Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1998, Side 26
34
FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 1998
Afmæli_____________________
Erlingur Sigurðarson
Erlingur Sigurðarson, forstöðu-
maður Sigurhæða - Húss skáldsins,
til heimils að Suðurbyggð 4, Akur-
eyri, verður fimmtugur á morgun.
Starfsferill
Erlingur faeddist á Grænavatni í
Mývatnssveit og ólst þar upp við öll
almenn sveitastörf. Hann var í
Bamaskóla Mývatnssveitar, lauk
landsprófi frá Héraðsskólanum á
Laugum 1964, stúdentsprófi frá MA
1969, stundaði nám í ensku og sagn-
fræði við Colby College í Wa-
termille í Maine í Bandaríkjunum
1970, stundaði nám í íslensku og
sagnfræði við HÍ frá 1971, lauk BA-
prófi 1976, nam sagnfræði við HÍ
1977-78, lauk cand. mag.-prófi frá HÍ
1987, prófúm í uppeldis- og kennslu-
fræði við HÍ 1981, stundaði nám í
þýsku, þjóðfræðum og sagnfræði
við Ebenhard-Karls-Universitat í
Túbingen í Þýskalandi 1991-92 og
hefúr sótt ýmis námskeið fyrir
kennara.
Erlingur var kennari við MA
1969-70, við Þinghólsskóla í Kópa-
vogi 1971, blaðamaður við Tímann
1972-73, þáttagerðarmaður við Rík-
isútvaipiö 1974-75 og 1985, auk þess
sem hann hafði umsjón með þættin-
um Daglegt mál 1986-87 og 1996-97,
var blaðamaður við Þjóðviljann
1975-76, landvörður í Mývatnssveit
sumrin 1973-79, bóndi að Græna-
vatni 1976-77 og við bústörf þar öll
sumur til 1979, kennari við Skútu-
staðaskóla 1976-77, starfsmaður AI-
þýðubandalagsins 1977-78, sat í rit-
nefiid og vann við ritstjóm Norður-
lands 1977-88, var forfallakennari
við VÍ1978, íslenskukennari við MA
1978-97 og jafnframt deild-
arstjóri þar i fimm ár, var
eini íslenskukennarinn
við Háskólann á Akureyri
1997-98 og er nú forstöðu-
maður Sigurhæða á Ak-
m-eyri.
Erlingur var formaður
Félags stúdenta í heim-
spekideild 1973-75, sat í
stúdentaráði H.Í. og vara-
maður í Háskólaráði,
gegndi fjölmörgum
nefiida- og stjómarstörf
um innan Alþýðubanda-
lagsins 1975-91, var formaður Nátt-
úruvemdamefndar Akureyrar
1980-86, sat í stjóm Útgerðarfélags
Akureyringa 1987-95, í stjóm Hins
íslenska kennarafélags 1989-91, í
Ferðamálaráði íslands 1989-93, sat í
skólanefnd Tónlistarskólans á Ak-
ureyri 1990-91, í stjóm Mecklen-
burger Hochseefischerei í Rostock í
Þýskalandi 1993-95, i starfshópum
Menn ingarmálanefndar um framtíð-
arstarfsemi í Sigurhæðum 1994-96
og í skipulagsnefhd Akureyrar
1996-98.
Ritverk Erlings: Heilyndi - ljóð
frumort og þýdd, útg. 1997; Á svört-
um fjöðrum, leiksviðsverk úr ljóð-
um Davíðs Stefanssonar, fiumsýnt
af LA á hundrað ára afmæli skálds-
ins 1995; Ágrip af sögu Mývatns-
sveitar og mannlífs þar, handrit;
Laxárdeilan, kandídatsritgerð.
Fjölskylda
Erlingur kvæntist 1.1.1974 Sigríði
Stefansdóttur, f. 29.7. 1949, þjóðfé-
lagsfræðingi og fyrrv. bæjarfulltrúa
og kennara á Akureyri. Hún er dótt-
ir Stefans Magnússonar,
f. 26.8. 1926, d. 18.3. 1963,
flugstjóra i Reykjavík, og
k.h., Önnu Camillu Ein-
arsdóttur, f. 4.6. 1925,
verslunar- og skrifstofú-
manns.
Böm Erlings og Sigríð-
ar era Ema, f. 24.1. 1975,
islenskunemi við HÍ og
starfsmaður á Málvís-
indastofiiun og Orðabók
Háskólans; Sigurður, f.
11.9. 1977, búfræðingur
og sjómaður; Kári, f. 16.8.
1982, nemi.
Bræður Erlings em Benedikt, f.
3.4. 1952, uppeldisfræðingur og
kennari við HA; Hjörleifúr, f. 25.10.
1957, búfræðingur og bóndi að
Grænavatni.
Foreldrar Erlings em Sigurður
Þórisson, f. 5.5. 1919, bóndi að
Grænavatni, og k.h., Þorgerður
Benediktsdóttir, f. 5.4. 1916, hús-
freyja.
Ætt
Þórir er sonur Torfa, b. og pósts á
Bimingsstöðum, Sæmundssonar, b.
í Narfastaðaseli, bróður Friðriks,
foður Barða hjá VSÍ, Kristjáns í
Últíma og Margrétar, móður Bjöms
Þórhallssonar, fóður Karls, bæjar-
stjóra á Selfossi. Sæmundur var
sonur Sæmundar í Narfastaðakoti,
Jónssonar, b. í Holtakoti, Torfason-
ar, bróður Sæmundar, afa Valdi-
mars Ásmundssonar ritstjóra, föður
Héðins alþm. Móðir Sæmundar í
Narfastaðaseli var Þómý Jónsdótt-
ir, b. á Fjöllum, Gottskálkssonar,
ættfoður Gottskálksættar, Pálsson-
ar. Móðir Þóris var Guörún Snorra-
dóttir, b. á Geitafelli, Oddssonar, og
Sigurbjargar Jónsdóttur, b. á Langa-
vatni, Illugasonar, b. í Baldurs-
heimi, Hallgrímssonar, ættfoður
Hraunkotsættarinnar, Helgasonar.
Móðir Sigurðar var Þuríður, syst-
ir Þórólfs í Baldursheimi, ritstjóra
Réttar, föður Sigurðar, silfúrsmiðs í
Mosfellsbæ. Þuríður var dóttir Sig-
urðar, b. í Baldursheimi, bróður
Sigurbjargar á Geitafelli. Móðir
Þuríðar var Solveig Pétursdóttir, b.
í Reykjahlíð, Jónssonar, ættfoður
Reykjahlíðarættarinnar, Þorsteins-
sonar.
Þorgerður er dóttir Benedikts, b.
á Grænavatni, Guðnasonar, b. þar,
Ásmundssonar, b. í Álftagerði,
Helgasonar, ættföður Skútustaða-
ættarinnar, Ásmundssonar. Móðir
Benedikts var Kristín Einarsdóttir,
Bjömssonar.
Móðir Þorgerðar var Solveig,
hálfsystir Sigurðar skálds á Amar-
vatni, foður Málfríðar, fyrrv. alþm.
Hálfsystir Solveigar var Sigrún,
móðir Steingríms Steinþórssonar
forsætisráðherra. Solveig var dóttir
Jóns, skálds á Helluvaði, Hinriks-
sonar. Móðir Solveigar var Sigríð-
ur, hálfsystir Þorgils gjallandi. Móð-
ir Sigríðar var Guðrún Jónsdóttir,
ættföður Reykjahlíðarættarinnar,
Þorsteinssonar.
Erlingur verður með opið hús í
Lóni, félagsheimili Karlakórs Akur-
eyrar - Geysis, við Hrísalund, frá
kl. 18.00 á afmælisdaginn. Vinir,
samstarfsmenn og vandamenn em
velkomnir meðan hús- og hjartarúm
leyfa.
Erlingur
Sigurðsson.
Viðar Ottesen
Viðar Ottesen, eftirlitsmaður á
endurvinnslustöð, Bláhömrum 4,
Reykjavík, er sextugur í dag.
Starfsferill
Viðar fæddist í Reykjavík og ólst
þar upp við Bragagötuna. Hann hóf
nám við Hótel- og veitingaskóla ís-
lands 1956 og lauk þaðan prófúm
1960.
Viðar starfaði við Naustið f
Reykjavík í tuttugu og þijú ár, þar
af við barinn í Naustinu í sextán ár.
Hann Ðutti til Siglufjaröar 1980 og
var hótelstjóri á Hótel Höfti í tólf ár.
Eftir að hann flutti aftur suður hef-
ur hann verið eftirlitsmaður i
Reykjavík.
Fjölskylda
Eiginkona Viðars er Jóna Elísa-
bet Guöjónsdóttir, f. 29.3. 1942, hús-
móður. Foreldrar hennar voru Guð-
jón Kr. Ólafsson og Margrét Ágústs-
dóttir.
Böm Viðars og Jónu Elísabetar
em Sveinbjöm Þór Ottesen, f. 8.12.
1959, kjötiðnaðarmaður á Selfossi,
kvæntur Olgu Bragadóttur og em
dætur hans Ásgerður Ottesen, f.
17.7. 1979; Jóna Elísabet Ottesen, f.
21.8. 1983 og Berglind Ottesen, f.
22.3. 1993 en uppeldisdóttir hans er
Jana Óskarsdóttir, f. 17.9. 1988;
Kristín Ottesen, f. 30.5. 1961, starfs-
maður Póla á Siglufirði en maður
hennar er Þorleifúr Elíasson og em
böm þeirra Atli Freyr Rúnarsson, f.
29.9. 1986, Gunnar Freyr Þorleifs-
son, f. 6.2.1992, og Jóna Kristín Þor-
leifsdóttir, f. 27.7. 1993, d. 7.10. 1993;
Jóhann Ottesen, f. 6.5. 1962, sjómað-
ur á Siglufirði, kvæntur Brynhildi
Baldursdóttur og er sonur hennar
Ólafur Bjömsson, f. 22.12. 1981.
Synir Viðars frá því áður em Sig-
urður Viðar Ottesen, f. 18.8. 1958,
trésmíðameistari í Reykjavík, en
kona hans er Erla Amarsdóttir og
em böm þeirra Andri Rafii Ottesen,
f. 1.2. 1991, og Thelma
Björk Ottesen, f. 18.12.
1995; Garðar Sveinbjöm
Ottesen, f. 3.12. 1959,
framkvæmdastjóri í
Bandaríkjunum, en dóttir
hans er Hannah Ottesen,
f. 19.2. 1993.
Systkini Viðars eru
Valdimar Ottesen, f. 29.9.
1926, búsettur í Kaup-
mannahöfn, kvæntur
Lisu Ottesen; Guðlaugur
Ottesen, f. 28.3. 1928, fórst
með togaranum Júlí;
Guðlaug Ottesen, f. 28.9. 1932, d.
11.11. 1976, var gift Þorkatli Gunn-
arssyni og em böm þeirra Karl
Ottesen, Auður, Gunnar og Bryndís
Þorkelsböm.
Foreldrar Viðars vom Karl
Ottesen og Sveinbjörg Sveinsdóttir.
Ætt
Karl var sonur Jósafats, söðla-
smiðs á Akranesi,
Vopnafirði og í Reykja-
vík, Jóhannssonar, b. á
Þverá í Miðfirði, Bjama-
sonar. Móðir Karls var
Guölaug Ottesen ljósmóð-
ir, dóttir Lámsar P.
Ottesen, b. á Ytri-Hólmi
og víðar, Péturssonar,
bróður Rósu, ömmu Ósk-
ars Halldórssonar útgerð-
armanns, íslandsbersa.
Bróðir Lárusar var Odd-
geir Ottesen, hreppstjóri
á Ytri-Hólmi, faðir Pét-
urs Ottesen alþm.. Móðir Guðlaugar
var Karólína Nikulásdóttir, b. að
Lönguhlíð í Hörgárdal, Guðmunds-
sonar.
Sveinbjörg var dóttir Sveins Ei-
ríkssonar og Guðbjargar Símonar-
dóttur.
Viðar verður að heiman á afinæl-
isdaginn.
Viðar Ottesen.
Ástráður Magnússon
Astráður Magnússon,
framkvæmdastjóri Blikk-
smiðjunnar AuðÁss ehf.,
Holtagerði 66, Kópavogi,
er fimmtugur í dag.
Starfsferill
Ástráður fæddist í
Reykjavík en ólst upp í
Kópavogi. Hann lauk
gagnfræðaprófi frá Gagn-
fræðaskóla verknáms
1965, lauk prófi frá Loft-
skeytaskóla Reykjavíkur
1967, hóf nám í blikksmíði
Ástráður
Magnússon.
Austurbæjar og í Blikk-
ver. Hann stofiiaði blikk-
smiðjuna AuðÁs ehf. í
Kópavogi 1988 og hefúr
starfrækt hana síðan.
Ástráður sat i stjóm Fé-
lags blikksmiða 1975-76
og var varaformaður fé-
lagsins. Hann situr í
stjóm Lagnafélags ís-
lands og er ritari Lions-
klúbbsins Munins í
Kópavogi.
Fjölskylda
við Blikksmiðjuna Vog
1969, lauk sveinsprófi 1973 og öðlað-
ist meistararéttindi 1977.
Ástráður starfaði í Blikksmiðju
Astráður kvæntist 24.6.
1973 Jónínu Þorbjörgu Hallgríms-
dóttur, f. 1.1. 1952, húsmóður. Hún
er dóttir Hallgríms Péturssonar og
Fannýjar Sigríðar Þorbergsdóttur
sem bæði era látin.
Böm Ástráðs og Jónínu Þorbjarg-
ar em Fanný Björk Ástráðsdóttir, f.
3.5. 1973, nemi í Kópavogi, en
unnusti hennar er Þór Hreinsson
þjóðfræðingur; íris Ósk Ástráðsdótt-
ir, f. 31.12. 1977, nemi í Reykjavík, í
sambúð með Björgvini Ámarsyni
nema; Hallgrímur Pétur Ástráðs-
son, f. 1.8. 1982, nemi.
Hálfsystir Ástráðs, sammæðra:
Guðrún Ingvarsdóttir, f. 23.6. 1931,
d. 2.11. 1992, var gift Snorra Jóns-
syni sem einnig er látinn.
Alsystkini Ástráðs em Kristinn
V. Magnússon, f. 20.3. 1940, fram-
kvæmdastjóri á Húsavík, kvæntur
Hjördísi Ámadóttur; Guðmar Magn-
ússon, f. 14.5. 1941, verslunarmaður
á Seltjamamesi, kvæntur Rögnu
Bjamadóttur; Sigurbjörg Magnús-
dóttir, f. 22.4. 1943, búsett í Kópa-
vogi, gift Vilhjálmi Einarssyni fast-
eignasala; Ragnar Snorri Magnús-
son, f. 27.6. 1944, skrifstofúmaður,
búsettur í Kópavogi, kvæntur Guð-
björgu Guðmundsdóttur; Loftur
Magnússon, f. 10.10. 1945, skóla-
stjóri, búsettur í Hafharfirði, kvænt-
ur Erlu Sigurðardóttur kennara.
Foreldrar Ástráðs: Magnús Lofts-
son, f. 15.7. 1908, d. 31.10. 1988, bif-
reiðarstjóri í Kópavogi, og Jónína S.
Ásbjömsdóttir, f. 24.8. 1910, d. 7.10.
1983, húsmóðir.
Ástráður verður að heiman á
aftnælisdaginn.
Til hamingju með afmælið 25. júní
90 ára
Guðmundur Kristjánsson, Hraftústu, Reykjavík.
85 ára
Ragnheiður Finnsdóttir, Álíheimum 12, Reykjavik. Anna Sigmundsdóttir, Borgarbraut 65 A, Borgamesi. Ágúst S. Guðmundsson, Hlíf II, TorfnesL ísafirðL Helga Ólafsdóttir, Komsá II, Áshreppi. Unnur Guðjónsdóttir, Heiðarvegi 35, Vestmeyjum.
80ára
Hrefna Hermannsdóttir, Hlíðarvegi 45, Sigluflrði.
75 ára
Fjóla H. Halldórsdóttir, Skaftahlíð 4, Reykjavik. Kjartan Guðmundsson, Álftamýri 46, Reykjavik. Gunnlaugur Guömundsson, Hllðarvegi 42, Kópavogi. Anna L. Hertervig, Hvanneyrarbraut 58, Siglufiröi.
70 ára
Valtýr Guðmundsson, vagnstjóri hjá SVR og framkvæmdastjóri sendibíla- stöðvarinnar Þrastar, Strýtuseli 12, Reykjavík. Kona hans er Sigmunda Hákonardóttir. Hann er að heiman. Björg Hansen, Sjafnargötu 4, Reykjavik. Guðmundur Gunnarsson, Háaleitisbraut 43, Reykjavik. Þorleifur Þorsteinsson, Álfhólsvegi 84, Kópavogi. Haukur G.J. Guömundsson, Vallhólma 20, Kópavogi. Sólveig Þ. Helgadóttir, Öldugötu 46, Hafnarfirði. Garðar Pétursson, Elliðavöllum 11, Keflavík. Gunnar Sigurjónsson, Sæbóli 33, Grundarfiröi. Rakel Grlmsdóttir, Grenivöllum 32, Akureyri. Ásta Ferdinandsdóttir, Spóngerði, Akureyri. Markús Runólfsson, Dalsbakka 6, HvolsvellL
60 ára
Finnur Gærdbo, Ólafsbraut 56, Ólafsvík.
50 ára
Gunnar Þór Geirsson, Óðinsgötu 15, Reykjavik. Ómar B. Jónasson, Hátúni 10 B, Reykjavík. Helgi Friðþjófsson, Asparfelli 4, Reykjavik. Thelma K. Jóhannesdóttir, Vættarborgum 6, Reykjavík. Guðrún Sigríöur Egilsdóttir, Hjallabraut 23, HafnarfirðL Reynir Adolfsson, Brekkugötu 8, Akureyri. PáU Sigurðsson, Helgamagrastræti 50, Akureyri. Sigurður Guðjónsson, Borg, Hðfn.
40 ára
Magnús Garðarsson, Gnoðarvogi 64, Reykjavik. Ólafur Ingi Óskarsson, Kambsvegi 1, Reykjavik. Pétur Þorleifsson, Ljósheimum 20, Reykjavík. Jóna Sigurveig Ágústsdóttir, Háaleitisbraut 52, Reykjavík. Helgi Halldórsson, Snælandi 8, Reykjavík. Timothy Champman, Gljúfraseli 11, Reykjavik. Jakob Ragnarsson, Vallarási 2, Reykjavík. Jóna Brynja Tómasdóttir, Miðbraut 23, Seltjamarnesi. Eyjólfur Björgmundsson, Birkigrund 5, Kópavogi. Viðar EUiðason, Reykjavikurvegi 23, Hafnarfirði. Reynir Sigurðsson, Eyrarvegi 7, Akureyri. Birgir Snorrason, Klettagerði 1, Akureyri.