Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1999, Síða 5
24
IAGUR 8. FEBRÚAR 1999
25
MÁNUDAGUR 8. FEBRÚAR 1999
íþróttir
Afmælisgjöf
- KR-stúlkur bikarmeistarar eftir léttan sigur á ÍS
Friörik Ragnarsson, fyrirliöi
Njarövíkinga, hampar bik-
arnum eftir sigurinn á
Keflavík. Þetta var sjötti
bikarmeistaratitill Njarðvík-
inga og sá fyrsti í 7 ár.
Teitur aftur yfir 20
Njarðvlkingurinn Teitur
Örlygsson skoraði yfir 20
stig í fjórða bikarúi'slitaleik
sinum í röð og hefur nú
mest allra gert 181 stig í sín-
um 9 bikarúrslitaleikjum.
Teitur hefur unnið bikar-
inn sex sinnum í þessum 9
leikjum. -ÓÓJ
Hermann Hauksson var
hetja Njarðvíkinga í leiknum
en 3ja stiga karfa frá honum
á lokasekúndunum tryggði
Njarðvíkingum framleng-
ingu. Það var því engin furða
þó hann fagnaði bikarmeist-
aratitlinum vel og innilega
eins og berlega kemur fram
á þessari mynd.
DV-myndir Hilmar Þór
TTS7
segja þeun til hróss að þær
gáfust aldrei upp og börðust
vel en vöm KR neyddi þær
oft til að skjóta úr vonlaus-
um færum og því fóru
mörg skot forgörðum hjá j
þeim. Alda Leif Jóns- M
dóttir átti góðan leik í f
fyrri hálfleik en M.
hvíldi stóran hluta #
seinni hálíleiks M
vegna villuvand- nj
ræðna. í síðari M'
hálfleik léku Mlk
Signý Harðar-
dóttir og Lilya m :
Sushko best.
-HI B
5\
íþróttir
Sagt eftir leikinn:
Sa sætasti
KR-stúlkur unnu öruggan sigur á Stúdín-
um i úrslitaleik bikarkeppni kvenna í
körfuknattleik. Þar með færðu þær KR þá af-
mælisgjöf sem stefnt var að en sem kunnugt
er fagnar félagiö 100 ára afinæli sínu í ár.
Fyrirfram bjuggust menn við jöfnum og
spennandi leik því þrátt fyrir að KR hafi
haft yfirburði í deildinni í vetur höfðu
menn í huga sigur ÍS á Keflavík, bikar-
meistunun sex undanfarinna ára, í undan-
úrslitum. En strax í byrjun leiks fauk öll
spenna út í loftið. KR-stúlkur komu ákveðn-
ar og einbeittar til leiks, skomðu átta fyrstu
stigin og komust síðan í 18-3 og 26-7. Það
var fyrst og fremst hin gríðarlega
aggressíva pressuvöm KR sem Stúdínur
áttu í basli með og þær töpuðu mörgum
boltum til andstæðinganna nánast við eigin
körfu. Auk þess fór hin ísraelska Limor
Mizrachi á kostum og átti fjölda stoösend-
inga auk stiganna sem hún skoraði.
Um miðjan fyrri háifleik rönkuðu stúdín-
ur við sér og náðu að minnka muninni í tólf
stig en þetta var nánast eina ljósið sem þær
sáu í öllum leiknum. Munurinn var 18 stig
í leikhléi.
í síðari hálfleik hertu KR-stúlkur enn tak-
ið og Stúdínur sáu aldrei til sólar. Munur-
inn var 30 stig á liðunum í lokin og var það
sanngjamt miðað við gang leiksins. Pressu-
vömin hélt áfram að skila þeim stigum og
Limor hélt uppteknum hætti. Hún kórónaði
frábæran leik sinn með því að skora tvær
þriggja stiga körfur undir lok leiksins.
KR-stúlkur em vel að sigrinum komnar
og hlýtur þungu fargi að vera létt af mörg-
um þeirra enda hafa þær oft leikið til úr-
slita án þess að ná að sigra. Auk Limor lék
Hanna Kjartansdóttir mjög vel. Kristín, Sig-
rún og Guðbjörg áttu einnig góða spretti.
Stúdínur vilja sjálfsagt gleyma þessum
leik sem fyrst. Þær áttu aldrei möguleika í
leiknum og er ljóst aö þær geta mun betur
en þær sýndu í þessum leik. Það má þó
,Af mörgum titlum sem ég hef unnið
með Njarðvík er þetta sá sætasti. Við
voram mjög nálægt því að vera bún-
ir að tapa þessum leik en Keflvík-
ingamir gerðu mistök á
lokamínútunum sem við færð-
um okkur í nyt. Ég var mjög
ánægður þegar Birgir fór út
af. Hann var búinn að hitta
það vel í leiknum og þeg-
ar Kristján kom inn á
fyrir hann til að taka
vítin sagði ég við
hann: „ætlar þú að
skipta við Bigga,
mann leiksins, og
taka vítin.“ Ég
sá að Kristján
skalf á linunni
og þegar hann
misnotaði
bæðin vítin
vissi ég að
þetta var
hægt. Það
var svo
l mikið
I svekkelsi
I fyrir þá
I aðmissa
I þetta
niður
en að
sama
skapi vorum
við geggjaðir fyrir
framlenginguna og ég vissi það að
við myndum vinna. Við erum íslandsmeistarar, bik-
armeistarar og höfúm unnið
Keflavík í tveimur leikjum
af þremur svo við hljótum
að vera með besta hð lands-
ins,“ sagði Teitur Örlygs-
son.
Hentum þessu frá okkur
„Við bara hentum þessu
frá okkur og héldum að
sigurinn væri í höfn. Við
vorum kærulausir í sókn-
inni og flýttum okkur of
mikið. Þeir fengu að skora
auðveldar körfur og við
gerðum mikil mistök að
láta þá jafna. Við áttum að
vera búnir að brjóta á þeim. Þetta var okkar
klúður en auðvitað eiga Njarðvíkingar heiður
skilinn fyrir að halda sér inni í leiknum og ná
að stela þessu frá okkur í lokin,“ sagði Guðjón
Skúlason, fyrirliði Keflvíkinga.
Skipti í Njarövík til aö vinna titla
„Ég hugsaði bara ekki neitt þegar ég fékk bolt-
ann fyrir utan þriggja stiga línuna. Það var ekki
um neitt annað að ræða en að skjóta og það var
yndislegt að sjá boltann detta ofan i körfuna. Ég
get ekki neitað því að ég var orðinn mjög vonlít-
ill í lok leiksins. Friðrik þjálfari tók leikhlé og
sagði við okkur að stuðningsmenn okkar væm
famir að labba út og hann spurði hvort við vær-
um búnir að missa trú á þessu. Við vorum það
ekki eins og kom í ljós í lokin. Ég vann bikarinn
árið 1991 en þetta er samt eiginlega eini meist-
arasigurinn sem ég hef unnið á ferlinum sem
einhver lykilmaður í liði. Ég skipti yfir til Njarð-
víkur til að vinna titla. Nú er einn kominn og
við eigum annan stóran eftir," sagði Hermann
Hauksson, hetja Njarðvíkinga í leiknum.
Byrjum upp á nýtt
„Við spiluðum leiknum algjörlega út úr hönd-
unum á okkur þama í lokin. Við vorum komnir
með bikarinn nánast í hendurnar en á óskiljan-
legan hátt misstum við unna stöðu niður í jafn-
tefli. í framlengingunni vora menn enn að
svekkja sig og Njarðvíkingamir gengu á lagið.
Nú er langri sigurgöngu lokið svo við verðum
bara að byrja upp á nýtt,“ sagði Falur Harðar-
son, einn besti leikmaður Keflvíkinga í leiknum.
Loksins fagnaöi Gunnar sigri
Gunnar Þorvarðarson, formaður körfuknatt-
leiksdeildar Njarðvíkinga, var að vonum kátur í
leikslok. „Þetta var rosaleg dramatík. Þegar 16
sekúndur vora eftir sá maður að þetta var hægt.
Maður er búinn að sjá svo oft að leikimir era
ekki búnir fyrr en flautan gellur. Strákarnir
sýndu einstakan karakter. Þeir spiluðu mjög
góða vöm og þeim tókst að halda Damon niðri
í fyrri hálfleiknum. En þrátt fyrir erfiða stöðu
gáfust mínir menn aldrei upp. Þegar Hermann
jafnaði var ég sannfærður um að við hefðum
þetta. Þessi sigur gefur okkur byr undir báða
vængi og þjálfarinn er greinilega með liðið á
réttri leið. Það er búið að vera að tíunda það alls
staðar að Keflavík sé með besta liðið en það kom
í Ijós í þessum leik að við erum bestir í dag,“
sagði Gunnar Þorvarðarson," sem gat loks
fagnað sigri í bikarnum en hann tapaði fjórum
úrslitaleikjum sem leikmaður. -GH
- Njarðvík bikarmeistari eftir 7 ára hlé eftir sigur á Keflavík í framlengdum úrslitaleik
KR (41)88
ÍS (23) 58
KR stelpurnar taka sigurhringinn og fagna bikarmeistaratitlinum meö stæl.
8-0,18-3,26-7,27-15,39-19, (41-23), 52-25,
59-31, 67-35, 73-40, 76-50, 83-52, 88-58.
Stig KR: Limor Mizrachi 23, Hanna
Kjartansdóttir 16, Kristin Björk Jóns-
dóttir 12, Sigrún Skarphéðinsdóttir 10,
Linda Stefánsdóttir 9, Guöbjörg Norö-
fjörð Eliasdóttir 8, Elísa Sigríður Vil-
bergsdóttir 5, Helga Þorvaldsdóttir 3,
Maria Guðmundsdóttir 2.
Stig ÍS: Alda Leif Jónsdóttir 13,
Lilya Sushko 13, Signý Harðardóttir
8, Georgía Kristiansen 8, María B.
Leifsdóttir 6, Lovísa Guðmundsdóttir
4, Hafdís Helgadóttir 2, Hallbera
Gunnarsdóttir 2, Kristjana B. Magn-
úsdóttir 2.
Fráköst: KR 33, ÍS 24.
Vítanýting: KR 28/20, fS 20/17
Þriggja stiga skot: KR 17/8, fS 7/2.
Áhorfendur: Rúmlega 100.
Dómarar: Kristján Möller og Jón
H. Eðvaldsson. Ekki sannfærandi.
Maður leiksins: Limor
Mizrachi, KR.
Eiginmaöur Limor Mizrachi sat á
varamannabekknum hjá KR-ingum
og var duglegur að mynda sína
heittelskuðu. Hann kom einnig oft að
máli við blaðamennina og spurði
hvað hún væri komin meö mörg stig.
Hann hefur ríka ástæðu til að gleðj-
ast yfir frammistöðu hennar.
Limor Mizrachi var aðeins einu frá-
kasti frá því að ná þrefaldri tvennu.
Hún skoraöi 23 stig, gaf 10 stoðsend-
ingar, tók 9 fráköst og stal 6 boltum á
32 mínútum.
Otrúlega auðvelt
- sagði Óskar Kristjánsson, þjálfari KR
„Þetta var ótrúlega auðvelt fyrir
okkur," sagði Óskar Kristjánsson,
þjálfari KR, kampakátur eftir leik-
inn. „Það gekk allt upp sem ég lagði
upp með fyrir leikinn. Vömin er
búin að vera frábær í vetur og skil-
aði sínu vel i dag. Ég held að það
sem hafl drifið stelpumar áfram var
að þær hafa oft veriö svo nálægt þvi
að vinna þannig að það kom ekkert
annað til greina en að sigra í dag.“
Töpuöum á fyrstu 10 mín-
útunum
„Við töpuðum þessu á fyrstu 10
mínútunum. Þær náðu þá forskoti
sem þær létu aldrei af hendi og KR-
liöið er það gott lið að þegar þær ná
slíku forskoti þá tapa þær því ekki
niður. Við gáfumst þó aldrei upp og
héldum áfram að berjast en þær hittu
mun betur en við úr skotum sínum
og þá er fljótt að draga í sundur með
liðunum. Sú ísraelska [Limor
Mizrachi] var sérstaklega góð,“ sagði
ívar Ásgrímsson, þjálfari ÍS.
Auöveldara en ég átti von á
„Þetta var mun auðveldara en við
áttum von á,“ sagði Guðbjörg Norð-
fjörð Elíasdóttir, fyrirliði KR, eftir
leikinn. „Við ætluðum okkur að
vera ákveðnar strax frá byrjun og
þær komust aldrei inn í leikinn. Ég
er búin að vera héma svo oft og ég
er alveg búin að fá nóg af því að
vera í hinu hlutverkinu. Viö ákváð-
um að það þýddi ekkert að byrja aö
spila á fullu seinna í leiknum heldur
taka þetta frá byrjun. Það gekk eft-
ir,“ sagði Guðbjörg, sem var aö leika
sinn 7. bikarúrslitaleik. Fyrir þenn-
an leik hafði hún aðeins unnið einu
sinni í bikarkeppninni, með Hauk-
um 1992.
Aldrei hægt aö bóka sigur
Limor Mizrachi, besti leikmaður
KR í leiknum, var ánægð með árang-
urinn en vildi þó ekki meina að
þetta hefði verið auövelt. „í svona
leik er aldrei hægt að bóka sigur
fyrr en leikurinn hefur veriö flaut-
aður af. Það getur allt gerst. Við vor-
um yfir allan leikinn en þrátt fyrir
það verður maður að vera með fulla
einbeitingu allan tímann. Það var
það sem við lögðum upp með, við
pressuðum strax mjög vel, stálum
boltum og skoruðum auðveldar körf-
ur. Þetta gekk því mjög vel,“ sagði
Mizrachi. -HI
Það benti fátt til annars en að Kefl-
víkingar yrðu bikarmeistarar í körfu-
knattleik í úrslitaleiknum í Laugar-
dalshöllinni á laugardaginn. Þegar
rúmlega ein og hálf mínútu var til
leiksloka vora Keflvíkingar með níu
stiga forskot og í raun famir að fagna
sigri. Njarðvíkingar vora hins vegar
langt í frá af baki dottnir og tókst með
ótrúlegu harðfylgi og skynsömum
leik að jafiia áður en yfir leik og
knúðu leikinn í framlengingu þar
sem úrslitin réöust.
Hermann hetja Njarövíkinga
Eins og vænta mátti ætlaði allt um
koll að keyra í herbúðum liðsins sem
og á meðal áhangenda þess. Njarðvík-
ingar vora orönir langeygir eftir ein-
um glæsilegasta bikar sem um er
keppt hér á landi en sjö ár vora síðan
liðið hampaði honum síðast. Her-
mann Hauksson setti mark sitt held-
ur betur á leikinn með þriggja stiga
körfu sem jafnaði leikinn, 88-88, þeg-
ar tvær sekúndur lifðu á leikklukk-
unni. Hermann, sem fram að þessu
var ekki mikið áberandi, var á sama
augnabliki orðinn hetjan í liðinu.
Þessi karfa virkaði sem vítamín-
sprauta á Njarðvikinga en Keflvíking-
ar vora hins vegar alveg slegnir út af
laginu og fóra satt best að segja aldrei
í gang í framlengingunni. Lokatölur
leiksins urðu 96-102.
Góöar varnir og mikil spenna
Körfuboltalega séð var þessi leikur
fyrir margra hluta sakir góður. Varn-
ir beggja liða vora gríðarlega sterkar
mestan hluta leiksins, hittnin var að
sama skapi á köflum með ágætum og
munurinn var aldrei mikill á milli
liðanna þannig að spennan var aldrei
langt undan. Njarövíkingar komu
Keflvíkingum í opna skjöldu með
grimmum leik í byrjun og Keflvíking-
ar vissu vart sitt rjúkandi ráð. í stöð-
unni 11-3 fyrir Njarðvík sá Sigurður
Ingimundarson þann kostinn vænst-
an að taka tíma. Hcmn virtist virka
því Keflvíkingar skoraðu tíu stig í
röð og voru komnir yfir. Munurinn
var aldrei mikill eftir það í hálfleikn-
um en í leikhléi höföu Njarðvíkingar
forystu, 38-41.
Dýr víti í súginn
Um miðjan síðari hálfleik ná Kefl-
víkingar ágætu taki á leiknum og má
rekja það að mörgu leyti til brott-
hvarfs Friðriks Stefánssonar en
Friðrik Rúnarsson, þjálfari Njarðvík-
inga, varð að taka hann af velli enda
kappinn kominn með 4 villur. Þetta
veikti vömina hjá Njarðvík og Kefl-
víkingar gengu á lagið. Níu stiga for-
skot Keflvíkinga hvarf samt eins og
dögg fyrir sólu á lokasprettinum. Þeir
hjálpuðu upp á það sjálfir því vítanýt-
ingin var þeim dýrkeypt. Eitt skot
Damons geigaði og tvö frá Kristjáni.
Teitur og Birmingham
Njarðvíkingar voru hrokknir í
gang í framlengingunni og í þeim
ham stöðvar þá fátt eins og koma
reyndar berlega á daginn. Þá fóra
kappar á borð við Teit Örlygsson og
Brenton Birmingham á kostum og
þáttur þeirra félaga lagði granninn að
sigri Njarðvíkinga. Falur Harðarson
tók ekki þátt í framlengingunni því
að hann fékk sína fimmtu villu í lok
venjulegs leiktíma. Þetta var Keflvík-
ingum áfall því Falur var búinn að
eiga góðan leik og hitti vel.
Eins og áður sagði vora Teitur og
Birmingham bestir Njarðvikinga en
Friðrik Ragnarsson átti einnig góðan
leik. Friðrik Stefánsson var drjúgur í
fráköstunum meðan hans naut við.
Hann er sterkur undir körfunni en
mýktin og tæknin mættu vera betri.
Ekki má gleyma þætti Hermanns en
einungis jöfnunarkarfa hans kemur
honum á spjöld sögunnar.
Ekki fullt hús
Damon Johnson, Falur Harðarson
og Birgir Örn Birgisson vora bestir
hjá Keflvíkingum. Damon og Falur
skoruðu drjúgt og Birgir var öflugur í
vöminni. Það vakti athygli að ekki
skildi vera fullt hús í Höllinni í þess-
um leik. Á úrslitaleiknum í fyrra á
milli Grindvíkinga og ísfirðinga vora
fleiri áhorfendur þótt stór hluti
áhangenda annars liðsins þyrfti um
langan veg að fara. Stemning á leikj-
um sem þessum hefur oft verið meiri
en áhorfendur fóra heldur betur í
gang í framlengingunni. Umgjörðin
var frábær og eiga þeir sem að henni
komu þakkir skildar. -JKS
Hafnfirðingarnir í liði KR, Hanna Kjartansdóttir og
Guðbjörg Norðfjörð, hlaupa sigurhring með bikarinn.
Friðrik I. Rúnarsson tekur við hamingjuóskum frá stuðnings-
manni Njarðvíkinga. Álengdar fagnar Kristinn Einarsson.
Stuðningsmenn Njarðvíkinga tóku virkan þátt í leiknum af áhorfendapöll-
unum þar sem þeir kvöttu sína menn til dáða.
í fýlu. - Sigurður Ingimundarson
faðmaður af Friðriki Inga Rún-
arssyni, þjálfara Njarðvfkur, eftir
leikinn.
Sigurður tók
tapinu illa
Sigurður Ingimundarson,
þjálfari Keflvíkinga, tók tapi
sinna manna mjög illa ef marka
má viðbrögð hans þegar undir-
ritaður gerði tilraun til að taka
hann tali eftir leikinn.
Eftir að Keflvíkingar höfðu
veitt silfurverðlaunum sínum
viðtöku var hann beðinn að
veita DV viðtal. Sigurður gekk
hins vegar fram hjá blaðamanni
án þess að virða hann viðlits og
þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir til
að ná við hann viötali svaraði
hann engu.
Þessi framkoma Sigurðar er
vonandi einsdæmi en þess ber
að geta að tveir leikmenn liðsins
veittu góðfúslega leyfi fyrir við-
tölum strax í leikslok. -GH
Keflavík (38)96
Njarövík (41) 102
3-2, 3-11, 13-11, 15-18, 25-22, 34-34,
36-39 (38-41) 42-45, 47-53, 58-58, 67-62,
74-71,80-77, 88-79, (88-88) 88-91, 92-95,
96-97, 96-100, 96-102.
Stig Keflvíkur: Damon Johnson
37, Falur Harðarson 25, Birgir öm
Birgisson 15, Guðjón Skúlason 9,
Gunnar Einarsson 4, Hjörtur Harðar-
son 4, Fannar Ólafsson 2.
Stig Njarðvíkur: Brenton
Birmingham 26, Teitur örlygsson 24,
Friðrik Ragnarsson 18, Friðrik Stef-
ánsson 14, Hermann Hauksson 14,
Páll Kristinsson 6.
Fráköst: Keflavík 38, Njarövík 35.
Vítahittni: Keflavík 27/22, Njarð-
VÍk 26/23
3ja stiga körfur: Keflavík 30/10,
Njarðvík 26/11.
Dómarar: Leifur Garðarsson og
Kristinn Albertsson, mjög góðir.
Áhorfendur: Um 1500.
Maður leiksins: Teitur Örlygs-
son, Njarðvík.
Keflavík tapaói ifyrsta sinn í 25 leikj-
um. Njarðvikingar mörkuðu bæði upp-
haf og endi þessarar sigurgöngu. Kefla-
vík hefur tapað aðeins 5 af síðustu 33
leikjum, öllum fyrir nýkrýndum meist-
urum Njarðvíkur.
DV gaf hinn glœsilega bikar sem
keppt er um 1988 og siðan hefur Njarð-
vík lyft honum á loft í 5 af 12 skiptum,
oftast ailra félaga.
Friórik I. Rúnarsson hefur stjómað
sigurliði í bikarúrslitum í þrjú skipti
af þremur mögulegum, meö Njarðvík
1992, Grindavík 1995 og Njarðvik 1999.
Þetta var fyrsta framlenging í bik-
arúrslitaleik i 10 ár eða frá 1989. Þá
jafnaði ÍR leikinn í 71-71 en Njarövík
tryggði sér sigur, 78-77, í framleng-
ingu líkt og á laugardag.
-h