Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1998, Page 3

Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1998, Page 3
I meömæli Cappucino í pappamáli 1 Kaffltári í Bankastrætinu. Þetta er hreint guðlega út- lenskt og smart. Maður bregður sér bara inn, kaup- r kaffi og tekur það með sér. liinkar hentugt fyrir nýskilda eiginmenn sem enn sjá á eftir fyrrverandi konu sinni og sitja langdvölum í bílnum sínum fyrir utan heimili hennar. Með svona kaffi viö höndina gætu þeir gleymt aumu ástandi sínu um tíma og haldið að þeir væru að fylgjast með harðsvíruðum mafíósa. g f n i SSSól í Sjallanum í kvöld. Helgl BJöms er enn konungur sveitaballanna þótt hann sé kominn á fimmtugsaldurinn og margir erfðaprinsar bruggi honum laun- ráð og girnist kórónuna. Helgi er kannski ekki eins og rauövínið sem batnar með aldrinum. Hann er frekar eins og frost- þurrkaður matur, hann versnar ekki. Úr því að glufur eru komnar í vemdarmúr bænda og útlendur ís farinn að sjást í kjörbúð- um og sjoppum væri ekki úr vegi að einhver framtakssamur tæki sig til og hæfi innfiutn- ing á Háagen-Ðaz fsnum. Sumum finnst þetta besti is í heimi og halda jafnvel að hann sé unn- inn eftir ævafornum uppskriftum frá ein- hverju Evrópuiandinu með ríka hefð I mjólkurvinnslu. En svo er ekki. Þetta er til- töiulega ný bandarisk uppfinning. Nafniö er tilbúningur, það er ekki til sá maður sem veit hvað það á fýrirstilla - annað en að hljóma sænskt eöa hollenskt eins og markaðsfræðingarnir vonuðust til. Hrafn Gunnlaugs- son. Óbilgjarn listamaður sem lætur ekki lágar tekjur aftra sér frá því að taka upp Myrkrahöfð- ingjann á síðasta ári. Hann fékk hæsta styrkinn úr Kvikmynda- sjóði en féil samt ekki I þá freistni að skammta sér há laun sem handritshöf- undur og leikstjóri heldur lét sér, sam- kvæmt skattskrá, nægja 72 þúsund krónur á mánuði. Það er innan við helm- ingur af meðallaunum. Hrafn veit - og getur kennt okkur meö fordæmi sín" - að engin góð list verður til án fórna. Myndlistarmennírnir Þorvaldur Þorsteinsson og Jóní Jónsdóttir hafa viðað að sér upplýsingum um íslenskar stórstjörnur, kortlagt heimili þeirra og skráð niður hvar þær halda sig. Afraksturinn sýna þau á morgun í galleríinu Fiskinum á Skólavörðustíg. JJ JIJ „Velgengni íslenskra listamanna á erlendri grund hefur beint sjónum manna að reykvísku menningarlífi og þeim urmul stjarnfrægra einstaklinga (celebrities) sem þar starfa, óuppgötv- aðir af heimsbyggðinni. Þó vissulega sé það ánægjulegt hefur þessi mikli áhugi jafnframt sína skuggahlið, sem er sú mikla innri fjarlægð sem einkennir íslenskan stjömuheim,“ seg- ir meðal annars í skýringar- texta við stjörnugötukort sem myndlistarmennirnir Þorvaldur Þorsteinsson og Jóní Jónsdóttir hafa sett saman og munu sína í galler- íinu Fiskinum á Skólavörðu- stígnum á laugardaginn. Á kortinu má frnna - eða i það minnsta reyna að flnna - heimili fólks á borð við Pál Óskar Hjálmtýsson, Þór Eldon, Fjölni Þorgeirsson, Jakob Frímann Magnússon og Björk - en allt þetta fólk er að kikna undan byrð- um frægðarinnar, ef marka má lista- mennina tvo. , Þorvaldur og Jóní hafa safnað ' upplýsingum um þetta fólk og tekiö myndir af heimilum þeirra, en þó af nokkurri nærgætni því hvorki má 'finna húsin svo gott sé af staðsetningu þeirra né þekkja þau almennilega af myndunum. Kortið er bæði sýnt í gam- aldags- og nýtískulegu formi, á pappír og CD-Rom, og áhugasamir geta fest kaup á því í hvoru forminu sem er. En hvaö í óskpunum eru þau Þor- valdur og Jóní aö gera meö þetta fónd- ur sitt í galleríi þar sem enginn kemur? Af hverju reyna þau ekki aö fá þetta birt í einhverju blaöi? Þaö mœtti vel vera aö þau heföu fengiö inni meö þetta í Fókus, þaó er ef eitthvaö er í þetta spunniö. Nóg hefur veriö af ýmsum kortum þar undanfariö, bœöi götu- og landakortum. „Það má segja að þetta sé óbein at- vinnuumsókn," hefur Þorvaldur eftir Jóniu, sem skýldi sér á bak við mann- inn í símaviðtali sem blaðamaður Fók- us átti við þau í gær. Þorvaldur hélt tólinu og orðinu en Jóní fóðraði hann á því sem segja skyldi. Er þessi sýning svona týpísk uppgjöf myndlistarmanna fyrir leiöindum myndlistarheimsins, eruð þiö aö reyna aö vera fyndin? „Öllu gamni fylgir nokkur alvara," svarar Þorvaldur. „Það er ákveðinn undirtónn í sýningunni, við skulum spyija að leikslokum. En við erum þó fyrst og fremst þreytt og ánægð að sýn- ingin skuli vera komin upp og verkinu lokið. Þetta tók á.“ Að sögn listamannanna hafa hinir frægu ekki síður gagn af kortinu þar sem á því er merkt hvar frægt fólk borð- ar úti, hvar það snyrtir hár sitt og hvar það syndir. Þau vonast einnig til að ein íslensku stjarn- anna verði við opn- unina en verjast allra frétta um hver það kunni að verða. Hins vegar lofa þau stanslausum vídeósýning- um þar sem frægt fólk útlent kem- ur við sögu. Á sunnudag- inn geta sýningargestir þannig gotið auga 1. Friðrik Þór Friðriksson. Bjarkargata (miðhæð í húsi). 5. Hallgrímur Helgason. Vitastígur uppi. 7. Eggert Þorleifsson. Fjölnisvegur, auðfundið. 11. Baltasar Kormákur, Lilja Pálmadóttir. Miðstræti - mikið áhvílandi. 33. Hrafn Gunnlaugsson. Brávallagata (glerhús). á Marilyn Monroe í Gentlemen Prefer Blondes og hljómsveitina Kiss á þriðju- daginn í heimildarmyndinni Kiss X- treme. Sýning Þorvaldar og Jóníar er opin alla daga frá 14 til 18 og stendur til I 26. ágúst. Góði gæinn fær alltaf stúlkuna, lifir myndina til enda, og færir leikaranum óskarsverðlaun. Maður hefði því haldið að það væri svolítið svekkjandi að þurfa að leika illmennið, en ónei. Ljúflingur leikur vonda karlinn Nei, það var ekkert svekkjandi að þurfa að leika vonda karlinn, þvert á móti var það mjög gam- an,“ segir Kjartan Bjargmundsson sem leikur í nýju íslensku kvik- myndinni Sporlaust sem verður frumsýnd þann 27. ágúst næst- komandi. Leikstjóri myndarinnar er Hilmar Oddsson en ásamt honum skrifaði Sveinbjöm Baldvinsson handritið að myndinni. Eins og flestir vita eru þeir engir byrjend- ur í handritagerð. Hilmar gerði t.d. Tár úr steini og áður myndina Eins og skepnan deyr. Sveinbjöm hefur einnig komið víða við og tekið þátt í mörgum handritum. Sem dæmi um það má nefna reyfarann Foxtrott. Sporlaust er spennutryllir sem hefst á því að ungt fólk vaknar eft- ir fjörugt partí með lík í höndun- um. í myndinni er flest það sem slíkar myndir bjóða jafnan upp á, þ.e. spenna, dónasenur og ofbeldi. Þrátt fyrir að hetjur kvikmynd- anna séu alltaf góði gæinn þá er eitthvað flott við að leika vel heppnað illmenni. Kjartan hefur reyndar ekki verið þekktur fyrir það hingað til að leika samvisku- lausa harðjaxla, svo þetta var ný reynsla fyrir hann: „Það er krefj- andi að leika illmenni þegar mað- ur er sjálfur svona ljúfur en það hafa margir leikarar þurft að gera. Harry Dean Stanton er í uppáhaldi hjá mér hvað þetta varðar, hann lék í fullt af gæða- myndum eins og t.d. Paris Texas," segir Kjartan. Þrátt fyrir að íslensk kvik- myndagerð verði sífellt umfangs- meiri og reikna megi með að mörg hlutverk verði í boði á komandi árum sér Kjartan sig ekki fyrir sér leikandi í kvikmynd á næstunni: „Nei, nei, enda algjör óþarfi, það eru til svo margir flnir leikar- ar.“ -HÞH Vélsagarmorðinglnn frá Texas? Nei, nei, Kjartan Bjargmundsson er smiður dags daglega og hugsar ekkert illt á meðan hann dyttar að og smíðar. Engu að síður er hann lllmennið I íslenska trylllnum Spor- laust sem sýndur verður í lok ágúst. Ægir Guðmundsson skáld Ljóðin afsökun fýrir að ég skuli vera til 4 Islenska þjóðin Hefur bara áhuga á því sem hrjáir hana 6 Jónas Kristjánsson Góðir hrísgrjónaréttir á Pasta Basta Guðmundur Arason, 79 ára boxari, um unga menn í dag Aumingjaskapur og lítilmennska Hljómsveitin Gomez Til fjandans með allar skilgreiningar 10 Gunnar Bjarni hefur misst söngvara í trúfélög 00 sótt annan þangað aftur Eg er búinn að afskrifa Biblíuna 11 Tikjur listainoniw og skenunti krafta samkv;oml skatt'fkra VI .1. 3 f Það nargborgar sig að vera fyndinn Auður Haralds Rýnir í Nýja tíma 14 Hallgrímu Helgason íslenska fyllibyttan: Vanmetin landkynning Myrkraborg í leit að sannleika í framtíðarborg 20 *Spike Lee Alltaf óþekkur 21 Strákarnir í Quarashi Ein nótt í Reykjavík 22 Hvað er að gerast? Leikhús ..............4 Klassík...............4 Popp.................11 Myndlist.............12 Sjónvarp..........14-18 Bíó..................20 Hverjir voru hvar....22 kus F6kus fylgir DV á föstudögum Forsiðumyndina tók Teitur af Gunnari Bjarna Ragnarssyni og Guðmundi Arasyni. 14. ágúst 1998 f Ó k U S

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.