Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.1998, Blaðsíða 22
ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 1998
*26
Hringiðan_____________________________________________________________dv
Hátíðinni í tilefni fimmtán ára
afmælis Gauks á Stöng lauk
með balli hljómsveitarinnar
Lands og sona á föstudaginn,
en þá hafði hátíðin staðið yfir
í rúma viku. Hljómsveitar-
menn voru í góðum gír á
Gauknum.
Grafíkstúdínurnar Björg
Melsted og Ingibjörg
Ósk Sigurjónsdóttir
opnuðu myndlistarsýn-
ingu í nemendagalleríi
Myndlista- og handíða-
skóla íslands, Gallerí
Nema hvað, á föstudag-
inn.
Össur Willard og
Lóreley Sigur-
jónsdóttir
skemmtu sér vel á
afmælishátið
Gauksins enda
Land og synir við
hljóðfærin.
í
í tilefni af útkomu hljómplötunnar „Second 1 “ hélt hljómsveitin Dead sea apple teiti um
borð í farþegaskipinu Arnesinu á laugardaginn. Meðlimir hljómsveitarinnar, Calli C.,
Addi Dodd, Halli, Hannes og Steinarr, voru að sjálfsögðu um borð. DV-myndir Hari
Listamaðurinn Pétur Gautur
opnaði sýningu í Gallerí Borg á
laugardaginn. Listamaðurinn er
hér ásamt rithöfundinum
Bjarna Bjarnasyni sem nýlega
hlaut verðlaun Tómasar Guð-
mundssonar fyrir bókina Borg-
in bak við orðin.
Sigríður Agústsdóttir listakona
opnaði á laugardaginn sýningu í
gryfju listasafns ASÍ. Sigríður er
hér innan um verkin sín við opn-
unina.
Margrét Sigurðardóttir, ný-
k bakaður íslandsmeistari
kvenna í vaxtarrækt á
móti sem haldið var í
íslensku óperunni,
var ekki feimin við
I \ að hnykla aðeins
jtf\ vöðvana fyrir
Ijósmyndara DV.
Verzlóvælið, söng- ^
keppni þeirra
verzlinga, var JM
haldin á föstudag-
inn. Sigurvegari ^
reyndist svo vera
þessi unga snót, Védís Hervör Árnadóttir, sem hér fær koss á kinn. í verð-
laun hiaut hún margt og mikið, t.d. utanlandsferð. Svo stökk „krókurinn'
Pétur Kristjánsson fram og bauð stúikunni að syngja inn á plötu fyrir sig.
Þær Helena Jónsdóttir og Ólöf Ingólfsdóttir
standa á bak við dansflokkinn Pontíus og pía
sem frumsýndi þrjú ný dansverk eftir þær í
Tjarnarbíói á föstudaginn. Helena og Ólöf
umvafðar blómvöndum á frumsýningunni.