Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1998, Síða 19
FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 1998
27
DV
Iþróttir
IA
KR
(0)1
(0)1
0-1 Andri Sigþórsson (78.) lyfti
boltanum létt yfir Þórö markvörð eft-
ir að Eiöur Smári haíði spilað hann
algjörlega frían.
1-1 Kristján Jóhannsson (89.) tók
boltann viðstöðulaust með vinstri
upp í fjær homið utan úr teig eftir
góða aukaspymu Heimis Guðjóns-
sonar.
Lið lA: Þórður Þórðarson - Stur-
laugur Haraldsson, Reynir Leósson
®, Steinar Adolfsson ®, Slobodan
Milisic (Sigursteinn Gíslason 46.),
(Kristján Jóhannsson 75. ®) - Jó-
hannes Harðarson, Heimir Guðjóns-
son, Alexander Högnason, Pálmi Har-
aldsson - Zoran Ivsic @, Ragnar
Hauksson (Sigurður Ragnar Eyjólfs-
son 71.).
Lið KR: Kristján Finnbogason
(Gunnleifur Gunnleifsson 47.) - Þor-
móður Egilsson, Bjami Þorsteinsson
@, David Winnie @, Birgir Sigfús-
son - Sigþór Júliusson (Bjöm Jakobs-
son 68.), Sigurður öm Jónsson, Þor-
steinn Jónsson @, Einar Þór Daníels-
son - Guðmundur Benediktsson @
(Eiður Smári Guðjohnsen 71. @),
Andri Sigþórsson.
Markskot: ÍA 12, KR 8.
Horn: ÍA 5, KR 4.
Gul spjöld: Sigþór (KR), Winnie
(KR), Sigurður (KR), Heimir (ÍA).
Dómari: Guðmundur Stefán Mari-
asson. Ragur bæði á flautu og spjöld.
Áhorfendur: Um 1.000.
Skilyrði: Skúrir og gola á annað
markið. Völlurinn ágætur.
Maöur leiksins: Reynir Leósson,
ÍA. Hinn ungi miðvörður vex með
hverjum leik og er orðinn mjög
öflugur.
Bland í poka
Afturelding vann Hamar, 6-0, i
Hveragerði í vikunni og er með fullt
hús stiga í A-riöli 3. deildarinnar i
knattspymu. Afturelding er með 15
stig en næst koma KFS frá Eyjum og
Léttir meö 9 stig hvort.
Njaróvík vann GG, 7-2, í Grindavík
og er efst í B-riðli með 9 stig úr 3
leikjum. Haukar era með 9 stig úr 4
leikjum og Ármann 6 stig úr 4 leikj-
um.
Magni frá Grenivík vann Neista á
Hofsósi, 3-1, og er meö fullt hús, 12
stig, í D-riðli. Hvöt vann Nökkva á
Akureyri, 1-0, og er næst með 9 stig.
Þróttur í Neskaupstaö vann Ein-
herja, 5-1, og Höttur vann Leikni frá
Fáskrúðsfirði, 2-0,1 E-riöli. Sindri er
þar með 12 stig, Leiknir 7, Þróttur 6
og Höttur 6 stig.
Grótta, með margar gamlar stjömur
úr kvennafótboltanum innanborðs,
vann mikilvægan sigur á Grindavík,
4-3, í A-riðli 1. deildar kvenna. Grótta
er efst með 7 stig eftir þrjá leiki en
Grindavik og Selfoss em með 3 stig
eftir tvo leiki.
ÍBA er efst eftir þrjár umferðir i B-
riðli 1. deildar kvenna með 6 stig.
Leiftur/Dalvík er með 5 stig, Tinda-
stóll 4 og Hvöt 1 stig.
Einherji vann KVA, 3-0, í C-riöli 1.
deildar kvenna og er meö sex stig eft-
ir tvo leiki. Höttur vann Leikni frá
Fáskrúðsfirði, 2-1, og er með 3 stig
eins og KVA.
ÍBA sigraöi KVA, 7-0, i bikarkeppni
kvenna á Akureyri í gærkvöld. Ing-
unn Högnadóttir skoraði tvö marka
Akureyrarliðsins. -VS
Andlitinu bjargað
- Skagamenn rétt sluppu við annað KR-tap á stuttum tíma
Skagamenn náðu inn einu stigi á
síðustu stundu er liðið gerði 1-1
jafntefli við KR-inga á Akranesi í
gær.
Leikur þessara fornu fjenda var
annars rólegur mestallan timann og
liðin gerðu sig alls ekki heimakær
upp við mark andstæðinganna. Nær
komust þó KR-ingar og næstur
þeirra var Andri Sigþórsson sem
skaut í slána á 27. mínútu eftir góð-
an undirbúning Guðmundar Bene-
diktssonar.
Þriðji vinstri bakvörðurinn
bjargaði hlutunum
Litil töfrabrögð frá Eiði Smára
Guðjohnsen, er hann lagði glæsilega
upp mark Andra Sigþórssonar, 7
mínútum eftir að hann kom inn á
sem varamaður, virtust ætia að
skila KR-ingum 3 stigum til baka í
Frostaskjólið. En þriðji vinstri bak-
vörður Skagamanna í þessum leik,
Kristján Jóhannsson, jafnaði á
lokamínútunni. Hann hafði komið
inn á sem varamaður 15 minútum
áður fyrir Sigurstein Gíslason sem
meiddist eftir að hafa leyst Slobod-
an Milisic af sem vinstri bakvörður
í hálfleik.
Verðum að skapa okkur færi
„Við verðum að vinna leiki til að
gera eitthvað í þessari deild en þá
verðum við að skapa okkur færi og
leggja meira í leikina," sagði marka-
skorarinn Kristján Jóhannsson sem
var orðinn leiður á deyfðinni i sókn-
arleiknum og brá sér fram í lokin til
að bjarga andliti Skagamanna.
„Við erum sáttir við að ná inn
stiginu en við ætluðum okkur og
lögðum upp með að vinna leikinn.
Menn spUa varfærnislega því við
máttum alls ekki tapa 2 sinnum i
röð fyrir KR og náðum inn mikil-
vægu marki í lokin,“ sagði Steinar
Adolfsson, fyrirliði ÍA.
KR er eina liðið í deildinni sem er
taplaust og liðið var örstutt frá því
að vinna leikinn.
Skagamenn eru aftur á móti enn
að vinna sig út úr bikartapinu um
daginn til að komast aftur á skriðið
sem þeir voru á um daginn. -ÓÓJ
„Sofnuðum á verðinum í lokin"
„Austurríkismenn hafa sannað það að leikurinn er aldrei búinn fyrr
en flautið gellur og það nýttu Skagamenn sér. Við sofnuðum á verðinum
í lokin og erum enn að fá mörk á okkur úr föstum leikatriðum þar sem
hlutimir virðast detta fyrir andstæðinga okkar en ekki fyrir okkur. All-
ir hefðu getað sætt sig við 1-0 sigur okkar enda ef annað liðið átti skilið
að vinna þá vorum það við. Við förum áíram okkar veg enda höfum
ákveðið að gefa okkur tíma meö þetta lið,“ sagði Atli Eðvaldsson, þjálf-
ari KR, við DV eftir leikinn á Akranesi í gærkvöld.
„Við þurftum að vinna okkur aftur inn eftir ákveðið vinnuslys gegn
KR í bikarnum. Þeim leik verður ekki breytt og við ætluðum að halda
áfram þar sem frá var horfið í síðasta deildarleik. Það er mjög erfltt að
brjóta vöm KR á bak aftur, enda liggja þeir aftarlega og em með mjög
sterkt lið sem hefur ekki enn tapað í sumar. Úr því sem komið var vor-
um við kannski heppnir að ná jafntefli og markið í lokin bjargaði okkur
í kvöld,“ sagði Logi Ólafsson, þjálfari Skagamanna. -ÓÓJ
Kristján Finnbogason fékk
byltu á Akranesi í gærkvöld.
Kristján fluttur
á sjúkrahúsið
á Akranesi
Kristján Finnbogason,
markvörður KR, fékk slæma
byltu í leiknum á Akranesi.
Hann lenti illa eftir mikinn
árekstur við Alexander
Högnason í upphafi síðari
hálfleiks, var borinn af velli
og fluttur með sjúkrabíl á
sjúkrahúsið á Akranesi.
Hann fékk að fara þaðan
fljótlega eftir skoðun og ekki
er útlit fyrir að hann hafi orð-
ið fyrir alvarlegum meiðslum.
Þó gat verið um einhverja
tognun á hálsi að ræða.
Gunnleifur í markið
Gunnleifúr Gunnleifsson
tók stöðu Kristjáns í marki
KR og lék sinn fyrsta leik í
efstu deild. -VS
Leiftursmálið:
Úrskurði
UEFA áfrýjað
Knattspymusamband Evrópu,
UEFA, úrskurðaði i gær að Vorskla
Poltava frá Úkraínu teldist sigur-
vegari, 3-0, í leiknum við Leiftur í
UEFA-Totokeppninni, sem Leiftur
vann, 1-0, í Ólafsfirði á laugardag-
inn. Leiftur var jafnframt sektað
um 350 þúsund krónur.
Leiftursmönnum láðist að skrá
ncifn Sindra Bjarnasonar á leik-
skýrsluna, skrifuðu annan leik-
mann í staðinn, en Sindri kom síð-
an inn á sem varamaður í leiknum.
„Við áfrýjum þessum úrskurði,
enda var Sindri löglega skráður í
keppnina sjálfa og aðeins um mann-
leg mistök að ræða við útfyllingu
skýrslunnar sem við tilkynntum
sjálfir. Leiftur fer í seinni leikinn í
Úkraínu á laugardag með því hugar-
fari að verja 1-0 forystuna og heiður
íslands. Niðurstöðu í málinu er hins
vegar ekki að vænta fyrr en eftir
helgi,“ sagði Þorsteinn Þorvaldsson,
formaður knattspymudeildar Leift-
urs, í samtali við DV. -VS
Verálaunaafhending
Verðiaunaafhending í ritgerðarsamkeppninni Tíqrapenninn
Verðlaunaafhending í ritgerðarsamkeppninni Tígrapenninn '98 verður
haldin í Sundlaugunum í Laugardal laugardaginn 27. júní, kl. 11.00.
Allir verðlaunahafar hafa nú þegar fengið sent bréf frá Krakkaklúbbi
DV þar sem tilkynnt er um úrslit keppninnar.
Krakkaklúbbsfélagar fá frítt í sund!
I tilefni af verðlaunaafhendingunni er öllum krökkum í Krakkaklúbbi
DV boðið frítt í sund í Sundlaugunum í Laugardal næstkomandi r
laugardag. Félagar í klúbbnum jturfa eingöngu að framvísa skírteininu
sínu við innganginn.
Krakkaklúbbur DV, íþrótta- og tómstundaráð og Fræðslumiðstöð
Reykjavíkur jtakka öllum jteim sem
sendu inn sögur, myndir og Ijóð í V
keppnina kærlega fyrir þátttökuna.
* Fiœðslunúðsfcið
11! IícykjavTkur
í samstarfi við íþrótta- og tómstundaráð og Fræðsiumiðstöðina.