Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1998, Page 18
26
FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 1998
íþróttir__________________________________________________ dv
* LANDSSÍMA
Arnór Gunnarsson, Valsmaður, hefur betur í slag við Anton Björn Markússon, Framara, sem virðist beita ýmsum
brögðum. Á litlu myndinni gengur Kristinn Björnsson, þjálfari Vals, hnípinn í burtu eftir brottvísunina. Myndir BG
l'C
'o
19-6 16
7-7 13
8-3 11
12-7 10
6-9 10
7-10 8
9-9 7
6-9 7
3-9 5
8-16 3
Markahæstir:
Steingrimur Jóhannesson, iBV
Jens Paeslack, ÍBV...........
Sigurður R. Eyjólfsson, ÍA . . .
Jón Þ. Stefánsson, Val ......
Guömundur Steinarsson, Kefl.
Hreinn Hringsson, Þrótti . ...
Kári S. Reynisson, Leiftri . . . .
Sinisa Kekic, Grindavík......
Tómas Ingi Tómasson, Þrótti .
. 9
. 4
.4
. 4
. 3
. 3
. 3
. 3
. 3
Þróttur og ÍR leika síðasta leik 7.
umferðar á Valbjamarvelli kl. 20 i
kvöld.
í 1. deild leika Breiöablik-Þór, KA-
FH, Stjarnan-Skallagrímur og Vík-
ingur-Fylkir.
Reimt hja Val
- falldraugurinn ríöur enn húsum á Hlíðarenda eftir tap í botnslag viö Fram
Valur (0)1
Fram (2)2
0-1 Baldur Bjarnason (19.) fékk
boitann rétt utan markteigs eftir tvö
skot Framara í varnarmenn í teign-
um og skoraði af öryggi.
0-2 Ásmundur Amarsson (32.)
með skalla úr miðjum vitateig eftir
fyrirgjöf Baldurs.
1-2 Jón Þ. Stefánsson (62.) með
skalla eftir fyrirgjöf Harðar Más
Magnússonar frá vinstra kanti.
Lið Vals: Lárus Sigurðsson @ -
Arnór Gunnarsson (Tryggvi Valsson
82.), Ágúst Guömundsson, Bjarki Stef-
ánsson Grímur Garðarsson - Vil-
hjálmur Vilhjálmsson, Ólafur Stígs-
son @, Sigurbjöm Hreiðarsson (Daði
Ámason 76.), Guðmundur Brynjólfs-
son (Ólafur Júlíusson 54.), Hörður
Már Magnússon @ - Jón Þ. Stefáns-
son.
Lið Fram: Ólafur Pétursson @ -
Sævar Guðjónsson, Hallsteinn Amar-
son @, Þórir Áskelsson @ - Kristó-
fer Sigurgeirsson (Ágúst Ólafsson
76.), Jón Þ. Sveinsson @@, Þorvald-
ur Ásgeirsson, Ásmundur Arnarsson
(Freyr Karlsson 80.), Árnilngi Pjet-
ursson (Þorbjöm Atli Sveinsson 76.),
Anton Bjöm Markússon - Baldur
Bjamason @.
Markskot: Valur 21, Fram 13.
Hom: Valur 8, Fram 2.
Gul spjöld: Þórir (F), Baldur (F),
Anton (F), Ásmundur (F), Arnór (V),
Sigurbjöm (V), Jón Þorgrímur (V),
Ólafur S. (V).
Rautt spjald: Kristinn Bjömsson,
þjálfari Vals.
Dómari: Bragi Bergmann, mis-
tækur og greinilegt að HMruglar
hann og fleiri dómara þessa dagana.
Áhorfendur: 255, dapurt þegar
þessi gömlu stórveidi eiga i hlut.
Hvar eru stuðningsmennimir þegar
illa gengur?
Skilyrði: Rigning, gola, háll en
sæmilegur völlur.
Maður leiksins: Jón Þ. Sveins-
son, Fram. Gamli vamarjaxlinn
stjómaði umferðinni á miðjunni
og gerði þaö með miklum ágætum.
Stöðvaði tjölda sókna Vals og spil-
aði af mikilli skynsemi.
Salih Heimir Porca lék ekki með
Val vegna meiðsla í læri. Hann sagði
við DV að líklega yrði hann frá í tvær
vikur til viðbótar.
Stefán M. Ómarsson, vamarmaður-
inn öflugi hjá Val, var í leikbanni.
Kristinn Björnsson, þjálfari Vals,
sagði engu líkara en Bragi Bergmann
dómari legði sig í einelti. „Hann rak
mig líka af bekknum í leik við Stjöm-
una í vor,“ sagði Kristinn.
Kristinn mótmælti fyrra marki
Fram hressilega, með þessum afleið-
ingtun. „Það var greinilega brotið á
okkar manni áður en boltinn var
sendur fyrir markið," sagöi Kristinn.
Sú var tíðin að Valur og Fram bit-
ust um meistaratitlana. í gærkvöld
mættust gömlu Reykjavíkurrisamir
hins vegar sem botnlið úrvalsdeild-
arinnar og einu liðin án sigurs.
Framarar höfðu betur á Hlíðarenda,
1- 2, og höfðu sætaskipti við Vals-
piltana sem enn eitt árið þurfa að
glíma við falldrauginn, sem vissu-
lega glottir líka áfram við Frömur-
um þó staða þeirra sé eilitið skárri
en áður.
Framarar höfðu ekki skorað
nema eitt mark í fyrstu sex leikj-
unum. Eftir 32 mínútur voru þeir
hins vegar komnir í þægilega stöðu,
2- 0 yfir, og búið að reka Kristin
Bjömsson, þjálfara Vals, af bekkn-
um fyrir að mótmæla fyrra mark-
inu kröftuglega.
Þessi staða endurspeglaði ekki
leikinn því Valsmenn höfðu sótt
nær látlaust. En Framarar léku
mjög skynsamlega, með 3ja manna
vöm og sex manna vamarsinnaða
miðju, og fóm varla fram nema til
að skora. Á meðan komust Vals-
menn ekki mikið áleiðis þrátt fyrir
pressuna en skutu þó ótt og títt að
Frammarkinu. Svona gekk leikur-
inn fyrir sig lengst af, Valsmenn
minnkuðu muninn á ágætum tíma i
seinni hálfleik en þrátt fyrir nokk-
um sóknarþunga komust þeir ekki
DV, Eyjum:
Það tók íslandsmeistara Eyja-
manna tæpar 70 mínútur að brjóta
niður sterkan vamarmúr Grindvík-
inga í gærkvöld. Þá skallaöi Þjóð-
verjinn Jens Paeslack í netið og ÍBV
vann að lokum, 2-0.
Eyjamenn vom með boltann
meira og minna í fyrri hálfleik með
vindinn i bakið en náðu sjaldan að
ógna marki gestanna. Meira fjör
færðist í síðari hálfleikinn. Grind-
víkingar breyttu ekki um leikað-
ferð, þeir lágu aftarlega og reyndu
þegar færi gafst að sækja hratt.
Minnstu munaði að þeim tækist að
skora í upphafi hálfleiksins en þá
skaut Þórarinn fram hjá úr opnu
færi. Eftir að heimamenn skoraðu
efldust þeir og sóttu stíft. Rútur inn-
siglaði sigurinn með góðu marki,
nýkominn inn á sem varamaður.
„Þetta var vinnusigur"
„Það má segja að þetta hafi verið
vinnusigur. Þetta var erfitt í fyrri
hálfleik enda bökkuöu Grindvíking-
ar mikið. Við gerðumst á köflum
óþolinmóðir og gáfum okkur ekki
tíma til að framkvæma hlutina. Við
ræddum þetta í hléinu og í seinni
nær. Færin gáfust, en nýttust ekki,
og Kristófer Sigurgeirsson var rétt
búinn að skora þriðja mark Fram
þegar hann skaut í markvinkilinn
úr aukaspymu. Áður small boltinn
í þverslá Valsmarksins eftir skot
Árna Inga í varnarmann.
Sigurinn var auðsjáanlega mikill
léttir fyrir Framara. „Já, það var
óhemju mikilvægt að vinna og
skora loksins tvö mörk. Menn vom
vel stemmdir og lögðu sig fram, og
þegar við gerum það erum við með
gott lið. Staðan er áfram erfið en við
eigum mikilvæga leiki fram undan
við lið sem em rétt fýrir ofan okk-
ur,“ sagði Jón Þ. Sveinsson, fyrirliði
hálfleik gekk betur. Grindavíkurlið-
ið er sterkt og ég heföi ekki viljað
lenda undir gegn því,“ sagði Hlynur
Stefánsson, fyrirliði ÍBV, við DV.
Eyjamenn voru með tögl og
hagldir allan leikinn og sigur þeirra
verðskuldaður. Undirritaður hefur
þó oft séð liöið leika betur en spak-
mælið „enginn leikur betur en and-
stæðingurinn leyfir" átti vel við.
Lítið reyndi á vörnina enda gestim-
ir fáliðaðir frammi. Steinar og ívar
Ingimars voru duglegir á miðjunni
og Ingi sprækur á kantinum. Stein-
grímur lét lítið að sér kveða, enda í
strangri gæslu.
„Ég er auðvitað ósáttur við að tapa
og mörkin vom af ódýrari gerðinni.
Það er einbeitingarleysi að fá á sig
mark úr homspymu og aukaspymu.
Það er aldrei að vita hvað hefði gerst
ef Þórarinn hefði skorað en Eyja-
menn áttu sigurinn skilið,“ sagði
Guðmundur Torfason, þjálfari Grind-
víkinga, við DV eftir leikinn.
Grindvíkingar léku af mikilli
skynsemi og vörðust fimlega. Eftir
að Eyjamenn brutu ísinn var eins
og allur vindur færi úr Grindvík-
ingum og þeir virtust ekki hafa trú
og þor til að færa sig framar á völl-
inn og freista þess að jafna. -GH
Fram og besti maður vallarins, við
DV.
„Við erum komnir í erfiða stöðu
sem við þurfúm að horfast í augu
við. Það tekur nokkra leiki að koma
okkur úr henni, og þetta krefst
ákveðinnar úrvinnslu. Amór Guð-
johnsen er á leiðinni, ég vonaðist
eftir því geta boðið honum upp á
þægilegri stöðu en þetta, en við get-
um vonandi nýtt krafta hans til að
lyfta liöinu upp á ný. Við tókum
áhættu og sóttum af krafti en feng-
um á okkur ólöglegt mark. Liðið var
síðan enn í sjokki þegar Framarar
skomðu aftur,“ sagði Kristinn
Björnsson, þjálfari Vals. -VS
ÍBV (0)2
Gríndavík (0)0
1- 0 Jens Paeslack (68.) með
hörkuskalla eftir fasta homspymu
Inga Sigurðssonar.
2- 0 Rútur Snorrason (85.) með
skoti af stuttu færi eftir aukaspyrnu
Inga Sigurðssonar frá hægri kanti.
Lið ÍBV: Gunnar Sigurðsson -
ívar Bjarklind @, Hlynur Stefánsson
@, Zoran Miljkovic, Hjalti Jóhannes-
son - Ingi Sigurösson @, Steinar
Guðgeirsson @, ívar Ingimarsson
@, Kristinn Lárasson (Kristinn Haf-
liðason 76.) - Steingrímur Jóhannes-
son, Jens Paeslack (Rútur Snorrason
82.)
Lið Grindavíkur: Albert Sævars-
son - Júlíus Daníelsson, Milan Stefán
Jankovic @, Guðjón Ásmundsson
@, Bjöm Skúlason (Sigurbjöm Dag-
bjartsson 87.) - Óli Stefán Flóvents-
son, Vignir Helgason, Scott Ramsey
@, Zoran Ljubicic, Þórarinn Ólafs-
son (Árni S. Bjömsson 76.) - Sinisa
Kekic.
Markskot: ÍBV 19, Grindavík 7.
Horn: ÍBV 10, Grindavík 0.
Gul spjöld: Engin.
Dómari: Eyjólfur Óiafsson, sæmi-
legiu.
Skilyrði: Austan stinningskaldi á
annað markið og rigning á köflum.
Hásteinsvöllur blautur en góður.
Áhorfendur: Um 700.
Maður leiksins: Ingi Sigurðsson,
ÍBV, duglegur að vanda á hægri
kantinum og lagði upp bæði mörk
sinna manna.
Þaö var mikió um dýrðir í Eyjum í
gærkvöld. Auk leiks ÍBV og Grinda-
víkur var hið sívinsæla Shellmót 6.
flokks drengja sett með tilheyrandi
hátíðahöldum en það stendur yflr í
Eyjum allt til sunnudagskvölds.
HM-leikur Spörtu í síma
905 5050
Kemst þú í HM-liðið?
Ellefu bestu vinna HM-treyju frá Spörtu,
Laugavegi 49
Þú svararfjórum HM-spurningum.
Þeir ellefu sem komast oftast í pottinn
vinna HM-landsliðstreyju að eigin vali.
SPORTVÖRUVERSLUNIN
SPABTA
Laugavegi 49 • Sími 551 2024,
66.50 mínútan
Varnarmúrinn
gaf sig loksins
- og ÍBV lagði Grindavík, 2-0