Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1998, Qupperneq 20
Bíóborgin
Armageddon ★★ Bruce Willis stendur fyrir
sínu sem mesti töffarinn í Hollywood f mynd
þar sem frammistaöa tæknimanna er það
eina sem hrós á skilið. Leikstjðrinn Michael
Bay gerir það sem fyrir hann er lagt og því er
Armageddon meira fyrir auga en eyru. -HK
Mad Clty ★★★ Sterk kvikmynd um þaö hvern-
ig fjölmiðlar búa til stórfrétt. Þótt deila megi
um hvort gíslatakan í myndinni geti staðið yfir
í þrjá sólarhringa kemur það ekki að sök.
Costa-Gavras hefur styrka stjórn á þvf sem
hann er að fjalla um og hefur ekki gert betri
kvikmynd i mörg ár. Dustin Hoffman og John
Travolta eru öryggið uppmálað í aðaihlutverk-
unum. -HK
Mouse Hunt ★★★ Músaveiðimynd sem segir
frá vitgrönnu bræðrunum Smuntz sem erfa
snæraverksmiöju og niöurnftt hús (með mús)
eftir fööur sinn. Sjálf músin er aðalhetja mynd-
arinnar þar sem hún klífur og stekkur og sveifl-
ar sér af mikilli fimi og hugrekki um húsiö,
sigrast bæði á banvænum ketti og meindýra-
eyöi og hvomsar í sig kflói af osti án þess að
svo mikið sem gildna um miðbikið. -úd
Bíóhöllin/Saga-bíó
Six Days, Slx Nlghts ★★★ Fremur hugmynda-
snauð en þó skemmtilega rómantfsk gaman-
mynd sem gerist f fallegu umhverfi á eyjum f
Kyrrahafinu. Myndinni er haldið uppi af góöum
leik aðalleikaranna Harrisons Fords og Anne
Heche sem ná einstaklega vel saman. Aörir
leikarar standa sig ágætlega en hverfa f
skuggann af gneistandi samleik Fords og
Heche. -HK
Lltla hafmeyjan ★★★ Teiknimyndir Walts Dis-
neys eru klassískar og þegar ný kynslóð rís
eru þær settar á markaöinn á ný og er ekkert
annað en gott um það að segja. Litla hafmeyj-
an kom með ferskan blæ inn f þetta kvik-
myndaform eftir aö teiknimyndir í fullri lengd
höföu verið í lægö um nokkurt skeið og hún á
fullt erindi enn til ungu kynslóðarinnar. ís-
lenska talsetningin er vel heppnuð. -HK
Háskólabíó
Rökkur ★★★ Gamaldags krimmi með mátu-
lega flókinni fléttu sem gengur ágætlega upp.
Rökkur er kvikmynd leikaranna. Mestur er
fengurinn að Paul Newman sem heldur enn
reisn þrátt fýrir aldurinn. Gene Hackman og
Susan Sarandon standa einnig fyrir sinu. -HK
Grease ★★★ Oft haföi ég á tilfinningunni að
þaö eina sem bjargaði þessu 20 ára afmæli
Grease væri að hún hefði með árunum tekið
á sig „kampMmynd Rocky Horror Picture
Show. Þannig gengur hún upp fyrir mér. Að
þessu sögöu má sfðan bæta viö að lögin
standa enn fyrir sfnu og dansatriðin eru
skemmtileg. -GE
Piparkökukalllnn ★★★ Frá Robert Altman
koma alltaf athyglisveröar kvikmyndir og þótt
Piparkökukallinn sé ekki meistarverk á borð
við MASH, Nashville, The Player og Short Cut
þá er hér um afar athyglisverða sakamála-
mynd að ræða sem hefur áhugaverðan sögu-
þráð og góðan leikarahóp sem stendur vel fýr-
ir sínu. -HK
Kringlubíó
Swltchback ★★ Sakamálamynd um raömorö-
ingja sem gerist að mestu að vetri til f Utah í
Bandaríkjunum. Dennis Quaid og Danny
Glover sem eru sinn á hvorum endanum f flét-
tunni gera sitt besta en myndin er of hæg og
fýrirsjáanleg til að hún sé eins spennandi og
tilefniö gefur til kynna. -HK
Laugarásbíó
Lost In Space ★★ Framtföarkvikmynd sem
byggð er á gamalli sjónvarpsseríu sem ekki
þótti merkileg. Myndin er stór f sniöum og
stundum mikilfengleg en sem betur fer tekur
hún sig ekki alvarlega. Hægt er að mæla meö
henni viö alla fjölskylduna sem er meira en
hægt er viö aðrar framtíöarmyndir sem sýndar
eru f kvikmyndahúsum höfuðborgarinnar. -HK
Regnboginn
The Object of My Afectlon ★★★ Nicholas
Hytner ætlar sér mikiö meö þessari mynd,
enda hefur hann leikstýrt metnaðarfullum
kvikmyndum á borð við The Madness of King
George og The Crucuble. Honum tekst að
sneiöa fram hjá ýmsum gildrum en handritið
kemur f veg fyrir að honum takist ætlunarverk
sitt. -úd
Scream 2 ★★★ Þó Scream 2 nái ekki þeirri
snilld sem 1 átti þá held ég að ég geti ekki
annað en kallað þetta þriggja stjörnu hroll-
vekjuskemmtun. Eftir magnaöa byrjun fór Scr-
eam 2 of hægt af stað en síðan tók hún kipp
og brunaði af staö og hélt uppi þessari líka
fínu spennu án þess að slaka á drepfyndnum
hroll-vísununum og skildi við áhorfandann
ánægjulega hrylltan. -úd
Tltanlc ★★★★ Stórbrotin og ákaflega gefandi
kvikmynd. Af miklum fítonskrafti tókst James
Cameron að koma heilli f höfn dýrustu kvik-
mynd sem gerö hefur verið. Fullkomnunar-
árátta Camerons skilar sér í eðlilegri sviðsetn-
ingu sem hefur á sér mikinn raunsæisblæ. Le-
onardo DiCaprio og Kate Winslet eru eftir-
minnileg í hlutverkum elskendanna. -HK
Stjörnubíó
The Blg Hlt Sjá sfðuna hér á móti.
1 meira á. [
www.visir.is
f Ó k U S 17. júlí 1998
Wynona
berst við
Mark Wahlberg
í hlutverki Mels
í The Big Hit.
Wynona Ryder, sem síðast sást
berjast við ýmsar ófreskjur i Alien:
Resnrrection, fær enn hættulegri
óvin í Lost Souls sem hún er að
hefja leik í. Er það sjálfur satan
sem hún berst við. Leikur Ryder
fyrrtnn bóhem sem orðin er virt
kennslukona. Hún kemst á snoðir
um að nái hún ekki að sannfæra
lögfræðing einn um samsæri sem í
gangi er muni djöfsi geta athafnað
sig að vild í mannheimum sem
einn af okkur. Leikstjóri Lost
Souls er Janusz Kaminski, þekktur
kvikmyndatökumaður sem er að
fara að leikstýra sinni fyrstu kvik-
mynd. Meðal afreka hans sem
tökumanns niá nefna Schindler's
List. í upphafi átti Meg Ryan að
leika aðalhlutverkið enda er hún
einn framleiðenda myndarinnar
en þegar til kom þótti Ryan ekki
sniðugt að leika í henni þar sem í
City of Angels, nýjustu mynd
hennar, er einnig verið að fjalla
um anda og endurfæðingu þótt það
sé á mun jákvæðari nótum.
Mark Wahlberg:.
Leigumorðingjarnir flórlr, Crunch (Bokeem Woodbine), Cisco (Lou Diamond Phillips), Mel (Mark Wahlberg)
og Vlnce (Antonio Sabato, jr.).
Skotmarkið í Stjörnubíói:
Einkalíf leigumorðingja
Fyrrum rappari
meikar það
í Hollywood
Skotmarkið (The Big Hit), sem
Stjömubíó frumsýnir í dag, er
hressileg hasarmynd sem tekur
sig þó ekkert of alvarlega. Fjallar
hún um fjóra imga leigumorð-
ingja sem lenda í ýmsu í starfi
sínu. Við fáum að kynnast hvem-
ig daglegt líf þeirra gengur fyrir
sig því auk starfsins þurfa þeir að
fást við litrík einkamál. Þeir sem
fara með hlutverk leigumorðingj-
anna fjögurra em ungir leikarar
með mismikla reynslu að baki.
Fyrstan ber að telja Mark Wa-
hlberg, sem sló eftirminnilega 1
gegn í Boogie Nights, sá sem kem-
ur næstur Wahlberg að frægð er
Lou Diamond Phillps sem varð
frægur á einni nóttu þegar hann
lék söngvarann Richie Valens í
La Bamba. Hefur hann síðan leik-
ið í fjölmörgum kvikmyndum, nú
síðast í Courage Under Fire þar
sem mótleikarar hans vora Meg
Ryan og Denzel Washington.
Minna þekktir eru Bokeem
Woodbine og Antonio Sabato jr.
en þeir hafa báðir verið að leika í
minni háttar kvikmyndum á und-
anfomum árum auk þess sem
Sabato hefur verið eitt af eftirsótt-
ustu herramódelum í nokkur ár.
Leikstjóri Skotmarksins er
Che-Kirk Wong sem kemur úr
hasarmyndaiðnaðinum í Hong
Kong. Hefur hann vakið athygli
fyrir frumlegar sviðssetningar og
það hlýtur að vera meðmæli með
honum að sjálfur John Woo flutti
hann yfir hafið til að leikstýra
Skotmarkinu en Woo er einn
framleiðenda myndarinnar. Che-
Kirk Wong er enginn nýliði í fag-
inu. Hann gerði sína fyrstu kvik-
mynd, The Club, árið 1980 og var
hún ein af fyrstu hasarmyndun-
um frá Hong Kong sem vakti at-
hygli út fyrir eyjuna.
-HK
Mark Wahlberg leikur stærsta
hlutverkið í Skotmarkinu (The Big
Hit) og er þetta sjötta kvikmyndin
sem þessi athyglisverði leikari
kemur fram í. Það var í táninga-
tryllinum Fear sem athygli um-
heimsins beindist fyrst að Mark
Wahlberg. í þeirri mynd lék hann
sitt fyrsta burðarhlutverk. Þar
náði hann sér vel á strik í hlut-
verki sálsjúks ungmennis sem
herjar á unga stúlku. Áður hafði
Wahlberg leikið lítil hlutverk i
Renaissance Man og The Basket-
ball Diaries. Fjórða kvikmyndin,
sem Mark Wahlberg lék í, var Tra-
veller, kvikmynd sem Bill Paxton
leikstýrði og lék í. Fékk sú mynd
ágæta dóma en fór samt nánast
beint á myndbandamarkaðinn. Það
var svo í hlutverki klámstjömunn-
ar í Boogie Nights sem stjama
Marks Wahlbergs fór hátt á loft og
var hún ein athyglisverðasta kvik-
mynd sem kom frá Bandaríkjunum
á síðasta ári.
Þrátt fyrir að Mark Wahlberg sé
aðeins tuttugu og sex ára gamall á
hann að baki athyglisverða fortíð.
Þegar hann var tvítugur tók hann
sér nafnið Marky Mark og gerðist
rappari með góðum árangri. Undir
nafni Marky Marks gaf hann út
tvær plötur, Music For the People
og You Gotta Believe, sem seldust í
milljónaeintökum. Þá var hann um
skeið aðalauglýsingafyrirsæta Cal-
vins Klein í undirfataaug-
lýsingum. Mark Wahlberg
segist þó lengi hafa stefht
að því að verða leikari:
„Þegar ég fór að leita fyrir
mér eftir hlutverkinn í kvik-
myndum var ég alls ekki
tekinn alvarlega, tilboöin
fólust aðallega í því að ég
átti að vera hlaupandi
á nærbuxunum eða
syngjandi rapplög.“
Þetta breyttist
þegar leikstjórinn
James Foley, sem var
að undirbúa Fear, óskaði
eftir að hafa tal af honum:
„Allt í einu kom náungi til
mín sem gat notað mig í alvöru-
hlutverk og að sjálfsögðu tók ég
boðinu fegins hendi.“
Eftir hinar góðu viðtökur sem
Boogie Nights fékk var Mark
Wahlberg spurður hvort hann
væri hættur í tónlistinni fyrir
fullt og allt: „Þessa shmdina
hef ég meiri áhuga á kvik-
myndum en tónlist. Þetta
tvennt getur alveg farið sam-
an og það er aldrei að vita
nema sá dagur renni upp að
ég verð leiður á kvikmynda-
leik og snúi aftur að tónlist-
inni en sú tónlist mun ekki
vera 1 sama formi og ég hef
áður gert.“
-HK