Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1998, Qupperneq 10
Ekki
leiðinlegt
að vera
Puffy Daddy rakar inn seðlunum þessa dag-
ana. Hann fær álitlega upphæð fyrir
æviminningar sínar sem eiga að koma út á
bók á næsta ári. Mikal Gilmore, sem hefur
skrifað mikið fyrir Rolling Stone-tlmaritið,
skráir sögu Puffys. Bðkin verður, auk þess
að vera ævisaga, leiðbeiningar um það
hvernig á að brjótast undan sárri fátækt og
höndla ameríska drauminn, en það hefur
Puffy einmitt gert af skörungsskap.
Tveim dögum eftir að fréttist af ævisög-
unni bárust fregnir um að fyrirtækið BMG
hefði látið hinn 28 ára rappara fá litlar 40
milljónir dala f bónusgreiðslu þvf undirfýrir-
tækið Bad Boy, sem Puffy stjórnar, gengur
svo vel. Auk þess aö vera sívaxandi rappmó-
gúll hefur Puffy fært út kvíarnar í ýmsar átt-
ir. Hann leikur á móti Al Pacino í nýju Oliver
Stone-myndinni, „Any Given Sunday", ætlar
að setja f gang fatalíriuna „Sean Jean" á
komandi vori, hefur flárfést í tískublaðinu
Notorious, á matsölustað og er aö spá f að
fjárfesta f 12 hæða blokk á Manhattan.
Meö fram öllu vafstrinu tókst honum að
kaupa sérgamlan Bentley-kagga, sem Puffy
segir að sé fyrsta gjöfin sem hann gefur
sjálfum sér. „Ég er að reyna að gera það
sem engum ungum svörtum manni hefur
tekist áður. Og ég bið til guðs að það sem
ég er að gera hafi jákvæð áhrif á fólk,"
sagði hann nýlega á leið f bankann.
vil deila því meö heiminum," segir
Lauryn Hill.
The Fugees
í sólóbauki
Söngkona og rappari The Fugees, Lauryn
Hill, boðar sólóplötuna „The Mis-education
of Lauryn Hill" seint f september. Þegar hef-
ur Wyclef Jean úr Fugees gert sólóplötu
sem gerði það gott og sólóplatan „Ghetto
Superstar" frá Pras Mlchael - þriðja hjólinu
f Fugees - er væntanleg f október. Flestir
eru þó spenntastir yfir sólóplötu Lauryn.
Hún hefur ekki setið aðgerðalaus síðan hún
söng kasólétt fyrir þá sem komu að sjá Fu-
gees í Laugardalshöll. Fyrir utan að fæða
soninn Zlon (Rohan Marley, sonur Bobs, er
faðirinn) hefur hún unniö með Arethu
Franklln að músík og myndböndum og svo
auðvitað gert nýju plötuna, sem tjaldar
bæði rappi, ballööum og blús og Mary J.
Bllge og D'Angelo, sem eru sérstakir gest-
ir hennar. Lauryn notar nær eingöngu lifandi
hljóðfæraleik á plötunni. Útgefendur hennar
sjá fram á 7-8 milljón eintaka sölu, en vin-
sælasta plata The Fugees, „The Score",
hefur selst f 17 milljón eintökum.
„Músík gefur tóninn fyrir kynslóðirnar og
ég hef saknað einlægrar tónlistar lengi,"
segir Lauryn. „Hestir eru hræddir við að
sýna sitt rétta andlit. Ég er mjög venjuleg.
Ég finn bæði fyrir gleði og sorg og vil deila
þvf með heiminum. Ég var ekki að leita að
fullkomnun á plötunni heldur tilfinningu og
ég náði þeirri tilfinningu sem ég var aö leita
að.“
The Fugees hafa langt f frá lagt upp
laupana þó meðlimirnir séu um þessar
mundir að bauka hver í sínu horninu. Ný
plata með grúppunni er á teikniborðinu fyrir
næsta ár og er vinnsluheitið „Class
Reunion 1999".
Til iSöJjjdtes
„Ég vorkenni blaðamönnum sem
þurfa að skrifa um okkur,“ segir
Tom Gray, marghljóðfæraleikari í
Gomez, „ekki myndi ég vita hvað
ætti að skrifa."
Ég þakka hugulsemina. Gomez er
fimm manna band frá Yorkshire.
Þeir eru rúmlega tvitugir en hljóma
eins og þeir séu fertugir, án þess þó
að vera eitthvað minna ferskir fyrir
vikið. Þeir höfðu bara verið starf-
andi í ár þegar stóru hljómplötufyr-
irtækin á Englandi slógust um þá.
Þetta eru háskólastrákar sem kynnt-
ust í skólanum. Sumir útskrifuðust,
aðrir hættu bara og nú búa þeir all-
ir saman í íbúð með sameiginlegt
plötusafn, sukka eins og ungir ein-
hleypir menn og höfðu samið og tek-
ið upp 70% af fyrstu plötunni sinni,
Bring It on, þegar Hut-útgáfan
(Smashing Pumpkins og The Verve)
vann fyrirtækjaslaginn og fékk
bandið á sitt band. Platan er stórgóð
og skemmtileg og hefur alls staðar
fengið æpandi góða dóma.
Vandamálið er að ómögulegt er
að flokka Gomez. (Er það vanda-
mál?) „Þetta er fyndið. Sumir halda
að við séum folkband, aðrir segja að
við séum blúsband, margir halda að
við séum gamalt amerískt kán-
trírokkband, fólk vill m.a.s. kalla
tónlistina prog-rokk. Það er frábært
að enginn veit á hvaða íjandans bás
á að setja okkur - og það er einmitt
lóðið."
Áhrifavaldarnir eru sem hér seg-
ir: Tom Waits, Tim Buckley, Dr.
John, Beck, Grateful Dead, Marvin
Gaye, Charles Mingus, Ben
Harper, Otis Redding, John
Coltrane, Beach Boys, Miles Dav-
is, George Gershwin, og þetta er
bara byrjunin. „Við hlustum á
ALLT. Ástæðan fyrir því að fólk
mun halda áfram að líkja okkur við
gamla tónlist er melódíkin í tónlist
okkar. Þú átt víst ekki að geta samið
melódíska tónlist á meðan þú ert
ungur.“
Gomez-drengirnir hafa líka verið
sakaðir um að vera „retro“ - með
gamlan hugsunarhátt - en þeir neita
auðvitað öllum sakargiftum. „Það er
ekkert retro við það t.d. að fila blús
það er ekki retro-hugsunarháttur.
Ef við hefðum farið í hljóðver með
einhverjum smartífartí hljóðstjórn-
anda hefði útkoman orðið næntís-
leg en við gerðum þetta sjálfir og
svona vildum við að platan hljóm-
aði.“
Gomez á sér háleit markmið, eins
og að „endast vel“, „gera helling af
frábærum plötum í viðbót" og
„verða vörumerki fyrir góða tón-
list“. Aldamótin nálgast og kannski
er hugsunarhátturinn hjá Gomez
einkennandi fyrir glundroðann og
margstefnuna í poppheiminum;
„Við getum tekið allan fjandann úr
öllum fjandanum og gert við það
sem okkur sýnist, leikið okkur með
það án annmarka. Við segjum til
fjandans með allar fyrir fram
ákveðnar skilgreiningar. Og það er
rokk og ról attitjútið í hnotskurn."
-glh
íslenski
NR. 285
[ i S 1: i n n [
vikuna 13.8-20.8. 1998
Siftl Vikur LAG
FLYTJANDI 6/8 30/7
1 7 1 D0NTWANTT0 MISS ATHING ... AERÖSMITH 2 4
2 4 1NTERGALACTIC BEASTIE B0YS 9 6
3 7 COME WITH ME PUFF DADDY & JIMMY PAGE 5 3
4 5 DEEPER UNDERGR0UND JAMIR0QUAI 3 2
5 5 DRINKING IN LA BRAN VAN 3000 7 7
6 4 LIFE DES'REE 10 21
7 10 SPACE QUEEN 10 SPEED 1 2
8 6 REALG00D TIME ALDA ÓLAFSDÓTTIR 8 25
9 5 1 THINK l'M PARANOIS GARBAGE 6 5
10 3 ABANIRI . .PÁLL ÓSKAR & CASIN0 4 8
11 2 VIVA F0REVER SPICE GIRLS 18 -
12 1 ANGEL MASSIVE ATTACK ■ N Ý T T
13 6 GETIT0N REAL FLAVAZ 11 9
14 4 HALTUMÉR GREIFARNIR 25 31
15 2 SAINTJ0E 0NTHE SCH00LBUS ... ... .MARCY PLAYGR0UND 33 -
16 4 IMMORTALITY CELINE DI0N 17 18
17 3 YOU'RE MY HEART, YOU'RE MY S0UL M0DERN TALKING 19 19
18 6 THEB0YISMINE BRANDY & M0NICA 15 9
19 5 TERLÍN LAND 0G SYNIR 16 13
20 1 TIME AFTERTIME IN0J 1 M V T T 1
21 1 AN0THER 0NE BITES THE DUST ... QUEEN 40 -
22 3 1 D0NTWANTT0KN0W LH00Q 21 39
23 4 0RIGINAL . .SÁLIN HANS JÓNS MÍNS 14 14
24 4 CRUSH JENNIFER PAIGE 12 32
25 4 ÉG ER BARA EINS 0G ÉG ER STUOMENN 24 24
26 3 THE X-FILES THEME ... .THE DUST BR0THERS 13 12
27 5 CRUEL SUMMER ACE 0F BACE 26 27
28 5 DAGURl B0TNLEÐJA 20 29
29 3 L0VELY DAZE DJ JASSY JEFF & FRESH PRINCE 29 40
30 5 BECAUSE WE WANTT0 BILLIE 32 35
31 2 L0ST IN SPACE ... .APP0LL0 F0UR F0RTY 31 -
32 7 S0 AL0NE BANG GANG 28 16
33 6 NATURALLY MAGGA STÍNA 22 n
34 6 LIFEAINTEASY CLE0PATRA 30 30
35 1 SILÍK0N SKÍTAMÓRALL I M V T T I
36 3 PERFECT ... .SMASHING PUMKINS 23 17
37 2 ALL AB0UTTHE M0NEY MEJA 35 -
38 1 STRIPPED RAMMSTEIN InýttI
39 2 1 BEL0NGT0Y0U LENNY KRAVITZ 28 -
40 1 ÉG ÆTLA AÐ N/ELA í ÉIG .SÖNGLEIKURINN GREASE In ý'ttI
Taktu þátt í vali listans
í síma 550 0044
íslenski listinn er samvinnuverkefni Bylgjunnar og DV. Hringt er
í 300 tll 400 manns á aldrinum 14 til 35 ára, aF öTlu landinu.
Einnig getur fdlk hringt f síma 550 0044 og tekiö þátt f vall
listans. íslenski listinn er Frumfluttur á Fimmtudagskvöldum á
Bylgjunni kl. 20.00 og er birtur á hverjum Föstudegl f DV. Ustinn
er JaFnFramt endurFluttur á Bylgjunnl á hverjum laugardegi kl.
16.00. Ustinn er birtur, aö hluta, f textavarpi MTV sjónvarps-
stöðvarinnar. íslenski listinn tekur þátt f vali „World Chart" sem
Framleiddur er aF Radio Express f Los Angeles. Bnnig hefur hann
áhrif á Evrdpulistann sem birtur er f tónlistarblaðinu Music &
Media sem er rekið aF bandarfska tdnlistarblaðinu BiHboard.
Yfirumsjón me8 skoöanakðnnun: HaTldóra HauksdótUr - Framkva*md könnunan MarkaSsdelld DV - Tölvuvinnsla: D6d6 - Handrlt, helmildaröflun og
yfirumsjdn meí framlelðslu: Ivar Guímundsson - Taeknistjóm og framleiðsla: Þorstelnn Ásaeirsson og Rráinn Steinsson - Utsendingastjóm:
Ásgeir Kolbelnsson og Jóhann Jóhannsson - Kynnlr f útvarpi: Ivar Guðmundsson
ILJ-1 r;1 >•>11 ■ -1 < ^ 11 -'.1' n -i -.. j11 - - " ....... 1 " 1 1...............l-L....................-....... •' »{ —
plötudómur
Allt í áttina
í fyrrasumar komu Spírur og nú
eru þær orðnar Kvistir. Böndin frá
því f fyrra hafa þó ekki trénað held-
ur vaxið og dafnað og ný bæst við.
Yfirbragðið er rokkað, með öngum
út í tölvupopp, flest böndin komin
upp á yfrrborðið með útvarpsspilun
og vinsældum en sum enn í mold-
inni.
Maus er eina bandið sem fær að
vera með tvö lög. „Allt sem þú lest
er lygi“ er gott rokklag, neglt í bak
og fyrir með þykkum gíturum og
sprellandi þéttum trommuleik Dan-
íels, sem ég lýg ekki að sé að verða
einn sá þrumuþéttasti í rokkbrans-
anum. Þetta er e.t.v. besta lag Maus
til þessa og sýnir fram á bjarta
framtíð. „(Inn í) Kristalnótt" er óraf-
mögnuð útgáfa af gömlu lagi og bæt-
ir engu við nema kannski vissunni
um að Maus getur spjarað sig i raf-
magnsleysi. Móu-lagið, „Memory
Cloud“, er gott popp. Hún syngur
það eins og hún hafi gleypt loft úr
nokkrum helíumblöðrum og hljóm-
ar eins og afkvæmi Earthu Kitt og
Æðstastrumps. Maður meikaði
kannski ekki heila plötu í þessum
stíl en eitt lag er sniðugt. í svipuð-
um jakkafata tölvupoppsanda eru
Barði og Esther Talía; Bang Gang.
Eftir smávegis fikt við brimbretta-
poppið hefur bandið nú hreiðrað um
sig á vinnustofu Portishead en er
langt í frá hermikrákur og getur
samið grípandi lög með hjálp nýj-
ustu tölvutækni. „So alone?“ er
glimrandi dæmi um þetta. Gusgus
er með rafmagnsgræjaða útgáfu af
Depeche Mode-lagi sem Daníel
hvíslar aðframkominn í falsettu
beint úr sundhettunni eins og hann
hafi rétt áður synt yfir Hvalfjörð.
Flott, en kannski eins og pantað upp
úr vörulista frá „Nýjustu græjum
ehf‘. Græjumar eru mun eldri hjá
Stjörnukisa en hljósveitin bætir það
upp með krafti og spilagleði.
„Krómósóm" er beint framhald af
því sem tríóið hefur áður gert, blóð-
ugt fónk og pönk á skurðarborði.
Quarashi rappar oná áöur^óradd-
að lag, „Loud!“ Ekki veit ég hvaðan
samplið, sem notað er í millikaflan-
um, kemur en höfundar þess ættu
að fá kredit þvi það „gerir“ lagið.
Annað er rakur trommutaktur,
bassi og óskiljanlegt rappraus. Þetta
er undir meðallagi hvaö Quarashi
varðar en að öðru leyti eitt
skemmtilegasta lag disksins. Mér
hefur alltaf fundist Vínyll vera að
Ýmsir flytjendur
-Rvistir ★★★
>rAllt sem þú lest er lygi er
gott rokklag, neglt í bak
og fyrir með þykkum gíturum
og sprellandi þéttum trommuleik
Daníels, sem ég lýg ekki að sé
að verða einn sá þrumuþéttasti
í rokkbransanum.“
gera skemmtilega hluti (eftir fremur
leiðinlega byrjun sem Tjalz Gissur)
og „Vera“ er engin undantekning.
Lögin hjá Vínyl eru hlaðin af frjóum
hljóðfæraleik og fínpússi; þetta eru
smekkmenn sem ofhlaða aldrei.
Pornopop gaf út tvöfalda plötu
fyrir síðustu jól sem átti spretti, en
„Trumpef ‘ hleypur beint í fangið á
Robert Smith og hljómar of líkt
The Cure til að geta verið tekið
mjög alvarlega. „Ég dræpi sjálfan
mig fyrir þig“ syngja klámpoppar-
arnir á ensku og jafnvel Robert
Smith var aldrei svona vesæll. Port
hamrar gítarana í frekar ósannfær-
andi og lufsulegum popppælingum
og Dagbók NN - eina glænýja band-
ið á Kvistum - hefði alveg mátt
þroskast lengur inni í bílskúr.
200.000 naglbítar bíta frá sér í
hefðbundinni gítarkeyrslu, minna
rosalega á eitthvert amerískt rokk -
kannski Lemonheads - en eru í
góðri verkfærageymslu og trúandi
til að glefsa í nýjar og framandi átt-
ir. Það er Bellatrix byrjuð að gera;
hefur fengið forritara í lið með sér
til að hræra í rokkinu sem var dálít-
ið byrjaö að staðna hjá þeim. „A
sting“ er sætt popplag og kannski
engin bylting hjá Kolrössum, en í
áttina. Kannski má segja það sama
um þessa plötu; Kvistir eru ekki
byltingakennd safnplata, en þetta er
allt í áttina.
Gunnar Hjálmarsson
f Ó k U S 14. ágúst 1998