Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1998, Síða 6
matur
Argentína ★★★
Barónsstíg Ua, s. 5519555.
„Bæjarins besta steikhús hefur dalaö. Dýrustu
og enn þá bestu nautasteikur landsins, en ekki
alveg eins innanfeitar og safaríkar og áöur." Opiö
18- 23.30 v.d., 18-3 um helgar.
Einar Ben ★★
Veltusundl 1. 5115090.
„Fremur þemahús en veib'ngahús og leggur meiri
áherslu á umbúðir en innihald. Einar Ben. býöur
yfirleitt ekki upp á vondan mat og verður þvl seint
jafnvinsæll og Fashion Café eöa Planet
Hollywood." Op/ð 18-22.
Café Ópera ★
Lækjargotu 2, s. 522 9499
Opiö frá 17.30 til 23.30.
Fiðlarinn á þakinu ★★★
Sklpagötu 14, Akureyri, s. 462 7100
„Matreiðslan stóö ekki undir háu verði en hún
hefur batnað. Þjónustan var alltaf góð en nú er
of mikið treyst á lærlinga." Opiö 12.30- 14.00
og 18.00-22.00.
Hótel Holt ★★★★★
Bergstaðastrætl 37, s. 552 5700.
„Listasafnið á Hótel Holti ber í matargerðarlist af
öðrum veitingastofum landsins. Þar fara saman
frumlegir réttir og nærfærin matreiðsla, sem ger-
ir jafnvel baunir að Ijúfmeti." Opiö 12-14.30 og
19- 22.30 v.d., 12-14.30 og 18-22 fd. og Id.
Hótel Óðinsvé ★★
v/Óðlnstorg, s. 552 5224.
„Stundum góður matur og stundum ekki, jafnvel
í einni og sömu máltíð." Opiö 12-15 og 18-23
v.d., 12-15 og 18-23.30 fd. og Id.
Ítalía ★★
Laugavegi 11, s. 552 4630.
„Eignarhaldið er rtalskt, kokkarnir eru ítalskir,
gæðaþjónustan er hálfítölsk, vel valið vínið er að
mestu ítalskt og tilviljanakenndar veggskreyting-
arnar eru ítalskar. Það, sem tæpast hangir I
ítölskunni, er matreiðslan. Bakaðar kartöflur og
amerfskar pítsur eru einkennistákn hennar."
Opiö 11:30-11:30.
Játvarður ★★★
Strandgötu 13, s. 4613050.
„Skemmtilega hannaður staður með fínlegri mat-
reiðslu, ef sneitt er hjá fiski, svo og elskulegri
þjónustu sem getur svarað spurningum um mat-
inn." Opiö 11.30-14.00 og 18.00-22.00.
Lauga-ás ★★★★
Laugarásvegi 1,
s. 553 1620.
„Franskt bistró að íslenskum hætti sem dregur
til sín hverfisbúa, sem nenna ekki að elda I
kvöld, barnafjölskyldur utan úr bæ og ferðamenn
utan að landi og frá útlöndum. Hér koma hvorki
uppar né ímyndarfræðingar." Opiö 11-22 og
11-21 um helgar.
Lækjarbrekka ★★
Bankastrætl 2, s. 5514430.
„Matreiðslan rambar út og suður, góð, frambæri-
leg eða vond eftir atvikum. Með annarri hendinni
eru geröar forvitnilegar tilraunir en með hinni er
farið eftir verstu hefðum." Opiö md.-mid.
11-23.30, fid.-sd. 11-0.30.
Mirabelle ★★★
Smlðjustíg 6., s. 552 2333.
„Gamal-frönsk matreiðsla alla leiö yfir í profitero-
les og créme brulée. Mirabelle er komin á gott
skrið." Opiö 18-22.30.
Rauðará ★
Rauðarárstíg 37, s. 562 6766.
Opiö frá kl. 18 og fram eftir kvöldi. Hversu lengi
fer eftir aösókn.
Skólabrú ★★★
Skólabrú 1, s. 562 4455.
„Matreiþslan er fögur og fín, vönduð og létt, en
dálítið frosin. Þjónustan er kurteis og hófsöm."
Opiö frá kt. 18 alla daga.
pii nm rr a
www.visir.is
veitingahús
Krabbameinsfélag íslands ® Félag MND-sjúklinga H Málbjörg | Mígrensamtökin H Fullorðin börn alkóhólista
Stærstu sjúkdómafélögin ■ Samtök lungnasjúklinga Al-Anon Blóðgjafafélag íslands E EA Emotions Anonymous Samtök aldraðra
oci sum beirra smærri Geðverndarfélag (slands ■ Samtök um málefni geðklofasjúklinga J Geðhjálp [J Krabbavörn
Gigtarfélag fslands Alnæmissamtökin á íslandi AA-samtökin Félag nýrnasjúkra
; PKU-félagið á Islandi 12 SSH, samtök hálshnykkisjúklinga
Atak gegn áfengi
MS-félag Islands
Það má lesa ástand þjóðar
á ýmsan veg; með því að
kíkja inn í fangelsin og sjá
hverjum hefur verið vikið
af velli, með því að
gramsa í sorphaugunum
og skoða neysluna eða
með því að sálgreina þá
sem þjóðin hefur hafið upp
til vegs og virðingar.
Ein leið til að komast að
sjálfsmynd þjóðar er að kanna
félögin sem hún gengur í.
Ég er
það sei
að m
Félög koma og fara úr tísku eins
og allt annað. Þau sveiflast með tíð-
arandanum. Um tíma getur þátttaka
í einu félagi verið merki um fram-
faratrú og djörfung en í annan tíma
tákn um afturhald og misskilning á
samtimanum. Upp úr aldamótunum
bjó hér þjóð með óbilandi trú á
sjálfa sig og framtíðina og sem var
sannfærð um að samtaka átaki væri
hægt að umbreyta samfélaginu. Hún
studdi sig við átthagafélögin til að
gleyma ekki upprunanum, stælti sig
og þjálfaði í ungmennafélögunum og
barðist fyrir bættu samfélagi í
verkalýðs- og stjórnmálafélögum.
Nú hafa öll þessi félög ýmist koðnað
niður, breytt um hlutverk og inntak
eða einfaldlega stofnanavæðst. Þau
eru ekki lengur félög í venjulegum
skilningi heldur stofnanir, sem oftar
en ekki þiggja rekstrarfé sitt úr rík-
issjóði og eru að öðru leyti eins og
hluti ríkisvaldsins.
Upp úr seinna stríði urðu til ýmis
félög nýríkra; Félag íslenskra bif-
reiðaeigenda, Félag talstöðvaeig-
enda, Félag íslenskra húseigenda og
þar fram eftir götunum. Á þeim
tíma bjó hér fólk sem hugsaði um
sitt og vildi vernda það sem því
hafði tekist að komast höndum yfir.
Flest þessara félaga um tól og tæki,
eignir og aðstöðu hafa dáið drottni
sínum. Þau sem eftir lifa hafa breytt
sér i eins konar fyrirtæki sem keppa
á samkeppnismarkaði um að veita
félögum sínum ýmsa þjónustu. Þó
heltekur annað slagið einhver
tækjadellan þjóðina svo að hún vill
búa til félag um hana. Þannig er í
Útlaginn eftir
Einar Jónsson.
Hann sneri ekki aftur ^
tii samfélagsins fyrr en
hungur, vosbúö og krankleiki
voru að leggja fjölskylduna aö velliJ .
í dag er þaö einmltt krankleikinn sem
Stuðningsþjónusta geðfatlaðra bJ SA-Nicotine Stomasamtök íslands
■ Heilavemd Astma- og ofnæmisfélagið Samtök sykursjúkra
Félag heyrnadausra B Félag aðstandenda alzheimerssjúklinga
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra Í3 Bergmál, líknar- og vinafélag
Heyrn, styrktarfélag heyrnardaufra I Daufblindrafélag íslands
GA - Gamblers Anonymous Blindrafélagið 11 Öldrunarráð (slands
■ Tourette-samtökin á íslandi Blindravinafélag íslands
I Ný-rödd Þroskahjálp E Stuðningsfélag slasaðra
E3 Einstök börn, stuðningsfélag Félag velunnara Borgarspítalans
Barnavinafélagið Sumargjöf . SÁÁ ii Átak, félag þroskaheftra
I FUÍ - Fötluð ungmenni íslandi ■ Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna
Styrktarfélag vangefinna | Parkinsonssamtökin á íslandi
I Krýsuvíkursamtökin I Umsjónarfélag einhverfra
Breið bros, foreldrafélag Félag hjartasjúklinga | Barnaheill
I Norræn barnahjálp | Landssamtök hjartasjúklinga
I Brúin, félag velunnara Heilsugæslu Kópavogs ■ Félag ungra alka
Hjartavernd 11 NORSAM, norrænu öldrunarsamtökin
NA-samtökin á íslandi 11SEM, samtök endurhæfðra mænuskaddaðra
I Samtök psoriasis- og exemsjúklinga SÍBS
B Styrkur, samtök krabbameinssjúklinga og aðstandenda 9 Lffsvon
id Medic Alert á íslandi I fl Dýraverndunarfélag Reykjavíkur
Félög skráð fyrir 1970
! Félög skráð 1980-1989
j Félög skráð 1970-1979
I Félög skráð 1990-1998
í-wfW
bindur flesta viö samfélagiö, þeir eru í
félagnneþ öörum meö sama sjúkdó
dag til fólk sem finnst of háskalegt
að eiga jeppa eitt og sér og vill leita
stuðnings hjá öðrum sem hafa ráðist
í viðlíka fjárfestingu.
Þegar '68-kynslóðin fór að láta
kræla á sér spruttu upp félög sem
byggðu á félagslegum grunni. Rauð-
sokkur börðust fyrir réttindum
kvenna, Félag einstæðra foreldra
átti sinn blómatíma, Leigjendasam-
tökin voru stofnuð og Samtökin '78,
samtök homma og lesbía, hjálpuðu
fólki út úr skápnum. Fólk stofnaði
félag um rekstur barnaheimila og
þeir sem urðu illa úti vegna verð-
tryggingar lána stofnuðu Sigtúns-
hópinn. Á þessu tímabili bjó hér
fólk sem vildi mýkja upp samfélagið
með virkri þátttöku fólks í því en
með örfáum undantekningum eymir
vart eftir af þessum félagslega
blómatima í dag. Hann fólnaði með
blómabömunum. Ríkið yfirtók nær
öll verkefni þeirra. Þegar samkyn-
hneigðir fá sérstaka deild í félags-
málaráðuneytinu verður þessum
kafla lokið.
Sú gerð félaga sem einkennir okk-
ar tíma eru sjúkdómafélög. Á síð-
ustu tveimur áratugum hefur verið
stofnað félag um nánast hvem þann
krankleika sem hrjáð getur mann-
skepnuna. Áður en áttundi áratug-
urinn rann upp áttu blindir, heyrn-
arlausir, lamaðir og fatlaðir sin fé-
lög en í dag eiga spilaflklar, exem-
sjúklingar og meira að segja slasað-
ir sitt sérstaka félag. Fólk virðist í
ríkara mæli sækja sjálfsmynd sína í
það sem hrjáir það líkamlega en
ekki félagslega stöðu sína, eins og
fyrir nokkrum árum, eða eignir sín-
ar og aðstöðu eins og eftir stríð. Þess
síður gengur það í félög um framtíð-
arsýn, mannræktun eða von um
réttlátara samfélag eins og aldamó-
takynslóðin. í dag er fólk ekki það
sem vill verða, ekki það sem er og á,
ekki endurspeglun félagslegrar
stöðu sinnar heldur fyrst og fremst
það sem er aö þvi - frávikið frá ein-
hverju ímynduðu líkamlegu normi.
Við lauslega athugun á skrá Hag-
stofu íslands yfir líknar- og stuðn-
ingsfélög kom í ljós að fjöldi svona
sjúkdómafélaga hefur margfaldast á
undanförnum árum. Ef aðeins eru
tekin helstu félögin og einstökum
byggðarlagafélögum sleppt (Krabba-
meinsfélag Siglufiarðar og þar fram
eftir götunum) þá kemur í ljós að í
upphafi áttunda áratugarins voru
þau ellefu en í lok hans voru þau
orðin 24. Fjöldinn hafði meira en
tvöfaldast. Á níunda áratugnum
bættust síðan við 19 félög og á þeim
tíunda önnur 28. Ef byggðarlagafé-
lögin væru tekin með þá væri þessi
þróun nánast beint strik upp á við,
því nánast öll stærri félögin hafa
kvarnast niður í litlar deildir í nán-
ast hverju einasta krummaskuði á
landinu.
Starfsemi þessara félaga er oftast
tvískipt. Annars vegar veita þau fé-
lögum sínum stuðning með sam-
skiptum við þá sem bera sama sjúk-
dóm. Hins vegar þrýsta þau á ríkis-
valdið um viðurkenningu á sérstöðu
hinna sjúku og auknum fiárveiting-
um til aðhlynningar þeirra.
Ef uppsveifla sjúkdómafélaganna
segir eitthvað um þjóðina þá er ljóst
að hún á bágt. Hún er náttúrlega
ekkert veikari en áður heldur hefur
hún þvert á móti aldrei verið heil-
brigðari. En hún hefur aldrei fyrr
verið svo upptekin af krankleika
sínum að hann sé henni drifkraftur
félagslegrar þátttöku og helsta
áhugamál.
Pasta Basta ★★★
Ljúfir hrísgrjónaréttir
Meyr smokkfiskbelgur fylltur
mildri krabbakjötsblöndu og síðan
sneiddur, borinn fram á undurljúf-
um risotto-hrísgrjónagraut, var
dæmi um góð tilþrif í eldhúsi Pasta
Basta við Klapparstíg. Annað dæmi
var einfalt og ljúft risotto með gráð-
ostssnerpu í bragði, borið fram með
fallegri salatskreytingu.
Hrísgrjón mynda samt ekki ein-
kennisrétti staðarins, heldur ótelj-
andi tilbrigði af góðum pöstum sem
lagaðar eru á staðnum. Sedani-
pastarör voru skemmtilega hóflega
soðin upp á ítölsku, með bragðsterk-
um kryddpylsubitum, papriku,
sveppum og vorlauk í óhóflega mik
illi ólífuolíu.
Pastahrósið nær ekki til 890 króna
hlaðborðsins í hádeginu, sem byggist
á fems konar köldum pöstum með
blönduðum sjávarréttum, með tún-
fiski, tómati og rauðlauk, með
kjúklingum og sveppum og með
kryddlegnu hrásalati. Betra var að
halla sér að fersku og skrautlegu
blaðsalati með balsam-olíusósu og
hlutlausu fiski-risotto með parmiggi-
ano-osti. Hiaðborðinu fylgdi lika tær
tómatsúpa, sérkennilega og skemmti-
lega skarpt krydduð með blóðbergi,
basilikum og estragon.
Þríréttað tilboð dagsins kostar
2.380 krónur. Það fól í sér áðumefnt
gráðosts-risotto á undan og þrenns
konar ís í stökkri pönnuköku með
berjasósu á eftir. Aðalréttur þess var
hunangsgljáð kjúklingabringa, of
mikið elduð og ekki nógu meyr, bor-
in fram ofan á ómerkilegum bauna-
og grænmetisgraut, fljótandi á miklu
magni af brúnni sósu og með skúffu-
steiktum kartöfluþynnum og ein-
fóldu hrásalati á hliðardiski.
Snöggsteikt hörpuskel var meyr,
borin fram á afar ljúfu sítrónu- og
hunangs-risotto. Kryddlegið nautafil-
let á salati, með furuhnetum og hind-
berja-ediksolíu, var tæpast nógu
mikið legið, borið fram með fallegri
salatskreytingu. Feneysk ostakaka
skúffulöguð var góð að venju, en bor-
in fram með miklu magni af óþarfri
súkkulaðisósu volgri. Franskar
vatnsdeigsbollur profiteroles með
vanillukremi og sömu volgu
súkkulaðisósunni voru þær beztu,
sem ég hef fengið í bænum.
Fyrir mat er boðið ágætt og volgt
brauð, bakað á staðnum. Snöggtmn
lakara var harðristað hvítlauks-
brauð. Réttir af fastaseðli eru yfir-
leitt dýrir, pöstu á 1520 krónur og
þríréttað með kaffi á 3.610 krónur.
Þrátt fyrir verðlagið eru notaðir af-
gangar af mislitum og and-ítölskum
pappirsþurrkum úr barnaboðum.
Lítt skólað þjónustufólk er sumt
hvert of uppáþrengjandi, truflar sam-
ræður gesta með sífelldri spurningu
um hvernig maturinn sé.
Umgerð staðarins hefur lítið
breytzt. Fremst er þröngur, grodda-
legur og notalegur kjallari framan
við opið eldhús, með messingi milli
„Glerskálinn er orðinn notalegur
síðan gróðurhafið náði sér upp.“
bása, landakortum í stað veggfóðurs,
ýmsu rusli til skrauts á veggjum og
nýlegum örljósum í lofti. Inn af er
glerskáli sem orðinn er notalegur
síðan gróðurhafið náði sér upp. Innst
er svo tjaldskáli sem tekur við reyk-
ingafólki, sjálfhverfum leiklistarspír-
um og öðru yfirfalli staðarins.
Jónas Kristjánsson
6
f Ó k U S 14. ágúst 1998