Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1998, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1998, Blaðsíða 11
popp Gunnar Bjarni Ragnarsson, höfuðpaur Jet Black Joe, er að feta sig aftur inn Maður í manns stað Kaffi Reykjavík. Hljómsveitin 8-vlllt spilar í kvöld og annað kvöld en á sunnudags- og mánudagskvöld ætlar Eyjólfur Krlstjánsson að gleðja gesti með spili og söng. Á eftir Eyjólfi á sunnudagskvöld taka Grétar Örvars og Bjarnl Ara við en á mánudagskvöldiö ætlar Bubbl Morthens að leysa hann af hólmi. Bubbi mæt- ir svo aftur á miðvikudagskvöld sem og aðrir tónlistarmenn. Engin smá tónlistarveisla á Kaffi Reykjavík um jiessar mundir. Catalina í Kópavogi. Anton Kroyer og Elín spila í kvöld og annað kvöld. Café Amsterdam. DJ. Blrdy tryllti gesti Amsterdam um verslunarmannahelgina meö einstökum skemmtiatriðum og ætlar nú að halda áfram, bæði í kvöld og annað kvöld. Kaffileikhúsiö. I kvöld er efnt til dansleikjar í anda Hótel Borgar um og eftir seinna stríð. Djasssöngkonan Þóra Gréta Þórisdóttlr ætlar að flytja tónlist þessa gullaldartímabils djass- ins. Boðið er upp á máltíð þessu samhliða og hægt veröur að úða í sig hvítlauksristaða humarhala í koníakssósu undir tónunum. Naustkjallarinn. Plötusnúöurinn Skugga-Bald- ur er alveg frábær og hann verður á staðnum í kvöld og annað kvöld, hættir ekki aö þeyta skíf- urnar fyrr en klukkan þrjú. Á fimmtudagskvöld veröur svo dansaöur línudans í Naustkjallaran- um. Fógetlnn. í kvöld leikur Blái fiðrlngurlnn fyrir Fógetafólk meö BJörgvln Gíslason í broddi fylk- ingar en næstu tvö kvöld á eftir spilar blú- stöffarinn Marty Hall frá Kanada. Álafoss föt bezt. Hin íöilfagra sænska blómarós Tlna Stenberg er ekki bara fögur heldur getur hún líka spilað á gítar og sungið eins og engill. Þessi fegurðardrottning frá Sví- þjóð semur lögin sín sjálf og verður þarna í Mosfellssveitinni i kvöld og annað kvöld. Hún hefur upp raust sína á miðnætti og það kostar bara sexhundruðkall að hlýða á hana. Gaukur á Stöng. Hljómsveltin Hunang verður á Gauknum í kvöld en á morgun og mánudags- kvöld verða þar Blúsmenn Andreu. Ingólfscafé. Gumml Gonzales þeytir skífur bæði djammkvöldin. Grand Hótel v/Sigtún. Gunnar Páll leikur og syngur fyrir hótelgesti í kvöld og annað kvöld. Café Romance. Söngvarinn og leikarinn Glen Valentlne skemmtir gestum þessar vikurnar með kvöldverðartónlist. Fjaran. Það verður ekki dónalegt að snæða góðan mat undir rómantískum tónum Jóns Möllers píanóleikara. Gullöldln. I kvöld og annað kvöld leika félag- arnir Svensen & Hallfunkel. Krlnglukráln. Léttir sprettlr er gott úthald. i gær, í kvöld, annað kvöld og á sunnudaginn spilar hún á Krínglukránni. Ómar Dlðriksson er I Leikstofunni. Næturgallnn. Stefán P. og Pétur ásamt gestasöngkonunni Önnu Vllhjálms leika í kvöld og annað kvöld. Slr Ollver. Blúskvöld í kvöld og á morgun með Barflugunni. Á sunnudagskvöldið verða svo Pétur Örn Guðmundsson, Karl Olgelrs og Vilhjálmur Goði með skemmtiatriöi. Lelkhúskjallarlnn. Eftir örstutt sumarfrl er Stjórnin nú komin á fullt og kætir gesti kjallarans í kvöld. Á morgun verður það hins vegar útvarpsmaðurinn Slggl Hlö sem sér til þess aö fólki leiöist ekki. Sveitaböll Inghóll á Selfossi. Greifarnir með dansleik í kvöld. Stapinn I Njarðvik. Grelfarnlr með dansleik annað kvöld. Bylgjulestarball. Veltingastaðurinn í Munaðarnesl. Fjölskyldu- tónleikar með Bubba Morthens á sunnudag- inn klukkan þijú. Kóngurinn er í ótrúlegu formi. Kostar ekkert inn. Víðihlíð í V-Hún. Stórdansleikur með hinum sívinsæla Gelrmundl Valtýssyni annað kvöld. Boðlnn á Stöðvarfirði. Djassband Árna ís- lelfs verður með tónleika á þessu ágæta veit- ingahúsi í kvöld. Hella. Nú eru Töðugjöld á Hellu og Sóldögg ætlar að leika þar annað kvöld. Sóldögg er merkilega dugleg að ferðast og verður komin á Höfn annað kvöld. í íslenskan poppheim með nýrri sveit, Mary Poppins. í viðtali við Dr. Gunna ræðir hann um sukksöm ár með Jet Black Joe, söngvara sem ganga í og úr trúfélögum, helvíti og himnaríki, hvernig það er að vera næstum búinn að meika það á Filippseyjum og horfa upp ^ W' m á söngvara skjóta trommuleikara l_ §11 iiViM með riffli í öxlina. LZ U “I MrU 11 1ÍHI að afskrifa Biblíuna Gunnar Bjami Ragnarsson er heilinn á bak við slöngulokkana og Jet.Black Joe. Það hefur ekki farið mikið fyrir Gunnari síðan JBJ voru vinsælasta hljómsveit lands- ins, en hann hefur síður en svo sagt sitt siðasta í íslensku rokki. Nú heitir rokkkagginn Mary Poppins og Gunnar hefúr sest undir stýri - við hliðina á nýjum söngvara sem heitir Snorri - og er að gera sig kláran í að spýta í á ný. Mary Popp- ins gaf nýverið út 6-laga disk, „Promo“; 4 ný lög, útgáfu af Talking Heads slagaranum „Psycho Kiiier" og gamla JBJ-laginu „Rain“. Hann hefur sagt skilið við islenska plötubransann og sér nú um sín mál sjálfur. „Ég fæ fjármagnsaðila til liðs við mig, þetta er orðið hálfgert hluta- fyrirtæki," segir Gunnar um Mary Poppins. „Til dæmis er ég með samning við Stúdíó Stöðina og get tekið þar upp þegar ég vil og annan samning við tölvufyrirtækið Image Bag sem sér um alla ímynd, CD- Rom og video. Þetta er dálítið öðru- vísi, maður hefur yfirsýn á allt dæmið sjálfúr. Ekki það að Spor hafi reynst illa þó JBJ hafi ekki gengið alveg 100% upp. Það er bara skemmtilegt að takast á við þetta og ég var orðinn leiður á að vera alltaf bíðandi eftir að aðrir gerðu eitthvað." Mér finnst efnið með Mary Popp- ins vera afturhvarf til þess rokks sem JBJ fékkst við í byrjun. Þú hef- ur ekki viljaó þróa rokkiö áfram, eins og síðasta plata JBJ, „Fuzz“, gaffyrirheit um? „Sú þróun hefði ekki haldið áfram þó JBJ hefði haldið áfram. Þetta var barn síns tíma, það sem okkur langaði að gera þá. Þetta var öfgaplata - fólk hélt að við værum að þykjast vera einhverjir ægilegir rokkarar. Fyrir mig er Mary Popp- ins rökrétt framhald á því sem ég hef verið að gera. „Rain“ er t.d. lag sem mér finnst eiga skilið að heyr- ist aftur. Það er í sjálfu sér ekkert gamalt. Melódían er góð og melódí- ur eldast ekki. Það er komin ný kynslóð af krökkum sem vita jafn- vel ekki hvað JBJ var og ég get al- veg séð fyrir mér að lagið verði vin- sælt aftur.“ Veróur annar diskur á árinu? „Já, við ætlum að koma með disk fyrir jólin, sex lög í viðbót, jafnvel fleiri JBJ-lög. Þetta verður tvöfald- ur pakki, annar diskurinn verður CD-Rom þar sem verður kynning á bandinu - textar, myndbönd, plús tónlist sem verður meira ex- perimental, ekki í þessum popp- geira.“ inu við þessar kringumstæður. Uppúr þessu stofnaði ég Jetz sem átti að vera sólóplata og fór til Liverpool til að sameina það tvennt að finna söngvara og vinna í þessu Paul McCartney umhverfi sem átti að vera voða flott og fínt og var mjög freistandi á þessum tíma. Ég bara fann engan söngvara, hvorki úti né hér og tók þann pól í hæðina að koma hingað og fylgja Jetz-plöt- unni eftir. En svo loksins fann ég Snorra og því má eiginlega segja að ég sé að taka upp þráðinn þar sem JBJ hætti. Ég hitti Palla um daginn og hann spurði hvað ég væri að gera og ég sagði; ég er bara að ljúka því sem þú laukst ekki.“ Hvar fannstu Snorra? Hver er maðurinn? „Þetta er hálfgerður huldumað- ur. Hefur aldrei sést áður. Hann lærði að syngja í trúarsamtökum eins og Palli, en varð svo unglingur og braust frá þessu. Hann var að syngja með vini mínum Sigga sem var í Dos Pilas og Siggi hefur aldrei verið mjög duglegur að semja svo hann bað mig að hjálpa sér. Svo þróaðist það þannig að ég rændi Snorra, nei nei, Siggi flutti til Hólmavíkur, hann hefði verið með Ég heyrði einhvern tímnnn sögu af slysaskoti, hvað gerðist eiginlega? „Palii skaut bara Jonna með riffli. Ég hef aldrei vitaö hvort það var viljandi eða slys. Hann skaut hann í öxlina, það kom stærðar ör og það hrjáð'ann dálítið á tímabili því hann var trommuleikari. Þeir voru alltaf að rífast á þessu tíma- bili, svo þetta var dálítið furðulegt. Palli var búinn að panta ljósatíma áður en hann skaut hann og þegar hann var að keyra Jonna upp á slysó hafði hann mestar áhyggjur af að missa af ijósatímanum." Svo heyrði ég líka aö þiö eydduð allri fyrirframgreiðslunni í heim- sendar pitsur í stúdióið og þurftuö að spila mánuóum saman á Gaukn- um upp í barreikninga. „Já, við spöruðum aldrei, eydd- um öllu í skemmtanir og þess vegna horfir maður brosandi á þetta tímabil. Það komu náttúrlega upp vandamál líka, en þau eru bara til að leysa.“ Saknarðu Páls? „Meira sem vinar. Það skildust leiðir og við tölum lítið saman. Ég hugsa vel til hans, nema kannski þetta aö hafa guggnað á þessu, hann var dálítil hæna - nei, árin. Eg vann við annað í þrjár vik- ur - smá reality check - og komst að því að það á ekki við mig að vinna við eitthvað sem fellur ekki að mínu áhugamáli. Tilgangur lífs- ins er að gera það sem manni finnst skemmtilegt og það er ekkert nema músík sem kemst að hjá mér og allskonar skyldir hlutir. Ég nýt mín best þegar ég er að vinna. Frí fyrir mér er ekkert nema kvöl og pína.“ Hver er helsta hetjan þín í tónlist? „John Lennon, það er engin spuming, en svo koma margir á eft- ir. Það eru frekar gamlar hetjur sem ná að lifa fyrir mér. Það er eitt- hvað við tímabilið frá 1965 til sjötíu og eitthvað sem heillar mig mest í músíksögunni. Hippatímabilið og hippisminn almennt." Hver eru mestu vandrœði sem þú hefur lent í? „Ætli kærustumar hafi ekki ver- ið mestu vandræðin, að láta það ganga upp. Það hefur verið erfitt að vera tónlistarmaður og losna við af- brýðisemina í kærustunni. Svo lenti ég í nýmaveseni sem tók tvö ár, uppskurður og svona. Að hafa ekki orku til að gera það maður vill gera era vandræði." Þegar Jet Black Joe lagði upp laupana hafði hljómsveitin reynt að ota sínum rokktota í útlöndum og náð ágætum árangri. „Það var merkilegt að Palli hætti á þessum tíma þvi bandið var komið í þá stöðu að geta farið að gera stóra hluti. Við vorum orðnir reynslunni ríkari og komnir með sterkan gmnn sem við gátum unnið úr. Við höfðum hitt Derek hjá One Little Indian og hann var búinn að gefa grænt ljós á að gera eitthvað. Svo var samningur í Japan nánast til- búinn og við höfðum verið að þreifa fyrir okkur í Bandaríkjun- um. En það kom ekkert útúr því enda var bandið frekar dapurt þeg- ar við fórum þangað vitandi það að Palli ætlaði að hætta." Þú hefur ekki viljaö bara fá þér nýjan söngvara? „Jú jú, en menn vom orðnir al- mennt pirraðir og þreyttir í band- okkur ef hann hefði verið kyrr í bænum. Bandið er bara ég og Snorri og sessjón-menn.“ Ertu ekki hrœddur um aö Snorri snúi aftur í trúarsamtökin? „Nei, ég er hvorki hræddur um það né reikna með því, áhuginn er það mikill, en það kemur svo sem alltaf maður í manns stað." Dálítið nýaldarsinnaður Auk þess að meika það næstum í útlöndum var Jet Black Joe alltaf mikið rokkband; meðlimimir lifðu „rokkuðu“ líferni og sögur um sukk og rokkuð ævintýr flugu um bransann. Ég spyr Gunnar Bjama hvemig þessi tími sé í minning- unni. „Hann er rosalega góður. Þetta var skemmtileg reynsla, við ferðuð- umst víða, meikuðum það á Filipps- eyjum, vorum heitir í Hollandi og svona, þú skilur." kannski ekki hæna, en þú veist. Hann tók náttúrlega U-beygju og þarf að finna sig þar.“ Ertu trúaður sjálfur? „Ég er dálítið nýaldarsinnaður en er samt að garfa í þessu gamla, meira til að sannfæra mig um að þetta nýja sé betra en þetta gamla, maður verður að vera viss. Ég er búinn að afskrifa Bibliuna að mörgu leyti. Ég pæli mikið i þessu og fór að gera það þegar Palli hætti. Þá kom mikið af fólki til mfn og hélt að ég væri satanisti. Á tímabili héldu ofsatrúarmenn að við hinir væram eitthvað furðulegir og vildu losa okkur úr álögunum, vildu að við færum sömu leið og Palli." Vill fá Trabantinn aftur! Geturðu lifað af músíkinni? „Já og nei. Einhvern veginn tekst mér alltaf að halda mér á floti og er búinn að gera síöustu átta Hvaða eign er þér kœrust? „Ætli það sé ekki gítarinn og sít- arinn. Svo átti ég Trabant sem var stolið, ég er alveg til í að fá hann aftur.“ Hvað myndirðu gera ef þú vœrir ósýnilegur í einn dag? „Læðast í lauginni bara, í kvennabúningsklefann. Það er gamall draumur síðan ég var ung- lingur." Hvaó er himnaríki og helvíti? „Það er eitthvað sem þú mótar sjálfur, þetta er bara frjálst val. Þú lendir ekkert í helvíti eða himna- ríki heldur leitar þangað. Himna- ríki fyrir mig er einhver góð til- finning; að maður sé sáttur, jafnvel að maður fái að upplifa allar sælu- tilfinningamar aftur. Heivíti er að vera sendur hingað niður aftur og þurfa að ganga í gegnum allan pró- sessinn upp á nýtt af því þú stóðst þig ekki.“ - glh Ýdallr I Aðaldal. Sálln hans Jóns míns verður þar í kvöld. Sálin verður komin I Valskjálf á Egilsstöðum á morgun. Úthlíð I Biskupstungum. Rokkhljómsveit EyJ- ólfs Kristjánssonar leikur þarna I sveitinni ann- að kvöld. 1 kvöld verður hins vegar diskótek. Sjallinn á Akureyri. SSSÓL verður þar I kvöld til að skemmta norðanmönnum. Á morgun verða SSSÓLarmenn svo komnir I Mlðgarð I Skagafirði. DJúpavík. Verksmiðjuþall á Djúpavíkurhátíð. Slxties leikur fyrir dansi. Hreðavatnsskáll. Þetta er í fyrsta sinn sem Páll Óskar og Caslno leika I Borgarnesi. Ballið verður annað kvöld. Búðarklettur I Borgarnesi. i kvöld og annað kvöld leikur hljómsveitin SÍN í klettnum. Ráln I Keflavík. Hljómsveitin Hafrót verður þar um helgina. I-----------:---------------- | imeira sl www visir is 14. ágúst 1998 f Ó k U S 11

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.