Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.1998, Blaðsíða 19
18
ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 1998
ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 1998
23
íþróttir
g'í ENGLAND
Harry Redknapp, framkvæmda-
stjóri West Ham, er æfur út i stjórn
félagsins fyrir aö ákveða að selja
Andrew Impey til Leicester án þess
að ráðgast við sig. Redknapp fékk að
vita á síðustu stundu að hann gæti
ekki notað Impey í leik West Ham við
Derby á sunnudaginn.
Roy Hodgson hætti störfum sem
framkvæmdastjóri Blackburn á
sunnudaginn. Lið hans situr nú á
botni A-deildarinnar eftir ósigur gegn
Southampton á heimavelli. Tony
Parkes stýrir liöinu þar til nýr stjóri
finnst og er þetta í ijórða skipti sem
hann tekur viö því tú bráðabirgða.
Colin Hendry, skoski varnarjaxlinn
og fyrrum fyrirliði Blackbum, var í
gær orðaður við starfið hjá Black-
bum. Hann lék með liðinu um árabil
en fór til Glasgow Rangers í sumar og
skildi eftir sig stðrt skarð í vörninni.
Nottingham Forest hafnaöi í gær 500
milljón króna boði Leeds í hollenska
risann Pierre Van Hooidonk. Forest
vill fá meira fyrir sóknarmanninn.
Lárus Orri Sigurösson og félagar í
Stoke halda efsta sæti C-deildar eftir
2-0 sigur á York um helgina. Láms
Orri lék allan leikinn. Sama er að
segja um Bjarnólf Lárusson hjá
Walsall en lið hans gerði 1-1 jafntefli
við Macclesfield. Þorvaldur Örlygs-
son lék hins vegar ekki með Oldham
sem vann Wrexham, 3-2. Stoke er
með 40 stig, Fulham 39, Walsall 36 og
Preston 33. Oldham er þriðja neðst
með 16 stig.
Hermann Hreiöarsson og félagar í
Brentford duttu niður í 7. sæti D-
deildar með 2-1 tapi gegn Leyton Ori-
ent. Hermann fékk gult spjald i leikn-
um.
Svo gœti fariö aó Edwin van der
Saar, markvörður hollenska
landsliðsins og Ajax, yrði eftirmaður
Peter Schmeichel í marki Man. Utd.
Alex Ferguson, stjóri United, hefur
borið víumar í Hollendinginn og
fregnir herma að Ajax sé reiðubúið
til að selja hann áður en samningur
hans við félagið rennur út árið 2001.
-VS/GH
Arnar Gunnlaugsson:
Ekki settur út
vegna meiðsla
Colin Todd, framkvæmda-
stjóri enska knattspymufélags-
ins Bolton, sagði í gær að hann
hefði ekki sett Arnar Gunnlaugs-
son út úr byrjunarliði sínu
vegna meiðsla.
„Arnar hefur verið meiddur
en það var ekki ástæðan. Ég tók
hann út vegna taktískra breyt-
inga á liðinu," sagði Todd.
Amar kom inn á gegn Ipswich
þegar 8 mínútur voru til
leiksloka og lagði upp sigurmark
Bolton fyrir Bob Taylor með
glæsilegri rispu. Sigurinn var
afar mikilvægur fyrii- Bolton til
að liöið drægist ekki endanlega
aftur úr toppliðunum en Ipswich
er í öðru sæti ensku B-deildar-
innar. -VS
I—ss
1. deild karla
Stjaman-KA ................3-2
11-15, 15-5, 15-13, 11-15, 17-15.
Stjaman-KA ................2-3
15-12, 9-15, 11-15, 16-14, 7-15.
Þróttur, R. 5 5 0 15-3 15
ÍS 6 4 2 15-7 15
Þróttur, N. 6 4 2 15-11 15
Stjaman 7 2 5 10-19 10
KA 8 1 7 8-23 8
1. deild kvenna
Víkingur-KA . , 3-0
15-13, 15-11, 15-9.
Víkingur-KA . , 3-0
15-9, 15-5, 15-5.
KA 8 5 3 17-13 17
Vikingur 5 5 0 15-1 15
Þróttur, N. 4 2 2 8-9 8
ÍS 6 2 4 8-12 8
Þróttur, R. 5 0 5 2-15 2
Alþjóðlegt mót í þolfimi:
Halldór í þriðja
sæti í Búkarest
Halldór B. Jóhannsson þolfimi-
kappi dvaldist í siðust viku í Rúm-
eníu við æfingar og keppni. Hann
tók þátt í alþjóðlegu móti og æfði
auk þess með besta þolfimifólki
Rúmeníu.
Halldór stóð sig mjög vel, hlaut
16,5 stig og lenti í þriðja sæti. I sam-
tali við DV sagðist hann vera
ánægður með ferðina og árangur-
inn. Hann lærði mikið af þessu, sér-
staklega þó að fá tækifæri að æfa
með Rúmenunum.
„Ég hefði þó viljað ná öðra sæt-
inu,“ sagði Halldór við DV en hann
var aðeins 0,15 stigum á eftir
Claudio Varlan frá Rúmeníu sem
varð i öðra sæti. Hann sigraði þó
þennan Varlan með þó nokkrum yf-
irburðum á síðasta heimsmeistara-
móti. Sigurvegari á umræddu móti í
Rúmeníu varð heimamaðurinn
Christian Moldovan en hann hlaut
17,7 stig.
-AIÞ/JKS
Halldór er hér með stúlkunum sem hann æfði með í Rúmeníu.
1. deild kvenna í körfuknattleik:
KR-ingar ósigraðir
-unnu Stúdínur, 47-42, í gær
KR-stúlkur unnu sinn 7. sigur í
röð í vetur er þær unnu ÍS, 47-42, í
Kennaraháskólanum í gær. ÍS hafði
unnið báða heimaleikina gegn KR á
undirbúningstímabilinu en nú kom
toppliðið ákveðið til leiks, byrjaði
leikinn betur og hafði 26-18 yfir í
hálfleik. I seinni hálfleik sóttu Stúd-
ínur í sig veðriö og sóttu að forustu
KR en komu henni ekki neðar en í
flmm stig í lokin. Það hafði sitt að
segja í gær að ÍS tapaði 35 boltum,
þar 20 í fyrri hálfleik og tók aðeins
18 fráköst, þar af 14 í vöm. Baráttu-
glaðar KR-stúlkur tóku aftur á móti
13 sóknarfráköst í leiknum og sam-
tals 27 fráköst. Þetta var annað tap
ÍS í röð í deildinni og hefur liðið átt
í vandræðum að undanfórnu eftir
að hafa komið mjög á óvart til að
byrja með í vetur.
Guðbjörg Norðfjörð átti góðan
leik hjá KR í gær og þá sérstaklega
í fyrri hálfleik er hún gerði 10 af 14
stigum sínum. Linda Stefánsdóttir
var einnig ómissandi, sérstaklega í
vöminni þar sem hún stal 9 boltum
og hefur nú stolið 40 í 7 leikjum.
Lovísa Guðmundsdóttir, Alda
Leif Jónsdóttir og Signý Hermanns-
dóttir léku best hjá ÍS.
Stig ÍS: Lovísa Guðmundsdóttir 10, Alda
Leif Jónsdóttir 9, Signý Hermannsdóttir
8, María Leifsdóttir 5, Kristjana Magnús-
dóttir 4, Georgia Kristiansen 4, Hafdís
Helgadóttir 2.
Stig KR: Guðbjörg Norðfjörð 14, Hanna
Kjartansdóttir 9, Linda Stefánsdóttir 9,
Kristín Jónsdóttir 4, Helga Þorvaldsdóttir
4, Sigrún Skarphéðinsdóttir 3, Guðrún
Gestsdóttir 2, Elísa Vilbergsdóttir 3. -ÓÓJ
Hanna Kjartansdóttir skorar hér 2 af 9 stigum sínum gegn ÍS í gærkvöldi. Til
varnar eru Signý Hermannsdóttir og Lovísa Guðmundsdóttir. Hilmar Þór
Ísland-Ungverjaland
Fyrir leikinn á móti Ungverjum
mun Adidas-umboðið á íslandi veita
Bjarka Sigurössyni viðurkenningu
fyrir að hafa leikið 200 landsleiki.
Bjarki leikur annaö kvöld sinn 207.
landsleik.
Geir Sveinsson er leikjahæstur í ís-
lenska landsliðinu. Hann á að baki
334 landsleiki og hefur skoraö 482
mörk í þeim.
Af þeim sem eru í hópnum í dag er
Valdimar Grímsson markahæstur.
Hann hefur möguleika á komast yfir
800 marka múrinn annað kvöld.
Valdimar hefur þegar skorað 792
mörk í 237 landsleikjum.
Birkir ívar Guömundsson, markvörð-
ur Stjömunnar, er nýliði í landshðinu.
Ragnar Óskarsson úr ÍR hefur fæsta
leiki að baki, alls 7, en þeir verða eflaust
miklu fleiri í framtíöinni.
Gústaf Bjarnason, sem leikur með
WiUstadt í Þýskalandi, kemur að
nýju inn í landsliðiö. Hann lék ekki
með á móti Finnum og Svisslending-
um vegna meiðsla. Hann hefur náð
sér að fuUu og er kominn í sitt besta
form.
Þorbjörn Jensson valdi 17 manna
hóp fyrir helgina. í dag veiirn hann
endanlega þá 14 leikmenn sem leika
gegn Ungveijum annaö kvöld og leik-
inn ytra á sunnudaginn kemur.
Ungverjar koma hingaö til lands
meö 15 leikmenn. 8 þeirra koma úr
röðum Fotex Veszprém sem er
sterkasta liðið í landinu og leikur í
meistaradeUd Evrópu.
Um helgina var leikiö 1 deUdar-
keppninni í Ungverjalandi þannig aö
landslið þeirra fær ekki meiri tfma tU
undirbúnings en íslenska liðið.
János Szathmári, sem leikur með
Fotex, er leikjahæstur manna i ung-
verska liðinu. Hann hefur leikið 205
leiki. Einn nýliði kemur með Ung-
verjunum hingað.
László Sótonyi, einn besti leikmaður
Ungverja, og Sigfús Sigurðsson,
linumaður í íslenska landsliðinu, eru
samheijar. Þeir leika með spænska
liðinu Caja Cantabria frá Santander.
Aöeins tveir leikmenn ungverska
liðsins leika með liðum utan heima-
landsins. Auk Sótonyi, sem nefndur
var hér aö framan, leikur AttUa
Kotormán með svissneska liðinu
Schaflhausen.
Langflestir leikmenn Ungverja hafa
handbolta að atvinnu og er þaö
ástæðan fyrir þvi að ekki fleiri leUia
með erlendum félagsliðum. Handbolti
er vinsæl íþrótt í Ungverjalandi.
ísland og Ungverjaland hafa 20
sinnum mæst á handboltaveUinum.
íslendingar hafa unnið sex leiki, Ung-
verjar 12 og tvisvar sinnum hefur
orðið jafntefli. Síðast áttust þjóöimar
við á HM í Kumomoto í Japan 1 fyrra
og þar sigruðu Ungveijar.
Þegar heildarleikjafjöldi þjóóanna
er borinn saman hafa íslendingar
vinninginn í þeim efnum. Samtals
eiga íslensku leikmennimir 2122
landsleiki að baki. Leikmenn ung-
verska liðsins hafa hins vegar leikið
aUs 1347 landsleiki.
Á HM i Kumomoto höfnuðu Ungverj-
ar í fjórða sæti og íslendingar í
fimmta sæti. 9 leikmenn sem léku þar
koma hingað tU lands með liðinu.
Kunnugir segja að ungverska liði sé
sterkara núna en í fyrra.
Dómarar leiksins annað kvöld koma
frá Tékklandi. Þeir heita Ivan Dolejs
og Vaclav Kohout. Þeir hafa ekki
áður dæmt hér á landi en gott orð fer
af þeim.
Eftirlitsmaöur á leiknum verður
Svíinn Erik Elias. Hann hefur lengi
starfað innan alþjóða handknatfieiks-
sambandsins.
/ leiknum i Ungverjalandi dæma
þýskir dómarar leikinn. Það em þeir
Manfred Biilow og Wilfried
Liibker. Þeir þykja harðir í hom að
taka og eru ekki heimadómarar.
Aógöngumióasla á leikinn stendur
yfir í verslunum 10-11. 10 ára og
yngri borga ekkert inn, 11-14 ára
greiða 500 krónur og 15 ára og eldri
borga 1500 krónur. Það er brýnt fyrir
fólk að tryggja sér miða í tíma.
Gengió er út frá því sem vísu að
LaugardalshöUin verði troðfuU af
fólki. Fyrir helgina var ákveðið að
stækka áhorfendarýmið um 200 sæti.
PöUum verður komið upp í austur-
enda hússins.
-JKS
Landsliðsmennirnir Ólafur Stefánsson og Dagur Sigurðsson eru hér í léttum leik á sínum gamla heimavelli að Hlíðarenda á æfingu landsliðsins í gær. Þetta var fyrsta æfingin með öllum landsliðshópnum
fyrir leikina mikilvægu gegn Ungverjum en fyrri leikurinn fer fram í Laugardalshöllinni annað kvöld. DV-myndir Teitur
Þorbjörn Jensson, landsliðsþjálfari í handknattleik:
Ákveðinn markvörður
gaf ekki kost á sér
- íslendingar mæta Ungverjum í undankeppni HM annað kvöld
Þorbjöm Jensson, landsliðsþjáfari í handknatt-
leik, bætti ekki við þriðja markverðinum eins og
hann hafði fyrirhugað í landsleikjunum tveimur
sem fram undan eru gegn Ungverjum í þessari viku.
Þorbjöm hélt eftir einu sæti markvarðar þegar hann
tilkynnti hópinn fyrir helgina og ætlaði að sjá hvaða
markvörður myndi standa sig best í leikjunum á
sunnudagskvöldið.
Ekki verður bætt við leikmanni í staðinn
„Ég hafði einn ákveðinn markvörð í huga en þeg-
ar til kastanna kom gaf hann ekki kost á sér. Þetta
var eini markvörðurinn sem kom til greina að mínu
mati. Ég hef í framhaldinu ákveðið að bæta ekki
neinum leikmanni við í staðinn og því stendur hóp-
urinn sem ég valdi fyrir helgina óbreyttur," sagði
Þorbjörn Jensson í samtali við DV í gær.
Allur hópurinn kom saman í gærkvöld í
fyrsta sinn
Landsliðshópurinn allur kom saman til í æfinga
fyrir leikinn gegn Ungverjum í Valsheimilinu í gær-
kvöld. Ekki var annað vitað en allir hefðu komist
heilir frá leikjum helgarinnar.
„Þessar þrjár æfmgar sem ég hef fyrir leikinn
verða notaöar til að fara vel fyrir sóknar- og varn-
arleikinn. Ég hef trú á þvi að þeir leiki framliggj-
andi vörn og við munum rifja upp þau atriði sem við
eigum gegn henni. Æfmgarnar munu einnig fara að
hluta til í upprifjun á því sem við höfum verið gera.
Það er alveg ljóst að við eigum verðugt verkefhi fyr-
ir höndum en það þýðir ekkert annað en að vera
bjartsýnn," sagði Þorbjörn Jensson við DV.
-JKS
Everton vann
Everton vann geysilega þýðingar-
mikinn sigur i ensku A-deildinni í
knattspymu í gærkvöldi. Everton
tók þá á móti Newcastle á heima-
velli sínum, Goodison Park, og hafði
betur í baráttuleik, 1-0. Þetta var
fyrsti sigur Everton á heimavelli á
tímabilinu og sigurmarkið skoraði
Michael Ball úr vítaspyrnu á 18.
mínútu. Mark Balls var aðeins ann-
að markið sem Everton skorar á
heimavelli í 7 leikjum .
Everton er í 16. sætinu með 15
stig en lærisveinar Ruud Gullits í
Newcastle eru í 14. sæti deildarinn-
ar með 16 stig. -GH
Örn í stuði
Örn Arnarson, sundmaðurinn
snjalli úr Hafnarfirði, stingur sér
varla í laugina þessa dagana án þess
að setja ný íslandsmet.
Öm setti 3 met í bikarkeppni SSÍ
um helgina og í gærkvöldi bætti
hann enn einu metinu við þegar
hann hann synti 200 metra skrið-
sund á tímanum 1:48,65 mínútum á
svokölluðu metamóti í sundhöll
Hafnarfjarðar. -GH
Arnar ekki búinn að skrifa undir
Amar Gunnlaugsson, landsliðsmaður
í knattspyrnu, hefur enn ekki skrifað
undir nýjan samning við Bolton. Arnar
á eitt og hálft ár eftir af samingi sínum
við Bolton en félagið hefur boðið honum
að framlengja samninginn um eitt ár.
„Ég ætla svona aðeins að sjá til. Ég á
þó ekki von á öðra en að klára þetta
tímabil með Bolton. Þetta er góður
samningur sem mér var boðinn en mér
flnnst ekki liggja lífið á að skrifa undir.
Ég er mjög ánægður hjá félaginu en ég
neita því ekki að það freistar manns að
spila í úrvalsdeildinni og ef við foram
ekki upp í vor mun ég skoða minn gang.
Óskastaðan væri hins vegar sú að við
færam upp,“ sagði Arnar í samtali við
DV í gærkvöldi.
Nokkur félög í efstu deildinni hafa
borið víumar í Arnar, þar á meðal
Leeds, Blackburn og Southampton og
Rangers í Skotlandi.
„Ég hef heyrt í gegnum umboðsmann
minn um fyrirspurnir en veit ekki til
þess að Bolton hafi fengið formlegt til-
boð í mig,“ sagði Amar sem verður í
fremstu víglínu Bolton í kvöld þegar það
mætir Stockport í nágrannaslag B-deild-
arinnar. „Ég hef verið slæmur í
leggjunum og það kemur að því að ég
þurfi að fara í uppskurð. Ég vil hins
vegar fresta því eins lengi og hægt er,“
sagði Arnar.
Guðni enn frá en Eiður Smári
kominn af stað
Guðni Bergsson er enn frá vegna
meiðsla og verður sennilega ekki með
fyrr en annan laugardag en Eiður Smári
Guðjohnsen mætti á sína fyrstu æflngu
eftir meiösli í gær og leikur með varalið-
inu í vikunni. -GH
Sigurgeir
er hættur
Sigurgeir Sveinsson, milli-
rikjadómari í handknattleik, hef-
ur ákveðið að leggja flautuna
endanlega á hilluna en hann hef-
ur veriö í fríi frá dómgæslunni
síðan íslandsmótið hófst í haust.
Hef hvorki áhuga né
metnað
„Formlega var ég í fríi til ára-
móta en þaö er oröið deginum
ljósara að ég fer ekki aftur inn á
völlinn sem dómari. Ég hef
hvorki þann áhuga eða metnað
lengur sem með þarf til að
standa i þessu,“ sagði Sigurgeir i
samtali við DV í gær.
-VS
Geir leikur ekki
Geir Sveinsson, fyrirliði islenska landsliðsins í handknattleik, leikm'
ekki með liðinu gegn Ungveijum í undankeppni heimsmeistaramótsins í
Laugardalshöll annað kvöld.
Geir hefur átt við meiðsli að stríða í kálfa og hefúr af þeim sökum
ekki leikið síðustu tvo leiki með Wuppertal í þýsku deildinni. Geir er á
batavegi og svo gæti farið að hann yrði með í síðari leiknum í Ungverja-
landi næsta sunnudag en það verður þó að teljast mjög ósennilegt.
Tökum ekki neina áhættu
„Geir hefur verið í meðferð hjá Brynjólfi Jónssyni, lækni landsliðsins,
og virðist sem hún hafi skilað ái-angri. Við munum ekki taka neina
áhættu með Geir og það gæti vel verið að við gætum teflt honum fram í
leiknum ytra á sunnudag,“ sagði Þorbjöm Jensson landsliösþjálfari við
DV í gær.
Þorbjöm mun tefla fram Sigfúsi Sigurössyni, leikmanni Caja
Cantabria á Spáni, í stað Geirs og hann leikur þá væntanlega í vöminni
en líklega mun Róbert Sighvatsson spila í sókninni. -JKS
Iþróttir
Bland í noka
Helgi Kolviðsson
og félagar í Mainz
sigruðu Uerdingen,
2-1, á útivelli í
þýsku B-deildinni 1
knattspymu á
sunnudaginn.
Helgi lék allan leik-
inn á miðjunni hjá
Mainz sem er í 8.
sæti með 22 stig. Ulm er efst með 31
stig, Unterhaching er með 30,
Bielefeld 29 og TB Berlín 29 stig.
Uerdingen, sem átti lengi góðu gengi
að fagna meðal bestu liða Þýskalands
og skartaði íslendingunum Atla Eð-
valdssyni og Lárusi Guömundssyni
um skeið, situr nú eitt og yfirgefið á
botni B-deildarinnar með aöeins 7
stig. Aðeins 2.000 áhorfendur mættu
á leik liðsins við Mainz.
Tjörvi Ólafsson, fyrmm leikmaður
Hauka, skoraði 5 mörk, öll úr víta-
köstum, þegar lið hans, Bjerringbro,
vann Vrold á útivelli, 34-30, i dönsku
A-deildinni í handknattleik um helg-
ina. Bjerringbro er í 8. sæti af 12 lið-
um með 7 stig eftir 9 umferðir. Aron
Kristjánsson og félagar i Skjem léku
ekki um helgina en þeir em i 5. sæti
með 10 stig og eiga leik til góða á
toppliöin. GOGog Helsinge em efst
með 13 stig.
Ólafur Gottskálksson lék i marki
Hibemian sem missti tvö dýrmæt
stig í toppslag skosku B-deildarinnar
meö 2-2 jafntefli viö Hamilton. David
Winnie og félagar i Ayr unnu Air-
drie, 2-0, og em með þriggja stiga for-
ystu í deildinni. Hibemian getur jafn-
að það upp i kvöld þegar liðið mætir
St. Mirren.
Auóunn Jónsson náði bestum ár-
angri á bikarmóti Kraftlyftingasam-
bands íslands i Þórskaffi á laugardag-
inn. Auðnnn fékk verölaunabikar fyr-
ir flest stig, 935 samtals i 125 kg
flokki. Níu keppendur tóku þátt i
mótinu en aðeins í tveimur flokkum
var meira en einn keppandi. Kári
Elison sigraði I 75 kg flokki, Domen-
ico Alex Gala í 82,5 kg flokki, Már
Óskarsson í 90 kg flokki, Bjarki Þór
Sigurðsson í 110 kg flokki og Jón B.
Reynisson í +125 kg flokki.
Jóhann Þórhallsson, knattspyrnu-
maöurinn ungi og efnilegi hjá Þór,
hefur skrifað undir nýjan samning
við félagið. Nokkur féiög i úrvals-
deildinni báru víumar í hann, þar á
meðal KR og Leiftur, en Jóhann
ákvað að verða um kyrrt og leika
með Þórsurum í 2. deildinni á næsta
sumri.
Siguröur Jóns-
son lék allan leik-
inn í vöm Dundee
United þegar liðið
tapaði, 0-1, fyrir
Dundee í ná-
grannaslag í
skosku A-deild-
inni í knattspyrnu
á sunnudaginn.
Dundee United situr nú á botninum
ásamt Aberdeen og Dunfermline.
Búiö er aö draga í riðla fyrir ís-
landsmótið í innanhússknattspyrnu.
í 1. deildinni er riölaskiptingin þessi:
A-rióill: Keflavík, Valur, Selfoss og
ÍBV.
B-rióilk KR, HK, Fram og Leiftur.
C-riöill: ÍA, Smástund, Dalvík,
Grindavík.
D-riöill: Þróttur, R, Breiðablik, Fylk-
ir, Þór.
í 2. deildinni er riðlaskiptingin
þessi:
A-riöill: KA, Magni, Sindri, Léttir.
B-riöill: Leiknir, R, Víkingur, KS,
Haukar.
C-riöill: Stjarnan, ÍR, Þróttur, N,
Hvöt.
D-riöill: FH, Skallagrímur, Ægir
Víðir.
/ 3. deildinni er riðlaskiptingin
þessi:
A-riöilU Höttur, Tindastóll, KÍB. Ein-
herji.
B-riöill: Völsungur, Leiknir, F,
Njarðvík, Huginn.
C-riöill: KVA, Neisti, D, Afturelding,
Kormákur.
D-riöilU Fjölnir, Reynir, S, GG, Ham-
ar.
/1. deild kvenna eru tveir riðlar
sem líta þannig út:
A-riöilU KR, ÍA, RKV, Valur, Fjölnir.
B-riðill: Breiðablik, Haukar, ÍBV,
Stjarnan, KVA.
í 2. deild kvenna er riðlaskiptingin
þessi:
A-riöilU Grindavík, Einherji, Hvöt,
FH, Fylkir.
B-rióill: Þór/KA, Höttur, Selfoss,
Grótta, Sindri. -VS/GH