Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1998, Síða 32
FRÉTTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Heilbrigðisráðherra:
Áhersla á að
ná samningum
Fundað er stíft í ráðherranefnd-
inni þessa daganna, þriggja manna
nefnd sem hefur umboð ríkisstjórn-
arinnar til að leita lausna i launa-
málum hjúkrunarfræðinga. Fundað
er með stjórnendum Ríkisspítal-
anna og hjúkrunarfræðinga. Ingi-
björg Pálmadóttir heilbrigðisráð-
herra segir að þrír
möguleikar blasi
við:
„I fyrsta lagi
leggjum við megin-
áherslu á að semja
á breiðum grund-
velli eins og við er-
um að reyna núna.
Takist það ekki er Ingibjörg
um það að ræða að Pálmadóttir.
koma með ákveðið tilboð til hjúkr-
i jS unarfræðinga. Gangi hvorug þess-
ara leiða kemur úrskurðarnefndin
til skjalanna en hún bíður átekta og
fylgist með framvindu mála.“
Ingibjörg vildi ekki tjá sig um
innan hvaða fjárhagsramma væri
samið, núverandi fjárlaga eða hvort
aukafjárveitingar kæmu til. Hún
sagði málið vera í farvegi.
Á spítölunum er verið að ganga frá
neyðaráætlun varðandi vinnu eftir að
uppsagnir hjúkrunarfræðinga taka
gUdi. Þannig mun hafa samist um
lífsbjargandi aðgerðir eins og gervi-
nýra. Þar munu hjúkrunarfræðingar
vinna nauðsynleg störf. -hlh
Fleiri löggur
í miðbæ
„Við munum fjölga á miðborgar-
vaktinni. Aukningin verður bæði i
einkennisklæddum og óeinkennis-
klæddum lögreglumönmim. Við
munum einnig setja tímabundið
upp eftirlitsmyndavélar sem við eig-
um sjálfir. Þetta eru ekki varanlegu
vélamar sem koma til með að vera
þarna,“ segir Karl Steinar Valsson
aðstoðaryfirlögregluþjónn.
„Ástandið í miðborginni versnar
alltaf á vorin. Það eru einstaklingar
sem sækja í miðbæinn sem virðast
vera að leita sér að slagsmálum.
Málið er að finna þá og taka þá úr
þessum hópi. Meirihluti þeirra sem
eru í miðbænum er ágætis fólk og
ekki til neinna vandræða." -sf
Missti trollið
DV, Ólafsfirði
Frystitogarinn Sigurbjörg ÓF 1 frá
Ólafsfirði varö fyrir því óláni á
þriðjudag að missa trollið i hafíð.
Slíkt gerist reyndar en oftar en ekki
nær áhöfnin að krækja í trollið. Það
tókst ekki í þetta sinn, en áhöfnin
mun samt halda áfram að reyna.
Verðmæti trollsins er um 8 miiljón-
* ir. -H.J.
:
Þessa dagana er verið að leggja lokahönd á breytingar á Laugaveginum en þær hafa staðið yfir að undanförnu. Ekki er langt í það að opnað verði fyrir bíla
umferð og fagna því eflaust margir að hægt verði að aka allan Laugaveginn að nýju. DV-mynd BG
tekur breyti
t f
i
- l
y. \ Sk ■ kHb Wíl
Arngímur Blöndahl, fráfarandi bæjarstjóri á Eskifirði:
Free Willy-sam
tökin skulda
okkur svör
„Við höfum engar skýringar
fengið af hálfu Free Willy/Keikó-
samtakanna aðrar en þær sem
hafa komið fram í fjölmiðlum. Að
teknu tilliti til þess að við erum
búin að vinna með samtökunum
frá árinu 1993 - og verið bakhjarl
þeirra alian þann tíma til þess að
vinna Keikó brautargengi gagn-
vart íslenskum stjórnvöldum - þá
væntum við þess nú að fá skýr
svör um það á hvaða forsendum
ákvörðun um að koma háhyrn-
ingnum fyrir í Vestmannaeyjum
er byggð. Við teljum samtökin
skulda okkur þau svör,“ sagði
Arngrímur Blöndahl, fráfarandi
bæjarstjóri á Eskifirði, i samtali
við DV í gær.
Arngrímur segist einungis vera
að tala um „sanngjarna afgreiðslu".
Sé farið yfir forsögu málsins og þær
væntingar sem samtökin hafi gefið
Eskfirðingum ástæðu til að byggja
upp, sérstaklega á síðustu mánuð-
um, þá sé heldur dapurlegt til þess
að hugsa að þau hafi ekki svo mik-
ið sem sent Eskfirðingum bréf um
lokaákvörðun sína um staðarval í
Keikó- málinu.
„Ég segi þetta einnig í ljósi þess
að það hefur enginn mótmælt því að
aðstæður gagnvart verkefninu og
sleppingu dýrsins séu til mikillar
fyrirmyndar hér á Eskifirði og að
miklu leyti betri en í Vestmannaeyj-
um. A.m.k. þarf ekki að breyta nein-
um aðstæðum. Einnig er mun hag-
stæðara fyrir flugvélar að koma
dýrinu til Austfjarða með hliðsjón
af Egilsstaðaflugvelli. Honum þarf
ekki að breyta. Auk þess er gisti-
rými meira og betra gagnvart ferða-
og fréttamönnum og aðstæður fyrir
skemmtiferðaskip góðar við hafnar-
bakkann. Við bíðum því eftir skýr-
ingum og rökstuðningi. Þó ekki
væri nema að senda stutt bréf. Ef
það gerist er þessu væntanlega lok-
ið af okkar hálfu,“ sagði Amgrímur
Blöndahl. -Ótt
Líkamsleifar
fundnar vestra
Líkamsleifar Charles Egils Hirt,
sem umfangsmikil og árangurslaus
leit var gerð að á Snæfellsnesi í júní
1993, eru fúndnar. Leifamar fundust
neðarlega í fjallinu Tindfelli,
skammt suður af Ólafsvík, aðfara-
nótt 17. júní.
Charles Egill var 29 ára og úr
Kópavogi. Hann hafði tekið áætlun-
arbíl og haldið til Ólafsvíkur í byrj-
un júní 1993. Þar var síðast vitað
um ferðir Charles þegar farið var að
sakna hans.
Sá staður þar sem líkamsleifarn-
ar fundust voru á sínum tíma
merktar sem leitarsvæði, að sögn
lögreglunnar í Ólafsvík í morgun.
-Ótt
Nautaat í
Hrútafirði
Óður boli á lausagangi var skot-
inn með riffli eftir þó nokkum elt-
ingaleik um sveitina í Staðarhreppi
í Hrútafirði. Nautið hafði sloppið
frá bónda sínum og hélt í átt til
Reykjaskóla. Það var komið í
grennd við sumarbúðir bama í
Reykjaskóla, nálægt þjóðveginum,
og engin leið var að ráða við dýrið
og var því ákveðið að fella það.
-hb
Veðrið á morgun:
Hlýjast
suðvestan-
lands
Á morgun verður norðaustan-
kaldi og þokusúld á annesjum
norðan til, súld eða rigning suð-
austanlands og á Austfjörðum en
annars skýjað með köflum og úr-
komulítið. Hiti verður á bilinu 4
tO 15 stig, kaldast alira nyrst en
hlýjast suðvestan til.
Veörið í dag er á bls. 37.