Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.1998, Page 32

Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.1998, Page 32
36 ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 1998 T>V onn ekki um- hverfissóðar „Menn mega ekki halda að í þessu sveitarfélagi séu eintómir um- hverfissóðar, en menn taka af- stöðu til þessara mála á grund- velli félagslegra þátta og þá á ég við íbúaþróun, uppbygg- ingu atvinnulífs og nútima- samfélags á svæðinu." Smári Geirsson, form. samb. sveitarfélaga á Austurlandi, í Morgunblaðinu. Slær íyrir neðan belti „Þessum dreng verður á að slá fyrir neðan belti til að ná formannssætinu. En eins og f allir sjá, þá gera menn ekki svoleiðis lagað.“ Sverrir Hermannsson, um Bárð Halldórsson, form. Samtaka um þjóðareign, í DV. { Hollywood-stefnan „Þessi heimur fer versnandi með hverju ári. Þegar ég byrjaði . var Hollywoood- | stefnan ekki eins eindregin. Nú \ þarf útlitiö að vera glæsilegt, j maður þarf aö vera ungur og með oln- bogana i lagi.“ Sólrún Bragadóttir óperu- söngkona, um samkeppnina, f DV. Vill skapandi leikmenn „Ég lít frekar á hvað leik- maður skapar mörg mörk en hvað hann gerir mörg.“ Þorbjörn Jensson landsliðs- þjálfari, í Morgunblaðinu. Rithöfundurinn \ „Ef maður ætlar að verða rithöfundur þá er fyrsta skrefið að líta á sig sem slík- an. Það þýðir ekki að bíða eftir því að aðrir líti mann þeim aug- um.“ Gerður Kristný rithöfundur, ÍDV. Þetta viljum við ekki „Þegar ég var tilnefndur til Booker-verðlaunanna varð ég skyndilega allra eign. Mér var boðið á alls kyns opnanir og í finustu boð sem haldin voru og stjómmálamenn sóttust eftir að láta mynda sig með mér. Þegar þetta fár skall á litum við kon- an min hvort á annað og sögð- um: „Þetta viljum við ekki“.“ Roddy Doyle rithöfundur, f Degi v'io viulaM METKIKI V'JTI VON vlimói- yewButtietint mZ\) Vóstftte 'StVárSOrtW' We&rtýigar- d é hL' ?i\itkwP P5ÖQQYT2‘ Lék Friðrik Karlsson gítarleikari: í fimmtugsafmæli Karls Bretaprins „Nýja platan, Into the Light, er beint framhald af plötu minni frá í fyrra, River of Life, sem gekk mjög vel og hefur engin nýaldarplata selst jafn mikið á íslandi. Það var því tilvalið að halda áfram á sömu braut. Eins og á fyrri plötunni er ég að mestu einn með kassagitar og hljóðfæri sem hljómar eins og ind- verskur sítar en spilast á eins og gít- ar. í fyrra voru margir hálfhræddir við þessa tónlist en núna eru við- horfin önnur og eru viðbrögðin sem ég fæ við tónlist minni mun jákvæð- ari. Fólk skilur betur hvað ég er að fara,“ segir hinn kunni gítarleikari Friðrik Karlsson, sem er eftirsóttur tónlistarmaður í London þar sem hann starfar. Friðrik segir að hann hafi síðast- liðið ár verið að kynna River of Life í Englandi og virðist sú kynning vera að bera árangur: „River of Life er komin í umferð i Englandi og hef ég fylgt henni með því að vera að spila af plötunni á sýningum sem heita Mind Body Spirit og hafa við- tökur verið góðar. Nú er stefnt að því að koma henni á Amerikumark- aðinn sem er sá langstærsti á nýald- artónlist. Ég fór til Kalifomíu fyrir mánuði síðan og það kom mér vera- lega á óvart hve markaðurinn er stór.“ Friðrik segir nýaldartónlistina standa næst hjarta sínu en atvinnu hefúr hann af aö spila öðruvísi tón- list: „Ég er fyrst og fremst í vinnu hjá Andrew Lloyd Friðrik Karlsson. Webber og tek þátt í sýningum á nýjasta söngleik hans, Whistle down the Wind, sem hann samdi með Jim Steinman. Þegar hefur ein smáskífa með lagi úr söngleiknum, sem flutt er af Boyzone, verið efst á Maður dagsins breska vinsældalistanum í fimm vikur. Fram undan er vinna með Andrew í framhaldi hans af Phantom of the Opera og auk þess er ég bókað- ur til að leika í kvikmyndaút- gáfunni af Phantom of the Opera þar sem Ant- onio Banderas mun leika aðalhlutverkið en ég lék einmitt und- ir hjá hon- um þegar Evita var gerð. Ég vinn einnig mikið í upptökuveri og þá með fjöi- breyttum hópi tónlistarmanna. Þess má svo geta að i síðustu viku lék ég í hljómsveitinni sem lék i fimmtugs- afinæli Karls Bretaprins, spiluðum við undir hjá mörgum stórstjöm- um, meðal annars M People og Robbie Williams." Hér heima er Friðrik þekktastur fyrir að spila með Mezzoforte og sagðist hann alls ekki hættur í þeirri sveit: „Við eram ekki með neitt nýtt á prjónunum. Á næsta ári er væntanleg safnplata en við eram ekkert hættir. Þetta er eins og saumaklúbbur sem kemur alltaf saman af og til.“ Fyrir utan tónlistina er það jóga sem á hug Friðriks: „Ég stunda jóga og hugleiðslu á hverjum degi og ég þakka það þeirri iðju að mér hefur gengið vel í London. Þetta er harður heimur og það þarf mikla vinnu til að halda sér í efstu deild." -HK Menningarmiðstöðin Gerðubergi: Fyrstu kontrabassabásúnutónleikamir Kontrabassabásúnutónleikar verða haldnir í Menningarmið- stöðinni við Gerðuberg í kvöld kl. 20.30. Einleikari á tónleik- um verður David Bobroff bassabásúnuleikari í Sinfóníu- hljómsveit íslands. Á tónleik- um verða leikin verk efter Bach, Malcolm Amold, William Schmidt, Anthony Plog, Brian Fennelly, Henri Tomasi og Krysztof Penderecki. Kontrabassa- -------------- básúnan er sjaldséð hljóðfæri, einkum þó í einleikshlut- verki. Þetta er mjög stórt hljóðfæri - stendur upprétt um 180 cm. Notkun þess hef- ur aðallega verið bundin við stór óperaverk eins og Wagner- eða Richard Strauss- óperur. Nýverið hefur kontra- Tónleikar bassabásúnan einnig verið notuð í kvikmyndatónlist. Þessir tónleikar verða fyrstu kontrabassabásúnu- tónleikar á íslandi. David Bobroff er Banda- ríkjamaður og hefur leikið með Sinfóníuhljómsveit ís- lands sl. fjögur ár. Þar áður lék hann m.a. með Sinfóniu- hljómsveitinni í Tenerife á Kanaríeyjum og The Glenn ------Miller Orchestra. Þetta eru fyrstu ein- leikstónleikar Davids hérlendis. Einnig koma fram á tónleikunum Judith Þorbergsson píanó- leikari, básúnuleikaramir Sigurður Sveinn Þorbergs- son, Oddur Bjömsson og Ed- ward Frederiksen ásamt Blásarakvintett Reykjavíkur. Myndgátan Gengur ur greipum Myndgátan hér að ofan lýsir orðtaki. Leiklistarnemarnir sem sýna Ivanov í Lindarbæ. Ivanov Útskriftarárgangur Leiklistar- skóla íslands sýnir um þessar mundir leikritiö Ivanov eftir Ant- on Tsjekhov í leikstjórn Guðjóns Pedersens. Hefur leikritið fengið góðar viðtökur. Ivanov hefur aldrei verið settur á svið hér á landi en þetta æskuverk Tsjek- hovs fjallar á kostulegan hátt um samskipti Ivanovs við fjölskyldu sina og nágranna. Leikhús Leikarar í sýningunni eru niu, átta útskriftarnemar og einn gestaleikari, Kjartan Guðjónsson (Konur skelfa, Þjónn í súpunni, Tveir tvöfaldir). Útskriftarárgang- urinn er Jóhanna Vigdis Amar- dóttir, Nanna Kristín Magnúsdótt- ir, María Pálsdóttir, Laufey Brá Jónsdóttir, Hinrik Hoe Haralds- son, Rúnar Freyr Gíslason, Stefán Karl Stefánsson og Egill Heiðar Anton Pálsson. Nemendaleikhúsið sýnir Ivanov í Lindarbæ og er næsta sýning annað kvöld kl. 20. Bridge í þessu spili verður norður að taka ákvörðun um áframhald strax í fyrsta slag. Austur er gjafari og n- s á hættu: 4 105 *> ÁG983 -f D107 * KG4 ♦ KG732 W D752 65 * Á7 N * D64 •» K64 •f Á984 * D108 4 A98 •f 10 ♦ KG32 4 96532 Norður dobl Austur Suður Vestur 1 grand pass 2 * 2 4 p/h Spilið kom fyrir í Póllandstvi- menningi Bridgefélags Reykjavíkur síðastliðinn miðvikudag. Grandopn- un austurs sýndi 11-13 punkta og tvö hjörtu vesturs var yfirfærsla í spaða. Dobl norðurs sýndi hjartalit og tveir spaðar austurs lofuðu a.m.k. 3 spöðum. Suður spilaði eðli- lega út einspili sínu í hjarta og sagnhafi setti lítið spil í blindum. Noröur verður að taka ákvörðun strax um hvort félagi á einspil eða tvíspil. Ef hann á tvíspil má alls ekki drepa á ásinn og spila aftur hjarta. Ef suður á hins vegar einspil getur verið að það kosti ekki slag að setja lítið spil. Norðri er því vor- kunn að sefja lítið spil en hefur þar með gefið sagnhafa tækifæri á 9 slögum. Austur drepur heima á kóng, spilar laufi á ásinn og laufi úr blindum. Norður verður að drepa á kóng og nú dugar lítt aö gefa hjartastunguna. Tíguldrottn- ingu er spilað, austur drepur á ás, hendir tígli niður í laufdrottningu og trompar tígul í blindum. Þá er spaðakóng spilað, suður drepur á ásinn og spilar áfram spaða. Sagn- hafi fær slaginn heima á drottn- ingu, trompar tigul, tekur siðasta trompið með spaðagosa og spilar lágu hjarta. Norður tekur slaginn en er um leið endaspilaður því hann á ekkert eftir nema hjarta. Hann verður að gefa blindum níunda slag- inn á hjartadrottningu. ísak Öm Sigiu'ðsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.