Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1999, Page 1
Viðskipta-
vefur
opnaður
- bls. 23
Nýtt
megrunar-
lyf á
markað
- bls. 19
Allt um
tölvuveirur
- bls. 20-21
tölvui tækni og vísinda
PlayStation
Hollasta rauð-
vínstegundin
fundin
Vísindamenn hafa
lengi haldið þvi
fram að regluleg
hófdrykkja rauð-
vins geti dregið úr
líkum á hjartasjúkdómum. Þetta
virðist þó einungis eiga við karl-
menn yfir fertugu og kvenfólk eft-
ir tíðahvörf.
Læknir nokkur segist
H a nú hafa fundið út ná-
'Á kvæmlega hvaða teg-
und af rauðvini sé
SJJk pfl heppilegust fyrir heil-
g brigt hjarta. Hún
■ heitir Cabernet
1 Sauvignon og sá sem
, m4 HjP heldur þessu fram
heitir dr. Jean-Paul
Broustet frá Haut Leveque-spitala
í Suður-Frakklandi. Hann heldur
því fram að í þessari tegund rauð-
víns sé hvað hæst hlutfall „góðs“
kólesteróls, en lægst hlutfall
„slæms“ kólesteróls.
Gerviauga sem
blikkar eðlilega
Læknar í Þýska-
landi hafa þróað
gerviaugnlok sem
blikkar á sama
tíma og hið heil-
brigða augnlok notandans. Gervi-
augnlok sem almennt eru notuð í
dag af fólki sem hefur misst auga
líta í flestum tilvikum óeðlilega út
vegna skorts á hreyfingu.
Þetta vanda-
mál telja lækn-
arnir sig hafa
leyst með því
að tengja gervi-
augnlokið, sem
gert er úr
gúmmíblöndu,
við pínulítinn
örmótor til að augnlokin blikki á
sama tíma. Prófanir á manni sem
hafði þurft að láta fjarlægja æxli af
andliti sínu hafa lofað góðu.
Myndbandsupptaka sem sýnd er
hægt sýnir að bæði augnlokin
blikkuðu á sama tíma.
'ílbijllJJ
ijmbÁÍÍUJsif
4
*■- : *• -; y- , *’ - • •. -Jf! ;• »» >. v :
2J2JJí2JJJj'I>)'J:JJJ
-
. jO,4
:ia ;\*s At*
•4
i >
Vísindamenn til-
kynntu fyrir
skömmu að þeim
hefði tekist með
erfðatækni að
búa til geit sem
ffamleiðir prótín sem notað er til að
hafa áhrif á blóðstorknun í mönnum.
Síðan einræktuðu þeir geitina og
bjuggu þannig til þrjár nákvæmar eft-
irmyndir af upprunalegu geitinni.
Vísindamennirnir eru frá
Massachusetts og Louisiana í
Bandaríkjunum og hafa þeir stund-
að þessar rannsóknir í nokkum
tíma. Þeir sögðu aö þrjár einræktað-
ar geitur hefðu fæðst á þeirra veg-
um síðasta haust.
I Bandaríkjunum er um þessar
mundir verið að rannsaka prótínið
sem um ræðir með það fyrir augum
að nota það til að stjórna blóð-
storknun í fólki sem gengst undir
hjartaaðgerðir.
Þetta er í fyrsta sinn sem vitað er
að geitur hafi verið einræktaðar, þó
svo vel þekkt sé að þær séu ræktað-
ar sérstaklega til að framleiða
prótín sem hægt er að nýta við með-
ferð á fólki.
Vísindamennimir segja að ein-
ræktun dýra sem breytt hefur verið
með erfðatækni geti auðveldað gíf-
urlega framleiðslu slíkra dýra. Eins
og staðan er í dag virkar erfðatækn-
in þannig að reynt er að setja
aukagen í dýrin, venjulega til þess
að fá þau til að framleiða auka-
prótín. Þetta tekst þó ekki nærri þvi
alltaf og getur því verið tímafrekt.
En þegar hægt er að einrækta dýr
sem tekist hefur að breyta með þess-
um hætti geta menn búið til heilu
hjarðimar af dýram sem hafa hinn
eftirsótta eiginleika.
Á myndinni hér að ofan má sjá
einræktuðu geitumar sem fæddust
síðastliðið haust.
J B
_ W
SHARP
ER-A150
Sjóövél
SHARP
FO -1460
Faxtæki
——
SHARP
AR-280/335
28/33 eintök á minútu
Stafrœn
VilNilNiSIA
m SHARP AL-1000 J[10 eintök á mínútu
Stafrœn VINISiSLA
Skrifstofutæki
Ljósritunarvélar, faxtæki og sjóðvélar i
BetPl tæki eru vandfundin!
Leitið nánari upplýsinga hjá sölumönnum okkar |
bræðurnirI
Lágmúla 8 • Sími 533 2800