Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1999, Side 1
MÁNUDAGUR 8. FEBRÚAR 1999
Martin O’Neill um Arnar:
„Bestur ef hann
heföi leikið á tvo“
Amar Gunnlaugsson lék sinn fyrsta leik með Leicester í ensku A-deildinni
í knattspymu á laugardaginn en hann gekk frá samningi við félagið til hálfs
flórða árs fyrir hádegið á fostudag.
Leicester tapaði heima, 0-2, fyrir Sheffield Wednesday og Arnar kom inn á
sem varamaður á 56. mínútu.
Martin O’NeilI sagði þetta um frammistöðu Arnars á blaðamannafundi eft-
ir leikinn:
„Amar sýndi að hann kann ýmislegt fyrir sér en hann var að koma beint i
nýtt umhverfi hjá okkur. Hann var í lagi en í svona lélegum leik hefði hann
verið bestur ef hann hefði náð að leika á tvo mótherja.“
Sjá nánar á bls. 26. -VS
Fjórfaldur sigur
Austurríkismanna
Austurríkismenn unnú 1 gærkvöldi flör-
faldan sigur í bruni kvenna á heimsmeist-
aramótinu á skíðum sem nú stendur yfir
í Colorado. Hin 23 ára gamla Renata
Götschi varð hlutskörpust, Michaela
Dorfmeister hafiiaði í öðm sæti,
Stefanie Schuster lenti í þriðja sæt-
inu og Alexandra Meissnitzer varð
fjórða.
Þetta voru þriðju verðlaun
Götschl á mótinu og hún fékk
silfur bæði í risasviginu og tví-
keppninni.
-GH
Teitur Örlygsson
fagnar langþráðum
sigri Njarðvíkinga í
bikarkeppninni í
körfuknattleik en þeir
lögðu Keflvíkinga í
ótrúlega spennandi
úrslitaleik á
laugardaginn.
DV-mynd Hilmar Þór
Bls. 24—25
Þórey
enn á
uppleið
Þórey Edda Elísdóttir sigraði í stangar-
stökki á frjálsíþróttamóti í Gautaborg á
laugardagskvöldið. Hún bætti enn árangur
sinn innanhúss, stökk 4,20 metra, en á dög-
unum fór hún yfir 4,14 metra í fyrsta
skipti inni.
Vala Flosadóttir tók einnig þátt í mótinu
en náði sér ekki á strik. Hún fór yfir byrj-
unarhæðina, 3,84 metra, en síðan ekki sög-
una meir.
Birna Bjömsdóttir úr FH náði sínum
besta tíma innanhúss í 800 metra hlaupi á
sama móti. Hún hljóp á 2:10,11 mínútum
en met Lilju Guðmundsdóttur er 2:09,7
mínútur. -VS
Júgóslavi
í Grindavík
Að sögn Jónasar Þórhallssonar, stjórn-
armanns hjá knattspymudeild Grindvík-
inga, era nú miklar líkur á að Dragan
Stojanovic, 26 ára vinnsluhestur á miðj-
unni, komi til liðs við Grindavík í sum-
ar, auk þess sem vörnin verður styrkt
með erlendum leikmanni. „Við erum
bjartsýnir fyrir sumarið og ætlum okkur
ekki að vera í neinni fallbaráttu, þvert á
móti stefnum við hátt og teljum okkur
verða með gott lið í sumar,“ sagði Jónas
Þórhallsson við DV. -bb
Freyr tólfti
Freyr Bragason hafnaði í 12. sæti í einstak-
lingskeppni karla á Norðurlandamótinu í keilu
sem lauk í Kaupmannahöfii á laugardag.
Hann var sá eini íslensku keppand-
anna sem komst í 16-manna úrslit og
var skammt frá því að komast í úr-
slit átta bestu. Tomas Leandersson
frá Svíþjóð varð Norðurlandameist-
ari í karlaflokki og Kamilla Kjeldsen
frá Danmörku í kvennaflokki. Danir
vora sigursælastir, fengu þrenn gull-
verðlaun á mótinu. -VS
Lottó:
7 30 32 34 35 B: 19
Enski boltinn:
111 222 2x2 2x21
Gu&björg Noröfjörö, fyrirliði KR, og Hanna Kjartans-
dóttir fagna stórsigri á ÍS í bikarkeppni kvenna f
körfubolta á laugardaginn. Sjá bls. 24.
DV-mynd Hilmar Þór
Jón fjóröi
í Tallinn
Jón Arnar Magnússon varð fjórði á boðsmóti
Erki Nool í sjöþraut sem fram fór í Tallinn um helg-
ina. Jón fékk 5.986 stig og var nokkuð frá íslands-
meti sínu sem er 6.170 stig.
Erki Nool vann sjálfur mótið og fékk 6.309 stig.
Næstur kom Roman Sebrle frá Tékklandi með 6.209
stig og þriðji varð Rússinn Lev Lobodin með 6.182
stig.
Jón hljóp 60 metra á 6,95 sekúndum, stökk 7,30
metra í langstökki, kastaði kúlu 15,90 metra, stökk
1,98 metra í hástökki, hljóp 60 metra grindahlaup á
8,21 sekúndum, stökk 4,75 metra í stangarstökki og
hljóp 1.000 metra á 2:46,17 mínútum. -VS
Friðrik Ingi Rúnarsson, þjálfari bikarmeistara Njarðvíkur:
Stolt u r
„Eg get ekki verið annað en
stoltur af mínum mönnum. Við
vissum að við ættum mikið
inni og það var ekki um annað
að ræða en að mæta topp-
stemmdir i þennan leik enda
Keflavík með mjög gott lið og
frábæran útlending," sagði
Friðrik Ingi Rúnarsson, þjálf-
ari nýkrýndra bikarmeistara
Njarðvíkinga, viö DV eftir leik-
inn.
„Við undirbjuggum okkur
mjög vel og fóram í naflaskoð-
un eftir tapleikinn gegn KR.
Það er stundum hollt að tapa
og tapið gegn KR gerði okkur
bara gott. Við byrjuðum leik-
inn mjög vel en misstum þá svo
fram úr okkur þegar 6 mínútur
voru eftir. Staðan var orðin
ansi svört en maður verður
samt alltaf að lifa í voninni. Ég
merkti það á Keflvíkingunum
að þeir vora orðnir mjög væra-
kærir á lokakaflanum og auð-
vitað nýttum við okkur það.
Þegar þeir svo brenndu af vít-
unum áttum við bullandi
möguleika á að jafna. Það var
auðvitað eðlilegt að Teitur
reyndi skotið en það var fer-
lega sætt þegar Hermann tók
það siðara og setti boltann nið-
ur. Fyrst við náðum aö knýja
fram framlenginguna kom ekki
til greina annað en að vinna
leikinn og við gáfum allt okkar
þessar síöustu 5 mínútur. Við
náðum höggi á þá strax og ég
var í raun aldrei efins um
hvernig færi enda höfðum við
pínulítið meira vilja en þeir.
Keflvíkingar era með mjög gott
liö. Þeir hafa spilað langbest í
deildinni en í dag vorum við
betra liðið,“ sagði Fi'iðrik.
-GH