Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1998, Qupperneq 19

Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1998, Qupperneq 19
Fyrr í sumar var hrundið af stað á vegum Ferðamálaráðs átaks- verkefninu „ísland: Óþægilegt og spennandi“. Er því ætlað að finna nýjar og óhefðbundnar leiðir til að stuðla að frekari ferðamannastraumi og kynningu á landinu erlendis. Islenska fyHibyttan: Vanmetin landkynnirm^ ax? Sigurður Magni Færseth er for- svarsmaður verkefnisins „Island: Óþægilegt og spennandi". Hann er menntaður í Bandaríkjunum og vann þar lengi að ferðamarkaðsmál- um. „Ég vann í þrjú ár hjá ferðaskrif- stofunni One Way Ticket í Detroit en hún sérhæfir sig í svokölluðum áhættuferðum. Til dæmis vorum það við sem störtuðum þessum Inner City Experience-ferðum sem nú eru orðnar geysivinsælar. Þetta eru ferð- ir þar sem hvíti millistéttar-Kaninn kaupir sér túr um hættulegustu hverfi stórborganna og ferðast þar nánast á eigin vegum. Við vorum að fá rútur frá Illinois og leiddum liðið í litlum hópum um skuggahverfm í miðborg Detroit, i gegnum mellu- göturnar og inn í sprautubælin. Þessar ferðir eru að gera það mjög gott þar vestra. Þetta er allt unnið í sam- vinnu við gettó-gangster- ana, samvinna sem hef- ur lukkast ágætlega. Sprautufiklarnir voru að vísu tregir í fyrstu að hleypa fólki svona inn á sig en á móti fá þeir að ræna hópinn tvisvar á meðan á ferðinni stend- ur. Eina vandamálið sem hefur komið upp er það hvað túristarnir eru tregir til að láta frá sér myndavélamar. Við vorum til dæm- is heillengi að berjast við að fá þá til að hætta að taka myndir af byssu- bardögum. Ég man að við misstum til dæmis hóp af japönskum kaup- sýslumönnum sem urðu vitni að vopnuðu ráni og gleymdu að slökkva á myndbandsupptökuvélunum sín- um.“ Sigurður Magni hyggst miðla af þessari reynslu sinni hér, en hann Þóra Guðrún Guðríðardóttir sér um eftirpartíin: „Við reynum bara að skapa þessa týpísku eft- irpartí-stemningu sem við þekkjum öll vel. Bara þetta venjulega, öskubakkar frá Glit og rauður lampi. (slensk kjötsúpa á fóninum og svona, Þursafiokkurinn og Upplyfting." bar hugmyndina upp við Ferðamála- ráð snemma á þessu ári og síðan hef- ur þriggja manna hópur unnið að verkefninu. „Við erum að tala um öllu léttari útfærslu á þessu hér enda umhverf- ið annað og saklausara. Það þarf þó ekki mikið til. Við verðum að hafa í huga að líf hins venjulega Evrópu- búa er ákaflega tilbreytingarlaust. í fyrsta hópnum sem kom hingað í lok júní - 15 manna hópur frá Frakk- landi og Sviss - varð ég til dæmis var við hvað litilfjörlegt atriði í okk- ar augum, hlutur eins og eftirpartí, var ákaflega mögnuð reynsla fyrir þá. Þetta er fólk sem er vant því að fara í háttinn klukkan tíu á kvöldin. Og hér vorum við að keyra hópinn áfram í vöku fram tO klukkan fimm um morgiminn. Það er einmitt lykil- atriði í þessu að sýna vissa hörku í leiðsögumannsstarfinu. Gædinn þarf að vera mjög ákveðinn. Við getum auðvitað ekki að því gert þó ein- hverjir kunni að sofna á staðnum en viðkomandi er samt ekki hleypt heim á hótel fyrr en dagskránni er lokið.“ Hinar tilvonandi „óþægilegu og spennandi" ferðir verða einkum bundnar við Reykjavík og nágrenni. Megináherslan er lögð á næturlífið. „Við íslendingar verðum bara að fara að átta okkur á því að barirnir hérna í bænum, staðir eins og Kaffi List, Kaffibarinn, Hafnarkráin og fleiri staðir, geta verið okkur alveg jafn mikil landkynning eins og eld- fjöllin og fossamir. Maður finnrn- ekki svona staði úti Evrópu og það sem okkur þykir sjálfsagður hlutur er stórfurðulegt fyrirbæri í augum gestanna. Við megum ekki glata sér- kennum okkar. Þeim fer fækkandi. íslenski róninn er til dæmis hverf- andi stærð i bæjarlífinu. Við höfum hins vegar komið okkur upp litlum hópi drykkjumanna sem sjá til þess að ferðalangamir fái spennandi og litríka dvöl hér í bænum.“ Reynir Hólm er einn af fimm fóstum drykkjumönnum sem ráðnir hafa verið til reynslu við átaksverk- efnið „ísland: Óþægilegt og spenn- andi“. Þeirra hlutverk felst í því „bara að vera á barnum" eins og hann segir „og bögga liðið, betla út úr því pening og tala, segja sögur. Þetta er voða mikið það. Að segja sögur. Láta fólk ekki í friði.“ Reynir lætur vel af starfinu hingað til. „Þetta er ágætt. Það er bara vonlaust að fá þetta lið til að drekka með manni. Þetta eru mest svona einhver skrifstofugrey. En þeir virðast hafa gaman af rövlinu í manni.“ Reynir þvertekur fyrir að starfið sé erfitt, timburmenn nokkuð sem ur á okkur þannig að við emm tveir og tveir saman og maður tekur þrjá daga í einu. Mín vegna mætti þetta vera meiri vinna, ég meina, maður er hvort sem er fullur alla daga. Það era kannski helst slagsmálin sem geta setið í manni. En þau eru bara síðasta kvöldið í hverri ferð. Ég handleggsbrotnaði reyndar sjálfur um daginn en ég er bara þannig gerður að ef ég er í vinnu þá legg ég mig alltaf allan í starfið." Gunnar Sigurðsson, „Landi“, er hæstánægður með nýja starfið. „Þetta er draumadjobbið. Ekki bara að drekka frítt heldur fá borgað fyr- ir það líka. Gerist ekki betra. Ég er viss um að gamli maðurinn kippist við af öfund í gröfinni þegar hann heyrir að maður sé kominn með karríer í þessu. Fullur fyrir íslands hönd. Þetta er flott. Eini gallinn við þetta er kannski það að okkur sé bannað að draga kellingarnar heim með okkur. Ég fatta það ekki alveg. Við erum allir klin í þessu, held ég. Þetta eru kannski engar beibsur i þessum hópum en það er alltaf eitt- hvað innan um. Kunningi minn var látinn hætta eftir að hann fór heim með einni þýskri freigátu." Þóra Guðrún Guðríðardóttir hefur undanfarið séð um eftirpartí fyrir hönd Ferðamálaráðs en átaks- verkefnið fékk úthlutað bráðabirgða- húsnæði á vegum Reykavíkurborg- ar, sem er samstarfsaðili þess, í yfir- gefnu húsi við Vesturgötu. „Við reynum bara að skapa þessa týpísku eftirpartí-stemningu sem við þekkjum öO vel. Bara þetta venju- lega, öskubakkar frá Glit og rauður lampi. íslensk kjötsúpa á fóninum og svona, Þursaflokkurinn og Upplyft- ing. Svo líka panta pitsur, redda víni, rifrildi og vesen. Stelpnaslags- málin hafa til dæmis gert mikla lukku. Fólk virðist alltaf kunna vel að meta það. Við höfum undanfarið verið með fólk frá Hinu húsinu til að manna partíin en okkur vantar til- finnanlega fólk sem er til í að stunda ástarleiki í herbergi sem við erum með inn af stofunni. Við vorum með par hér í síðasta holli en bæði voru þau hrædd við myndavélarn- ar hjá túristunum og svo voru þau eiginlega bara of myndarleg, ef satt skal segja. Þeir sem hafa áhuga ættu endilega að snúa sér til okkar. Þetta er tiltölulega vel borgað og alls ekki erfitt starf, mundi ég segja. Við erum líka að leita að meira hevý dópistum en við höfum verið með hingað til.“ Að sögn Sigurðar Magna Færseth virðast líkm- á því að óþægilegu ferðimar eigi eftir að vinna sér fastan sess í ís- lenskum ferðamannaiðnaði og sér fyrir sér óþrjótandi möguleika. „Við verðum bara að fara að átta okkur á því að við stöndum hérna með bullandi auðlind í höndunum sem á að geta fært okkur ómældar gjaldeyristekjur. Okkur hættir til að einblína á náttúruna en mannauður- inn hér er gífurlegur. Við erum svona að fikra okkur af stað með þetta en draumurinn er auðvitað sá að gera ferðirnar meira krassandi. Draumurinn er að fá lögregluna í lið með okkur en hingað til hefur hún dregið lappirnar í því máli. Reyndar kom hún óvænt inn í verkefnið í fyrsta túrnum þegar hún vegna mis- skilnings „böstaði" eitt af fyrstu eft- irpartíunum sem við voram með og tveir Svisslendingar enduðu á því að gista í fangageymslum eina nótt. En þetta voru nú þeir sem fóru ánægð- astir heim tO sín. Það virðist því miður ekki vera mikill skilningur innan lögreglunnar á þessu máli og hún neitaði okkur til dæmis á dög- unum um að halda það sem við köll- um „Landakynningu", sem við vilj- um meina að hefði getað orðið frá- bær landkynning." Hallgrímur Helgason hann þekki ekki. „Þessu er skipt nið- Sigurður Magni Færseth, forsvarsmaður verkefnisins: „Við verðum bara að átta okkur á því að barirnir hérna í bænum geta verið okkur alveg jafn mikil landkynning eins og eldfjöllin og fossarnir." Reynir Hólm, einn fastra drykkjumanna verkefnisins: Hans hlutverk er að vera á barnum og bögga liðið, betla út úr því pening og tala, segja sögur. Gunnar Sigurðsson, kallaður „Landi“: „Þetta er draumadjobbið. Ekki bara að drekka frítt heldur fá borgað fyrir það líka. Gerist ekki betra." 14. ágúst 1998 f Ó k U S

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.