Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1999, Qupperneq 1
Opel Vectra náði strax góðri fót-
festu á markaði í Evrópu þegar fyrsta
kynslóðin leit dagsins ljós á árinu
1988 og enn betur þegar önnur kyn-
slóðin kom fram í dagsljósið á árinu
1995. Stationgerð nýja bílsins kom á
markað haustið 1996 og náði strax
góðri sölu eða sem svaraði 31% mark-
aðarins í sínum flokki í Þýskalandi.
1997 var bætt við nýrri gerð dísilvélar
með beinni innsprautun eldsneytis.
En enn er hægt að gera gott betra
að mati Opel því í liðinni viku kynntu
verksmiðjurnar endurþætta gerð Opel
Vectra fyrir blaðamönnum í Portúgal
og þar gafst gott tækifæri til reynslu-
aksturs, jafnt á hraðbrautum og krók-
óttum og ósléttum sveitavegum.
Þrátt fyrir að breytingarnar séu
ekki miklar í útliti er þetta töluverð
breyting á bílnum því af þeim 8.000
hlutum sem fara til smíðinnar var
3.000 breytt eða sem svarar 37 af
hundraði ef horft er til bílsins í heild.
Við skoðum þessa nýju gerð nánar
í blaðinu í dag.
Bls. 30
Hnökralaust inn í nýja öld
Á heimasíðu Peugeot má lesa þau huggunarorð að þeir
sem eiga 20 ára gamlan Peugeot eða eldri geti ekið
hnökralaust inn í nýja öld. PSA-samsteypan (Peugeot-
Citroen) hefur síðastliðin tvö ár tekið þátt í víðtæku sam-
starfi bííaframleiöenda og framleiöenda bílhluta í að
kanna hvort eitthvað í rafeindabúnaði bílanna sé með
þess háttar keng að eitthvað komi fyrir i þessum búnaði
á nýársnótt næstkomandi.
-SHH
Peugeot með beina strokkinnsprautun
PSA-samsteypan franska (Peugeot-
Citroén) og Mitsubishi Motors Cor-
poration hafa gert með sér samkomulag
sem gerir PSA kleift að hanna vélar með
beinni strokkinnsprautun (Direct Inject-
ion System) sem MMC kynnti á markað-
inn fyrir tæpum tveimur árum. Þessi að-
ferð sparar eldsneyti og nýtir það betur
sem hvort tveggja þýðir minni mengun.
Þessi samningur er í samræmi við þá
stefnu PSA að efna til samvinnu við aðra
bílaframleiðendur. Þannig hefur náið
samstarf verið tekið upp við Renault um
þróun og framleiðslu á vélum, gírköss-
um og drifum, við Fiat um framleiðslu
sendibíla og fjölnotabíla og Ford um
framleiðslu nýrrar kynslóðar lítilla dísil-
véla. Heimild: PSA press
Virðingarleysi
í umferðinni
Þegar einstaklingur fær öku-
réttindi þá tekur viðkomandi á
sig ákveðnar skyldur gagnvart
okkur hinum í umferðinni. Eitt
af því er að sýna fulla aðgát við
aksturinn, hafa fulla stjórn á
ökutækinu og aka miðað við að-
stæður.
En það vill bera allt of oft við
að sjá einstaklinga sem sýna víta-
vert virðingarleysi gagnvart um-
ferðinni og valda sjálfum sér og
öðrum hættu. Tökum lítið dæmi:
í vikunni hafa akstursaðstæð-
ur á höfuðborgarsvæðinu ekki
verið sem bestar. í lok vinnudags
einn daginn mátti sjá sjón á
Miklubrautinni sem aldrei ætti
að sjást, en þar var á ferð nokkuð
nýlegur ljósleitur þýskur eðal-
vagn sem ók nokkuð skrykkjótt,
nánast ljóslaus að aftan, væntan-
lega vegna þess að hann hafði
orðið fyrir einhverjum skakka-
follum. Þegar nær dró að bílnum
mátti sjá ástæðu þessa skrykkj-
ótta ökulags, þvi það sást nánast
ekkert út um framrúðuna,
þurrkublaðið hrærði bara í
óhreinindunum sem bárust frá
hinum bílnum. Þegar enn betur
var að gáö þá var önnur hendin á
ökumanninum föst við eyraö
með farsíma og það var ekki
laust við það að það vekti ónota-
tiifinningu að sjá að hin höndin
hélt á sígarettu sem ökumaður-
inn var aö reykja. Hver ók bíln-
um?
Það eru atvik eins og þetta sem
vekja upp vangaveltur um skorð-
ur við notkun farsíma í akstri og
reykingar undir stýri, því það
eitt að sjá ekki út um framrúð-
una var eitt sér nægileg ástæða
til að skapa hættu i umferöinni
þótt þessu tvennu væri ekki bætt
viö.
-JR
VW Golf Comfortline, árgerð
1998 ekinn 7.000. km, grár, 5
dyra, 5 gíra, álfelgur, vindskeið,
skyggð Ijós, verð 1.690.000.
/Toyota Landcruiser LX dísil Turbo,
iárgerð 1998, ekinn 17.000., blár/grár,
Ibsk., 5 dyra, álfelgur, tvílitur,
dráttarkrókur, toppgrind,
MMC Lancer, árgerð 1992, ekinn
,93.000., grár, 5 dyra, bsk.,
verð 670.000.
m. a
MMC Lancer GLX, árgerð 1993,
ekinn 67.000., grár, 4 dyra, bsk.,
, verð 760.000.
VW Passat 1,6 Comfortline,
árgerð 1997, ekinn 39.000. km,
grár, 5 gíra, 5 dyra, vetrárpakki,
verð 1.510.000.
verð 2.950.000.
Toyota Avensis, árgerð 1998 ekim
: 23.000,, silfur, bsk., geislaspilari,
verð 1.570.000.
Mazda 323 F GTI, árgerð 1992,
ekinn 185.000., svartur, 5 dyra, 5
gíra, ásett verð 550.000.
r ........-w-
í
.Daihatsu Sirion, árgerð 1998, ekinn
5.000., silfurl., 5 dyra, bsk.,
verð 1.050.000.
Toyota Corolla 1300 XL,
árgerð 1996 ekinn 57.000. km.,
blágrænn, 3 dyra, 5 gíra,
verð 1.020.000.
'olvo 460 GLE, árgerð 1994, ekinn
1.000., grænn, ssk., 4 dyra,
erð 1.100.000.
VW Golf GL, árgerð 1996, ekinn
31.000., grænn, 5 dyra, bsk.,
verð 1.100.000.
Honda Civic Lsi árgerð 92, ekinn
í 90.000., vínrauður, 4 dyra, ssk.,
verð 780.000.
Audi A6, árgerð 1996 ekinn
42.000.., 4 dyra, ssk., grár,
álfelgur, fallegur bfll,
verð 2.600.000.
Hyundai Accent, árgerð 1998, ekinn
22.000., grár, 3 dyra, bsk.,
verð 990.000.
Subaru Legacy wagon 4x4,
árgerð 1996, ekinn 76.000., 5
dyra, ssk., verð 1.650.000.
Opel Astra GL, árgerð 1995, ekinrj
81.000., blágrænn, 5 dyra, 5 gíra,
verð 810.000.
MMC Lancer sedan, árgerð
1997, ekinn 21.000., grár, ssk.,
álfelgur, 4 dyra, verð
1.290.000.
MMC L-200 double cab dísil 4x4,
árgerð 1992, ekinn 141.000., 4 dyra,
' isk., verð 940.000.
VW Polo 1,4, árgerð 1996, ekinn
53.000., grænn, 2 dyra, ssk.,
verð 890.000.
MMC Pajero 3000 SW árgerð 1997,
ekinn 29, blár/silfur, 5 dyra, ssk.,
verð 3.300.000.
onda Accord EX, árgerð 1991,
ikinn 68.000., grár, 4 dyra, ssk.,
verð 710.000.
BÍLAÞI
Opið:
mánud.- föstud., kl. 9-18,
laugardaga kl. 12-16.
LAUGAVEGI 174 • SIMI 569 5660 • FAX 569 5662