Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1999, Page 3
MÁNUDAGUR 8. FEBRÚAR 1999
23
I>V \ /
1. deild kvenna í handknattleik:
Stjarnan ein efst
- eftir sigur á Gróttu/KR - Haukar, FH og Víkingur unnu
Stjaman náði tveggja stiga for-
ystu í 1. deild kvenna á laugardag-
inn með því að sigra Gróttu/KR,
24-22, í Garðabæ. Staðan í hálíleik
var 13-10 Stjörnunni í hag.
Mörk Stjörnunnar: Ragnheiöur
Stephensen 9, Nína K. Bjömsdóttir 6,
Inga Fríöa Tryggvadóttir 3, Inga S. Björg-
vinsdóttir 2, Hrund Grétarsdóttir 2, Guö-
ný Gunnsteinsdóttir 2.
Mörk Gróttu/KR: Helga Sólveig
Ormsdóttir 8, Kristín Þóröardóttir 3, Eva
B. HLöðversdóttir 3, Ágústa Björnsdóttir
3, Brynja Jónsdóttir 2, Edda Hrönn Krist-
insdóttir 1, Anna G. Steinsen 1, Katrín S.
Jónasdóttir 1.
Axel á réttri leið með ÍR
ÍR sækir sig stöðugt undir stjóm
gömlu handboltastjörnunnar Axels
Axelssonar. ÍR hékk allan tímEmn í
Haukunum á laugardaginn en tap-
aði, 19-24, eftir 9-13 í hálfleik.
Mörk ÍR: Elin Sveinsdóttir 9, Ingi-
björg Jóhannsdóttir 9, Anna Margrét Sig-
urðardóttir 1.
Mörk Hauka: Harpa Melsted 6, Hekla
Daöadóttir 5, Tinna B. Halldórsdóttir 5,
Hanna G. Stefánsdóttir 4, Berglind Sig-
urðardóttir 2, Eva H. Loftsdóttir 1, Ragn-
heiður Berg 1.
FH sigur í Eyjum
FH-ingar gerðu góða ferð til Eyja
og sigruðu heimastúlkur í spenn-
andi leik, 20-22, eftir að ÍBV hafði
leitt í háifleik, 8-7. FH og ÍBV berj-
ast um 6. sætið í deildinni og eftir
sigurinn í Eyjum er FH með þriggja
stiga forskot á ÍBV.
Mörk ÍBV: Amela Hegic 7, Elísa Sig-
urðardóttir 5, Ingibjörg Jónsdóttir 4,
Guðbjörg Guðmannsdóttir 3, Hind Hann-
esdóttir 1.
Varin skot: Lukrecija Bokan 10.
Brottvlsanir: 0 mínútur.
Mörk FH: Drifa Skúladóttir 4, Dagný
Skúladóttir 4, Þórdis Brynjólfsdóttir 3,
Guðrún Hólmgeirsdóttir 3, Björk Ægis-
dóttir 3, Hafdís Hinriksdóttir 3/1, Hildur
Pálsdóttir 1, Hildur Erlingsdóttir 1.
Varin skot: Jolanta Slapikiene 15
Brottvísanir: 4 mínútur.
ÞÝSKALAND
B.Schwartau-Gummersbach 32-24
Schwenk 8, Farkas 6, Sigurður
Bjamason 1 - Beers 8, Yoon 7.
Essen-Eisenach .........28-19
Krebietke 8, Kallman 6 - Schlager 6,
Just 3, Róbert Duranona 2/2.
Dutenhofen-Schutterwald . . 27-20
Baur 8/3, Radoncic 6 - Schilling 5/2.
Flensburg 18 13 3 2 511-413 29
Lemgo 18 14 0 4 459-397 28
Kiel 18 12 1 5 492-406 25
Essen 20 10 2 8 479-465 22
Nettelstedt 19 10 2 7 458-476 22
Grosswallst. 19 10 1 8 501-476 21
Minden 19 9 2 8 458-459 20
Magdeburg 18 8 3 7 452-419 19
Niederw. 18 8 2 8 443-447 18
Wuppertal 20 8 1 11 466-505 17
Frankfurt 20 6 4 10 469-490 16
Eisenach 19 8 0 11 427-470 16
Gummersb. 19 7 2 10 469-521 16
B. Schwartau 20 7 0 13 465-482 14
Dutenhofen 20 6 1 13 448-471 13
Schutterw. 19 4 0 15 414-514 8
íslendingarnir höfðu hægt um sig
um helgina. Siguröur Bjarnason lét
sér nægja eitt mark i stórsigri Bad
Schwartau og Róbert Duranona
skoraði bara úr vítaköstum fyrir
Eisenach sem steinlá fyrir Essen.
Páll Þórólfsson var ekki á meðal
markaskorara Essen. Önnur íslend-
ingalið áttu frí.
Evrópumeistarar Kiel féllu út i átta
liða úrslitum Evrópukeppni meist-
araliða þrátt fyrir sigur gegn
Portland á Spáni, 26-27. Portland
hafði sigrað í Kiel, 21-24. Nicolai
Jacobsen skoraði 8 mörk fyrir Kiel í
leiknum.
-VS
Varnarveggur Víkinga er ekki árennilegur þegar Alla Gokozian, rússneska skyttan hjá Val, freistar þess að skora í lok
fyrri hálfleiks. Enda tókst það ekki og Víkingur stóð síðan uppi sem sigurvegari. DV-mynd Hilmar Þór
Víkingur upp fyrir Val
Víkingsstúlkur unnu Val á Hlíð-
arenda á laugardaginn og höfðu þar
með sætaskipti í deildinni. I fyrri
hálfleik sáust góð tilþrif á báða bóga
en Víkingar áttu góðan endasprett í
fyrri hálfleiknum og leiddu 8-10 í
hálfleik.
Víkingstúlkur komu ákveðnar til
leiks í seinni hálfleik og náðu um
miðjan hálíleikinn fjögurra marka
forskoti, 14—18, fyrst og fremst fyrir
góðan leik liðsheildarinnar.
Inga Lára stóð upp úr mjög jöfnu
liði gestanna. Hjá Val stóð Gerður
Beta einna best í leiknum en rúss-
neska skyttan Alla Gokozian náði
sér ekki á strik og munar um
minna.
Mörk Vals: Gerður Beta Jóhannsdótt-
ir 9, Alla Gokorian 6, Þóra Helgadóttir 2,
Sigurlaug Rúnarsdóttir 1, Anna Halldórs-
dóttir 1, Sonja Jónsdóttir 1,
Mörk Víkings: Inga Lára Þórisdóttir
6, Svava Sigurðardóttir 4, Kristín Guð-
mundsdóttir 4, Anna K. Árnadóttir 4,
Guðmunda Ósk Kristjánsdóttir 3,
Heiðrún Guðmundsdóttir 2.
-ÞoGu/BB/GH/VS
Góð staða Þórs
DV, Akureyri:
Þór stendur vel að vígi á toppi 2. deildar í handbolta
eftir sigur í toppslag gegn Fylki, 20-19, á Akureyri á
fóstudagskvöldið.
Þórsarar voru 13-6 yfir í hálfleik en Fylkismenn komu
sterkir til síðari hálfleiks og minnkuðu muninn í eitt
mark áður en yfir lauk. Með sigrinum færðust Þórsarar
nær 1. deildinni en þeir eiga þó eftir tvo erfiða leiki, við
Viking heima og Fylki úti.
Skemmtilegt var að sjá hve margir áhorfendur mættu
á leikinn og myndaðist skemmtileg stemning í Höllinni.
Maður leiksins var Flóki Ólafsson, markvörður Þórs.
Mörk Þórs: Atli Samúelsson 7/1, Páll Glslason 4, Samúel
Árnason 3, Atli Rúnarsson 2, Heimir Haraldsson 2, Þorvaldur
Sigurðsson 1, Geir Aðalsteinsson 1. Varin skot: Flóki Ólafsson 20,
Björn Bjömsson 2/1.
Mörk Fylkis: Júlíus Sigurjónsson 4, Ingólfur Jóhannesson 4,
Bimitrijevic Bravislav 3/1, Davíð S. Þorláksson 2/2, Einar Krög-
es 2, Ágúst Örn Guðmundsson 2, Ævar Örn Magnússon 1, Sverr-
ir Þór Sverrisson 1. Varin skot: Ray Gutierrez 9/1, Magnús Stef-
ánsson 8/1. -JJ
Auðunn með met
Auðunn Jónsson bætti um helgina sex ára gamalt
íslandsmet Guðna Sigurjónssonar í réttstöðulyftu
um hálft kiló. Auðunn lyfti þrjú hundruð sjötíu og
einu og hálfu kílói á móti á Suðurnesjum. -VS
Ólafur varð fimmti
Ólafur Guðmundsson hafnaði í fimmta sæti á
sænska meistaramótinu í sjöþraut sem lauk í Karl-
stad í gær. Hann fékk 5.484 stig. Bjami Þór Trausta-
son hafnaði í níunda sæti með 5.036 stig. Tom Erik
Olsen frá Noregi sigraði með 5.897 stig. -VS
Magdeburg áfram
Ólafur Stefánsson og félagar í Magdeburg komust
í gær í undanúrslit EHF-bikarsins í handknattleik
með því að vinna Brodemerkur Split, 14-19, í Króa-
tíu. Magdeburg hafði unnið heimaleikinn, 26-20.
Ólafur skoraði þrjú mörk í leiknum. -GH/VS
Rúnar var öflugur
- þegar Göppingen skellti öðru toppliði, nú Willstátt
Rúnar Sigtryggsson og fé-
lagar í Göppingen halda
áfram að hrella toppliðin í
suðurriðli þýsku B-deildar-
innar í handknattleik. Á dög-
unum burstuðu þeir Dor-
magen og um helgina unnu
þeir góðan útisigur á efsta lið-
inu, Willstátt, 25-27. Rúnar
Rúnar Sig- var áfram í hörkuformi og
tryggsson-14 skoraði 6 mörk þrátt fyrir að
mörk í 2 ieikjum. hann væri tekinn úr umferð
lengi vel. Gústaf Bjarnason,
fyrrum félagi Rúnars hjá
Haukum, gerði eitt mcirk fyrir
Willstátt.
WiIIstátt heldur þó toppsæt-
inu því Dormagen tapaði
óvænt fyrir Östringen, 31-29,
og virðist heillum horfið eftir
skellinn í Göppingen. Héðinn
Gilsson er enn meiddur en
kom inn á eftir 18 mínútur og
bjargaði þvi sem bjargað varð
í sóknarleiknum með þvi að
skora 6 mörk. Róbert Sig-
hvatsson gerði 3 mörk fyrir
Dormagen og Daði Hafþórs-
son eitt.
Willstátt er með 42 stig og
Dormagen 40 og liðin heyja
áfram einvígi um hvort þeirra
kemst beint í A-deildina.
Næst kemur Leutershausen
með 37 stig. Göppingen er í
sjötta sæti með 30 stig. -VS
íþróttir
1. DEILD KARLA
Hamar-Stjarnan . . 79-88
Þór, Þ.-Breiðablik 100-77
Höttur-Stafholtstungur 66-73
Selfoss-ÍR 73-102
Fylkir-ÍS 61-64
Þór, Þ. 14 14 0 1285-1064 28
ÍR 14 11 3 1236-1052 22
ÍS 14 10 4 1105-1018 20
Stjarnan 14 9 5 1171-1078 18
Breiðablik 14 9 5 1236-1069 18
Hamar 14 8 6 1183-1047 16
Stafholtst. 14 4 10 970-1193 8
Fylkir 14 2 12 1062-1191 4
Selfoss 14 2 12 1076-1261 4
Höttur 14 1 13 879-1230 2
Jón Kr. Gíslason landsliösþjálfari
stýrði Fylkismönnum í fyrsta skipti i
gær. KKI lánaði Fylki Jón til að
afstýra því að félagið hætti keppni.
BLAK
1. deild karla
KA-ÍS 1-3
16-14,10-15, 14-16, 4-15.
KA-ÍS 1-3
13-15, 11-15, 15-5, 6-15.
Þróttur, R. 12 11 1 35-9 35
IS 13 8 5 31-19 31
Stjarnan 11 5 6 20-28 20
Þróttur, N. 12 4 8 17-29 17
KA 12 2 10 15-33 15
1. deild kvenna
KA-ÍS 0-3
4-15, 13-15, 13-15.
KA-ÍS 0-3
Víkingur 11 10 1 32-7 32
ÍS 13 8 5 26-18 26
Þróttur, N. 12 7 5 26-21 26
KA 12 5 7 19-25 19
Þróttur, R. 12 0 12 4-36 4
rar
%J. DEILD KVENNA
Stjarnan 15 13
Fram 15 12
Haukar 15 10
Víkingur 15 8
Valur 15 9
FH 15 6
ÍBV 15 5
Grótta/KR 15 4
KA 15 1
ÍR 15 0
1 1 427-321 27
1 2 395-332 25
2 3 351-319 22
4 3 343-317 20
1 5 333-293 19
2 7 340-306 14
1 9 335-351 11
2 9 318-335 10
0 14 258-387 2
0 15 251-390 0
*
2. DEILD KARLA
Þór, A.-Fylkir ............20-19
Völsungur-Fylkir...........21-28
Breiðablik-Víkingur.......22-28
Bjöm Hólmþórsson 6 - Hjalti Gylfa-
son 9, Hjalti P. Pálmason 5.
Þór, A. 14 11
Fylkir 13 9
Víkingur 12 8
Breiðablik 13 6
Fjölnir 14 5
Hörður 13 3
Völsungur 12 3
Ögri 13 0
2 1 369-263 24
3 1 350-253 21
3 1 335-234 19
1 6 326-310 13
2 7 334-320 12
1 9 263-334 7
1 8 246-320 7
1 12 206-395 1
Gunnar Gunnarsson og Kristján
Ágústsson léku sinn fyrsta leik á
tímabilinu með Víkingum.
ÞÍN FRÍSTUND
-OKKAR FAG
INTER
SPORT
Bíldshöföa 20 • 112 Reykjavík • 510 8020
• www.intersport.is