða för, eins og víða var reyndin í síðustu sveitar- stjómarkosningum, þarf ekki að spyija að leikslokum. Sameinuð félagshyggjuöfl munu þá verða mótandi afl inn í nýja öld og snúa aUt of langri vamarbaráttu félags- hyggju hér á landi í sigurvissa sókn j afnaðarstefnunnar. Hinn gamli draumur um sameiningu vinstri manna getur verið skammt undan ef rétt er á málum haldið. Þannig getur verið stutt í að upp- hafleg markmið Alþýðubanda- lagsins nái fram þrátt fyrir þá undarlegu stöðu að innan Alþýðu- bandalagsins virðast enn finnast menn sem ekki þekkja eða vUja þekkja hin upphaflegu markmið. Hvað ber að varast Ef litið er til sögunnar má ljóst vera hvað ber að varast því saga þeirra framboða sem stofnað hef- ur verið tU með klofningi í nafni sameiningar hafa ætið fært félagshyggjufólk fjær markmið- inu um samein- að og sterkt afl. Þó ekki væri nema í ljósi þessara sögulegu staðreynda verð- ur að álykta sem svo að þeir sem lengst ganga gegn þeirri tilraun sem nú stendur yfir um samfylk- ingu félagshyggjuaflanna séu í raun á móti sterku afli félags- hyggjufólks. Ástæður þessa geta verið ýmsar og á stundum skUjanlegar, t.d. ef menn aðhyUast svokaUaða „hrein- trúarstefnu" í stjómmálum. Þá er vænlegra að starfa ekki í stórum og áhrifamiklum flokki heldur miklum mun frekar í smáum flokki sem rúmar ekki aðrar skoðanir en þær sem henta „hreintrúarstefh- unni“ hverju sinni. Þeir stjórnmálamenn sem þannig hugsa og starfa eiga hins vegar ekki að taka þátt í þeirri tilraun sem nú stendur yfir heldur bíða niðurstöðu og taka þá ákvörðun um stöðu sína í íslensk- um stjórnmálum. Þátttaka þeirra við þær aðstæður sem nú eru uppi skapar óþarfa erfiðleika, jafnt fyrir þá sjálfa sem aðra sem starfa af heUum hug að tilrauninni. „Hreintrúarmenn" munu aldrei geta sætt sig við þá niðursföðu sem fæst ef þeir telja að stór og sterk samfylkingarhreyfing félags- hyggjufólks eigi að taka mið af „hreintrúarstefnu" í stjórnmálum. Hreyfing sem gerir slíkt dæmir sig úr leik við mótun samfélagsins en meginmarkmið samfylkingar eru þveröfug, þ.e. að hafa mótandi áhrif á samfélagið inn í hina nýju öld. Til að svo megi verða þarf að vanda hvert skref og mynda hreyf- ingu sem getur í raun orðið mót- vægi gegn ofurvaldi Sjálfstæðis- flokksins í íslensku samfélagi. Áfram saman Undanfarnir mánuðir hljóta að vera ákveðið leiðarljós inn í fram- tíðina. Um aUt land hefur grasrót- in í þeim stjómmálaflokkum sem kenna sig við félags- hyggju unniðsamaní sveitarstjómarkosn- ingum og náð víða mjög góðum árangri en aUs staðar átt ánægjulegt og gott samstarf. Sá lands- hluti sem sker sig úr fyrir bestan árangur er Austurland þar sem félagshyggju- framboð í þremur stærstu sveitarfélög- unum, með um 2/3 hluta íbúanna, ná um 40% af atkvæðamagn- inu. Austurland hef- ur áður sýnt sterka stöðu félagshyggju- afla, jafnt í sveitar- stj ómarkosningum sem alþingiskosning- um, þó heldur hafi haUað undan hin síðari ár í kosningum tU Al- þingis. MikU og sterk rök þarf tU að taka ekki mið af slíkum vísbend- ingum og gera ekki raunhæfa tU- raun tU samfylkingar í anda þess sem grasrótin framkvæmdi í sveitarstjómarkosningunum. Það er verkefni forystu félagshyggju- flokkanna á næstu vikum að stiUa saman strengi á þann hátt að tryggt verði að samfylking félags- hyggjuflokka verði að raunveru- leika í næstu alþingiskosningum. Þannig er hægt að tryggja áfram- haldandi samstarf þeirra sem tóku höndum saman í anda félags- hyggju í vor til að skapa framtíð. Djúp verða söguleg spor þeirra sem slíka samfylkingu skapa - megi áhrif þeirra verða sem mest. Einar Már Sigurðarson „Hreintrúarmenn“ munu aldrei geta sætt sig við þá niðurstöðu sem fæst ef þeir telja að stór og sterk samfylkingarhreyfíng fé- lagshyggjufólks eigi að taka mið af „hreintrúarstefnu“ í stjórnmál- um. “ Kjallarinn Einar Már Sigurðarson miðstjórnarmaöur í Al- þýöubandalaginu Með og á móti Á að skylda ökumenn til að nota handfrjálsan bún- að fyrir farsíma í bílum? Bjöm Pótursson hjá FÍB. Verra en fyllirí „Fyrir rúm- um tveimur árum birist í FÍB-blaðinu Ökuþóri grein um notkun far- síma samhliða akstri og var fyrirsögnin „Verra en fyU- erí“. Þar var sagt frá norskri könn- un sem leiddi í ljós að viðbragðs- tími símabUstjóra þrefaldaðist. Það er ekki bara það að þurfa að halda á símanum heldur drepur umræðuefnið athyglinni á dreif. Þegar gerður var samanburður á ökumönnum undir áhrifum áfengis og þeirra símatalandi voru viðbrögð þeirra kenndu hraðari. Með handfrjálsum búnaði get- ur ökumaður svarað hringingu og beðið viðkomandi að hinkra uns ökumaður getur rætt í sim- ann. í sumum löndum hafa verið sett lög er banna símanotkun samhliða akstri. Einnig er ósköp hvimleitt að lenda á eftir ökumanni sem hef- ur gíraö niður, gripið símann í höndina og lúsast svo eftir mjórri götu eða vegi. Enn verra er að lenda við hlið ökumanns sem heldur á símanum með annarri hendi og steytir hinn hnefann út í loftið. Slíkir tilburð- ir hafa sést og umferðarslys af völdum símatalandi ökumanna eru líka staðreynd. Handfrjáls símabúnaður eykur því öryggi í umferðinni sé hann notaður rétt, þ.e. til stuttrar svör- unar en ekki til lengri símtala. Ökumanni veitir ekkert af allri sinni athygli þegar hann er á akstri í þéttri umferð." Val en ekki skylda „Við höfum nú svo sem ekki mikið íjallað um þessi mál hér og erum þar af leiðandi ekki mikið inni í þessari um- ræðu. En í Hallkell Þort<el>- íljótu bragöi ««, framkvæmda- tel ég þó ekki Bw^*r,eK>*' skynsamlegt að skylda fólk til að setja upp svona handfrjáls- an búnaö fyrir farsima í bíl með þeim tilkostnaði sem því fylgir. Ég tel það einfaldlega ekki raunhæfan kost og í raun ekki inni í myndinni í dag að skylda fólk tilað setja upp svona búnað - svona lagað á miklu frekar að vera val. Hins vegar sér maður allt of marga ökumenn tala lengi í sím- ann á ferð. En fólk á eftir að halda áfram að tala i bilasima og það er því spuming hvort fólk verði einbeittara við aksturinn ef það notar svona handfrjálsan búnað. Ég tel þó ljóst að þessi mál krefjast talsverðar umræðu og vandlegrar skoðunar." -glm Kjallarahöfundar Athygli kjallarahöfunda er vakin á því að ekki er tekiö við greinum í blaðið nema þær ber- ist á stafrænu formi, þ.e. á tölvu- diski eða á Netinu. Netfang ritstjómar er: dvritst@centrum.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.