Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1998, Side 8
matur
Mold, stærsta „alternativecc band Færeyja:
Argentína ★★★
Barónsstíg lla, s. 5519555.
„Bæjarins besta steikhús hefur dalað. Dýr-
ustu og enn þá bestu nautasteikur landsins,
en ekki alveg eins innanfeitar og safaríkar og
áöur." Opiö 18-23.30 v.d., 18-3 um helgar.
Einar Ben ★★
Veltusundl 1. 5115090.
„Fremur þemahús en veitingahús og leggur
meiri áherslu á umhúðir en innihald. Einar
Ben. býður yfirleitt ekki upp á vondan mat og
verður því seint jafn vinsæll og Fashion Café
eða Planet Hollywood." Opið 18-22.
Hótel Holt ★★★★★
Bergstaðastræt! 37, s. 552 5700.
„Listasafniö á Hótel Holti ber í matargerðarlist
af öðrum veitingastofum landsins. Þar fara
saman frumlegir réttir og nærfærin mat-
reiðsla, sem gerir jafnvel baunir aö Ijúfmeti."
Opiö 12-14.30 og 19-22.30 v.d., 12-14.30 og
18-22 fd. og Id.
Hótel Óðinsvé ★★
v/Óðinstorg, s. 552 5224.
„Stundum góður matur og stundum ekki, jafn-
vel í einni og sömu máltíð." Opiö 12-15 og 18-
23 v.d., 12-15 og 18-23.30 fd. og Id.
Ítalía ★★
Laugavegl 11, s. 552 4630.
„Eignarhaldið er ítalskt, kokkarnir eru ítaiskir,
gæðaþjðnustan er hálfítölsk, vel valið vínið er
aö mestu rtalskt og tilviljanakenndar
veggskreytingarnar eru ítalskar. Þaö, sem
tæpast hangir í ítölskunni, er matreiöslan.
Bakaðar kartöflur og amerískar pítsur er ein-
kennistákn hennar." Opiö 11:30-11:30.
Lauga-ás ★★★★
Laugarásvegl 1, s. 553 1620.
„Franskt bistró að íslenskum hætti sem dreg-
ur til sín hverfisbúa, sem nenna ekki að elda
í kvöid, barnafjölskyldur utan úr bæ og ferða-
menn utan að landi og frá útlöndum. Hér
koma hvorki uppar né ímyndarfræðingar."
Opiö 11-22 og 11-21 um helgar.
Lækjarbrekka ★★
Bankastrætl 2, s. 5514430.
„Matreiðslan rambar út og suður, góð, fram-
bærileg eða vond eftir atvikum. Með annarri
hendinni eru gerðar forvitnilegar tilraunir en
með hinni er fariö eftir verstu heföum." Opiö
md.-mid. 11-23.30, fid.-sd. 11-0.30.
Mirabelle ★★★
Smlðjustíg 6., s. 552 2333.
„Gamal-frönsk matreiðsla alla leið yfir í
profiteroles og créme brulée. Mirabelle er
komin á gott skriö." Opiö 18-22.30.
ísland í dag -
heimurinn á moraun
Þrátt fyrir nálægðina og ýmiss
konar samnorræn átök er
músiklíf frænda okkar í Færeyj-
um nánast óþekkt á íslandi. Fyrir
viku kom hingað hljómsveitin
Mold frá Þórshöfn og lék á Ingólfs-
torgi. Fáir létu sjá sig, enda næð-
ingur, en fjölmargir Færeyingar
mættu, enda voru meðlimir Mold-
ar hér staddir sem hluti af ein-
hverju samnorrænu átaksverk-
efhi.
Mold hefur starfað í ein sex ár
og gefið út tvær plötur hjá „plátu-
fjelaginu" Tutl sem er stærsta
plötufyrirtæki eyjanna. Þeir spila
sólóstíft rokk með hippa- og
gruggáhrifum, geysifærir „spæli-
menn“ og söngvarinn Niclas er
frísklegur tappi og ekki mjög ólík-
ur Eddie Vedder í söngstíl. Þeir
tóku bara fimm lög á Ingólfstorgi,
þ.á.m. Iggy Pop-lag-
ið
blik til að fá skýrslu af færeysku
rokklífi hjá meðlimunum fimm.
Þrátt fyrir að aðeins 45.000
manns búi í Færeyjum segja
strákamir mikið vera að gerast í
rokkinu: „Það eru miiljón bönd í
gangi en ekki mörg tækifæri til að
spila opinberlega nema maður
spili dansmúsik á krám en það er
annar hver maður að æfa rokk í
skúr.“ Tvær „Rokk í Færeyjum“-
safnplötm- eru komnar út með
böndum eins og Fróði í Dali,
Sigrið, Jú Men og Hatespeech - og
þjóðin státar m.a.s. af tölvuband-
inu Sum sem dregur áhrif frá
hipp-hoppi og jungle og flytur sitt
efni á færeysku. Niclas í Mold
syngur hins vegar á ensku en seg-
ist samt elska móðurmálið. „Ég
tel mig bara hafa ýmislegt
að segja og vil ná til sem
Destra svo þess vegna
Moldarmenn segja að hljóm-
sveitimar Moirae og Kjólar séu
vinsælustu hljómsveitimar í Fær-
eyjum; „Þær spila popptónlist en
meðlimirnir yrðu þó ekkert
ánægðir með það sjálfir að vera
kenndir við popp.“ Mold segja
þeir hins vegar stærsta „altemati-
ve“ rokkbandið á svæðinu. Strák-
amir hituðu upp þegar Blur spil-
aði í Þórshöfn og hafa einu sinni
spilað í Danmörku. Tutl selur dá-
lítið af efni þeirra út fyrir land-
steinana í gegnum Netið.
Nú er búið að pakka græjunum
og meðlimir Moldar á hlaupum í
rútuna því samnorræna menning-
arátakið heldur áfram af fullum
þimga. „Við stefnum bara hærra
og hærra,“ segir Niclas að lokum
og fær sér gúlsopa af Tuborg grön-
dós, „ísland í dag -
allur heimurinn
. á morgun!“
-glh
fatlaða
Til er tvenns konar raunvem-
leiki. Annars vegar þessi venju-
legi og hins vegar raunveruleik-
inn sem bírókratamir í kerfinu
lifa í. Á Kaffibrennslunni í Póst-
hússtræti má sjá þessa tvo raun-
veruleika mætast á klósettimum.
Eitt af klósetfunum er SEunkvæmt
lögum og reglugerðum stærra en
hin og með víðari dyrum og er,
eins og reglugerðir gera ráð fyrir,
ætlað fotluðum. Til þess að ná á
þetta klósett þarf hins vegar að
komast niður mjóan og brattan
stiga - ekki beint árennilegan fyr-
ir aðra en fullfríska. En þótt eng-
inn fatlaður komist að sérmerkta
klósettinu þá skal það vera þama
engu að síður. Það er skylda sam-
kvæmt lögum og því verður að
hlíta - þótt það hafi engan raun-
verulegan tilgang.
Játvarður ★★★
Naustið O
Vesturgötu 66, s. 551 7759.
„Hamborgarastaðurfrá þjóðvegi eitt, sem hef-
ur rambað á vitlausan staö á notalegar og
sögufrægar innréttingar og þykist vera enn fín-
ni en Holtið." Opiö 12-14 ogl801 v.d„ 12-14
og 18-03 fd. og Id.
Rauðará ★
Rauðarárstíg 37, s. 562 6766.
„Túrista-steikhús. Nautasteikin getur verið
góð, en hún getur llka verið óæt. Yfirþjónninn
er svo önnum kafinn við að vera kammó aö
hann tekur ekki alvarlega ábendingar um að
nautakjöt sé skemmt." Opiö fré kl. 18 og fram
eftir kvöldi. Hversu lengi fer eftir aösókn.
Skólabrú ★★★
Skólabrú 1, s. 562 4455.
„Matreiðslan er fögur og fin, vönduð og létt,
en dálítið frosin. Þjónustan er kurteis og hóf-
söm." Opiö fré kl. 18 alla daga.
Thailand 0
Laugavegl 11, 551 8111.
„Óvenjuljótur kvöldverðarstaður með fremur
dýrum mat, stundum bragðgóðum en oftar
grimmilega ofelduðum." Opiö fré kl. 18-23
alla daga.
Upplyfting á Akureyri
Lifnað hefur yfir matargerð á
Akureyri meðan Reykjavík hefur
árum saman staðið í stað. Fiðlar-
inn hefur batnað og kominn er til
sögunar Játvarður á homi Strand-
götu og Glerárgötu, skemmtilega
hannaður staður með finlegri mat-
reiðslu, ef sneitt er hjá fiski, svo
og elskulegri þjónustu, sem getur
svarað spumingum um matinn.
Játvarður er þrauthannaður
niður í smáatriði á borð við stíl-
hreinan matseðil og framsetningu
rétta á diski. Fallegur vínrekkur
blasir við anddyri. Veitingasalur-
inn er allur á mjóddina til beggja
hliða, skiptur að endilöngu með
súlnaröð og svörtum skermum.
Grófar flísar í gólfi og fínleg örljós
í lofti falla að smekkvísi heildar-
innar.
Hér er milliverð á matseðli, að-
alréttir á 1.610 krónur að meðal-
tali og þríréttað með kaffi á 3.150
krónur. Undir sefandi tónum
Frankie Boy og Bing Crosby gát-
um við því sætt okkur við gler-
plötu, óbrjótanleg vatnsglös og
pappírsþurrkur ofan á dúklögðu
borði.
Fagrir og fínir forréttir nutu sín
vel á kryddlegnum grænmetis-
þráðum. Pönnusteiktur humar og
skötuselur rann á tungu með fín-
lega kryddaðri hvítlaukssósu
þunnri. Sama var að segja um
ristaða hörpuskel með sterkri
sojasósu og eldsteikta snigla með
bragðmildri hvítlauks- og engi-
fersósu.
Lárperu og fetaost skorti að
mestu í jöklasalat, sem kailað var
ferskt sumarsaiat, en þurrkaðir
tómatar og hæfileg edikolía björg-
uðu réttinum næstum fyrir hom.
Lakasti rétturinn var harðsteiktur
karfi í smjöri, borinn ffam með
mildri mandarínusósu og
langsteiktum kartöflum. Raunar
er ekki auðvelt að fá góðan fisk
utan Reykjavíkur.
Aðra og betri sögu er að segja af
kjötréttunum. Afar gott var ofn-
bakað og mjúkt kálfainnanlæri
með mildri scdvíusósu og milt
hvítvínsoðnu grænmeti. Sama var
að segja um feitar og safaríkar
lambahryggsneiðar með þunnri og
sterkri rósmarínsósu. Léttsteiktar
og rósrauðar svartfuglsbringur
vora í svipðum gæðaflokki, með
þunnri og bragðmildri sól-
berjasósu.
Ostadiskur var ómerkilegur eft-
irréttur. Góður var hins vegar létt-
ur súkkulaðifroðutum með skóg-
arberjasósu og og góð var sæt
konfektterta með ferskum ávöxt-
um og ástríðualdinsósu. Kafíl var
gott.
Játvarður er í steyptri jarðhæð,
sem varð til við að tékka upp tví-
lyft timburhús. Hann er upplyft-
ing í bókstaflegri merkingu eins
og í menningu og matargerð.
Jónas Kristjánsson
„Skemmtilega hannaður
staður með fínlegri mat-
reiðslu, efsneitt er hjá fiski,
svo og elskulegri þjónustu,
sem getur svarað spurning-
um um matinn."
meira á.
www.visir.is
8
f Ó k U S 17. júlí 1998