Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1998, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1998, Qupperneq 8
lítilmennska „Einu sinni voru hér í Reykjavík virkilega ógeðslegar búllur sem voru frægar fyrir drykkjulæti og svall. Seint um kvöld eitt árið 1936 gengum við vinur minn niður Hverfisgötuna og þá var verið að hreinsa út af einni búllunni. Út ultu sjö enskir sjóliðar sem allt í einu réðust á okkur. Við vörðum okkur að sjálfsögðu og börðum frá okkur alveg þangað til við komum niður á Vatnsstíg. Barst okkur þá íslenskur liösauki sem tók einn Englendinginn upp og henti hon- um beint á hausinn. Þá fannst okk- ur nóg komið, slagsmálin hættu og Englendingarnir komu sér í burtu. Einn sjóliðinn gleymdi þó húfunni sinni og ég hirti hana upp. Daginn eftir fórum við að ímynda okkur að hann gæti fengið bágt fyrir að týna húfunni. Við fórum því niður á höfn í þeim tilgangi að skila henni. Á endanum urðu svo allir ofsalega góðir vinir og við félagarnir feng- um meira að segja súkkulaði hjá dátunum og skoðuðum allt skipið. Þarna var barist af karlmennsku og sæst á eftir eins og sönnum karl- mönnum sæmir,“ segir Guðmund- ur Arason sem er hnefaleikamað- ur, langafi og allt þar á milli. Hann hefur boxað síðan Hitler komst til valda, baröist sjálfur í hringnum í tuttugu ár og þjálfaði upp 58 íslandsmeistara fyrir Ár- mann. Þá hefur skák líka spilað stóra rullu í lífi hans um dagana og árlega er haldið skákmót sem ber nafn hans. Guðmundur einn stærsti stálinnflytjandi landsins, teflir enn og lætur sér ekki detta í hug að hætta að boxa. Klækir og brögð „Hnefaleikar eru list. Það eina sem ég hef áhuga á í lífinu eru hnefaleikar og skák. Fljótt á litið virðast þessar íþróttir ólíkar en þegar betur er að gáð kemur í ljós að þær eru merkilega líkar. í þeim nota menn klæki og brögð til að knésetja andstæðinginn. Þeir verða að hafa nokkuð góðan heila og vera slóttugir. Það er heldur ekki sama hvaða hugarfar maður hefur gagn- vart andstæðingi sínum. Þeir verða að bera virðingu hvor fyrir öörum enda væru þeir hvorki að tefla né berjast ef þeir væru ekki jafnir að getu.“ Eins og nærri má geta er Guð- mundur ekki hress með að hnefa- leikar skuli vera bannaðir á ís- landi. Hann segir íþróttina vera langt því frá hættulega, þvert á móti gæti hún bætt hegðan ungra manna sem laus er höndin. „Mér þykir leitt að það sé búið að banna þetta. Ég bara skil það ekki. Þessi íþrótt er iðkuð um aÚan heim. ísland er eina landið sem bannar hana og ég veit ekki af hverju. Hnefaleikar hafa aldrei gert neinum neitt alvarlegt og það er ekki hægt að finna á sjúkra- skrám að nokkur maður hafi meitt sig alvarlega í hnefaleikum hér á íslandi. Reyndar meiddi einn mað- ur sig á fingri sem gerði það að verkum að hann gat ekki leikið á lúður sem áður. Það er talaö um að 60 prósent knattspyrnumanna meiði sig og 12 prósent handknatt- leiksmanna. Af hverju er þá boxið bannað?“ Prakkarinn sem mannaðist „Karlmennskuna vantar f unga menn í dag. Það er einhver and- skotinn hlaupinn í mannskapinn núna. Manni er gefið á kjaftinn og hann liggm- í götunni. Þá er byrjað að sparka I hann sem er ógeðfellt og lítilmannlegt. Út úr kortinu. Þetta er aumingjaskapur og ekkert annað. Enginn hnefaleikamaður gerir svona hluti. Það er útilokað. Þess vegna væri nær að leyfa ungum mönnum að fá útrás í hnefaleikum þar sem þeir læra að berjast og fá nóg af slagsmálum inni í hringnum. Fyrir fjórum árum fór til dæmis að vinna hjá mér strákur sem var prakkari og vandræðagemsi sem hafði flosnað upp úr skóla. Ég fór að kenna honum hnefaleika og í ljós kom að hann hefur allt sem þarf til að bera til að vera góður hnefaleikamaður. Mig langar mik- ið að fara út með hann til Rotter- dam og leyfa honum að keppa. Hann hefur mannast svo mikið og á lítinn strák sem hann elur að mestu leyti upp sjálfur og gerir það virkilega vel. Hann er reglusamur og er farinn að læra köfun. Hann er gerbreyttur maður og ég er hreykinn af honum. Ég þakka þetta hnefaleikunum því þar fékk hann tækifæri til að fá rasa út,“ segir Guðmundur. Dónalegir í dansinum Boxið hefur líka gert Guðmundi gott. Hann segir að það hafi eflt hann til að gera ýmsa hluti sem hann hefði annars ekki gert. Traust hans á sjálfum sér þakkar hann boxinu og líkir þvi við herskóla. „Það vantar hérna herskóla. Það þarf að koma einhverju slíku upp sem stabilíserar menn. Mér finnst ungir menn vera ókurteisir. Ef við berum saman amerískan mann sem ávarpar einhvem, segir hann gjarn- an „sir“ á eftir. Enginn íslenskur maður myndi segja „herra“ við ein- hvern sem hann væri að tala við. Mismunurinn á ungu mönnun- um núna og okkur sem voram einu sinni ungir er mikill. Hér áður Guðmundur Arason er ekki bara einn mesti töffari sinnar kynslóðar heldur allra annarra kynslóða líka. ygjijer sjötíu og nu^ra, veit ekkert skemmtilegra en að boxa, segir aumingjaskap vera hlaupinn í unga menn sem séu upp til hópa ókurteisir og skorti auk þess alla karimennsku. jgjjj fyrirlítur slagsmál götunnar sem eru að verða æ ógeðfelldari og segir að ef ástandið eigi að batna dugi ekkert minna en herskóli. hneigðu menn sig fyrir dömum þeg- ar þeir buðu þeim upp í dans. Eftir dansinn fylgdu þeir þeim svo aftur til sætis og þökkuðu fyrir dansinn. Nú benda ungir menn á dömumar og skipa þeim að koma út á dans- gólfið. Eftir dansinn flýja þau svo hvort sína leið. Mér finnst þetta dónalegt. Reyndar held ég að kven- fólkið eigi líka þátt í því að svona er komið fyrir samskiptum kynj- anna.“ Davíð eini stjórnmálamaðurinn Við ungt fólk vill Guðmundur segja: „Þið eigið að teíla og fást við tón- list. Alveg sama hvernig tónlist. Tónlist hefur góð áhrif á heilasell- umar og skák er íþrótt hugans. Þið notið líka of mikið áfengi. Það er hættulegt. Ég drakk ekki þegar ég var ungur. Ég tók hlutverk mitt sem hnefaleikaþjálfari alvarlega og reyndi þess vegna að vera góð fyr- irmynd. Mér gekk vel.“ Guðmundur hefur ekki bara skoð- anir á ungu fólki og hnefaleikum. Stjórnmálamenn sleppa ekki heldur. „Það er mikill tvískinnungur í þjóðfélaginu og stjómmálamenn... ja, Davíð Oddsson er eini almenni- legi stjórnmálamaðurinn. Ég þekki hann mjög vel og hann er að mínu mati eini stjómmálamaðurinn sem við eigum. Það ber ekki mikið á honum, hann hefur hægt um sig, kemur fram þegar á þarf að halda og sker úr málunum. Ég hef mjög mikið álit á honum. Það er eins og allir aðrir stjóm- málamenn séu komnir af skútukörlum, haga seglum eftir vindi en venjulega fara þeir allir í öfuga átt. Það er eini munurinn á þeim og gömlu skútukörlunum." Guömundur, ertu töffari? „Ef ég er töffari hef ég orðið það með aldrinum því þegar ég var img- ur var ekki mikið um þessar gerðir manna. Þá vora allir fátækir og ég var eins og aðrir strákar, reddaði mér bara. Mér hefur vegnað vel í lífinu og get nú gert það sem mig langar tO að gera. Ég læt fjölskyld- una mína njóta þess og reyni að láta gott af mér leiða. Sumir álita mig voða góðan dreng og ég reyni bara að vera það.“ -ILK f Ó k U S 14. ágúst 1998 8

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.