Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1998, Side 4
EG /fcTLAÐI VARLA
AÐ l>EKK3A NG!
HVA0 KOM FYRtR?
L HELV... 1
HANN
►EKKTI MI6
f Ó k U S 14. ágúst 1998
É6 FÓR 06 LET OULKÓOA
MIG UM HEIGINA
&
NEI, 8LESSA0UR!
T^FUInVs
Verkiö ÞJónn í súpunni verður sýnt í lönó
næstu daga. Mikil eftirspurn er eftir miðum á
sýninguna og því er uppselt á sýninguna í
kvöld og á aukasýninguna á sunnudag. Örfáir
miöar eru hins vegar eftir á sýningarnar sem
verða fimmtudaginn 13. ágúst, kl. 20, og
laugardaginn, ki. 23.30. Þaö getur vel verið
að fólk hafi misjafnar skoðanir á því hversu
góð sýningin er. Hins vegar virðast allir vilja
sjá hana.
Grease-sýningin heldur áfram að heilla áhorf-
endur sem lofa sýninguna í hástert. Þrátt fyrir
miklar vinsældir eru nokkur sæti laus á sýn-
inguna næsta sunnudag, 9. ágúst, og næsta
fimmtudag, 13. ágúst. Þessi sýning býður upp
á úrvals dans- og söngatriði meö mörgum af
vinsælustu stjörnunum í leiklistarlífi okkar ís-
lendinga.
Hról höttur verður sýndur í Fjölskyldu- og hús-
dýragarðlnum I dag. Þetta er barna- og fjöl-
skyldusýning sem virðist ná mjög vel til krakk-
anna. Þeir skemmta sér vel og koma syngj-
andi og trallandi út af sýningunni.
Helllsbúlnn veröur sýndur i islensku óperunnl
á morgun, ki. 23. Sýningin hefur verið lofuð
fyrir góöan leik og skemmtilegar vangaveltur
um samskipti og hegðun kynjanna.
islenska óperan sýnir Car-
men Negra í dag og á morg-
un. Sýningin hefur vakið
mikla athygli og nú fer hver
að verða síðastur að berja
söngleikinn augum. Margir
þekktir leikarar taka þátt í
sýningunni, svo sem Bubbl
Morthens, Eglll Ólafsson
og Helgl Björnsson.
Kaffllelkhúslð heldur áfram með sumartón-
leikarööina sina. í kvöld verður Fluga en það
eru tónleikar HJörlelfs Valssonar. Kappinn
spilar dægurflugur sem sumar urðu til fýrir um
800 árum, aðrar fýrir nokkrum dögum.
í kvöld kl. 20.30 mun kvennakórinn Vox Fem-
Inae flytja sígild lög í Norræna húslnu. Mar-
grét Pálmadóttlr stýrir kórnum en aðgangur
að tónleikunum kostar 700 kr.
Verk 12 íslenskra Ijóðskálda verða kynnt á
dagskrá í Norræna húslnu laugardaginn 15.
ágúst kl. 16. Aðgangur er kr. 700, sem gildir
einnig að sýningunni Þeirra mál ei talar tunga
sem fram fer í sýningarsölum Norræna húss-
ins.
Félagarnir Hjörlelfur Valsson fiðluleikari og
Havard Ölerorset gítarleikar halda tónleika í
húsi Karlakórs Akureyrar/Geysls - Lóni,
Hrisalundi la, sunnudaginn 16. ágúst kl. 17.
Strákarnir hafa vakið mikla athygli eftir að þeir
komu og hófu að spila fyrir landsmenn.
Það verður leikið á orgel á Hádegistónleikum
í Hallgrímsklrkju kl. 12 á fimmtudögum og
laugardögum i ágúst. Á morgun mun hinn
þekkti franski organleikari Odile Plerre leika
en hún leikur einnlg á aðaltónleikum helgar-
innarí Hallgrimskirkju, sunnudaginn 16. ágúst
kl. 20.30.
20. ágúst mun svo Jakob Hallgrimsson org-
anisti spila í Hallgrimskirkju kl. 12.
Imeira á. I
www.visir.is
Fyrir stuttu gaf Bubbi út disk meö Ijóðalestri sínum og í haust er von á diski frá
Diddu þar sem hún þrumar Ijóð við tónlistarundirleik ýmissa þekktra tónlistar-
manna. Þetta er hið þjóðlega rapp - Ijóð og tónlist sem fellur betur að hrynfalli
íslenskunnar en hið ameríska. Götuskáldið Ægir Guðmundsson sendi nýlega frá
sér svona disk með Ijóðalestri sem sænskur drengur hefur samið einhver hljóð við.
Afsökun fyrir því
Ein áþreifanlegasta mynd list- J
sköpunarþarfar Islendinga birtist
áður fyrr í skáldum sem seldu bæk-
ur sínar á kaffihúsum. Nokkuð hef-
ur dregið úr þessu og nú er algeng-
ara að tónlistarmenn bjóði diska til
sölu enda orðið tiltölulega ódýrt og
auðvelt að framleiða geisladiska.
Ægir Guðmundsson er ljóðskáld
sem sameinar þetta tvennt. Á ljóða-
diskinum ísmál les hann upp ljóðin
sín og Svíinn Jóakim Carlsson sér-
hannar tónlist við þau. Ægir selur
sjálfur, á kaffihúsunum meðal ann-
ars, en diskurinn er lika til í
Hljómalind.
„Hugmyndin kviknaði þegar
Bubbi gaf út sinn ljóðadisk," segir
Ægir en hann á að baki hefðbundn-
ari ljóðabók sem hét Sjáöldur. „Mað-
ur er alltaf með takt og hljómfall i
höfðinu þegar maður skrifar ljóð,
einhverja hrynjandi, og ég er mjög
ánægður með útfærslu Jóakims.
Þetta bætir miklu við. Stemningin
kemur inn með tónlistinni því ljóðið
er dálítið hrátt oft á tíðum. Tæknin
í dag býður upp á það að hin ýmsu
form listarinnar blandist saman.“
Fékk útrás á sjónum
Yrkisefnin?
„Náttúruöflin í umhverfinu og
daglega lífinu. Ekki þjóðfélagsádeil-
ur, meiri mannlífssýnir. Ég er ekk-
ert sérstakt ádeiluskáld. Áhrifin sí-
ast inn frá því sem er að gerast í ís-
lenskri ljóðagerð en ég fer oftast
ótroðnar slóðir. Ég er enginn fræði-
maður í ljóðagerð og á engar fyrir-
myndir. Mín ljóð eru fyrst og fremst
sprottin af eigin máltilfinningu.“
Ægir er fæddur og alinn upp á
að vera til
Akranesi. Hann stundaði lengi sjó-
mennsku. „Sjómennskan setur svip
á ljóðin því maður dregur gamlan
reynsluhenn inn í það sem maður er
að gera. Á sjónum, í því fangelsi,
fékk maður útrás fyrir að tjá sig á
pappírinn."
Hann fór i land til að „komast af
af eigin frumkvæði" sem hefur m.a.
dregið hann út í stjömuspeki og
stjömukortagerð. Ljóðin draga dám
af því. „Goðafræðin endurspeglar
vissa mannlega eiginleika sem ég
notfæri mér í líkingamáli. Ég er
undir áhrifum frá gömlum tíma og
gamalli sagnahefð. Ég finn mig í því
að semja löng ljóð. Mér finnst að hið
gamla inntak, það að hafa textann
mjög iburðarmikinn, vanti í nú-
tímaljóðagerð. Að undanfórnu hefur
allt prjál verið skorið utan af ljóð-
inu. Ég fer frekar í hina áttina og of-
hleð ljóðin lýsingarorðum."
Þrátt fyrir að hafa svo sem nægar
ástæður til að semja þjóðfélagsá-
deilu - „það er erfitt að komast af á
þeim launum sem eru i boði hérna"
- telur Ægir sig þó nokkuð heppinn
að vera íslending. „Ég leiddist eigin-
lega helst út í ljóðagerðina vegna
tungumálsins sjálfs. Það býr svo
mikil myndauðgi og fegurð í íslensk-
Álit annarra mikilvægt
Margir semja ljóð fyrir skúfiúna
og leiðin úr skúffunni í bókina getur
verið seinfær. Hvað hvetur Ægi til
að koma ljóðunum frá sér?
„Þetta er kannski einhvers kon-
ar afsökun fyrir því að vera til,
sitja ekki bara og góna út í vind-
inn. Maður er að skoða mannlífið
og sjálfan sig í gegnum það sem
maður er að gera og því er það
mjög mikilvægt aö fá annan aðila
til að skoða ljóðin. Með því að gefa
þau út fær maður margs konar álit
og getur speglað sig í því því að
maður er illa dómbær á sín eigin
verk. Ef fólki líst vel á það sem
maður er að gera er maður
kannski á réttri leið. Það hreinsar
líka til hjá manni að gefa út, þá er
maður laus við þetta og það opnar
dyr fyrir því að halda áfram og fá
nýja andagift. Að gefa út er því
næstum eins og að fara á AA-
fund.“
Ægir segist ekki vera svo afleit-
ur sölumaður. Það er hefð fyrir því
að selja ljóð á kaffihúsum og hann
felur sig á bak við það, segir að
ljóðasalan „böggi“ kaffihúsagesti
ekki það mikið.
„Ég fæ miklu meira út úr því að
selja diskana sjálfur, maður fær
persónulega gagnrýni. Maður get-
ur aldrei þóknast öllum, en nei, ég
brotna ekkert niður þótt ég fái
slæma gagnrýni. Öll góða gagnrýn-
in vegur þar upp á móti.“
-glh
Koma Ramstein úr því að Stones létu
ekki sjá sig?
Stones frestuðu
fleiri tónleikum
en sínum eigin
Nú þegar endanlega er oröiö Ijóst aö Rolling
Stones koma ekki hingaö til lands í sumar
eöa haust geta aörir tónleikahaldarar fariö aö
naga sig í handarbökin yfir aö hafa lagt trúnað
á áform Ragnhelðar Hanson. Á undanförnum
árum hafa einhverjar sveitir komið hingaö að
sumri eöa hausti og haldiö tónleika en öllum
ráöagerðum þar um var frestaö vegna Stones-
tónleikanna, enda mátti búast viö aö miöarnir
á þá yröu bæði dýrir og margir og því metta
markaðinn um tíma. Viöræöum við sveitir á
borö viö Pulp og Foofighters var þannig
frestaö og þegar Ijóst var orðiö aö ekkert yrði
af Stones-tónleikunum var dagskrá þeirra full-
bökuö. Sömu sögu er að segja af Natalle
Imbrugliu. En öll nótt mun ekki vera úti enn.
Denni Kragh mun standa I viðræðum viö
þýsku töffarana í Ramstein um tónleika
seinna í haust. Ef af því yröi myndu þeir sjálf-
sagt ýta enn á þá Ramstein-vakningu sem ver-
iö hefur hér aö undanförnu.
Helgi
hjálpar
Hrafni
Þegar íbúar
Klapparstígs og
nágrennis' kvört-
uðu yfir hávaða
og óiátum frá
verslunarmanna-
heigarhátlðinni
Halló Klapparstíg-
ur, sem Hrafn
Jökulsson hélt á
bar þar í götu, kom lögreglan og læsti staðn-
um, hátíðargestum til mikillar armæðu. Hrafn
dó ekki ráðalaus frekar en fýrri daginn og
hringdi í vinstrimanninn, vin sinn Helga Hjörv-
ar, sem notaði tækifærið og sýndi og sannaði
hvers megnugur hann er oröinn. Hann sló á
þráöinn til háttsettra manna sem kipptu
þessu í liðinn og sama kvöld var staöurinn
opnaður á ný. Gott aö eiga góöa vini á réttum
stööum, sérstaklega ef þeir eru tilbúnir að
misnota aðstöðu sína.
Asdís Halla
fær bumbu
Ásdis Halla Bragadóttlr, formaöur SUS, er
byrjuö aö bólgna um mittiö. Þaö styður þá
kenningu að hún sé ekki á leiðinni í prófkjör
fýrir alþingiskosningarnar en margir hafa eytt
miklum tíma I aö velta sér upp úr fýrirætlunum
hennar í þeim efnum. Jafnframt mun þessi
kjarnorkukona ætla aö fylgja eiginmanni sín-
um til útlanda þar sem hann hygg-
ur á frekara nám. Nú eru það
greinilega gömlu gildin sem
blíva hjá Ásdísi.