Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1998, Síða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1998, Síða 21
V Danny Glover kemst undan kraftmikilli bílsprengingu á síðustu stundu. I , fL Lethal Weapon 4 frumsýnd í dag: iggs og Murtaugh enn íariflræðum eftir tólf ár Samfir dómar um gömlu myndimar________________________________________________ Lethal Weapon 1987 ★★★★ Besta mynd seriunnar og ein glæsilegasta spennumynd áratugarins. Mel Gibson leikur lögreglu- foringjann Martin Riggs sem er svo langt leiddur eftir fráfall eiginkonu sinnar að hann gefur dauðann og djöfulinn í allt. Riggs er sendur í morðrannsókn meö fjölskyldumanninum Roger Murtaugh (Danny Glover). Murtaugh er nýorðinn fimmtugur og vill helst taka lífinu með ró. Þeir félagar eiga í höggi við hættulega eiturlyfjasmyglara sem stjórnað er af herra Joshua, einu besta illmenni hasarmyndanna (Gary Busey). Italski leikstjórinn Franco Zeffirelli var svo hrifinn af túlkun Gibsons að hann fékk hann til að leika Hamlet í samnefndri kvikmynd frá 1990. Lelkstjóri: Richard Donner. Handrit: Shane Black. Lethal Weapon 2 1989 ★★★i Riggs og Murtaugh (Gibson og Glover) eiga í höggi við harðsvíraðan hóp glæpamanna sem starfar í skjóli suður-afriska sendiráðsins. Aðskilnaðarstefnan er í hámarki á þessum árum og Joss Ackland og Derrick O'Connor eru frábærir þrjótar. Joe Pesci er skemmtileg viðbót, en hann stígur nú fyrst fram í hlutverki smákrimmans Leo Getz. Spennan er enn sem fyrr I hámarki, en nú er slegið á léttari strengi. I einni af fyndnustu senum myndarinnar reynir Danny Glover að sækja um rikisborgararétt I sendiráði Suður-Afrfku. Leikstjóri: Richard Donner. Handrit: Jeffrey Boam. Lethal Weapon 31992 ★★i Slakasta mynd seriunnar. Lögreglukonan Lorna Cole (Rene Russo) er eina nýjungin en Riggs og Murtaugh eiga í höggi við spilltan lögreglumann (Stuart Wilson) sem er langt í frá eins eft- irminnilegur og glæpamennirnir í fyrstu tveimur myndunum. Meira að segja Joe Pesci sýnir þreytumerki I þessari mynd. Grinið snýst fyrst og fremst um það að aðeins vika er I eftirlaunin hjá Murtaugh. Leikstjóri: Richard Donner. Handrit: Jeffrey Boam og Robert Mark Kamen. -ge „í tólf ár hafa kvikmyndaáhorf- endur lifað með þessum körlum. Þetta eru kaldir kallar sem öllum fellur við og er ekki laust við að mörgum sé farið að þykja vænt um þá,“ segir Richard Donner sem leik- stýrt hefur öllum fiórum Lethal Wea- pon kvikmyndunum, en í dag er Let- hal Weapon 4 frumsýnd í öllum Sam- bíóunum og Borgarbíói á Akureyri. Myndirnar fjórar hafa allar náð miklum vinsældum en engin þó jafn- miklum og sú þriðja sem kom á markaðinn árið 1992 og þótt Lethal Weapon 4 hafi langt í frá valdið að- standendunum vonbrigðum mun hún ekki ná vinsældum þeirrar þriðju. í fyrstu myndinni voru það lögreglumennirnir tveir, Martin Riggs (Mel Gibson) og Roger Mur- taugh (Danny Glover), sem voru kynntir til sögunnar. í mynd númer tvö bættist við hinn hraðmælti og varasami Leo Getz (Joe Pesci) og í þriðju myndinni hitti svo Riggs fyrir jafningja sinn í glætraleiknum, lög- reglukonuna Lornu Cole (Rene Russo). Þau eru öll mætt til leiks aft- ur og fá liðstyrk hjá nýliðanum Lee Butters (Chris Rock) í baráttu sinni gegn nútima þrælasölum. Fyrsta Lethal Weapon myndin var mikil lyftistöng fyrir Danny Glover sem þá var lítt þekktur leikari: „Ég var að leika í leikriti í Chicago haustið 1996 þegar ég fékk boð um að fljúga til Los Angeles og þiggja heim- boð hjá Richard Donner til að sjá hvernig það gengi að láta okkur Mel Gibson leika saman. Satt best að segja þurftum við ekki nema nokkr- ar mínútur til að sannfæra Donner um að við ættum vel saman og ég hef alla tíð undrast það hversu auðveld- lega við féllum hvor að öðrum.“ Fyrir Mel Gibson var það strax erfið ákvörðun að gera mynd númer tvö: „Það er mjög erfitt að gera sömu hlutina tvisvar svo vel fari og enn verra í þriðja skiptið og á að vera ómögulegt í það fjórða. Það sem hef- ur gert það að verkum að þetta hefur allt gengið upp er að við öll höfum mjög gaman af að vera í félagsskap hvers annars og það að við skiljum orðið persónumar mjög vel. Má segja að þegar við erum komin af stað þá séu þær hluti af okkur sjálfum." Bæði Mel Gibson og Danny Glover telja það ekki svo litlu máli skipta hversu vel hefur tekist að sami leik- stjórinn, Richard Donner, hefur leik- stýrt öllum kvikmyndunum, sem er sjaldgæft í gerð framhaldsmynda í Hollywood (Steven Spielberg er undantekning, en hann leikstýrði öll- um Indiana Jones myndunum): „Ég er mjög heppinn að hafa Dick (Donn- er) sem leikstjóra," segir Gibson. „Við höfum alltaf unnið vel saman og hann er sá leikstjóri sem ég hef lært mest af og á ég honum það að þakka að ég get leikstýrt farsællega mínum eigin myndum.“ Mikill og góður húmor hefur ávallt einkennt Lethal Weapon myndirnar og ekki er húmorinn minni þegar grínistinn Chris Rock hefur bæst i hópinn. Hann hefur leik- ið í nokkrum minni háttar myndum en er aðallega þekktur fyrir að vera einhver fremsti „stand-up“ grínisti á bandarísku sviði: „Ég tel það hafa verið mér í hag að Donner vill fá að sjá eitthvað óvænt við hverja upp- töku og það hefur oftar en ekki verið sagt um mig að ég geti ekki gert sama hlutinn tvisvar eins, þannig að hans vinnubrögð áttu vel við mig.“ Húmorinn er nauðsynlegur í Let- hal Wepon myndunum en spennan er samt meira virði og eins og í öll- um fyrri myndunum opnar Lethal Weapon 4 á tilkomumiklu áhættuat- riði þar sem Riggs og Murtaugh eiga í höggi við geðsjúkling sem vopnaður er eldvörpum og lætur til sin taka í næsta nágrenni við bensínstöð og ol- íubíl með fullan tank. Má geta þess að þegar þetta atriði var tekið upp voru notaðar sextán myndavélar. -HK bíódómur Hörkutól Lelkstjóri: Richard Donner. Handrit: Channing Gibson. Kvikmyndataka: Andrzej Bartkowiak. Tónllst: Michael Kamen, Eric Clapton og Dav- id Sanborn. Aðalhlutverk: Mel Gibson, Danny Glover, Joe Pesci, Rene Russo, Chris Rock og Jet Li. Beðið hefur verið eftir nýjustu mynd Lethal Weapon-seríunnar um langa hríð og árlega hafa verið get- gátur um hvort von sé á nýrri við- bót. Fyrstu þijár myndimar komu út með jöfnu millibili (1987, 1989, 1992) og ég er ekki frá því að of langt sé liðið milli mynda í þetta sinn. Gibson og Glover em fullgamlir eins og þeir benda margoft á í mynd- inni (42 og 51). Richard Donner er enn leikstjórinn og ekki algengt að sami maður leikstýri öllum myndum sömu seríu (t.d. fjórir leikstjórar af Alien-seríunni). í myndinni leika Gibson og Glover sem fyrr lögregluforingjana Martin Riggs og Roger Murtaugh. Nú eiga þeir i höggi við kínversku mafíuna sem flytur heilu fiölskyldurnar frá meginlandi Kína og lætur þær vinna í þrælabúðum í Bandaríkjunum. Einn af höfuðpaumnum, Wah Sing Ku (Jet Li), er harðsvíraður morð- ingi og kungfu-fantur með meiru. Lethal Weapon 4 er ekki besta mynd seríunnar. Númer 1 hefur enn vinninginn, jafnt hvað varðar spennu, frásagnarfléttu, persónu- sköpun og leik. Þessi mynd er þó stórt skref upp á við frá númer 3. Grínið er hér meira en í fymi mynd- um og fylgir þeirri formúlu sem flestar kvikmyndaseríur virðast hafa tekið upp. Nú sér Joe Pesci ekki einn um kómísku hliðina, gam- anleikarinn Chris Rock er honum til hjálpar en hann leikur ungan lög- regluforingja (Lee Butters) sem gerir sitt besta til þess að koma sér I mjúk- inn hjá Roger Murtaugh. Roger held- ur að Butters sé hómmi en sannleik- urinn er sá að Butters hefur barnað dóttur Murtaughs og gifst henni á laun. Lítið fer fyrir konunum sem svo ríkulega einkenndu fyrri myndirnar og sköpuðu seríunni sérstöðu. Eigin- kona og dóttir Murtaughs eru nær horfnar af sjónarsviðinu og hin bar- Sam-bíóin: Lethal Weapon 4 ★★★ dagaglaða Loma Cole (Rene Russo) snýr nú aftur sem kasólétt húsmóðir í léttvægri rullu. Bófamir hafa verið eftirminnilegri, s.s. Mr. Joshua (Gary Busey) úr 1 og aríska bræðra- lagið úr 2. Jet Li nær aldrei að sýna sömu takta þrátt fyrir að hann sé í raun margfaldur kínverskur meist- ari í bardagalist og maður er aldrei sannfærður um að lögregluforingj- arnir eigi nokkuð í hann. Þessi nýjasta viðbót í seríuna er ágætis afþreying. Hún er fyndin og spennandi og áhættuatriðin flest til „Þessi nýjasta viðbót í seríuna er fyndin og spennandi og áhættuatriðin flest til fyrirmyndar. “ fyrirmyndar. Þótt hún nái aldrei að toppa það besta úr fyrstu tveimur myndunum ætti hún ekki að valda aðdáendum þeirra Riggs og Mur- taugh vonbrigðum. Þetta verður lík- lega síðasta myndin og ekki amaleg endalok á eftirminnOegri seríu. Guðni Elísson b í ó Háskólabíó framhald Blúsbræður 2000 ★★ Framhald framhaldsins vegna er víst óhætt at> segja um þessa mis- heppnubu tilraun til að endurlífga Biúsbræður án Johns Belushi. Ef ekki væri fyrir stórgóða tónlist og enn betri flutning blúsmanna þar sem stjörnur eru í hveijum bás þá væri lítið varið í myndina sem fyrir utan tónlistina er ein endem- is della frá upphafi til enda. -HK Rökkur ★★★ Gamaldags krimmi með mátu- lega flókinni fléttu sem gengur ágætlega upp. Rökkur er kvikmynd leikaranna. Mestur er fengurinn að Paul Newman sem heldur enn reisn þrátt fýrir aldurinn. Gene Hackman og Susan Sarandon standa einnig fyrir sínu,-HK Grease ★★★ Oft hafði ég á tilfinningunni að það eina sem bjargaði þessu 20 ára afmæli Grease væri að hún hefði með árunum tekið á sig „kamp“-ímynd Rocky Horror Picture Show. Þannig gengur hún upp fyrir mér. Að þessu sögðu má síðan bæta við að lögin standa enn fyrir sínu og dansatriðin eru skemmtileg. -ge Kringlubíó Mercury Rising ★★★ Tveir einstaklingar sem eru á mismunandi máta einangraðir frá umheiminum eru gegn öllum öðrum í þessari ágætu sakamálamynd sem kemur skemmti- lega á óvart með þéttri sögu um Stóra bróður sem gerir ekki mun á röngu og réttu og notar öll meðul, lögleg sem ólögleg, til að halda sínu. Bruce Willis er í mun gáfulegra hlutverki en f Armageddon. -HK Laugarásbíó Slidlng Doors ★★★ Paltrow er Helen, ung kona á uppleið, þegar hún er óvænt rekin af hópi karlremba og Iff hennar tekur stakka- skiptum, tvöfalt. Leikurinn er almennt góður, en þó handritið innihaldi heilmikið af skemmti- legum punktum og klippingarnar milli sviða/veruleika séu oft skemmtilegar þá vant- ar hér einhvern herslumun. -úd *7- Deep Rising ★★ Skrfmslamynd sem greini- lega er gerð I kjölfar vinsælda Anaconda. Ótrú- leg saga um lítil sjávarkvikindi sem stækka eftir þvf sem þau lifa dýpra. Gerist myndin þar sem sjórinn er dýpstur. Sagan er ruglingsleg en tæknibrellur gleðja þá sem kunna að meta slfkt. Sem hryllingsmynd er hún of klisjukennd til að skapa almennilegan hroll. -HK Lost In Space ★★ Framtíðarkvikmynd sem byggð er á gamalli sjónvarpsserfu sem ekki þótti merkileg. Myndin er stór í sniöum og stundum mikilfengleg en sem betur fer tekur hún sig ekki alvarlega. Hægt er að mæla meö henni við alla fjölskylduna sem er meira en^ hægt er að segja um aðrar framtíðarmyndir 5 sem sýndar eru f kvikmyndahúsum höfuðborg- arinnar. -HK Regnboginn Mlmlc ★★★ Ég verð að játa að ég beið með mikilli eftirvæntingu eftir nýju myndinni frá Guillermo Del Torro eftir að hafa heillast ákaf- lega af hinni afskaplega frumlegu og áhuga- verðu vampýrumynd Cronos. Kannski er slík eftirvænting ósanngjörn. Þrátt fyrir frábærlega flottar myndrænar útfærslur og skemmtilegar sviðsmyndir þá fellur Mimic f þá gildru að vera of mikil eftirherma. -úd The Object of My Affectlon ★★★ Nicholas Hytner ætlar sér mikið meö þessari mynd enda hefur hann leikstýrt metnaðarfullum kvikmyndum á borð við The Madness of King George og The Crucuble. Honum tekst að sneiða fram hjá ýmsum gildrum en handritið kemur f veg fýrir aö honum takist ætlunarverk sitt. -úd Scream 2 ★★★ Þótt Scream 2 nái ekki þeirri snilld sem 1 átti þá held ég ab ég geti ekki annab en kallað þetta þriggja stjörnu hroll- vekjuskemmtun. Eftir magnaða byrjun fór Scr- eam 2 of hægt af stað en sfðan tðk hún kipp og brunaði af staö og héit uppi þessari Ifka fínu spennu án þess að slaka á drepfyndnum hroll-vfsununum og skildi vib áhorfandann ánægjulega hrylltan. -úd Tltanic ★★★★ Stórbrotin og ákaflega gefandi kvikmynd. Af miklum fítonskrafti tókst James Cameron að koma heilli í höfn dýrustu kvik- mynd sem gerð hefur verið. Fullkomnunar- árátta Camerons skilar sér f eðlilegri sviösetn- ingu sem hefur á sér mikinn raunsæisblæ. Le- onardo DiCaprio og Kate Winslet eru eftir- minnileg f hlutverkum elskendanna. -HK Stjörnubíó * Heift ★★ Heift (Hush) skartartveimurglæsi- legum leikkonum af tveimur kynslóðum, Jessicu Lange og Gwyneth Paltrow, sem báö- ar hafa það mikla útgeislun að það liggur við aö þeim takist aö fela alla stóru gallana sem eru sögu sem er augljóst hvernig endar og nær aldrei nær alménniiegri spennu. Það að útkoman skuli aðeins rétt slefa upp f meðalaf- þreyingu verður að skrifast á leikstjórann sem veldur ekki sínu starfi. -HK Skotmarkið ★★★ Myndin ber öll einkenni hinnar fagurfræöilega ýktu sviðsetningar og sjónarspils sem einkennir Hong-Kong-myndir en hér er spilað fýrst og fremst upp á húmor- inn. Skemmtileg hasarmynd sem er einnig rómantfsk og kómfsk. Mark Wahlberg tekst enn og aftur vel upp. -úd mexra. sl www„visir.is 7. ágúst 1998 f Ó k U S 21

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.